Dagur - 03.09.1981, Síða 8

Dagur - 03.09.1981, Síða 8
RAFGEYMAR í BÍIINN, BÁTINN, VINNUVÉUNA VEUIÐ RÉTT MERKI Eining: Samþykkt að segja upp samningum Almennur félagsfundur Verka- lýðsfélagsins Einingar, sem var haldinn í Alþýðuhúsinu s.l. sunnudag samþykkti að heimila stjórn félagsins að segja upp öllum núgildandi kjarasamn- ingum félagsins fyrir 1. októ- ber. Á sama fundi var samþykkt að lýsa yfir stuðningi við ályktun Verkamannasambands íslands frá formannafundi er haldinn var 14,- 16. ágúst á Laugarvatni, svo framarlega sem samstaða tekst um kröfugerð og baráttuaðferðir til að ná kröfunum fram. Fundurinn fól trúnaðarmannaráði félagsins að kjósa undirbúningsnefnd svo íljótt sem auðið er . Nefndin á að hafa það hlutverk að gera tillögur að kröfugerð vegna samninganna. í nefndina verður skipað fólk úr öllum starfsgreinum félagsins á félagssvæðinu, segir í samþykkt- inni. Þar segir einnig að tillögurnar eigi síðan að leggja fram til afgreiðslu á almennum félagsfundi svo fljótt sem auðið er. Fundurinn samþykkti einnig að leita samstöðu og samstarfs við önnur félög VMSI og ASI um kröfur sem snúa að ríkisstjórn og löggjafarvaldi. Að lokum var samþykkt að félagið tæki þátt í byggingu félags- heimilis í miðbí&- Akureyrar í samvinnu við önnur verkalýðsfélög og aðra þá aðila, sem samkomulag getur orðið við um að réisa slj'kt hús. Fundurinn fól stjórn félagsins að ganga frá satpkomulagi—um þátttöku og eignarhlut félagsins í byggingunni. Drottningarbraut: í NOTKUN BRÁÐLEGA „Við ætlum fyrst að ganga end- anlega frá götunni áður en hún verður tekin í notkun“, sagði Guðmundur Guðlaugsson, verkfræðingur hjá Akureyrar- bæ, er hann var spurður um hvenær nyrsti hluti Drottning- arbrautar yrði tekinn í notkun. Þegar þetta birtist eru starfsmenn Rafveitu Akureyrar væntanlega farnir að setja niður ljósastaura og starfsmenn Akureyrarbæjar hafa í hyggju að ganga frá köntum áður en farið verður að aka um götuna. Guðmundur sagðist gera ráð fyrir að þessu lyki um miðjan mánuð- inn og þá geta bæjarbúar og aðrir farið að aka eftir þessari ágætu götu. Hún mun létta mjögaf Hafn- arstræti og á allan hátt greiða fyrir umferð enda bein og breið. Horft tíl suðurs eftir Drottningarbraut. „VIÐ MUNUM BERJAST - RÉTTURINN ER OKKAR MEGIN“ sagði Hjörtur Eíríksson á geysifjölmennum fundi um erfiðleika útflutningsiðnaðarins „Samciginlegur fundur Iðju. félags vcrksmiðjufólks á Akur- eyri, Starfsmannafclags verk- smiðja S.Í.S. og Iðnaðardeildar Sambandsins, haldinn á Akureyri 1. september 1981, lýsir áhyggj- um sínum yfir þeirri hríkalegu þróun, sem orðið hefúr síðustu mánuði á rekstrarskilyrðum út- flutningsiðnaðar en þau eru um 10% lakari en í upphafi árs. Fundurinn bcndir á að þessi þróun hefur óhjákvæmilcga í for með sér verulegan samdrátt í rekstri og atvinnu innan mjög skamms tíma ef ekkert verður að gertánæstu vikum. Áratugastarf til að draga úr einhæfni íslensks atvinnulífs getur orðið að engu ef iöfnuði verður ekki komið á milli