Dagur - 01.04.1982, Blaðsíða 5

Dagur - 01.04.1982, Blaðsíða 5
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI RITSTJÓRNARSÍMAR: 24166 OG 24167 SlMI AUGLÝSINGADEILDAR OG AFGREIÐSLU: 24222 RITSTJÓRIOG ÁBYRGÐARM.: HERMANN SVEINBJÓRNSSON BLAÐAMENN: ÁSKELL ÞÓRISSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: JÓHANNES MIKAELSSON FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT H.F. Áætlun um þróun atvinnuhfs Á nýafstöðnum aðalfundi miðstjórnar Fram- sóknarflokksins var samþykkt ítarleg ályktun um atvinnumál. Þar sagði meðal annars: „íslenska þjóðin stendur nú á tímamótum í atvinnumálum. Ný viðhorf á sviði tækni og markaðsmála breyta miklu. Vöxtur þjóðar- framleiðslunnar á undanförnum árum hefur fyrst og fremst stafað af stórauknum sjávar- afla. Það er ekki að vænta sambærilegrar aukningar á næstu árum. Fundurinn telur höf- uðnauðsyn að gerð verði áætlun um þróun atvinnulífs á komandi árum". Þá er bent á mörg atriði sem tillit þarf að taka til við gerð áætlunar um uppbyggingu atvinnulífsins. Þar er efst á blaði efling byggð- ar um allt land í samræmi við byggðastefnu Framsóknarflokksins, sem miðist við fulla nýt- ingu náttúrugæða og jafnvægi í aðstöðu fyrir- tækja og heimila, en til þess þurfi m.a. jöfnun á orkukostnaði og félagslegri þjónustu. Varðandi sjávarútveg er lögð höfuðáhersla á að auka hagkvæmni, vöruvöndun og betri nýtingu og að vinna að endurnýjun fiskiskipa- flotans, án aukins sóknarþunga. Fundurinn lagði á það ríka áherslu að í stað samdráttar í landbúnaði komi nýjar atvinnugreinar í sveit- um og var sérstaklega bent á aukningu loð- dýraræktar í því sambandi. Til eflingar iðnaði og iðnþróun sé frumskilyrði að atvinnulífinu séu búin hagstæð vaxtarskilyrði, svo að virkja megi sívaxandi þekkingu til aukinnar fjöl- breytni í framleiðslu og þjónustu. íslensk iðn- þróun verður að eiga upptök sín hjá fólkinu og fyrirtækjum þess með virkum stuðningi hins opinbera, en varast ber ofstjórn af hálfu ríkis- ins. Miðstjórn Framsóknarflokksins vekur sérstaka athygli á náttúrulegum auðæfum þjóðarinnar í jarðefnum og orku, sem öflugt átak þarf til að nýta. í ályktun miðstjórnar segir að forsenda þeirrar orkunýtingar sem Framsóknarflokkur- inn hefur boðað á næsta áratug sé að byggðar verði þrjár meiri háttar virkjanir, auk þess sem þegar verði hafnar skipulegar rannsóknir á háhitasvæðum landsins. Miðstjórn telur eðli- legt að röðin verði Blönduvirkjun, Fljótsdals- virkjun og Sultartangavirkjun. Miðstjórn ítrek- ar fyrri yfirlýsingar flokksins um meirihluta- eign og virk yfirráð landsmanna sjálfra í orku- frekum iðnaði, en að jafnframt verði fundnar leiðir til þátttöku sem flestra landsmanna í uppbyggingu hans. Meðal annarra atriða í atvinnumálaályktun miðstjórnar Framsóknarflokksins má nefna, að harðnandi samkeppni við erlend fyrirtæki verði mætt með afnámi sérgjalda sem atvinnuvegirnir verða að greiða, að ráðstafan- ir verði gerðar til að tækniframfarir svo sem tölvubyltingin verði til þess að auka almenna farsæld en leiði ekki til ójafnaðar og atvinnu- leysis og að átaki í samgöngumálum verði fylgt eftir og í því sambandi er lagt til að tekjur hins opinbera af bensínsölu renni óskiptar til uppbyggingar vega og lagningar bundins slitlags. Ekki vissi ég að þú værir svona pólitísk Ég hef ekki fyrr en nú tekið opin- berlega þátt í stjórnmálum, svo e.t.v. er eðlilegt að á þann veg sé við mig mælt: „Ekki vissi ég að þú værir svona pólitísk.