Dagur


Dagur - 29.06.1982, Qupperneq 9

Dagur - 29.06.1982, Qupperneq 9
Úrskurður dómstóls KRR: Albert ólöglegur Páll Pálmason, Eyjamarkvörður, umfaðmar Erling Kristjánsson, og tvísýnt hvor hefur betur í baráttunni um boltann. Mynd: KGA. KAtapaði Að viðstöddum ailt of fáum áhorfendum í gærkvöld léku Þórsarar í annarri deild við Fylki. Leikið var á sama tíma og bein útsending var frá heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu, þannig að senni- lega hafa knattspyrnuáhuga- menn heldur viljað sitja heima við sjónvarpstæki sín, heldur en hvetja Þórsara í þessum leik. Það er ófyrirgef- anlegt fyrir félag, sem telur yfir eitt þúsund meðlimi að leika áríðandi leik í annarri deild í knattspyrnu fyrir jafn fáa áhorfendur og raun bar vitni um. Veður var eitt það besta, sem verið hefur á síð- kvöldi á þessu sumri. Það er skemmst frá því að segja, að leiknumlaukmeðjafn- tefli, bæði liðin skoruðu tvö mörk, og teljast það sanngjörn úrslit leiksins. Fyrsta marktækifærið kom á 10. mín. Þá fékk Hafþór góðan stungubolta frá Óskari, en hitti ekki markið úr sæmilegu færi. Nokkrum mín. síðar fengu Fylk- ismenn svipað færi og skutu einnig framhjá. Á markamínút- unni frægu eða 43. kom fyrsta mark leiksins. Pá einlék einn sóknarmanna Fylkis í gegn um vörnina hjá t>ór og komst í gott færi, en Eiríkur varði skot hans en missti boltann frá sér og Birg- ir Þórisson skoraði örugglega. Strax á 2. mín. síðari hálfleiks jöfnuðu svo Þórsarar. Þá sendi Hafþór góðan bolta fyrir markið, einn Fylkismanna náði boltanum, en var heldur seinn að hreinsa frá, því að Ósk- ar Gunnarsson kom þá aðvíf- andi og skoraði með föstu skoti. Þórsarar komust síðan yfir á 29. mín. Þá var dæmd hendi á markmann Fylkis fyrir að fara með boltann út fyrir vítateig í út- sparki. Örn Guðmundsson náði mjög góðu skoti alveg niður við jörð í gegn um varnarmúrFylkis og í netið. Aðeins tveimur mín. síðar jöfnuðu Fylkismenn eftir að vörnin hjá Þór svaf illa á vcrðin- um og Kristinn Guðmundsson skoraði örugglega. Fleiri urðu mörkin ekki í þessum leik, en bæði liðin áttu þó góð tækifæri, en tókst ekki að skora. T.d. komst Hafþór í dauðafæri á 40. mín. en skaut rétt yfir, fyrir opnu marki. Liðin skiptu því með sér stigunum úr þessum leik, en bæði eru í efri hluta deildarinnar. Það er að verða eins með aðra deildina og þá fyrstu, að staðan er mjög jöfn og tvísýn, en Þrótt- arar úr Reykjavík hafa hins veg- ar nokkuð örugga forustu, en mörg önnur lið berjast um ann- að sætið í deildinni, en tvö lið flytjast í fyrstu deild. Fyrsti leikurinn sem leikinn var á grasvellinum fór fram á laugardaginn. Þá mættust í fyrstu deild KA og Vest- mannaeyingar. Leikurinn fór fram í góðu veðri, hita, en svolítilli norðan golu. Búist var við fjörugum leik, en a.m.k. fyrri hálfleikur hafði upp á Iitla skemmtun að bjóða. IBV lék undan golunni en segja má að leikurinn hafi að mestu farið fram á miðjum velli, eða á milli vítateiganna. Hvorugur markmannanna þurfti í fyrri hálfleik að verja skot að