Dagur - 24.09.1981, Qupperneq 8
Akureyri, fimmtudagur 24. september 1981
Bilapernr
6-12 og 24 volta
FLESTAR
TEGUNDIR
■■■■■■■■■■■
■■■■■■■■H
SAMLOKUR
fyrir og án
peru
Framleiðsla
hafin á ný
Mývalnssveit 23. september.
Hjólað og gengið
í þágu endur-
hæfingar-
stöðvarinnar
Mývatnssveit:
Aldrei
meiri
hey-
skapur
Mývatnssveit 23. september.
Heyfengur var mikill og góður í
Mývatnssveit í sumar og er lík-
legt að þetta hafi orðið methey-
skaparár, en ekki fæst úr því
skorið fyrr en ásetningsmenn
hafa lokið störfum síðar í haust
og fóðurbirgðaskýrslur liggja
fyrir. Uppskera garðávaxta er
einnig góð.
Fallþungi dilka virðist vera
þokkalegur. en menn telja þó að
meðalvigtin mun verða heldur lak-
ari en í fyrra. Farið verður í aðrar
gðngur á austurafrétt Mývetninga á
morgun.
Erlendir ferðamenn eru enn ekki
með öllu horfnir héðan. Ferða-
mannatíminn er greinilega að lengj-
ast bæði vor og haust og vafalaust
hafa fleiri ferðamenn komið til
Mývatnssveitar á þessu ári en
nokkru sinni áður. Ýmis þjónusta
við ferðamenn er mikil og vaxandi
atvinnugrein hér á sumrin, en
nauðsynlegt er að lengja ferða-
mannatímann enn frekar til að
bæta rekstur hótelanna og annarra
þjónustufyrirtækja og auka at-
vinnu. Nú er unnið að því í sam-
vinnu við Flugleiðirog fleiri að laða
hingað ferðamenn að vetrinum og
gera menn sér allgóðar vonir um
árungur. Nýja sundlaugin, sem
tekin verður í notkun í haust, kem-
ur til með að hafa verulega þýðingu
í þessu sambandi. Þar verða m.a.
tvær setlaugar með vatnsnuddi og
saunabað. J.I.
Grenivík
UNNIÐ
VIÐ
LOKA-
FRÁGANG
SKÓLANS
Nýi barnaskólinn á Grenivík á
að vera tilbúinn til notkunar í
næstu viku. Nú vinna iðnaðar-
menn af miklum móði við loka-
frágang, og „húsbúnaðurinn
rennur inn“ eins og Stefán
Þórðarson, sveitarstjóri, komst
að orði. Að vísu verður ekki al-
veg lokið við húsið í haust, en
þrátt fyrir það mun fara vel um
nemendur skólans.
„Nú færist heim 7. bekkur og
verða því tveir árgangar í stað
þriggja áður. í dag og á næstu dög-
um er og verður teppalagt, flísalagt
og rafmagnsmenn ganga frá sínum
verkum. Hér eru trésmiðir að setja
upp hurðir bæði úti og inni og ég
hef þá trú að í þessu húsi verði gott
að starfa,“ sagði sveitarstjórinn.
Kröfluvirkjun var gangsett á nýjan
leik um síðustu helgi eftir nokkurra
vikna stopp vegna hreinsunar á
vélbúnaði. Nú framleiðir virkjunin
um 10 megavött, en tvær borholur
eru ekki í notkun eins og er, þar
sem verið er að undirbúa hreinsun
Við kveðjuguðþjónustu í Akur-
eyrarkirkju s.l. sunnudag þegar
sr. Pétur Sigurgeirsson og frú
Sólveig Ásgeirsdóttir voru
kvödd þar af söfnuði sínum flutti
Gunnlaugur P. Kristinsson
formaður Sóknarnefndar ávarp.
Hann flutti sr. Pétri þakkir
safnararins fyrir langt og mikið
starf í söfnuðinum og árnaði
þeim hjónum allra heilla í fram-
tíðinni.