“ Þarna í ös- inni fyrir framan búðarborðið, rétt fyrir klukkan sex, gafst mér ekki tóm til að ræða þetta svo nokkru næmi við viðmælanda minn. Ég náði aldrei að segja að ég liti svo á að pólitík eigi sér ekki aðeins stað innan stjórnmála- flokkanna, heldur hvar sem er í umhverfi okkar, þar sem fólk hef- ur skoðanir á málum, atvinnumál- um, skólamálum, félagsmálum, skipulagsmálum o.s.frv. Fólk læt- ur sig þessi mál varða. Okkur er ekki sama hvernig að okkur er búið, hvernig umhverfi við lifum og hrærumst í. Því erum við öll meira og minna pólitísk. Ég bý í bæjarhluta sem telur líklega yfir 4000 íbúa, hverfi sem er að byggjast. í þessu hverfi býr margt ungt fólk, fólk með börn, fólk sem er að byggja, fólk sem vinnur mikið. íbúar nýrra hverfa þurfa vissulega á ýmiss konar þjónustu að halda sambærilegri við það sem gerist í öðrum hverfum, þó skortir nokkuð á að svo sé í Glerárhverfi. Hér býr fólk sem er að koma undir sig fótunum, er bundið yfir börnum, bundið í vinnu og heim- ilisbíllinn er sjaldnast nema einn. Þegar vegalengdin í næstu verslun er farin að skipta kílómetrum get- ur orðið erfitt um aðdrætti við þessar aðstæður. Akstur stræt- isvagnanna bætir þó mikið úr en á sl. ári var leiðum bætt við í Síðu- hverfi. En þar sem byggðin teygir sig æ lengra til norðurs þarf enn að bæta við leiðum. Því má bæta við að ef vagninn æki ekki alltaf sama hringinn nýttist hann betur og börnin gætu notað hann til að komast heim úr skólanum. í umræddum bæjarhluta er að- eins ein verslun, matvöruverslun við Höfðahlíð, og hú er í suður- jaðri hverfisins eins og eini skól- inn í hverfinu, Glerárskólinn. Ein verslun í ca. 4000 manna hverfi getur varla talist ofrausn. Að vísu mun Kaupfélag Eyfirðinga opna aðra matvöruverslun í náinni framtíð við Sunnuhlíð, en þeir sem til þekkja vita þó að einnig þangað er langur vegur yfir íbúa í ysta hluta Síðuhverfis og Holtahverfis. Gera verður átak í því að bæta þjónustu við íbúa utan Glerár og ber að sjá til þess í framtíðinni að þjónustustofnanir „gleymist“ ekki þegar ný hverfi eru byggð. Vissulega er þó ekki hægt að ætl- ast til þess að bærinn stofnsetji Sigfríður Angantýsdóttir. verslanir, en það er illt til þess að vita að aðilar sem verslun hafa með höndum skuli ekki sjá sér fært að setja sig niður í nýjum hverfum. Bænum ber að sjá fyrir góðum lóðum, og hygg ég að það sé gert, en það virðist ekki duga til. Bænum ber hins vegar að undirbúa og hrinda í framkvæmd gerð skólamannvirkja og skal röðun framkvæmda miðast við hvar skólabyggingaþörf er brýnust. Ég get ekki lokað augunum fyrir erfiðleikum skólabarna í Síðuhverfi, það er langt fyrir þau í skólann. Að vísu gengur skólabíll um hverfið en kennslustundir í leikfimi, teikningu, handavinnu og sundi falla þó þannig að börnin geta ekki ávallt notað vagninn. Þau ganga þá þessa tvo, þrjá kíló- metra, foreldrarnir keyra þau eða þau bíða við skólann eftir næstu ferð. Skólaakstri var reyndar ekki komið á fyrr en í jan. sl. og fékkst hann fyrir dugnað og eftirrekstur foreldra umræddra barna. Það er erfitt að vera barn á skólaaldri í Síðuhverfi. Leiðin í skólann er löng, götur ófrágengn- ar og óbyggð svæði á milli. Ef börnin gætu nú farið yfir þessi óbyggðu svæði, t.d. vestan við Endurhæfingarstöðina Bjarg, stytti það mörgum leiðina í skólann. í vetur hefur hins vegar verið snjóþungt svo börnin hafa fremur kosið að ganga eftir götun- um en þær eru þó a.m.k. ruddar og upplýstar. Þarna ytra þarf að koma uppgangstígum til að auð- velda gangandi vegfarendum að komast leiðar sinnar. í Síðuhverfi er