Dagur - 08.09.1981, Síða 7

Dagur - 08.09.1981, Síða 7
- Ingvar framhald „Ríkisstjórnin hefur um langt skeið haft til meðferðar aðgerð- ir til að létta iðnaðinum þá óhagstæðu gengisþróun sem verið hefur síðustu mánuðina, en það er almennt viðurkennt að gengisþróunin hefur ekki verið iðnaðinum að öllu leyti hag- stæð. Þó vil ég benda á að geng- isþróunin hefur tvær hliðar. Hún er öðrum þræði sýnilega óhag- stæð útflutningsiðnaðinum, sem selur afurðir sínar í Evrópumynt að verulegu leyti og nýtur því ekki þess, að Bandaríkjadalur- inn hefur verið að styrkjast, sem sjávarútvegurinn hefur notið. Á hinn bóginn verða menn einnig að líta á björtu hliðarnar og þær eru þær að gengið hefur verið miklu stöðugra undanfarna níu mánuði heldur en dæmi eru til um margra ára skeið,“ sagði Ingvar Gíslason, menntamála- ráðherra, í viðtali við Dag. „Okkur hefur tekist að draga verulega úr verðbólgunni og mikil verðbólga er einmitt höfuðand- stæðingur útflutningsiðnaðarins. Besta ráðið er að minnka verð- Auglýsingaverð hækkar Auglýsingaverð hækkaði hjá Akureyrarblöðunum frá 7. sept. sl. í kr. 45,00 pr. dálksm. Smáauglýsingar kosta nú kr. 80,00, jarðarfarar- auglýsingar og þakkarávörp á kr. 160,00. Glæsibæjarhreppur Almennur hreppsfundur verður haldinn aö Hlíðar- bæ fimmtudaginn 10. september og hefst hann klukkan 8.30 e.h. Oddvitinn. Nýkomnar Excelsior harmonikkur bólguna og koma í veg fyrir kostnaðarhækkanir innanlands, umfram það sem er í markaðs- löndunum. I raun og veru er enginn ágreiningur milli ríkisstjórnarinnar og forystumanna iðnaðarins að þessu leyti og þess vegna finnst mér að fundur af þessu tagi sé óheppi- leg aðferð til þess að koma á eðli- legum viðræðum um vandann," sagði Ingvar. „Auk þess að draga úr verðbólg- unni hefur ríkisstjórnin það á stefnuskrá sinni að greiða niður ullarverðið og tryggja ullariðnað- inum ávallt heimsmarkaðsverð á ull. Þá vil ég nefna það að ríkis- stjórnin hefur aðlagað gengið nýlega til hagsbóta fyrir iðnaðinn og gekk eins langt í því efni sem frekast var mögulegt, þannig að skuggahliðar gengislækkunar kæmu ekki í ljós, þ.e.a.s. verð- bólguþróun. í þriðja lagi vil ég nefna, að ríkisstjórnin hefur lagt að Seðlabankanum, að breyta afurða- lánakerfinu, þannig að afurðalán séu miðuð við gengi markaðsland- anna, en ekki við dollarann ein- hliða. Ríkisstjórnin hefur auk þess lagt fyrir Seðlabankann að gera aðrar ráðstafanir til að minnka gengistap útflutningsiðnaðarins síðustu mánuði og að þeim málum er verið að vinna nú í samráði við /UiMBUÐÍN Sími 22111 AKUREYRARBÆR Kartöflugeymsla Þeir aðilar sem hafa haft hólf í geymslum bæjarins og vilja halda þeim eru beðnir að greiöa leigugjald á bæjarskrifstofunum fyrir mánudaginn 14. sept. Eftir þann tíma verða ógreidd hólf leigð öðrum. Garðyrkjustjóri school of fme arts " Inntökupróf í Fornámsdeild (dagdeild) Myndlista- skólans á Akureyri fyrir skólaárið 1981-82 fer fram dagana 21 .-24. september. Umsóknum skal skila fyrir 15. september. Allar nánari upplýsingar veitir skólastjóri í síma 24137. Seðlabankann. Þessi fundur og fréttaflutningur- inn af honum er til þess eins fallinn, að veikja trú landsmanna á fram- tíðarmöguleikum íslenskra at- vinnuvega," sagði Ingvar Gíslason Skólastjóri m að lokum. Efnilegur sund- maður Helgina 29. og 30. ágúst fór fram á Siglufirði Aldurs- flokkamót íslands í sundi. 