Dagur - 08.09.1981, Síða 8

Dagur - 08.09.1981, Síða 8
The Magnetics i tæknibúnaður á sviðinu, þ.m.t. trommuheili og videoskermur. Minkur áönd Minkar eru ekki daglegir gest- ir í húsagörðum fólks á Akureyri, en einn hcimsótti þó lóðina á Eyrarlandsvegi 29 fyrirskömmu. Þar býr Dúi Bjömsson, og vaknaði hann við það um klukk- an hálf fjögur eina nóttina að mikill hávaði barst utan úr garð- inum þar sem þau hjón hafa haft tvær endur sér til skemmtunar. Dúi fór út og athugaði málið, og sá þá strax að minkur hafði náð annarri öndinni, hélt fast með kjaftinum um háls hennar og var aðdrepa hana. Dúi komst alveg að minknum en sneri til baka og náði sér í hrífu. Hann hljóp síðan að aftur og lamdi minkinn fast mcð hrífu- hausnum. Þá fyrst sleppti hann öndinni og hvarf í runna í garðin- um og fannst ekki þrátt fyrir leit. Það er hinsvegar af öndinni að segja að talsvert sá á henni eftir árás minksins, en hún mun þó vera á batavegi. Dúi Björnsson og öndin sem varð fvrir árás minksins. Ljósmynd gk-. Sjálfstæðishúsinu. Þessi hljómsveit er fámenn en góðmenn. Hana skipa þeir Jakob Magnússon og Alan Howarth og þeim til aðstoðar var gaddavírsrokkarinn Bubbi Morteins. Það sem vakti e.t.v. mesta athygli viðstaddra var griðarmikill Tónlist þcirra félaga var á köflum nokkuð ólfk þvf sem fólk á yfirieitt kost á að heyra, en ekki var annað að sjá en gestum SH s.l. sunnudagskvöld Ifkaði vel það sem fram var borið. Mynd:áþ. Svipaður fjöldi í grunnskólunum Skólar í Norðurlandsumdænti vestra eru nú um það bil að hefja störf, en sumir byrja þó ekki fyrr en um mánaðamót. Alls verða um 1740 nemendur í grunnskól- anum á umræddu svæði og er það mjög áþekk tala og s.l. vetur. Á Norðurlandi vestra eru 20 skólar á grunnskólastigi og við þá starfa 140 fastráðnir kennarar. Samkvæmt upplýsingum frá fræðsluskrifstofunni á Blönduósi voru 1734 börn í 1-9 bekk s.l. vetur. Forskóli er ekki starfræktur við alla skóla umdæmisins. Enn vantar kennara við grunn- skólann að Hólum í Hjaltadal og kennara til að kenna raungreinar á Blönduósi. Búið er að ráða all- marga kennara, sem ekki hafa réttindi, en svo virðist vera sem áhugi réttindafólks á að fara út á land fari minnkandi. Framhaldsdeildir grunnskóla voru starfræktar á Blönduósi og Siglufirði í fyrra, en vegna lítillar aðsóknar verða þær ekki á Blöndu- ósi í vetur. Það er heldur ekki fyrir að fara miklum nemendafjölda í einstaka skólum á svæðinu. í skólanum að Skefilsstöðum á Skaga eru 4 nemendur, í öðrum skóla eru 11 nemendur og 13 í tveimur.. Nemendurnir að Skefils- stöðum eru á mismunandi aldri og því í mismunandi deildum. Einn skóli í umdæminu er með 9 mánaða kennslu, en 7 skólar eru með 7 mánaða kennslu. Fræðsluskrifstofan á Blönduósi var um nokkurt skeið í Bókhlöð- unni, en hefur nú flutt í Kvenna- skólann. HEIMILT AÐ RIFTA KAUP- UNUM Nokkuð er um liðið síðan Dag- ur greindi frá viðskiptum Jóns Sigursteinssonar og Akureyr- ings, sem seldi honum SAAB bíl. Dómur er nú fallinn í bæj- arþingi Akureyrar og kemur fram í greinargerð að sannað þykir að vél bifreiðarinnar hafi verið haldin þeim galla, sem kom fram við skoðun mats- manna þá er kaupin fóru fram. Við ákvörðun á verði bifreiðar- innar var m.a. við það miðað að vélin væri í góðu lagi. „Verður að telja gallann það veigamik- inn að stefnanda (Jóni) sé heimilt að rifta kaupunum." f dómsorðun er stefnda gert að endurgreiða stefnanda tölu- verða fjárupphæð og hefur hann til þess 15 daga frest frá lögbirtingu dómsins. Bílaviðskipti þessi fóru fram í sumar. Jón keypti bílinn og lét annan ganga upp í kaupin. Skömmu eftir að þau höfðu átt sér stað kom í ljós að vél SAAB bílsins var ónýt og krafðist Jón þess að