Dagur - 16.09.1982, Blaðsíða 1
MIKIÐ
ÚRVAL AF
SKARTGRIPA
SKRÍNUM
GULLSMIÐIR
I SIGTRYGGUR S PÉTUR
' AKUREYRI
FILMUhi
65. árgangur
Akureyri, flmmtudagur 16. september 1982
101. tölublað
Mjólku rf ramlei ðsla
svipuð og í fyrra
Mjólkurframleiðslan til ágúst-
loka í ár varð 14,4 milljónir lítra
sem er svipað og á sama tíma í
fyrra, eða 43 þúsund lítrum
minni. Samdrátturinn nemur
0,3%, samkvæmt upplýsingum
Vals Arnþórssonar, kaupfé-
Iagsstjóra KEA.
Sala á mjólkurvörum hefur
gengið með eðlilegu móti en þó
eru fyrirliggjandi hjá mjólkur-
samlaginu allnokkrar birgðir um
þessar mundir, eins og venjulega
er á þessum árstíma.
Framleiðsluráð hefur ákveðið
að greiða mjólkurframleiðendum
20 aura á hvern mjólkurlítra
framleiddan í september og
október og talið er að einnig muni
koma sérstakar greiðslur fyrir
mjólk sem framleidd verður í
nóvember, desember og janúar,
þótt endanleg ákvörðun liggi ekki
fyrir um það ennþá.
Þessar sérstöku greiðslur koma
úr kjarnfóðursjóði, en með þeim
vill framleiðsluráð stuðla að jöfn-
un mjólkurframleiðslunnar milli
vetrar- og sumarmánaða. Sagðist
Valur Arnþórsson vilja taka mjög
sterklega undir það sjónarmið að
afar brýnt væri fyrir Mjólkursam-
lag KEA að framleiðslan jafnist
verulega milíi árstíma frá því sem
nú er.
Hann sagði að sveiflan væri
gífurlega mikil, þannig að mjólk-
urmagnið að sumrinu væri mjög
miklu meira en að vetrinum.
Þetta ylli erfiðleikum í vinnsl-
unni, miklu álagi á þeim tíma þeg-
ar sumarleyfi stæðu sem hæst og
kallaði á mikinn aukamannskap
og aukavinnu, sem hvort tveggja
væri mjög dýrt. Þaö væri þess
vegna beint hagsmunamál fyrir
bændurna að jafna fraitileiðsluna
þannig að rekstur Mjólkursam-
lagsins yrði sem allra hagkvæm-
astur.
Dr. Kristján
Eldjárn
látinn
Dr. Kristján Eldjárn, fyrrum
forseti íslands, Iést i sjúkra-
húsi í Ohio í Bandaríkjunum
sl. þriðjudag 65 ára að aldri.
Dr. Kristján hafði daginn
áður gengist undir uppskurð
á sjúkrahúsi í Cleveland.
Dr. Kristján var fæddur 6.
desember 1916 á Tjörn í Svarf-
aðardal. Foreldrar hans voru
Þórarinn Kristjánsson Eldjám
og Sigrún Sigurhjartardóttir.
Hann lauk námi frá Mennta-
skólanum á Akureyri 1936 og
nam síðan við Kaupmanna-
hafnarháskóla til ársins 1939.
Hann tók mag. art. próf í ís-
lenskum fræðum frá Háskóla
íslands árið 1944 og varði dokt-
orsritgerð sína „Kuml og haug-
fé úr heiðnum sið á íslandi“ við
háskólann árið 1957.
Dr. Kristján stundaði
kennslu við Menntaskólann á
Akureyri og varð síðan að-
stoðarmaður við Þjóðminja-
safn íslands áður en hann var
skipaður þjóðminjavörður
1947. Því starfi gengdi hann til
ársins 1968.
Það ár var hann kjörinn
þriðji forseti íslands, og
embætti forseta íslands gegndi
hann til miðs árs 1980. Dr.