í lok ávarpsins tilkynnti
Gunnlaugur um gjöf sem sóknar-
börn Akureyrar og Lögmanns-
hlíðasókna ætla að færa þeim
hjónum. Gjöf þessi er málverk af
Akureyri, en fyrirmyndina velja
þau hjónin sjálf og einnig lista-
mann til þess að mála myndina.
Þá ávarpaði forseti bæjarstjórn-
ar, Sigurður Jóhannesson þau hjón
einnig og afhenti þeim gjöf frá Ak-
ureyrarbæ. Var það ljósritun af
Skarðsbók, skrautrituð með kveðju
frá Bæjarstjórn.
Þennan sama dag var einnig
kveðjuguðþjónusta í Lögmanns-
á þeim. Jarðborinn Jötunn er nú
langt kominn með holu 18. Það er
3ja holan sem boruð er við Kröflu í
sumar. Enn er of snemmt að full-
yrða nokkuð um árangur þessarar
borunar, en áætlað er að tengja
holurnar inn á gufuveitu virkjun-
arinnar í haust. J.I.
hlíðarkirkju, og þar ávarpaði Haf-
liði Guðmundsson fyrrverandi
formaður sóknarnefndar þau
hjónin.
Þennan dag var haldið hóf í
Sjálfstæðishúsinu á Akureyri. Það
voru sóknarnefndir og kirkjukórar
Akureyrar og Lögmannshlíðar-
sóknar sem að því hófi stóðu, ásamt
kvenfélagi, bræðrafélagi og Æsku-
lýðsfélagi Akureyrarkirkju ásamt
föstum starfsmönnum kirkjunnar.
{ þetta hóf mættu hátt í þrjú
hundruð manns, og þar voru flutt
ávörp frá öllum þeim aðilum sem
að hófinu stóðu, og þeim hjónum
Sr. Pétri og Sólveigu voru færðar
gjafir. Kvenfélagið færði þeim að
gjöf vatnslitamynd af íbúðarhúsi
þeirra hjóna, Hamarsstíg 24,
Æskulýðsfélagið mynd af Akur-
eyrarkirkju. Þá tilkynntu Kirkju-
kórar Akureyrar- og Lögmanns-
hliðarkirkju að þeim hjónum yrðu
færðar myndir frá kveðjuguðs-
þjónustunum í kirkjunum báðum
og kveðjuhófinu þegar þær væru
fullunnar. Veislustjóri í hófinu í
Sjálfstæðishúsinu var Sr. Birgir
Snæbjörnsson.
Sjálfsbjörg, félag fatlaðra á Ak-
ureyri hefur ákveðið að ráðast í
nokkuð óvenjulega fjáröflun.
Fénu verður varið til uppbygg-
ingar á nýju endurhæfingar-
stöðini. Þessi fjáröflunaraðferð
er nefnd „Áheit og útivist“ og
svipar henni til „Hjólreiðadags-
ins“ í Reykjavík.
Hver sem er getur tekið þátt í
þessari fjáröflun, sem er í því fólgin
að laugardaginn 10. október verður
hjóluð u.þ.b. 5 km vegalengd eða
gengið í 20 mínútur. Þátttakendur
heita á endurhæfingarstöðina fjár-
upphæð, sem þeir ákveða sjálfir.
Við komu á endastöð, þegar áheit-
um er skilað, munu þátttakendur fá
viðurkenningu fyrir að vera með,
ásamt hressingu. Það skal tekið
fram að það verður ekki einungis
hjólað og gengið á Akureyri heldur
víða á Norðurlandi, enda þjónar
endurhæfingarstöðin öllum
Norðlendingum.
