Dagur - 31.08.1982, Page 12
NYLONHÚÐAÐAR GRJOTHLIFAR
FRAMAN Á BÍLA.
Ólög-
legt
upplýs-
ingarit
Nýlega var hér í bæ dreift í hús
upplýsingariti um Akureyri;
þar er um símaskrá að ræða.
Útgefandi er Félag ungra sjálf-
stæðismanna á Akureyri. „Ég
hef skrifað bæjarfógeta bréf,
þar sem ég óska eftir að fari
fram rannsókn á því hvort ekki
sé þarna um brot á fjarskipta-
lögum að ræða, sem þetta er að
okkar áliti,“ sagði Arsæll
Magnússon umdæmisstjóri
Pósts og síma á Akureyri. „Ég
hef ekki fengið svar þaðan, en
við munum óska eftir því að
þetta rit verði innkallað og gert
upptækt ef um brot á lögum er
að ræða.“
Ársæll sagði ástæðuna vera þá,
að Póstur og sími hefði samkvæmt
fjarskiptalögunum frá 1941,
einkarétt á að gefa út nafnaskrá
fjarskiptastöðva og notendur fjar-
skiptavirkja. „Póst og símamála-
stofnunin hefur gefið út símaskrá
einu sinni á ári og við höfum safn-
að í þá skrá auglýsingum sem hafa
fjármagnað kostnaðinn,“ sagði
Ársæll. „Símnotendur hafa því
ekki þurft að greiða sérstaklega
fyrir skrána. Með þessu upplýs-
ingariti er um samkeppni að ræða
sem gæti þýtt að við missum við-
skipti."
Ennfremur sagði Ársæll að
mikið væri lagt upp úr því að
fylgja þessum einkarétti eftir, ein-
mitt með hliðsjón af því að síma-
skráin fjármagnar sig sjálf og
greiðir einnig hluta af skráning-
arkostnaði.
Brot á fjarskiptalögunum varð-
ar sektum allt að tíu þúsund krón-
um eða varðhaldi ef miklar sakir
eru. Upptæk skulu gerð tæki þau
og hlutir sem í heimildaleysi hafa
verið flutt inn, smíðuð eða
starftækt.
.Krakkarnir í Frábæ skemmtu sér vel á föstudaginn, þegar þau efndu til hátíðar
með ýmsum ieikjum og sprelli. Til að byrja með var gengið í skrúðgöngu til
Lundarskólans þar sem skemmtunin fór fram. Síðan var kökuveisla.
Ljósmynd: KGA.
Sjóstanga-
veiðimót
Hiö árlega sjóstangaveiðimót
Akureyrar fer fram þann 11.
september. Væntanlegir kepp-
endur taka daginn snemma því
farið verður með rútu frá Akur-
eyri kl. 6 um morguninn, en
áætlað er að róið verði frá
Dalvík klukkustund síðar.
Mótið verður sett föstudags-
kvöldið 10. september að Hótel
KEA, og þar mæta menn til að
sækja sín gögn og þess háttar.
Að venju verða fjölmörg verð-
laun í boði fyrir þá sem hafa
heppnina með sér í mótinu. Sá
sem veiðir stærsta fisk hverrar
tegundar fær verðlaun, aflahæsta
konan og aflahæsti einstaklingur
mótsins og sá sem fær flesta fisk-
ana. Þá er mótið um leið sveita-
keppni, og aflahæsta sveitin fær
að sjálfsögðu verðlaun.
Reiknað er með mikilli þátt-
töku í mótið, en það er öllum opið
sem hafa áhuga á að spreyta sig.
Von er á keppendum frá Vest-
mannaeyjum, Reykjavík, Kefla-
vík og sennilega einnig frá ísa-
firði, og væntanlega láta Eyfirð-
ingar og áhugamenn út næstu
byggðarlögum sig ekki vanta.
Þátttöku þarf að tilkynna fyrir
3. september til Jóhanns Kristins-
sonar í síma 21670 eða Bjarna
Sigurjónssonar í síma 25857 og er
þátttökugjald kr.500.
Jóhann Pétursson Svarfdælingur
dvelur nú á Landspítalanum.
Ljósmynd: Jim Smart
Jóhanni Svarfdæl-
ingi boðin
búseta í Dalbæ
Jóhann Svarfdælingur, hæstur
íslendinga, og þótt víðar væri
leitað, hefur undanfarna ára-
tugi verið búsettur í Bandaríkj-
unum. Hann er fyrir nokkru
kominn heim til íslands og hef-
ur verið boðin búseta að
Dalbæ, heimili aldraðra á
Dalvík. Jóhann hefur ekki enn
tekið ákvörðun um hvort hann
þiggur það boð.
„Upphaf þessa máls er það að
ég var síðustu þrjú ár að læra öldr-
unarfræði í háskólanum í Tampe í
Flórída. Þegar ég svo kom heim
tók ég við þessari stöðu hérna,“
sagði Gunnar Bergmann for-
stöðumaður Dalbæjar. „Fyrir til-
viljun frétti ég síðan að Jóhann
hefði búið þarna rétt hjá mér í
Tampe. Og málin þróuðust því á
þann veg að mér var falið að fara
út og verða honum samferða
heim, hann þyrfti aðstoðar með á
leiðinni."
