Dagur - 08.09.1981, Qupperneq 6
Messað í Grímsey á laugardag-
inn, 12. september. Sóknar-
prestur.
Akureyrarkirkja. Messað n.k.
sunnudag kl. 11.00 fyrir hádegi.
Sálmar: 453, 47, 191, 195, 370.
B.S.
Krakkar. Athugið að sunnu-
dagaskólinn byrjar sunnudag-
inn 13. september kl. 13.30 að
Strandgötu 19b. Einnig er opið
hús á fimmtudögum kl. 17.00 í
Strandgötu 21. Öll börn vel-
komin.
Hafliði Guðmundsson, Mána-
hlíð 6, Akureyri fyrrverandi
starfsmannastjóri og starfsmað-
ur Lífeyrissjóðs verksmiðja SÍS,
verður 75 ára miðvikudaginn 9.
sept. n.k. Hann verður að
heiman á afmælisdaginn, en
tekur á móti gestum í Golfskál-
anum að Jaðri laugardags-
kvöldið 12. sept. n.k. milli
klukkan 7 og 10.
- Gunnar
framhald..
bundnir virka daga. Því er ekki að
leyna að það er mjög þreytandi
þegar til lengdar lætur að fá
aldrei hvíldarstund."
— Ef þú lítur til baka yfir 18
ára feril þinn sem formaður
bændasamtakanna. Hvaða
breyting hefur orðið á kjörum
bænda á þessum tima?
„Kjörin hafa auðvitað batnað
hjá bændum eins og öðrum
þjóðfélagsþegnum, það er erfitt
að meta hvort þau hafa batnað
meira eða minna. Ég vona að þau
hafi batnað meira. En þó að
verðlagið hafi farið batnandi og
kjörin almennt batnað meira en
nemur almennum launahækkun-
um þá er svo ótal margt sem
grípur þarna inn í s.s. ný tækni,
breyttur fjöldi fólks á hverju
heimili og ótal mörg önnur atriði
sem geta komið þarna til og haft
áhrif á kjörin."
— Hver eru brýnustu mál
bændastéttarinnar í dag?
„Það er í fyrsta lagi að tryggja
fóðuröflun, það er númer eitt og
hefur lengi verið. Að því fengnu
er annað mál sem er jafn brýnt
hinu en það er að bæta markaðs-
stöðuna þannig að það sé hægt að
selja allar vörur á því verði sem
þær eru skráðar. Þetta hefur ekki
verið hægt undanfarin ár. Þetta
tvennt er þýðingarmest fyrir
bændur."
— Ert þú ánægður með þessi
ár sem þú hefur gegnt for-
mennsku ef þú lítur til baka?
„Ég er mjög ánægður með
samskiptin við bændur, þau hafa
verið mjög ánægjuleg. Ég hef líka
fengið tækifæri til að ferðast
mikið um landið og þekki það
ntjög vel. Eg hef líka ferðast er-
lendis og kynnst erlendum
bændum og ég get sagt að
búskapur á íslandi er í fremstu
röð í heiminum. Það mátt þú
undirstrika að ísland er gott land
að búa í.“
Kiwanisfélagar. Almennur
fundur verður haldinn í
Kiwanishúsinu á Akureyri
fimmtudaginn 10. sept. kl.
19.15. Mætið stundvíslega.
Framhaidsstofnfundur Skák-
félags U.M.S.E. verður haldinn
að Hlíðarbæ föstudagskvöldið
11. sept. kl. 20.30. Skákáhuga-
menn fjölmennið til eflingar
skáklistinni í Eyjafirði. Stjóm-
in.
Frá Filadelffu: Fimmtudagur
10. sept. kl. 20,30. Bænarsam-
koma. Laugardagur 12. sept. kl.
20,30. Safnaðarsamkoma.
Sunnudagur 13. sept. kl. 20,30.
Almenn samkoma. Allir vel-
komnir.
Hjálpræðisherinn. Sunnudag-
inn n.k. kl. 20.30 almenn sam-
koma. Söngur og vitnisburður.
Allir velkomnir. Mánudaginn
14. sept. eru heimilasamband
kl. 16 og hjálparflokkur kl.
20.30. Allar konur velkomnar.
Séra Birgir Snæbjörnsson
gegnir prestþjónustu fyrir mig
til mánaðamóta. Pétur Sigur-
geirsson.
Þann 1. sept. voru gefin saman í
hjónaband í Akureyrarkirkju
brúðhjónin Guðrún Hulda Ha-
nsen verkakona og Hannes Sig-
urðsson verkamaður Smárahlíð
19, Akureyri.
Þann 5. september voru gefin
saman í hjónaband í Akureyr-
arkirkju brúðhjónin Arndís
Antonsdóttir afgreiðslustúlka
og Ólafur Ragnar Hilmarsson
iðnverkamaður Brekkugötu 21,
Akureyri.