9 keppendur frá Sundfélaginu Óðni tóku þátt í mótinu. Hæst bar árangur Svavars Þórs Guðmundssonar en hann varð 1 2. sæti í 50 m baksundi sveina (flokki 12 ára og yngri) á tím- anum 45,2 sek. og einnig varð hann í 3. sæti í 50 m flugsundi á tímanum 42,3 sek. Svavar er aðcins 10 ára gamall, svo að þetta er mjög góður árangur. Bróðir hans, Ármann, varð í 3. sæti í 100 m baksundi drengja 13-14 ára á tímanum 1:19,8 mín. TONLISTARSKOLINN A AKUREYRI HAFNARSTRÆTI 81 PÓSTHÓLF 593 602 AKUREYRI Innritun nemenda fer fram í skólanum: miðvikudaginn 9., fimmtudaginn 10,og föstudaginn 11. sept. kl. 13-17. Ath. aðeins á ofangreidum tíma. Umsóknir frá s.l. vori ber að staðfesta, og einnig á að skila afriti af stundaskrá úr öðrum skólum, um leið og þær liggja fyrir. Kennt er í eftirfarandi deildum: Forskóladeild — nemendur 5-9 ára. Blásarasveit — lánshljóðfæri í skóla — byrjendur frá 9 ára aldri. Strengjasveit — lánshljóðfæri í skóla — byrjendur frá 6 ára aldri. Almenn deild: — öll algengustu hljóðfæri s.s. píanó, orgel, gítar, fiðla, selló, þverflauta, klarinett, trompet, harmonika, básúna, blokkflauta, ATH. nemendur þurfa að eiga eða hafa aðgang að æf- ingarhljóðfæri heima. Einnig söngur, tónfræði, tónheyrn, hljómfræði og tónlistarsaga. Skólastjóri Kennara Kennara vantar að grunnskóla Arnarneshrepps, Eyjafjarðarsýslu. Upplýsingar gefnar í síma 96-32122. SKÓLANEFND. Verkamenn óskast NORÐURVERK H.F. Sími21777. Hefur þú áhuga á verslun? Þekktur fataframleiðandi óskar eftir að komast í samband við aðila á Akureyri, sem hefði áhuga á að standa fyrir rekstri sérverslunar. Viðkomandi yrði að hafa frumkvæði og annast rekstur, en gæti vænst góðs stuðnings og fyrir- greiðslu. Áhugasamir vinsamlegast sendi nöfn sín og síma- númer, ásamt upplýsingum um aldur og fyrri störf til auglýsingadeildar DAGS, merkt ,,Sérverslun“. Starfsfólk til framleiðslustarfa óskast. Frekari upplýsingar gefnar á skrifstofu fyrirtækis- ins. PLASTEINANGRUN H.F. Óseyri 3, Akureyri Sana verksmiðjuna vantar ritara til almennra skrifstofustarfa allan daginn. Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofunni. SANA H.F. Afgreiðslumaður Óskum aó ráða afgreiðslumann sem jafnframt hefði yfirumsjón með lager. Æskilegur aldur 25-40 ára. Góð laun í boði fyrir menn sem getur unnið sjálfstætt. j^Élvorubœrl' l 3^/J húsgagnaverslun TRYGGVABRAUT 24 AKUREYRI SlMI (96)21410 Aðalfundur Framsóknarfélags Eyfirðinga verður haldinn á Hótel KEA fimmtudaginn 17. september kl. 20.30. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. Hússtjórnarskólinn á Akureyri auglýsir samræmd nám í hússtjórn. Námið er hluti af undir- búningi fyrir kennaranám í sérgrein. Námið er fyrsti hluti af matartæknanámi og hag- nýtur undirbúningur fyrir nám í matvælafræði, matvælaverkfræði og næringarfræði. Námið er í þrem önnum og er bæði boðið upp á samfeldar þrjár annir í október til desember og dreifðum þrem önnum yfir allan veturinn. Ennfremur eru auglýst tveggja mánaða mat- reiðslunámskeið og fjögurrakvölda matreiðslu- námskeið. Öll kennsla fer fram síöla dags og á kvöldin. Upplýsingar í og innritun í síma 24199 milli kl. 2 og 4 s.d. Skólastjóri 8. september 1981 - DAGUR - 7

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.