atvinnugreina hið allra fyrsta. Fundurinn skorar því á stjórn- völd að sjá til þess að bæði út- fiutnings- og samkeppnisiðnaði verði tryggður viðunandi rekstr- argrundvöllur“. Þetta er samþykkt sem gerö var einróma á geysi fjölmennum fundi sem boðað var til í fyrra- dag. Fundarboðendur voru Iðja, Starfsmannafélag Sambands- verksmiðjanna á Akureyri og Iðnaðardeild Sambandsins og umræðúefnið var hin erfiða fjár- hagsstaða fyrirtækisins um þcssar mundir. Um 650 manns sóttu fundinn auk bæjarstjórnarmanna og alþingismanna kjördæmisins. Það kom skýrt fram í máli Hjartar Eiríkssonar fram- kvæmdastjóra Iðnaðardeildar Sambandsins á fundinum, að ef ekki koma til úrbætur hins opinbera alveg á næstunni, þá blasir ekkert annað við en sam- dráttur og stórfeilt atvinnulcysi með öllum þeim hörmungum sem slíkt myndi valda. Hjörtur rakti síðan og sýndi á tjaldi hvemig verðbólga og gengisþró- un á árinu hefur leikið rekstur Iðnaðardeildarinnar og kom þar glöggt fram að um stórfelldan taprekstur er að ræða. Staðan er verst í ullar- og skinnaiðnaðinum og sannkallað hættuástand fram- undan ef ekki koma til skjótar að- gerðir til úrbóta. Hjörtur ræddi síðan vítt og breitt um málið og svaraði fyrir- spumum, en lokaorð hans voru: ,,Við munum berjast, við vitum að rétturinn er okkar megin.“ Flugstöð á Húsavík: „Nánast bylting“ - segir Egill Olgeirsson Næstkomandi þriðjudag verða opnuð tilboð í botnplötu og jarðvinnu vegna nýrrar flug- stöðvarbyggingar á Aðaldals- flugvelli. Á fjórlögum þessa árs er gert ráð fyrir að 500 þúsund krónum verði varið til fram- kvæmda á fiugvellinum. Vonir standa til að kraftur verði settur í framkvæmdir næsta ár og að það takist þá að Ijúka við bygginguna. „Það er ekki fjarri lagi að segja að þetta hús sé nánast bylting í flugvallarmálum okkar Húsvíkinga og næstu nágranna“, sagði Egill Olgeirsson, bæjarráðsmaður á Blönduósbúar geta síður en svo kvartað undan atvinnuleysi en það sýnir best könnun, sem fréttaritari Dags á Blönduósi, Stefán Hafsteinsson, gerði fyrr í vikunni. í Ijós kom að um 40 manns vantar til starfa í slátur- húsinu, 4 vantar í kjötvinnslu S.A.H., 2 starfsmenn á skrif- stofu Kaupfélags Húnvetninga, vélsmiðjan getur hæglega bætt við 3 mönnum í bifreiðavið- gerðir og málmiðnaðargreinar, Pólarprjón vantar 15 manns og Hótel Blönduós vantar 4 starfs- menn til ýmissa starfa. Einnig vantar kennara sem getur kennt Húsavík I samtali við Dag. „Þetta verður fallegt hús og í því góð aðstaða fyrir farþega og starfsfólk. Undanfarin ár höfum við notast við ófullkomin skúr, sem er í alla staði ákaflega lélegur, enda hefur mikið verið kvartað undan honum“. Nýja flugstöðin verður svipuð þeirri sem byggð var í Vestmanna- eyjum á s.l. ári. Hér er um að ræða 580 m2 hús með turni. Flugstöðin verður um 500 metrum austar en gamli skúrinn. Hún er teiknuð af þeim Gísla Halldórssyni og Jósep Reynis, en það er Tækniþjónustan s.f. á Húsavík sem sér um útboð og verður síðar með eftirlit með