Dagur - 08.09.1981, Síða 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIODIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
I SIGTRYGGUR & PÉTUR
' AKUREYRI
64. árgangur Akureyri, þriðjudagur 8. september 1981 68. tölublað
Ko&ak
„Vekur rangar hugmyndir
um ástand atvinnumála‘1
Segir Ingvar Gi'slason um gagnrýni forystumanna Iðnaðardeildar
„Það er almennt viðurkennt, að
gengisþróunin hefur verið óhag-
stæð útflutningsiðnaðinum síð-
ustu mánuði og ekkert óeðlilegt
að forystumenn Sambandsverk-
smiðjanna veki á því athygli, en
aðferðin sem notuð var, var mér
síður en svo að skapi. Ég tel að
sú sviðsetning sem fundurinn í
Sambandsverksmiðjunum var,
hafi verið til þess fallin að vekja
rangar hugmyndir um það hjá
starfsfólki verksmiðjanna og
öðrum, hvert ástandið raun-
verulega er í atvinnumálum og
hvaða möguleika íslenskt at-
vinnulíf hefur til vaxtar og
þroska. Það sem fram kom á
fundinum, og ekki var gefinn
kostur á að andmæla, gaf mjög
ranga hugmynd um afstöðu rík-
isstjórnarínnar til vandamála
iðnaðarins,“ sagði Ingvar Gísla-
son, menntamálaráðherra, þeg-
ar Dagur innti hann eftir við-
horfum hans og ríkisstjórnar-
innar til erfiðleika útflutnings-
iðnaðarins.
„Mér finnst að málflutningur
forystumanna Sambandsins á
þessum fundi hafi verið varhuga-
verður. Ég sé ekki að stóryrði séu til
framdráttar hagsmunum sam-
vinnumanna. Mér fannst þessi
fundur minna á aðferðir formanns
Félags íslenskra iðnrekenda. Ég
vona að þetta sé ekki upphafið að
því, að forystumenn samvinnu-
hreyfingarinnar gangi til liðs við
þau öfl, sem þar ráða, í áróðrinum
gegn ríkisstjórninni og því sem hún
er að gera. Öflug umræða um at-
vinnumál á íslandi er nú mikið
nauðsynjamál og nauðsynlegt er að
leita margra leiða. í þeirri umræðu
verða menn að gera upp hug sinn
um það hvað þeir vilja. Ríkis-
stjórnin vill styrkja stöðu núverandi
atvinnuvega landsmanna, þ.á.m.
útflutningsiðnaðinn“, sagði Ingvar
Gíslason.
En hvað hefur ríkís-
stjórnin verið að gera í
málefnum iðnaðarins?
- Sjá bls. 7
ÞRIR PRESTAR
Á AKUREYRI?
Bátarnir sem stunda síldveiðarnar frá Húsavfk eru af ölium stærðum eins og sjá má.
Ljósmynd gk-.
„Síldaræf intýric ‘
við Húsavík
KEA MEÐ
AFGREIÐSLU
HAFSKIPS
t dag er flutningaskipið Saga
væntanlegt til Akureyrar. Af-
greiðslu þess, fyrir hönd Haf-
skips h.f., annast Skipaaf-
greiðsla K.E.A., en í síðustu viku
voru undirritaðir samningar
milli Hafskips annars vegar og
K.E.A. hins vegar um að K.E.A.
annaðist afgreiðslu Hafskips á
Akureyri. Þetta er fyrsta skipið í
eigu Hagskips, sem K.E.A. ann-
ast eftir undirritun samninga.
Jón Samúelsson, sem annast
Skipaafgreiðslu K.E.A., sagði að
K.E.A. hefði fest kaup á skemmu
B.T.B. á togarabryggjunni, en þar
var og verður afgreiðsla Hafskips
til húsa. Gert er ráð fyrir að af-
greiðsla Skipaútgerðar ríkisins
verði þar einnig þegar fram líða
stundir.
Skemman á togarabryggjunni er
1400 fermetrar, en Jón sagði að
mikil þörf væri á auknu rými.
„Menn eru þegar farnir að velta
fyrir sér stækkun," sagði Jón.
Húsvíkingar hófu sildveiði s.l.
fimmtudag, en síldin hafði þá
gengið nær alveg heim að höfn-
inni. Þangað útfyrir fóru 15
bátar, allt frá trillum og upp í 45
tonna bát, og var aflinn fyrsta
daginn 34,5 tonn.