Kristján var kvæntur Halldóru
Ingólfsdóttur Eldjárn og eign-
uðust þau fjögur börn.
Fráfall dr. Kristjáns er mikil
harmafregn öllum íslending-
um enda var hann ástsæll for-
seti íslensku þjóðarinnar.
Framkvæmdir við efstu brúna á Glerá ganga samkvæmt áætlun og má reikna með að umferð verði hleypt á hana fyrri
hlutann í október. Ljósmynd: KGA
aðarmannaráð Landssam-
bands íslenskra útvegsmanna
stöðvað togaraflota lands-
manna, á þann hátt að er togar-
arnir koma til hafnar að lokinni
veiðiferð verða þeir bundnir
við bryggju. Það vakti því at-
hygli er togarinn Björgvin frá
Dalvík kom til heimahafnar sl.
mánudag og hélt aftur út til
veiða eftir stuttan stans.
„Það var bilun í vél togarans og
hann kom einungis til hafnar til
þess að sækja varahlut,“ sagði
Björgvin Jónsson forstjóri Ut-
gerðarfélags Dalvíkinga hf. sem
gerir togarann út. „Hann landaði
engu, tók ekki olíu eða vatn eða
neitt annað. Ég stóð í þeirri mein-
ingu að hann mætti ljúka við
túrinn, annars hefði ég sent bát
með varahlutinn út til hans,“
sagði Björgvin.
„Togarinn var ekki búinn að
ljúka sinni veiðiferð og hann er að
því áfram," sagði Kristján Ragn-
arsson framkvæmdastjóri Lands-
sambands íslenskra útvegsmanna
er við spurðum hann um þetta atr-
iði. „Við erum ekki að kappkosta
það með neinum hætti að stöðva
flotann, þetta er neyðarbrauð og
við ætluðum okkur að gefa lengri
frest með því að láta skipin ljúka
veiðiferð sem hófst áður en jjetta
tók gildi/‘
Hrísey:
Neyðarástand í síma-
málum ef rafmagn fer
t * . .. ... . . . .
„Astandið í símamálum hér í
eyjunni er þannig að við erum
alveg hreint allslausir ef raf-
magnið fer af. Ef það gerist, þá
þarf að setja varavélar í gang til
þess að koma símstöðinni inn
aftur, en þá er það skilyrði að
Dalvík hafl líka straum. Ef
Dalvík er straumlaus, þá kom-
umst við ekki I símasamband.“
Þetta sagði Örn Kjartansson
oddviti í Hrísey er við ræddum við
hann um ástand símamála í eyj-
unni. íbúar þar búa við öryggis-
leysi í símamálum eins og fram
kemur hjá Erni hér að framan og
hefur svo verið lengi.
„Það tekur hálftíma til þrjú
korter að ræsa varavélarnar þegar
rafmagnið fer í eyjunni og það er
talsvert mál. Það er hinsvegar til
miklu einfaldari lausn á þessu
máli sem um leið eykur öryggi
okkar mikið. Það er að setja tal
stöð á símstöðina sem yrði tengd
rafhlöðu og konurnar sem þar
starfa gætu þá haft samband við
land og kallað fyrir okkur hvert
sem er. Hingað til höfum við orð-
ið að treysta á ferjuna, að hægt
væri að kalla úr henni í land.
Ég hef haft samband við um-
dæmisstjóra Pósts og síma um að
við fengjum þessa talstöð til þess
að auka öryggi okkar. Það gerði
ég í vor. Þeirri beiðni var ekki illa
tekið en talstöðina höfum við ekki
séð enn sem komið er.
Það sem við biðjum um er að fá
talstöð og einn rafgeymi. Það hafa
átt sér stað hér slys á þeim tíma
sem við höfum verið rafmagns-
lausir og símasambandslausir og
við komumst loksins í samband
við land með lítilli CB stöð og gát-
um þannig fengið læknishjálp úr
landi.“
Hluti byggðarinnar í Hrísey.