gert ráð fyrir mikilli íbúafjölgun næstu árin og er því jafnveí haldið fram að fjöldi barna á aldrinum 6-16 ára geti farið upp í 800 árið 1988 í Síðu- hverfi einu. Svona tölur ber þó að taka með varúð því tilfærsla fólks milli hverfa er mjög mikil og erfitt er að sjá þróunina fyrir svo óyggjandi sé. Við þurfum að fá skóla í Síðu- hverfi en meðan við höfum hann ekki þarf að koma til stórfelldur akstur á skólabörnum milli hverfa. Það er mun ódýrara fyrir bæinn að aka börnunum milli hverfa en byggja skóla en við get- um þó ekki sætt okkur við slíkt fyrirkomulag til lengdar. Það er réttlætismál að sérhvert barn á grunnskólaaldri geti sótt skóla í sínu heimahverfi. Hér voru nefndar þjónustu- stofnanir í nýjum hverfum. Þeir sem að skipulagsmálum vinna og þeir sem fjármagni úthluta, verða í framtíðinni að leitast við að halda þannig á málum, að ekki byggist upp misjafnlega eftirsókn- arverð hverfi vegna mismikillar þjónustu við íbúana. Sigfríður Angantýsdóttir. Á skíðum til Húsavíkur Fyrr í mánuðinum héldu 18 skátar og trimmarar af stað frá Akureyri á gönguskíðum, og var ferðinni heitið til Húsavík- ur. Með í förinni höfðu þeir trimmkveðjur frá Akureyri, en skíðaganga þessi var farin í til- efni trimmdags Skíðasambands íslands sem var þann sama dag og lagt var af stað í gönguna til Húsavíkur. Tveir göngukappanna, þeir Jón Stefánsson og Sigurður Jóhanns- son létu sig hafa það að ganga alla leið, en hinir skiptust á urn að ganga og hvíldu sig í bifreið sem fylgdi göngumönnunum eftir. Gangan hófst í Kjarnaskógi með því að Hermann Sigtryggs- son formaður Trimmnefndar Skíðasambands íslands gekk þar einn hring með kveðjuna, en síð- an afhenti hann kveðjuna þeim er héldu til Húsavíkur. Þeir gengu síðan til Húsavíkur í tveimur áföngum, gistu í Stórutjarnar- skóla og fóru til Húsavíkur daginn eftir. Skíðamennirnir nálgast Húsavík. Húsavíkurfjall í baksýn. Jón Stefánsson og Sigurður Jóhannsson gengu alla leið. Hér eiga þeir 20 km. eftir til Húsavíkur eins og sjá má á steininum. Þorsteinn Pétursson fararstjóri afhendir Húsvíkingum trimmkveðjuna frá Akureyri við komuna til Húsavíkur. Kristinsmótið á Ólafsfirði Skíðaráð Ólafsfjarðar hélt um helgina sitt árlega Kristinsmót, en það er keppni í norrænum greinum til minningar um Kríst- inn Stefánsson skíðamann frá Ólafsfirði. Mót þetta var jafnframt bikar- mót á vegum Skíðasambandsins og voru keppendur allsstaðar að af landinu. Keppni fór fram í mjög góðu veðri báða dagana, en að vísu varð að fresta keppni fram eftir degi á sunnudag sökum hvass- viðris, en veður varð hið ákjós- anlegasta eftir að lygndi. Úrslit í mótinu urðu þessi: Skíðaganga: 19 ára og eldri -15 km: 1. Haukur Sigurðsson Ó 44,37 2. Ingólfur Jónsson R. 45,58 3. Jón Konráðsson Ó. 46,37 17-19 ára -10 km: 1. Finnur Gunnarsson Ó. 30,18 2-. Einar Ólafsson í. 30,47 3. Þorvaldur Jónsson Ó. 32,40 Konur 19 ára og eldri - 5 km: 1. Guðrún Pálsdóttir S. 18,59 2. María Jóhannsdóttir S. 20,09 3. Sigurlína Guðjónsd. S. 15,57 Stúlkur 16-18 ára - 3,5 km: 1. Stella Hjaltadóttir í. 14,04 2. Auður Yngvadóttir I. 15,41 3. Sigurlína Guðjónsd. S. 15,57 Drengir 15-16 ára - 7,5 km: 1. Axel P. Ásgeirsson Ó. 24,31 2. Bjarni Traustason Ó. 24,37 3. Karl Guðlaugsson S. 25,43 Stúlkur 13-15 ára - 2,5 km: 1. SigurbjörgEinarsdóttirS. 2. MargrétGunnarsdóttirS. 3. DallaGunnlaugsdóttirÓ. 10,41 11,47 Drengir 13-14 ára - 5 km: 1. Baldvin Kárason S. 16,41 2. Ólafur Valsson S. 17,08 3. -4. Kristinn Ásgeirsson Ó. 17,24 3.