Dagur - 29.06.1982, Blaðsíða 12

Dagur - 29.06.1982, Blaðsíða 12
Alltaf vex vöruúrvalið Vinsamlegast komið og skoðið Olæstur eldhússkápur vin- sælasti geymslustaðurinn 7óska nafn- leyndar á Dalvík Sjö af umsækjendum um stöðu bæjarstjóra á Dalvík hafa ósk- að eftir því, að nafn þeirra verði ekki gefið upp. Alls bárust 10 umsóknir um stöðuna, en ákvörðun um það, hver hana hlýtur, verður tekin bráðlega að sögn Kristjáns Ólafs- sonar, forseta bæjarstjórnar. Þeir umsækjendur, sem ekki óskuðu nafnleyndar eru: Björn Mikaelsson, Akureyri, Þorsteinn Máni Árnason, Dalvík, sem bú- settur er í Kaupmannahöfn og Ævarr Hjartarson, Akureyri. K-listinn fékk alla í hreppsnefndarkosningum í Skútustaðahreppi um helgina komu fram tveir listar, K-iisti og L-listi. Var fyrir nokkru vit- að um tilurð fyrrnefnda listans og reiknað með, að það yrði sjálfkjöriö, þar sem annar listi kæmi ekki fram. Þremur mínútum áðuren frest- ur til að leggja fram framboðslista rann út, kom þó annar listi, og var hann lagður fram af Kristjáni Þór- hallssyni í Björk. Var því gengið til atkvæða um síðustu helgi. Úrslitin urðu þau, aö K-listinn hafði algjöra yfirburði og hlaut alla fulltrúana fimm, en L-listinn hlaut hins vegar aðeins örfá at- kvæði. Hreppsnefndarmenn i Skútustaðahreppi eru því Helga Valborg Pétursdóttir, Hallgrímur Pálsson, Böðvar Jónsson, Björn Ingvason 'og Sigrún Guðjónsdótt- ir. Presta- stefna hófst í gær Prestasfefna hófst að Hólum t Hjaltadal í gær. Pétur Sigur geirsson, biskup, setti presta- stefnuna og flutti yfirlitsskýrslu sína í Hóladómkirkju. Þar flutti og Friðjón Þórðarson, kirkjumálaráðherra, ávarp. Fundir prestastefnunnar fara annars fram í fundarsal Bænda- skólans, en aðstaða til ráðstefnu- halds er nú mjög góð á Hólum. Aðalefni prestastefnunnar í ár er „Friður á jörðu“, og eru fram- sögumenn þeirdr. ÞórirKr. Þórð- arson, séra Sváfnir Sveinbjarnar- son, prófastur og dr. Gunnar Kristjánsson. Prestastefnunni verður slitið annað kvöld. í nóvember 1980 og mars á þessu ári voru gerðar tilraunir til að kanna lyfjabúskap Akur- eyringa. Tilgangurinn var sá að reyna að varpa Ijósi á lyfja- byrgðir heimila og geymslu- staði þeirra, en einnig að graf- ast fyrir um meðferð sýklalyfja. Framkvæmdin var með þeim hætti, að nemendur M.A. fengu í hendur eyðublað, sem þeir tóku með sér heim og út- fylltu þar. Þannig fengust upp- lýsingar frá um 130 heimilum í fyrri könnuninni og um 61 í þeirri siðari. Það var Sigurður Bjarklind, kennari við M.A., sem stóð fyrir þessari könnun. Hann segir í skýrslu, sem hann hefur ritað um könnunina, að heildarfjöldi lyfja- sýna í fyrri könnuninni hafi reynst 965 og 422 í þeirri síðari. Þá eru ekki talin með vítamín og ýmiss konar kvefmixtúrur, því að fram kom síðar, að menn töldu slíkt ekki til lyfja. Að meðaltali virtust vera til um 7 mismunandi lyf á hverju heimili. í Ijós kom, að ólæstur eldhús- skápur er langvinsælasti geymslu- staðurinn, að vísu oft í efstu hillu. Baðskápar eru í öðru sæti og nátt- borðsskúffur í því þriðja. í aðeins þrem tilvikum var um læstan lyfjaskáp að ræða. Sigurður gerði tvo lyfjaflokk- ana að umtalsefni, þ.e. sýklalyf og verkjalyf. Algengt er, að fólk geymi töluverðar birgðir af þess- um lyfjum heimar og að það ljúki ekki við útgefinn skammt af sýklalyfjum. Það er hins vegar mjög mikilvægt, að lokið sé við þá skammta af sýklaiyfjum, sem við- komanda er úthlutað hverju sinni. Sigurðursegir, að könnunin bendi til, að algengt sé, að töku sýklalyfja sé hætt of snemma. Það stafi fyrst og fremst af vankunn- áttu neytandans og ónógum leið- beiningum af hálfu lækna. Það kemur glöggleglega fram, að verkjalyf eru í efsta sæti vin- sældalistans. Lætur nærri, að ein- hver gerð verkjalyfs fyrirfinninst á hverju heimili á Akureyri. Af einstökum gerðum er langmest af Magnyl. Þessi könnun gefur litlar upplýsingar um hversu mikil neysla verkjalyfja er á Akureyri, en Sigurður segir, að leiða megi að því líkur, að lyf sem fyrirfinnist á sérhverju heimili, hljóti að vera töluvert mikið notað. Til viðmið- unar má geta þess, að Banda- ríkjamenn, sem eru óopinberir heimsmeistarar í töfluáti, gleyptu árið 1970 um 20 þúsund tonn af asperíni eða 235 töflur á dag á ári, sem er u.