Síldin er veidd í reknet og lagnet
Fjórðungaping Norðlendinga sem
haldið var á Húsavík lagði á það
ríka áherslu að næsta virkjun
landsmanna verði blönduvirkjun við
Reftjarnarbungu. Þá lýsti þingið
yfir ákveðnum stuðningi við álver
og á stundum mátti sjá torfurnar
vaða fyrir utan hafnarkjaftinn og
rétt utan við hann. Voru dæmi þess
að trillukarlar háfuðu beint upp í
trillur sínar úr torfunum með litl-
um handháfum.
Síldin sem veiðist við Húsavík
fer aðallega í salt, en eitthvað mun
verða fryst.
við Eyjafjörð, pappírsverksmiðju
við Hiisavík og steinullarverk-
smiðju við Sauðárkrók.
Margar fleiri samþykktir voru
gerðar á þinginu, en nánar er f jallað
um það í opnu blaðsins i dag.
Fjórðungssamband Norðlendinga:
NÆSTA VIRKJUN
VERÐIVIÐ BLÖNDU
Verða prestar á Akureyri þrír að
tölu innan skamms? Svo getur
farið því þessa dagana er verið
að kanna hvort stjórnvöld séu
tiibúin til að greiða 3ja prestin-
um laun, en það eiga þau að gera
samkvæmt lögum, sem gera ráð
fyrir að einn prestur sé fyrir
hverja 4 þúsund íbúa. íbúar Ak-
ureyrar eru nú um 13 þúsund að
tölu.
Sr. Pétur Sigurgeirsson, sem tek-
ur við starfi biskups íslands síðar í
mánuðinum, sagði að þjónusta
presta við sóknarbörn væri svo
mikil að henni yrði aldrei sinnt sem
skildi nema prestarnir væru 3 tals-
ins.
Pétur sagði einnig að stöðugt
væri unnið að því að fá kirkju
byggða í Glerárhverfi. Það mál er
nú komið vel á veg, en fyrirhugað
er að kirkjan verði byggð á ásnum
vestan Skarðshlíðar, en þar er lítill
trjálundur. Fyrsta verk nýs prests
yrði væntanlega að vinna að bygg-
ingu kirkjunnar.
Rauðinúpur enn við bryggju:
„Málið þolir enga bið“
— Segir Gunnar Hilmarsson
Rauðinúpur — togari Jökuls
h.f. á Raufarhöfn liggur bundinn
við bryggju og hefur svo verið
undanfarnar 3 vikur. Ástæðan er
sú að áhöfnin fékk ekki greitt
kaup og gekk því í land. í gær-
kvöldi fóru forráðamenn Jökuls
h.f. til Reykjavíkur, ásamt sveit-
arstjóranum Gunnari Hilmars-
syni. Erindið var að útvega fjár-
skortur hrjáir fyrirtækið nú sem
fyrr.
Gunnar Hilmarsson sagði að úr-
lausn þyldi enga bið og að fjár-
magn yrði að fást í þessari viku.
„Við getum ekki beðið eftir neinni
Byggðasjóðsafgreiðslu, sem tekur
nokkrar vikur,“ sagði Gunnar.
Jökull h.f. er skuldlaus við opin-
bera sjóði, sagði Gunnar, og allir
erfiðleikar sem stöfuðu af rekstrar-
fjárskorti höfnuðu beint á heima-
mönnum.
Hætta á stórfelldu atvinnuleysi
vofir yfir ef ekki tekst að koma
togaranum af stað á nýjan leik.
Gunnar sagði að undanfarna daga
hefði starfsfólk Jökuls m.a. unnið
við pökkun á skreið og í saltfiski, en
að sjálfsögðu entist sú vinna ekki
ýkja lengi úr þessu.
„Eini iðnaðurinn á Raufarhöfn
er prjónastofa og þar er útlitið
ískyggilegt. Fjárhagsstaða Jökuls er
erfið og ef að ofan á allt saman
bætist lítil loðnuveiði þá sjá menn
hvert stefnir," sagði Gunnar að
lokum.
Frá Þingi Fjóröungssambands Norðlendinga. Ljósmyndir gk-.
AUGLYSINGAR OG ASKRIFT: 24167 - RITSTJORN: 24166 OG 21180