Jóhann er núna í læknismeð-
ferð á Landspítalanum, og alls er
óvíst hvort hann mun setjast að í
Dalbæ.
Dökkar
horfur
í fata-
iðnaoi
„Samkeppni við innflutning
hefur aukist alveg gífurlega á
síðasta ári og það sem af er
þessu ári. Samkeppnisstaða
innanlands hefur versnað stór-
lega gagnvart innflutningi
vegna þess að allur tilkostnaður
innanlands hefur hækkað mun
meira en verð á erlendum
gjaldeyri.“ Svo fórust Gunnari
Kjartanssyni hjá Iðnaðardeild
Sambandsins, orð um ástand
mála í fataiðnaði.
Gunnar nefndi sem dæmi að
Evrópugjaldmiðill hefði hækkað
um rúm 20% að meðaltali, meðan
tilkostnaður innanlands hefur
hækkað um 50%. Innflutningur
fyrstu sex mánuði þessa árs hefur
aukist um 84% í krónum talið,
miðað við fyrstu sex mánuði síð-
astliðins árs. Sé hinsvegar litið á
gengisþróunina kemur í ljós að
um gífurlega magnaukningu er að
ræða.
„Gengisfellingin núna hefur að
öllum líkindum ekki önnur áhrif
en þau að hún leiðréttir þetta
stóra bil sem að hluta til var
komið,“ sagði Gunnar. „En hinu
má ekki gleyma að okkar hráefni
hækkar um það sem þessi gengis-
felling nemur og hráefni er einn
þriðji af tilkostnaði. Ofan á það
bætist síðan hækkun launa, þann-
ig að munurinn verður fljótur að
étast upp.“
Um hvað væri til ráða nefndi
Gunnar, að jafna þyrfti aðstöðu
iðnaðar gagnvart öðrum atvinnu-
rekstri í landinu, til dæmis með
launaskatt o.fl. „Menn eru yfir-
leitt mjög svartsýnir á horfurnar
framundan í íslenskum fataiðn-
aði. Það er erfitt að keppa hér
við erlenda framleiðslu sem er
seld á útsölu má segja - gjaldeyrir
er, og hefur verið, á útsöluverði
að heita má.“
# Margtsagtog
skrifað
Nú er lokið árlegu fjórðungs-
þingi Norðlendinga. Þar gekk
nú á ýmsu eins og sjá má víða
í þessu blaði. Ályktanir sem
samþykktar voru námu tæp-
um þremur tugum og hér
verður ekki reynt að giska á
hversu margar ræður voru
fluttar. Eftir síðasta fjórð-
ungsþing hafði einn ágætur
maður á orði að þingskjölin
hafi verið eitthvað á annað
kíló. Það er því Ijóst að mörg
orðin eru sögð og skjalfest á
þingum sem þessum.
# Stefnumark-
andi áhrif
Það sem hér að ofan greinir
kann að þykja fremur nei-
kvætt. Sífellt heyrist sami
söngurinn um að masað sé
og fjasað á fjórðungsþingum
en lítið sem ekkert gerist. Það
er reyndar ööru nær því fjöl-
margt af því sem samþykkt
hefur verið á fjórðungsþing-
um hefur þegar komist 1 fram-
kvæmd og vafalaust eiga
margar þær ályktanir sem
samþykktar voru á nýaf-
stöðnu þíngi eftir að hafa
veruleg stefnumarkandi áhrif.
# Meiravægi
gagnvart
stjórnvöidum
Það mikilvægasta 1 þessu öllu
er þó ef til vill það, að lands-
hlutasamtök eins og Fjórð-
ungssamband Norðlendinga
eru vel til þess fallinn að koma
á heildarskipulagi í heilum
landsfjórðung, þar sem ann-
ars væri hver höndin upp á
móti annarri. Raunar ber svo-
lítið á því innan Fjórðungs-
sambands Norðlendinga að
hver hugsi um sína þúfu og
að jafnvel sé öfundast út í
nágrannann. En sem beturfer
hefur slíkur ágreiningur
ævinlega verið jafnaður og
menn hafa komist að sameig-
inlegum niðurstöðum, sem
hafa meira vægi gagnvart
stjórnvöldum á höfuðborgar-
svæðinu heldur en ef hver
væri að álykta t sínu horni.
Sem sagt þrátt fyrir allan
pappírinn og ræðurnar og
ályktanirnar er hér um mjög
þarft fyrirbæri að ræða. Orð
eru jú til alls fyrst.
# Farið
gætilega
í umferðinni
Nú fer skólinn að hefjast með
allri þeirri umferð gangandi
barna og ungmenna sem það
hefur í för með sér. Lögreglu-
yfirvöld á Akureyri hafa verið
til fyrirmyndar með að leið-
beina og greiða fyrir umferð
þar sem hún er mest í nánd
við skólana. Vafalaust verður
svo áfram. Þó er rétt að minna
alla á að fara gætiiega. For-
eldrar ættu að aðstoða börn
sín við að komast í skólana
fyrstu dagana.