-4. Sævar Guðjónsson S. 17,24 Stökk: 19 ára og eldri: 1. Ásgrímur Konráðssor 2. Haukur Snorrason R. 3. Þorvaldur Jónsson Ó. 17-19 ára: 1. Helgi Hannesson S. 2. Haukur Hilmarsson Ó. 15-16 ára: 1. Hjalti Halldórsson S. 2. Árni Stefánsson S. 13-14 ára: 1. Randver Sigurösson Ó. 2. Ólafur Björnsson Ó. 3. Ragnar Björnsson Ó. 31,5 33,0 ló. Stig 233 206 191 47,0 54,0 45,5 50,5 41.5 41,5 25,5 33,0 26,5 35,5 33,0 33,5 13,05 Akureyrardömur í miklu stuði Um síðustu helgi fór fram á Siglufirði Bikarmót í alpagrein- um. Allir bestu skíðamenn landsins mættu þar til leiks. Sig- urður Jónsson frá ísafirði sigraði örugglega bæði í svigi og stór- svigi, en Ólafur Harðarson frá Akureyri fylgdi fast á eftir. Ak- ureyrardömur voru í miklu stuði á þessu móti og tókst engum öðrum að skjótast upp á milli þeirra. Annars urðu úrslit mótsins þessi: Stórsvig: KARLAR: 1. Sigurður Jónsson í 2. Ólafur Harðarson A 3. Björn Víkingsson A 4. Bjarni Bjarnason A KONUR: 1. Nanna Leifsdóttir A 2. Hrefna Magnúsdóttir A 3. Tinna Traustadóttir A 4. Guðrún J. Magnúsdóttir A 5. Guðrún Kristjánsdóttir A 6. Ásta Ásmundsdóttir A Svig KARLAR: 1. Sigurður Jónsson í 2. Ólafur Harðarson A 3. Einar V. Kristjánsson í 4. Bjarni Bjarnason A 5. Björn Víkingsson A KONUR: 1. Hrefna Magnúsdóttir A 2. Guðrún Kristjánsdóttir A 3. Tinna Traustadóttir A 4. Guðrún J. Magnúsdóttir A „Þetta eru þræl- góðir strákar“ Um helgina voru leikin úrslit í íslandsmótinu í handknattleik í yngri flokkum. Fjögur lið frá Akuryri voru í þessum úrslitum. Fjórði og fimmti flokkur KA og þriðji flokkur karla og kvenna frá Þór. Þeir sem lengst náðu í þessari keppni voru þeir yngstu eða strákarnir úr fimmta flokki KA. „Þetta eru þrælgóðir strákar, og stóðu sig með prýði,“ sagði Erlingur Kristjánsson þjálfari drengjanna. KA strákarnir höfnuðu í öðru sæti, rétt á eftir KR-ingum. Strákarnir í fjórða flokki lentu í sjötta sæti, en annars var þessi riðill mjög jafn og flestir leikirn- ir unnust með mjög litlum mun. Báðir þriðju flokkar - Þórs lentu í fimmta sæti í sínum riðli, en alls voru sjö lið í hverjum riðli. Þriðji flokkur pilta er orðinn mjög sterkur og sérstaklega hjá Reykjavíkurfélögum eða hinum svokölluðu stórveldum í hand- knattleiknum. Ólafur Jónsson formaður handknattleiksdeildar Þórs var fararstjóri Þórsaranna í þessum úrslitum. Hann sagði að það væri leikreynslan sem mest háði norðan mönnunum. Allan veturinn fengu þeir að- eins að leika örfá leiki, á meðan Reykjavíkurfélögin geta leikið nánast í hverri viku. Hann sagði t.d. að þriðji flokkur stúlkna úrslitin, og það sæi hver maður hefði aðeins leikið tvo leiki í vet- að væri allt of lítið. ur áður en farið hefði verið í Firmakeppni í knattspyrnu Um helgina fer fram árlegfirma- tækinu. keppni KRA í innanhúsknatt- Mótið hefst á föstudagskvöld spyrnu. Þar má ekki brengla um kl. 19.00 og verður síðan saman tveimur eða fleiri fyrir- tækjum, og allir verða að vera á launaskrá hjá einu og sama fyrir- fram haldið á laugardag kl. 13.30. Old boys“ í alpagreinum 55 Um næstu helgi fer fram í Selja- landsdal við Isafjörð óformlegt íslandsmót öldunga í alpagrein- um. Slíkt mót fór fram hér á Akur- eyri í fyrra og þótti heppnast mjög vel. Það er skíðaráð ísa- fjarðar sem sér um mótið að þessu sinni. Keppendur þurfa að vera orðnir 35 ára, en margir knáir skíðamenn og konur eru nú komin yfir þau aldurstak- mörk. Eftir helgina verður nán- ar greint frá úrslitum í þessu móti. 4 - DAGUR -1. apríl 1982 1. apríl 1982 - DAGUR - 5

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.