kaupin gengju til baka. Því var hafnað. Ekki er vitað hvort málinu verður áfrýjað. „Efst í huga mér að fá hvíld um helgar ‘4 Sagði Gunnar Guðbjartsson sem lét af formennsku Stéttarsambands bænda eftir 18 ára starf „Það er svo margt sem kemur í hugann, en ætli mér sé ekki efst í huga að fá einhverja hvíld, og geta einhvern tíma Gunnar Guöbjartsson flutur skýrslu sina á fundi Stéttarsambands bænda á Laugum um helgina. Með honu á myndinni eru Pálmi Jónsson landbúnaðarráó- herra og Ingi Tryggvason sem tók við formennsku af Gunnari. Dagur mun fjalla nánar um þingið i blaðinu n.k. fimmtudag. Ljósmynd gk-. fengið rólega helgi út af fyrir mig. Ég hef nú árum saman unnið allar helgar og aldrei átt sumarleyfi. Það er því einna hæst í huga mér nú að fá ein- hverja stund fyrir sjálfan mig.“ — Þetta sagði Gunnar Guð- bjartsson sem um helgina lét af formennsku í Stéttarsambandi bænda eftir 18 ára farsælt starf á þeim vettvangi. Það mun sam- dóma álit allra sem til þekkja að Gunnar hafi unnið einstakt starf í þágu bændastéttarinnar, og vissulega er eftirsjá af honum þegar hann dregur sig í hlé. „Jú. Þetta er geysimikið starf“ sagði Gunnar. „Það er oft ónæð- issamt og oft hefur það verið þannig að helgarnar hafa farið í fundarhald úti um land á meðal bænda því auðvitað vilja þeir nýta helgarnar til fundarhalda. Oft er þetta líka tengt ferðum stjórnmálamannanna sem eru Framh. á bls. 6. # Skemmtileg lesning Það ætti ekkí að hafa farið fram hjá lesendum Dags að um síð- ustu helgl var haldið fjórðungsþing á Húsavík. Þar var margt skrafað og skegg- rætt og mörg plögg lögð fram. f sumum skýrslunum er margt merkilegt að finna, en einstaka sinnum hafa höfundarnir ritað sannkallað stofnanamál. Lítið dæmi: „Þrátt fyrir að hlutfalla- tilfærsla til Höfuðborgarsvæð- isins (með stóru H-i. Innsk. Smátt og stórt) sé lægri þegar A-hluti er tekin saman er ijóst að 85% af tilfærslu á milli hluta landshlutanna fer til Höfuð- borgarsvæðisins." Svo mörg voru þau orð. Smátt og stórt lýsir með Ijósi eftir merkingu á þýðingu orðasambandsins „hluta landshlutanna." 0 Friðrik fær fleiri verkefni Svo virðist sem Friðrik Ólafs- son forseti alþjóða skáksam- bandsins FIDE megi eiga von á nýjum verkefnum, og finnst víst mörgum þó að hann hafi nóg á sinni könnu. fþrótta- fréttamaður Morgunblaðsins tllkynnti landslýð nýlega að Guðni Kjartansson landsliðs- þjálfari fslands í knattspyrnu væri búinn að tilkynna lands- liðshóp sinn fyrir HM-lelkina í haust til FIDE! Vonandi koma þessi aukastörf ekki í veg fyrir að Friðrik geti áfram unnið af fullum krafti að málefnum skákmanna. # Hverjir eru verstir? Sami íþróttafréttamaður lét sig líka hafa það að segja í út- varpsviðtali um helgina að Þór frá Akureyri væri með lang, lang lélegasta liðið í 1. deild í knattspyrnu. Hinsvegar segir stigatafla fyrir 1. deild ótvírætt að það lið sem hefur þann vafasama heiður sé FH, liðið sem þegar er fallið í 2. deild. Það skyldl þó ekki vera að ein- hver tengsl væru á milli frétta- mannsins og FH? 0 Fyrir suma Óhætt mun að taka hér undir gagnrýni þá sem fram hefur komið á íþróttaþátt Sjón- varpsins að undanförnu, en hún hefur verið all hávær. Sjónvarpið hunsar alveg landsbyggðina þegar um íþróttir hefur verið að ræða. Þannig var úrslitaleikur Bik- arkeppninnar á milli ÍBV og Fram ekki sýndur fyrr en rúmlega sólarhringsgamall og þá aðelns 2-3 mínútur. Akureyrarliðin í 1. deild knattspyrnunnar hafa varia verið tii að matí umsjónar- manna ríkisfjölmlðlanna, engum leik lýst í Útvarpi með KA eða Þór og því síður að Sjónvarpið hafi sýnt úr leikj- um þeirra. 8 - DAGUR • 8. september 1981

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.