Dagur - 27.03.1985, Blaðsíða 12
Alltaf vex vöruúrvalið B 1
l-/uLjVSj 1 Akureyri, miðvikudagur 27. mars 1985 Vinsamlegast komið og skoðið fgKj |
Skátafélagið Eilífsbúar á Sauðárkróki átti mcrkisafmæli sl. föstudag. í tilefni af því gerðu félagar sér glaðan dag,
gengu syngjandi um götur Sauðárkróks og báru stóran borða sem á stóð: Við eigum afmæli. Mynd: KGA
H rassaf lutn ingaski p
á Akureyri í apríl
- flytur sláturhross og reiðhesta til Belgíu
Margir vilja framleiða dömubindi:
„Hefur engin
áhríf á okkur'
Uppi eru hugmyndir um að
gripaflutningaskip komi til Ak-
ureyrar í næsta mánuði á veg-
um Búvörudeildar Sambands-
ins og lesti hér um 300 hross,
sláturhross og reiðhross, sem
síðan verða flutt til Belgíu.
Að sögn Jóhanns Steinssonar,
deildarstjóra hjá Búvörudeild-
inni, voru flutt um 590 slátur-
hross með þessum hætti til Belgíu
sl. haust. Fengu bændur syðra
þá frá 7.400 kr. upp í 8.100 kr.
fyrir hestinn og fengu þeir
greiðslu fyrir hrossin innan
tveggja mánaða frá því að þau
voru flutt út. Áður höfðu þeir
þurft að bíða ár og jafnvel lengur
eftir greiðslum og stundum hafa
þeir ekki einu sinni fengið greitt
fullt grundvallarverð fyrir kjötið.
Skipin sem notuð hafa verið til
þessara flutninga eru sérstaklega
útbúin til gripaflutninga, þannig
að mjög gott hefur verið að hirða
hrossin á meðan á siglingu
stendur. Að sögn Jóhanns hafa
dýralæknar og fulltrúi frá Hags-
munafélagi hrossabænda farið
með í þær tvær ferðir sem búið er
að fara. Þeir voru mjög ánægðir
með þennan flutningamáta, sem
lækkar kostnaðinn verulega.
Þeir sem hafa áhuga á að selja
sláturhross í þessa ferð geta haft
samband við Reyni Hjartarson á
Brávöllum. Síðan kemur belgíski
kaupandinn og skoðar hrossin.
Hann vill helst hross á aldrinum
7-15 vetra og þau mega ekki vera
feit. Hann vill heldur ekki smá
hross. Að sögn Jóhanns má
reikna með að 8-10 þ.kr. fáist
fyrir hrossið. Er þá reiknað með
að seljendur skili þeim á útskip-
unarstað á Akureyri. Væntanleg-
ir seljendur þurfa að Iáta vita af
sér fyrir helgi.
Reynir mun einnig taka niður
nöfn þeirra sem vilja fá reiðhross
flutt með skipinu, en Búvöru-
deildin hefur að öðru leyti ekki
afskipti af þeim viðskiptum. Þar
verður eingöngu um að ræða
beina samninga milli seljenda og
kaupenda ytra, eða fulltrúa
þeirra hér á landi. - GS
Jón L. Arnason og Áskell Öm
Kárason gerðu jalntcfli í 22
leikjum í síðustu umferðinni á
alþjóðlega skákmótinu á
Húsavík sem lauk í gær. Þar
með tryggði Jón L. sér áfanga
að stórmeistaratitli og Áskéll
sem kom mjög á óvart á þessu
móti náði áfanga að Fide-
meistaratitli.
Jón L. Árnason hlaut átta
Fjölmiðlar hafa að undanförnu
skýrt frá því að Akureyringar,
Mýrdælingar og Egilsstaðabúar
hafí allir áhuga á að fara út í
framleiðslu á dömubindum og
pappírsbleium, og hefur verið
rætt um að kapphlaup um að
fara af stað með þessa fram-
leiðslu væri í uppsiglingu.
Sjöfn á Akureyri er sá aðili
sem lengst er kominn í þessu
máli, enda sennilega um eitt ár
frá því að fjölmiðlar skýrðu frá
því að Sjöfn ætlaði í þessa fram-
leiðslu. Á dögunum gerðist það
svo að einhverjir aðilar í Vík í
Mýrdal létu það berast að þeir
væru að fara af stað með þessa
framleiðslu og sögðust þeir koma
af fjöllum er þeim var bent á að
Sjöfn væri um það bil að hefja
framleiðslu og gæti annað mark-
aðinum.
í ljós kom að Mýrdælingarnir
ætluðu að kaupa sams konar tæki
frá fyrirtækinu Dambi í Svíþjóð
og Sjöfn er að fá í næsta mánuði.
Bæði Sjöfn og Mýrdælingunum
hafði verið tilkynnt um það frá
fyrirtækinu að þeir yrðu eini aðil-
inn sem fengi slíkan vélakost hjá
þeim. Og svo í síðustu viku kom
fram í dagsljósið maður á Egils-
stöðum sem lýsti mikilli furðu á
málinu, hann sagðist vera um-
boðsmaður fyrir sænska fyrirtæk-
ið og hefði hugsað sér að því er
manni skildist að hefja fram-
leiðslu á bleium og dömubind-
um sjálfur.
„Við höldum okkar striki þrátt
fyrir þetta,“ sagði Aðalsteinn
Jónsson í Sjöfn er Dagur ræddi
vinninga á mótinu og efsta sætið.
