Dagur - 06.10.1981, Side 1

Dagur - 06.10.1981, Side 1
64. árgangur Akureyri, þriðjudagur 6. október 1981 TRÚLOFUNAR- HRINGAR AFGREIDDIR SAMDÆGURS GULLSMIÐIR I SIGTRYGGUR & PÉTUR 'AKUREYRI FILMUhúsic akureyri 77. tölublað Uppskerubrestur hjá kartöfluframleiðendum Banaslys í Grímsey Sá hörmulegi atburður átti sér stað í Grímsey á sunnu- dagsmorgun að 27 ára gamall maður, Þorleifur Ólason, hrapaði þar fram af bjarg- brún og beið bana. Tildrög slyssins voru þau að menn voru við smalamennsku í eynni. f Básavík þurfti að stugga við fé og kom það í hlut Þorleifs sem lenti á svelli á bjargbrún- inni og rann fram af. Þorleifur lætur eftir sig eiginkonu og tvö börn. Nú stefnir í algjöran uppskeru- brest hjá kartöflubændum við Eyjafjörð. Talið er að a.m.k. 500 tonn af kartöflum sé enn í jörðu og að bændum hafi tekist að ná einum 1000 tonnum. Uppskera i meðalári er 3 til 4000 tonn. Jörð er alhvít í Eyjafirði og vonir manna um að ná upp einhverju af kartöflunum, sem enn eru í jörðu, dvína með degi hverjum. „Tjón bænda vegna þessa veð- urfars er óhemju mikið. Nú eru í jörðu ein 500 tonn sem ekki er hægt að ná upp og uppskeran í sumar er aðeins þriðjungur þess sem við eigum að venjast,“ sagði Sveinberg Laxdal, formaður félags kartöflu- bænda við Eyjafjörð. „Það væri ekki úr vegi að hvetja þingmenn kjördæmisins til að kynna sér ástandið hjá kartöflubændum af eigin raun.“ Sveinberg sagði að ef nefnd væru ákveðin dæmi mætti nefna Grund í Eyjafirði, og Syðri-Varðgjá, en á báðum þessum bæjum er varla byrjað að taka upp. Fjölmargireiga eftir að taka upp helming sinnar uppskeru og fáir eru búnir. „1 því sem við höfum náð er gífurlega mikið smælki og söluhæfar kart- öflur nú er aðeins lítill hluti af uppskerunni. Kartöfluverksmiðjan á Svalbarðseyri þarf einkum stórar kartöflur, t.d. Binté, og það er lítið framboð af þeim þessa stundina því þær spruttu illa fyrir sunnan og austan eins og hér. Þetta kemur sér illa því nú er verið að Ijúka við stækkun verksmiðjunnar sem getur eftir hana unnið úr 2000 tonnum á ári. Það verður því að leita allra leiða til að útvega hráefni til verk- smiðjunnar svo hún geti annað eftirspurn." Sjómaður slas- ast alvarlega Skipverji um borð í Harðbak EA slasaðist mikið s.l. sunnu- dag þar sem skipið var á veiðum í Víkurál. Þyrla frá varnar- liðinu sótti hinn slasaða, sem liggur nú á Borgarspítalanum í Reykjavík. Að sögn Vilhelms Þorsteinssonar, framkvæmda- stjóra Ú.A., líður hinum slasaða, sem er rösklega þrí- tugur að aldri, eftir atvikum vel. Vilhelm sagði að stroffa hefði slitnað með þeim afleiðingum að krókur hefði slegist í höfuð skip- verjans. Strax var sett á fulla ferð í land og haft samband við Slys- avarnarfélag íslands, sem annaðist útvegun þyrlunnar. Með henni kom læknir frá Keflavík, sem seig niður í skipið og gerði að sárum mannsins áður en hann var hífður umborðíþyrluna. Harðbakur er nú kominn til Ak- ureyrar. FJALLAÐ UM FRAM- TK> TRYGGVABRAUTAR Erindi fimm húseigenda sunnan Tryggvabrautar um breytingar á götunni var tekið fyrir í bæjar- ráði í s.l. viku og verður e.t.v. rætt á bæjarstjórnarfundi í dag. f erindi húseigandanna var m.a. farið fram á að breytt verði skipu- lagi við götuna með tilliti til að- komu að verslunum og þjónustu- stöðvum sunnan götunnar. Vegna þessa beindi bæjarráð því til skipulagsnefndar og tæknideildar, að við endurskoðun aðalskipuiags Akureyrar, sem nú stendur yfir, verði lega, gerð