Frá Kjörmarkaði KEA
HRISALUNDI 5
Dýrafóður
FYRIR:
Hunda, Ketti, Fugla
Margar tegundir í pk. og dósum.
1
Hittumst í Kjörmarkaði
Sameiginlegir viðtals-
tímar alþingismanna
Alþingismenn Norðurlandskjördæmis eystra hafa sam-
eiginiega viðtalstíma fyrir sveitastjórnir og aðra aðila,
sem þurfa að ná tali af þingmönnum á eftirtöldum
stöðum:
Á Akureyri. Hótel KEA fimmtudaginn 24. sept. og
föstudaginn 25. sept.
Panta þarf viðtalstíma hjá Snorra Finnlaugssyni í
síma 24167.
Á Húsavík. Laugardaginn 26. sept. á Hótel Húsavík.
Panta þarf viðtalstíma hjá Bjarna Aðalgeirssyni
bæjarstjóra í síma 41222.
Á Raufarhöfn. Sunnuaginn 27. sept. á Hótel Noró-
urljósi.
Panta þarf við talstíma hjá Gunnari Hilmarssyni
sveitarstjóra í síma 51151 eða 51251.
Firmakeppni í knatt-
spyrnu
Knattspymuráð Akureyrar hefur ákveðið að gang-
ast fyrir Firmakeppni í knattspyrnu utanhúss í ár
sem áður.
Heimild er fyrir tvö firma að sameinast um lið í
keppnina.
Með þátttökutilkynningum skal senda lista yfir nöfn
þeirra leikmanna sem þátt taka í keppninni og eigi
má breyta þeim lista eftir að keppnin er hafin.
Þátttökurétt hafa þeir starfsmenn er voru á launa-
skrá 1. september s.l. og skólafólk er starfað hefur
2. mánuði á sumrin hjá fyrirtækinu.
Hverju liði skal heimilt að nota leikmann úr 1. og 2.
deildar liði, þá eigi fleiri en tvo alls.
Með þátttökutilkynningum skal fylgja staófesting
yfirmanns á því að allir þátttakendur uppfylli ofan-
greind skilyrði.
Þátttökutilkynningum ásamt nafnalista og kr.
600,00, þátttökugjald skalékilað í pósthólf 553 fyrir
15. september n.k.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 41., 47. og 52. tbl. Lögbirtinga-
blaðs 1981 á fasteigninni Keilusíðu 6-8, Akureyri,
þingl. eign Þins s.f., fer fram eftir kröfu bæjarsjóðs
Akureyrar á eigninni sjálfri mánudaginn 14. sept-
ember 1981 kl. 16.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 41., 47. og 52. tbl. Lögbirtinga-
blaðs 1981 á fasteigninni Hríseyjargötu 6 n.h., Ak-
ureyri, þingl. eign Jónasar G. Sigurðssonar, fer
fram eftir kröfu Hreins Pálssonar v/Útvegsbanka
Islands á eigninni sjálfri mánudaginn 14. septem-
ber 1981 kl. 15.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 41., 47. og 52 tbl. Lögbirtinga-
blaðs 1981 á fasteigninni Grænumýri 12, Akureyri,
þingl. eign Friðjóns Eyþórssonar, fer fram eftir
kröfu Bæjarsjóðs Akureyrar á eigninni sjálfri
mánudaginn 14. september 1981 kl. 14.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 41., 47. og 52. tbl. Lögbirtinga-
blaðs 1981 á fasteigninni Löngumýri 30, Akureyri,
þingl. eign Daða Hálfdánarsonar, fer fram eftir
kröfu Tryggingastofnunar ríkisins og Veðdeildar
Landsbanka íslands á eigninni sjálfri mánudaginn
14. september 1981 kl. 17.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 41., 47. og 52 tbl. Lögbirtinga-
blaðs 1981 á fasteigninni Granaskjóli 3 (hesthús í
landi Lögmannshlíðar), Akureyri, þingl. eign Jóh-
anns Sigurðssonar, fer fram eftir kröfu Ásmundar
S. Jóhannssonar hdl., Benedikts Ólafssonar hdl.
og Jóns Kr. Sólnes hdl. á eigninni sjálfri mánudag-
inn 14. september 1981 kl. 11.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri
Konan mín
KLARA STEFÁNSDÓTTIR
Ægisgötu 10
andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 4. september.
Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 11. sept-
ember kl. 13.30. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeir sem vildu
minnast hennar er bent á sjúkrahúsið.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna,
Þorsteinn Jónasson.
Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langa-
langömmu.
SVANBORGAR JÓNASDÓTTUR,
Magnús Snæbjörnsson, Aðalheiður Þorleifsdóttir,
Ottó Snæbjörnsson, Sólveig Sigurðardóttir,
Stefán Snæbjörnsson, Vilborg Pálmadóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
6 - DAGUR - 8. september 1981