Áskell Örn Kárason hlaut 4,5 v.
- Ég er mjög ánægður með
þennan árangur minn. Hann er
betri en nokkur þorði að vona
fyrirfram, sagði Áskell er blaða-
maður Dags ræddi við hann eftir
mótið. Gárungarnir höfðu á orði
að Áskell hefði verið efstur á
„dauðalista“ betri skákmann-
anna fyrir mótið en Áskell tapaði
við hann. „Við fáum vélina frá
Svíþjóð í lok apríl, og ég á von á
því að framleiðslan hefjist í
lok maí. Þetta hefur alls engin
áhrif á okkur." gk-.
Örtröð á
flugvelli
Óvenjumikil umferð var um
Akureyrarflugvöll um síðustu
helgi, talsvert meiri en venjan
er um helgar að öllu jöfnu.
Gunnar Oddur Sigurðsson um-
dæmisstjóri Flugleiða tjáði Degi
að alls hefði 1141 farþegi farið
um völlinn á vegum Flugleiða
frá föstudegi til sunnudags. Alls
voru farnar 15 ferðir.
„Ég sé ekki betur en að fram-
haldið verði eitthvað svipað,“
sagði Gunnar Oddur er við rædd-
um við hann í fyrradag. „Það eru
þegar komnar 6 vélar næsta
föstudag og ég yrði ekki hissa
þótt a.m.k. ein kæmi til viðbótar.
- Gunnar sagðist ekki vita
ástæðuna fyrir hinni miklu um-
ferð um síðustu helgi. Engin sýn-
ing hefði verið á Edith Piaf hjá
Leikfélagi Akureyrar en annars
væri mikið um að fólk kæmi
norður til að sjá þá sýningu.
Hins vegar var nokkuð um hópa
á ferðinni um síðustu helgi, t.d.
héldu skátar mikið mót á Illuga-
stöðum og þá voru íþróttamenn
fjölmennir í hópi farþega. gk-.
aðeins tveim skákum en gerði níu
jafntefli. Það er þekkt tilhneiging
meðal betri skákmanna á mótum
sem þessum að gera innbyrðis
jafntefli en freista þess svo að ná
vinningi gegn minni spámönnum.
Það tókst ekki gegn Áskeli en
þessi tilhneiging setti svip á
mótið. Eitt mesta jafnteflismót
sem sögur fara af hér á landi.
-ESE
Meistarajafntefli
- Jóns L. og Áskels - báðir náðu titiláföngum
Gert er ráö fyrir norö-
austanátt á Norður-
landi næsta sólarhring
og él verða víða. Kalt
verður í veðri, talsvert
kaldara en verið hefur
að undanförnu og nú
er bara að vona að
„páskahretið“ sé ekki
í uppsiglingu.
# Lokað á
óseka
Þeim hefur þótt það heldur
hart íbúum fjölbýlishúsa þeg-
ar lokað hefur verið á heita
vatnið til þeirra vegna skulda
eins íbúðareiganda. Þetta
iöghelgast hins vegar af því
að um er að ræða aðeins einn
kaupanda, þ.e. einn mæli,
sem greiðslunum hefur sfðan
verið skipt niður á eftir íbúða-
stærð. íbúar fjölbýlishús-
anna hafa hins vegar mátt
sætta sig við þetta og kemur
sú ákvörðun að spara f upp-
hafi með þvf að hafa aðeins
eina mælagrind fyrir alit hús-
íð niður á þeim. Þelr sem
kaupa í húsum með þessu
fyrirkomulagi geta víst lítið
sagt heldur, því þeír máttu
vita að hverju þeir gengju.
• Rukkaö
að ósekju
En fbúum fjölbýlishúss f
Skarðshiíð á Akureyri með 30
íbúðum kom það hins vegar
á óvart að viðvörun um lok-
un skyldi koma vegna rúm-
lega 11 þúsund króna skuld-
ar eins fbúans, þar sem hann
var nýfluttur f húsið. f Ijós
kom að hinn skuldseigi hafði
trassað að greiða hitaveitu-
reikninga f leigufbúð sem
hann hafði á Brekkunni, -
hafði stofnað tll skuldarinnar
þar. Reikningurinn og lokun-
arhótunin barst sfðan húsfé-
laginu f Skarðshlfðinni og
það þykir mönnum hart að-
göngu. Menn vilja ekki taka
ábyrgð á skuldum sem stofn-
að er tii áður en maðurinn
flutti í húsið og telja að hita-
veitan geti eins og aðrir sem
fjárkröfur eiga á menn leitað
til lögfræðinga og dómstóla
ef með þarf. Blokkarfbúar f
Skarðshlíð mega eiga von á
lokun vegna skuldarinnar á
Brekkunni f dag.
• Alltoflöng
setning
Einn lesenda hafði samband
út af S&S f sfðasta blaði þar
sem hann taldi að farið hefði
verið Iftilsvirðandi orðum um
„krakka i uppreisnarhug“
sem hefðu átt „að hafa pel-
ann sinn með sér og vasaklút
til að þerra tárin“, þegar lög-
reglan í Reykjavfk varð ein-
um of aðgangshörð að sögn
ungmennanna sem mót-
mæltu ástandinu í framhalds-
skólunum og ætluðu að
dveljast í ráðuneyti fjármála
yfir nótt. Ferlega varð hún
löng þessi setning, en það
tókst að koma ábendingunni
á framfæri.