þ.b. % úr töflu á hvert mannsbarn á dag. Akureyri: Upplýsinga- miðstöð fyrir ferðamenn Ferðamálafélag Akureyrar hefur í samvinnu við ýmsa hagsmunaaðila opnað upplýs- ingamiðstöð fyrir ferðamenn á Akureyri. IJpplýsingamiðstöð- in er til húsa í húsi Hótels KEA (þar sem Samvinnuferöir - Landsýn voru áður). Á fundi sem stjórn ferðamála- ráðs átti með bæjarstjórn, var upplýsingamiðstöðin meðal ann- ars rædd, og voru flestir sammála um að nauðsyn væri á slíkri mið- stöð hér í bæ. Hinsvegar var einn- ig ljóst, að fé til að stofnsetja mið- stöðina yrði ekki sótt í bæjarsjóð. Brá stjórn ferðamálaráðs þá á það ráð að leita til þeirra aðila í bænum sem ættu hagsmua að gæta og biðja þá um peninga til að koma á fót þessari þörfu þjón- ustu. Lofaði bæjarstjórn jafn- framt að veita styrk en endar næðu illa saman. Starfsmenn upplýsingamið- stöðvarinnar eru þær Hólmfríður Jóhannsdóttir og Selma Hauks- dóttir, og er veitt öll upplýsinga- þjónusta við ferðamenn, jafnt innlenda sem erlenda. Opið er virka daga milli 9.00 og 20.00 laugardaga, 10.00-17.00 og sunnudaga 10.00-13.00. Fyrir utan Upplýsingamiðstöðina, Gunnar Karlsson, Gísli Jónsson og ívar Sigmundsson, sem eru í stjórn Ferðamannafélags Akureyrar. Fyrir framan þá standa þær Hólmfríður Jóhannsdóttir og Selma Hauksdóttir, starfsmenn Upplýsingamiðstöðvarinnar. Mynd: KGA. m ra líl ?! r1 s * '}l Qj _ L Jl # Aftærðum ofnum Dagur hefur að undanförnu greint lesendum sínum frá tæringu ( ofnum og lögnum í Glerárhverfi. Málið er enn i rannsókn og verður svo enn um sinn. En að sjálfsögðu vakna margar spurningar þegar jafn viðamikið mál og þetta kemur fram á sjónar- sviðið. Sú alvarlegasta - en jafnframt ein sú þýðingar- mesta - er hvort forráðamenn Hitaveitu Akureyrar hafi látið undir höfuð leggjast að fylgj- ast náið með ástandi vatnsins eftir að það var lagt af stað út í dreifikerfið. Getur verið að það hafi ekki verið tekin sýni úr vatninu sl. eitt ár eða svo út í Glerárhverfi? Ekki ætlar S&S að ieggja neinn dóm á það en bendir á að ofn tæríst á 18 til 24 mánuðum og líklegt má telja að súrefnisríkt vatn hefði uppgötvast ef sýni hefði verið tekið - eða hvað? # Til neytenda samtakanna Á forsíðu Dags er greint frá því að neytendasamtökin muni hugssanlega láta til sín taka í þessu máli, enda um hreinræktað neytendamál að ræða, svo sannarlega skiptir það neytendur í Glerárhverfi miklu máli hvort ofnar sumra þeirra eru að fara í sundur. Og hvað með bætur? Og hvernig á að standa að rannsókn á ofnum á því svæði sem talið er að sé í mestri hættu? Þetta eru spurningar sem samtök á borð við neytendasamtökin gætu einna helst fengið svör við, auk þess sem samtökin eru samtaka líklegust til að geta rekið málið af einhverju viti. # Ekkert regn Þurrkurinn að undanförnu er farinn að fara í taugarnar á sumum bændum í nágrenni Akureyrar. Svo var einnig um árið þegar nokkrir bændur sunnan bæjarins fengu slökkviliðið til að koma á vett- vang og sprauta á túnin. Dag- inn eftir að slökkviliðsmenn- irnir höfðu sprautað af mikilli list fór að hellirigna. Eftir því sem S&S heyrði á dögunum eru nágrannar umræddra bænda farnir að hafa orð á því hvort ekki sé rétt að fara að panta slökkviiiðið á nýjan leik - það hafi gefist svo ansi vel hérna um árið. # Attasíðurá fimmtudögum í sumar verður Dagur yfirleitt átta síður á fimmtudögum. Ástæðan er sú að hluti starfs- manna Dags og Dagsprents er í sumarfríi.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.