og hlutverk Tryggvabrautar tekið til sérstakrar athugunar. Þessari athugun á að hraða. Veturinn er kominn — á þvi er enginn vafi. Ungi maðurinn hafði hnoðað sér snjó- bolta og í stað þess að licnda honum var boltinn etinn. Myndtáþ. ÁTTA INNBROT UPPLÝST Rannsóknarlögreglan á Akur- eyri hefur upplýst átta innbrot sem framin hafa verið í bænum upp á síðkastið, og kom í ljós að unglingar höfðu verið að verki í öllum tilfelluni. Unglingarnir fóru saman í hóp. Munu fjórir þeirra hafa tekið þátt í öllum innbrotunum, og fengu þeir fleiri til liðs við sig, þó ekki alltaf þá sömu. Innbrotin voru í fyrirtæki í bænum, og var yfirleitt litlu stolið. Mest var stolið um 2000 krónum á einum staðnum og sumstaðar engu. Einnig voru framin skemmdarverk á nokkr- um stöðum. Flestir unglinganna sem að innbrotunum stóðu eru ekki sakhæfir, og mun Félagsmála- stofnun fá afrit af skýrslum lög- reglunnar og mál unglinganna til meðferðar. Rekstur Laxeldisstöðvarinnar að Hólum gengur vel: MILLJÓN SEIDIISTÖÐINNIIVETUR „Þetta hefur gengið furðuvel, má segja að það hafi gengið betur en menn þorðu að vona“ sagði Sveinbjörn Oddsson í samtali við DAG, en Svein- björn er stöðvarstjóri laxeldi- stöðvarinnar Hólalax að Hól- um í Hjaltadal. Stöðin hóf starfssemi þann 14. október 1980, og er því tæplega ársgömul. Þar voru s.l. vetur um 700 þúsund laxaseiði, 370 þúsund þeirra voru seld sem sumaralin seiði í sumar, og annar eins fjöldi settur á og verður seldur sem gönguseiði næsta sumar. „Stöðinni er ætlað að ala bæði sumaralin seiði og gönguseiði“ sagði Sveinbjörn. „Hrognin fáum við að mestu leyti úr stóru ánum í Húnavatnssýslunum, Vatnsdalsá, Víðidalsá, Blöndu, Laxá á Ásum og Miðfjarðará. Við förum að þessum ám og drögum fyrir, setj- um síðan fiskinn í kistur og förum seint á haustin að ánum og kreistum fiskinn áður en við flytjum hrognin heim að Hólum. Við erum einmitt þessa dagana að ná okkur í klakfisk. Það er svo að öllu jöfnu upp úr miðjum október sem við kreistum fiskinn, en það fer að vísu dálítið eftir tíðarfari, þeim kaldara sem er, því fyrr er fiskurinn tilbúinn." — Eigendur laxeldistöðvar- innar Hólalax eru veiðifélögin í Húnavatnssýslum og Skagafjarð- arsýslu, alls um 600 eigendur, sem eru bændur sem land eiga að án- um. Starfsmenn stöðvarinnar eru þrír. Pétur Björnsson er forstjóri. Eins og fram kom í upphafi greinarinnar hefur rekstur stöðvarinnar gengið mjög vel. Reiknað var með að stöðin myndi eiga um 600 þúsund seiði s.l. vor en þau reyndust vera 720-740 þúsund. Verður það að teljast mjög gott, sérstaklega miðað við að hér var um fyrsta starfsár stöðvarinnar að ræða. Sveinbjörn sagðist reikna meá aá um ein milljón hrogna yrðu tekin inn í stöðina í haust. — Það er nýjung í fiskeldi, a.m.k. hér á landi að í stöðinni að Hólum eru ker fyrir seiðin sem eru bæði úti og inni, kerin liggja undir útveggjum hússins þannig að helmingurinn er úti og helm- ingurinn er inni. Þannig er hægt að sinna fóðrun án þess að fara út. Þessi ker hafa að vísu ekki verið notuð enn sem komið er, en seiði verða sett í þau um næstu áramót. Það sem aðallega vinnst með notkun þeirra er að seiðin fá náttúrulega birtu og einnig er kælt á þeim síðustu mánuðina áður en þau fara frá stöðinni sem gönguseiði í árnar. Sveinbjörn Oddsson að störfum 1 fiskeldisstöðinni. Ljósm.: H.Sv. AUGLÝSINGAR OG ÁSKRIFT: 24167 - RITSTJÓRN: 24166 OG 21180

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.