í byrjun næsta mánaðar mun
endurnæfingarstöðin tlytja i nýtt
hús, að Bugðusíðu 1. Fyrri áfanga
er ekki lokið og vonir standa til að
framkvæmdir við seinni áfanga
hefjist næsta vor. Endurhæfingaar-
stöðin hefur afgreitt um 4000 pant-
anir víðsvegar af Norðausturlandi
og eftirspurn fer stöðugt vaxandi.
Endastöðin á Akureyri verður
Bjarg, Bugðusíðu 1, en nánar verð-
ur tilkynnt síðar um framkvæmd
„Áheita og útivistar" annarsstaðar
á Norðurlandi.
í fréttatilkynningu frá Sjálfs-
björgu kemur fram að um leið og
Norðlendingar geta stuttu gott
málefni með göngu eða hjólreiðum
þann 10. október verður á svipuð-
um tíma haldið upp á 22ja ára af-
mæli félagsins (8. okt.) og 11 ára
afmæli endurhæfingarstöðvarinnar
(9. okt.).
Úrhófinu i Sjálfstæðishúsinu.
a
% Innheimtu-
auglýsingin
Það kom fram í útvarpsfréttum
í gær að ráðamenn ríkisút-
varpsins hefðu ákveðið að
hætta sýnlngum á Innheimtu-
auglýsingu sjónvarpslns, sem
hefur yljað landsmönnum um
hjartaræturnar að undanförnu.
Sumir segja að þetta sé eitt
besta efnið sem sjónvarpið
hafi nokkru sinni boðið upp á
og að Snorri komist ekki með
tærnar þar sem þessi auglýs-
ing hefur hælana. En Smátt og
stórt frétti líka í gær að annað
hefði ekki síður átt þátt ( um-
ræddri ákvörðun. Auglýsinga-
herferð sjónvarps var skipt í 4
þætti og búið var að sýna 3. Sá
síðasti fjallaði um dráttarvexti
og þótti það svona og svona að
nota tvær lögulegar stúlkur til
að augiýsa slíkt.
# Beðiðum
gangstétt
íbúi við sunnanverða Glerár-
götu kom að máli við Smátt og
stórt og sagði farir sínar ekki
sléttar. Um langt skeið hefur
gangstéttin við syðstu húsin í
Glerárgötu (að vestan) verið
nánast ónothæf, enda hvorki
malbikuð né steypt. f rigning-
artíð myndast pollar í leirnum
og sandinum og fólk leitar því
oft út á götuna í stað þess að
k.
ganga eftir stéttinni. Umrædd-
ur íbúi sagði að hann hefði rætt
þessi mái við rétta aðila hjá
Akureyrarbæ, en honum þótti
framkvæmdir við nýja stétt
ganga hægt svo ekki væri
fastar að orðf kveðið.
% Margurheldur
mig sig
Samkvæmt kokkabókum Hall-
dórs Blöndals, alþíngismanns,
er ritstjóri þessa blaðs óhæfur
fréttamaður fyrir sjónvarp, þar
sem fyrir nokkru var vikið að
því í leiðara Dags, hvers lags
málflutning þingmaðurinn hef-
ur ástundað í sambandi við
erfiðleika ullar- og skinnaiðn-
aðarins á Akureyri, og birst
hefur í málgagni hans. „Skýst
þó skýr sé“ segir máltækið og
má heimfæra það upp á rök-
færslu þingmannsins. Frétta-
ritarinn er ekki óhæfur vegna
fréttanna sem hann sendir,
heldur vegna allt annarra hluta!
Ýmsir aðrir fá skæting frá
þingmanninum f blaði hans,
m.a. Gunnar Thoroddsen og
Neytendasamtökin á Akureyri,
sem eru tortryggileg vegna
þess, að þau eru til húsa þar
sem áður var útibú KEA! Þann-
ig eru flestir sem Halldór fjallar
um óheiðarlegir og misnota
aðstöðu sína að hans áliti. Ætii
annað máltæki gæti ekki átt
hér við, nefnilega „Margur
heldur mig sig“?
Sr. Pétur og
frúkvödd