byggingarframkvæmdum. raungreinar og bakaríið getur bætt við sig 3 starfsmönnum. Samtals er þetta rösklega 70 manns. Eyþór Elíason, sveitarstjóri á Blönduósi, sagði að mikill skortur á húsnæði hefði oft komið í veg fyrir að fólk gæti flutt til Blönduóss. Sumarið 1980 var líkalítið byggt og á það sinn þátt í húsnæðisskorti um þessar mundir. „Ég held að þetta húsnæðisleysi standi sveitarfélög- um oft fyrir þrifum. Ef það er upp- gangur fylgir í kjölfarið skortur á húsnæði." Stjórn verkamannabústaða hefur lagt til að hafm verði bygging 12 íbúða • Gagnrýni á dag- skrá útvarps og sjónvarps Það er vart hægt að fletta sunnanblöðunum svo að ekki sé einhver að kvarta undan dagskrá rikisfjölmiðlanna, út- varps og sjónvarps. Á því sviði virðast allflestir vera sérfræð- ingar og til undantekninga heyrist ef umræddum stofnun- um er hrósað. Nú síðast mótmæltu nokkrir einstak- lingar útvarpssögu og tjáðu landslýð að sagan væri sið- spillandi og ættu útvarpsmenn að skammast sín fyrir hana. Sagan sú ama mun e.Lv. vera bororðari en gengur og gerist með miðdegissögur, en tæp- lega eins slæm og sum þau blöð sem gagnrýnendumir kaupa á síðkvökfum í sjopp- ugötum. Sjálfskipaðir siðgæð- isverðir hafa alltaf verið til, en þegar þeir nota stóryrði og fara niðrandi orðum um náungann veikir það óneitan- lega málstað þeirra. • Blöðin mættu standa sig betur Smátt og stórt minnist þess að dagblöðin hafi í langan tíma haldið reglulega úti fjölmiðla- gagnrýni sem mark er takandi á. Lesendabréf geta aldrei gegnt þvi hlutverki né heidur umsagnir starfsmanna dag- blaðs í Reykjavík, en þær um- sagnir hefjast gjaman á orðun- um „í gærkvökli neyddist ég til að hlusta á útvarpið". Þau blöð sem á annað borð eru að fjaila um útvarp og sjónvarp ættu að gera það á málefnalegan hátt. Annað sæmir ekki. • Hannmálaði fyrir15árum segir í auglýsingu í sjón- varpinu. Þessi auglýsing, sem er frá þekktri málningaverk- smiðju, er svolrtið sérstök fyrir þá sök, að maðurinn sem á að hafa málað húsið sitt fyrir 15 árum er vart meira en rúmlega 30 ára gamall. Samkvæmt því hefur hann verið búinn að koma þaki fyrir höfuð á sér og sínum (einbýlishúsi) þegar hann var 15 til 16 ára. Það er ekki að spyrja að kraftinum i Sunnlendingum. • Blauttbréf Á föstudagsmorguninn kom bæjarbúi á ritstjórn Dags meö heidur óhrjálegt timarit. Sama morgun hafði póstburðarmað- ur komið með tímaritið heim til bæjarbúans og varð móttak- andinn lítt hrifinn enda var um- slagið blautt og tímaritið ónýtt - kápan laus og síður krump- aðar. Á það skal enginn dómur lagður hvort umslagið hafi blotnað eftir að póstmaðurinn tók við þvi eða hvort bleytan hafí komist i það annars staðar. Það sem máli skiptir er að tima- ritið varð ónýtt og sagði bæjar- búinn að hann væri tilneyddur að kaupa annað rit þar sem hann safnaði umræddu tíma- riti. Sem betur fer mun það vera fátitt að vatn komist að pósti. Tugi vantar til ýmissa starfa: Ekkert húsnæði

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.