marki. Vestmanna- eyingar fengu þrjár hornspyrnur og KA tvær, en þá er upp talið það sem blaðamenn punktuðu hjá sér í fyrri hálfleik. KA-menn voru frískari í síðari hálfleik enda höfðu þeir vindinn í bakið. Á 15 mín. var Elmari brugðið rétt við víta- teigshornið hægra megin, en Páll Pálmason markvörður ÍBV varði aukaspyrnuna örugglega. Tveimur mín. siðar varði Páll aftur vel og í þetta skipti skalla frá Donna. Á 24. mín. lék Elmar laglega á landsliðsbakvörðinn Örn Óskarsson, eins og hann reyndar gerði oft í leiknum. Elmar sendi síðan boltann vel fyrir markið og Ásbjörn skall- aði, en um leið reyndi Páll mark- maður úthlaup, en varnarmenn ÍBV vörðu á línunni. Fyrsta marktækifæri Vestmannaeyinga komá35. mín. Þá lékubræðurn- ir Sigurlás og Kári laglega í gegn um vörn KA, og Sigurlás var kominn í dauðafæri, en Aðal- steinn varði meistaralega í horn. Þessi hornspyrna átti hins veg- ar eftir að verða örlagarík, því Ómar Jóhannsson skoraði beint úr hornspyrnunni. Þetta mark kom eins og köld vatnsgusa framan í KA strákana sem náðu sér ekki á strik það sem eftir var leiksins. Það var því mikill fögn- uður í herbúðum Vestmanna- eyinga þegar góður dómari leiksins, Þorvarður Björnsson flautaði til leiksloka. Áhorfendur á þessum leik voru um eitt þúsund. Staðan í deildinni er nú það tvísýn að ef lið tapar einum til tveimur leikjum falla þeir af toppi og niður í fallsæti. KA á erfiða leiki framundan, en það er gegn Víkingi á miðvikudags- kvöldið og fer sá leikur fram fyrir sunnan, og um næstu helgi leikur Breiðablik hér. Stórsigur hjá Magna Knattspyrnumennirnir a Grenivík unnu stórsigur um helgina þegar lið þeirra Magni lék við Sindra. Þetta var leik- ur í þriðju deildinni. Þegar flautað var til hálfleiks hafði Magni skorað tvö mörk en Sindri ekkert. Magnamenn bættu síðan við þremur mörkum í síðari hálfleik og unnu því með fimm mörkum gegn engu. Mörk Magna skor- uðu Hringur Hreinsson 2, Bjarni Gunnarsson, Jón Ingólfs- son og Jón Illugason eitt hver. í sömu deild sigraði Huginn Árroðan með tveimur mörkum gegn engu. í liði Hugins eru m. a. Ólafur Sigurvinsson úr Vest- mannaeyjum og Guðjón Harð- arson sem áður lék með Val og KA. Austri og HSÞ léku á Eskifirði á laugardag og lauk leiknum með jafntefli 0 — 0. Dómstóll Knattspyrnuráðs Reykjavíkur kom saman um helgina og afgreiddi kæru íþróttabandalags ísafjarðar gegn Valsmönnum fyrir að hafa notað ólöglegan leik- mann í leik liðanna í 1. deild. Þessi leikmaður er Albert Guðmundsson, sem lék með Val gegn ÍBÍ. ísfirðingarnir vilja Jaf ntef I i .....w.wa- Hætta í uppsiglingu við Fylkismarkið; Bjarni Steingrímsson gefur fyrir markið. Mynd: KGA. meina að Albert hafi ekki verið löglegur þegar leikurinn fór fram og tók dómstóllinn undir það sjónarmið. Valsmenn munu þegar hafa áfrýjað þessum dómi til dómstóls KSÍ. Eins og kunnugt er, kærði KA lið Vals á sömu forsendum og er dóms að vænta frá dómstól ÍBA mjög fljótlega. 29. júní 1982- DAGUR- 9 . 111 * T i t.i i <

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.