Dagur


Dagur - 09.09.1985, Qupperneq 2

Dagur - 09.09.1985, Qupperneq 2
2 - DAGUR - 9. september 1985 (Spurt á Húsavík.) Hefur þú farið í berjamó? Jósteinn Finnbogason: Nei, ekki einu sinni sparðaleit. Jónas Egilsson: Nei, einfalt mál, það hefur hreint ekki verið veður til þess. Elsa Signrðardóttir: Já, já, oft farið í berjamó t.d. fór ég oft í fyrra, en ekki núna, held að berin séu hálf léleg. Sigríður Böðvarsdóttir: Já aðeins, ef veðrið hefði verið hlýrra, hefði vel mátt tína aðalbláber. Að Sólbrekku 7 á Húsavík rek- ur Inga Stína Gunnarsdóttir sólbaðsstofu, auk sólbekkja hefur hún gufubað, slender- tonenudd og snyrtivöruversl- un. Síðan í ágústbyrjun hefur Inga auglýst „kwik slim“ meðferð, eða réttara sagt skyndimegrunarþjónustu, fyrir konur. Allmargar konur vilja gjaman losna við nokkur aukakfló fyrirhafnarlaust og strax í dag, svo forvitni vaknar hvað um sé að vera á stofunni hjá Ingu Stínu. Ég bauð mér í morgunkaffi (svart og sykurlaust) til Ingu og fór að spyrja um „kwik slim.“ „Þetta er áburður, finnskur að uppruna. Hann er bólgueyðandi og var notaður sem gigtaráburð- ur. Síðan kom í ljós að fólk Iagði af við notkun hans. „Kwik slim“ er ensk uppfinning. Þessi aðferð hefur verið notuð í Noregi í þrjú ár og reynst mjög vel. Eitt ár er síðan farið var að nota þennan áburð hér á landi.“ - Hvernig virkar áburðurinn? „Hann rýrir fituna undir húð- inni.“ - Veistu um álit lækna á með- ferðinni? „Ég hef heyrt um mjög jákvæð viðbrögð lækna.“ - Hvers vegna tekur þú ekki karlmenn í meðferð, finnst þér þeir ekki sumir þurfa. . .? „Jú, en mér skilst að þeir hafi allt aðra líkamsbyggingu og miklu stífari fitu. Áburðurinn skaðar þó engan og gerir ekkert nema gott. Hann er mjög góður fyrir fólk með vöðvabólgu og meðferðin er mjög afslappandi.“ - Hvað kostar tíminn? „Áburðurinn er mjög dýr. Einn tími kostar kr. 900, þrír tímar kr. 2.500, en fimm tímar kr. 3.500.“ - Og á að koma daglega til meðferðar? „Nei, það þurfa að líða minnsta kosti sex sólarhringar milli tíma.“ - Dæmi um árangur. „Já, eftir einn tíma hafa konur lagt af um allt að 40 cm saman- lagt, en þá er mældir 14 staðir á líkamanum. Æskilegast er að gá að mataræði meðan á meðferð stendur, því þá næst verulegur árangur. Konur sem eiga við of- fituvandamál að stríða hafa tekið sig á og náð miklum árangri við þessa meðferð.“ - Hvernig hefur aðsókn verið? „Sæmileg, fólk er að afla sér Ný þjónusta Ingu Stínu Gunnarsdóttur á Húsavík upplýsinga um meðferðina, þeir sem reynt hafa eru ánægðir. Ég hef fengið viðskiptavini alla leið frá Akureyri og Dalvík.“ - En meðferðin í hverju er hún fólgin? „Ja, reyndu bara, ég skal bjóða þér í tíma, þá geturðu séð þetta sjálf. “ Og síðan byrjaði ballið. Fyrst skal fara í gufubað eða sólbekk til að hita líkamann, á meðan er áburðurinn hitaður, síðan er hann borinn á og samstundis vef- ur Inga böndum yfir áburðinn á þeim líkamshlutum sem mega við því að rýrna. Því fastar sem böndin eru vafin því meiri von um árangur. Að þessu loknu eru verstu tilfelli af meðferðarhöfum orðin sem lifandi múmíur á að líta. Múmían er þessu næst að- stoðuð við að leggjast á hitapoka í þægilegan stól, teppi breitt yfir og henni sagt að bíða róleg í 90 mín. eftir að verða grönn og spengileg. Nú gæti einhver ímyndað sér að þetta sé ekki notaleg meðferð. Én reynslan er önnur. Maður slappar af, og ég sofnaði, þó mér þætti ekki viðeigandi að fara að sofa í annarra manna húsum eða þannig. Að tilskildum tíma liðnum fjarlægði Inga vafningana, með þeim fyrirmælum að ekki megi þvo af sér áburðinn næsta sól- arhring, því hann haldi áfram að vinna. Mín reynsla af meðferðinni var jákvæð. Málband og vigt sýndu lægri tölur. Ótrúlegt en stað- reynd eigi að síður. Inga Stína býður okkur að megrast með ofsahraða. IM Ekki hægt að panta í síma miða á skemmtun með Ríó-tríó Bergvin Jóhannsson hringdi og vildi koma á framfæri ádrepu til forráðamanna Sjallaris á Akur- eyri. Hann sagðist hafa hringt í Sjallann til að panta sér miða á skemmtun með Ríó tríóinu en þá hafi hann fengið þau svör að það þýddi ekki að ætla að panta í gegnum síma heldur yrði hann að koma og kaupa miða á auglýstum tíma, þegar forsala fer fram. Með þessu er strj álbýlisfólki gert ókleift að komast á áðurnefnda skemmtun nema það vilji leggja á sig akstur til Akureyrar til þess eins að ná sér í miða. Mælirinn fullur „Nú er mælirinn fullur,“ sagði konan sem hringdi í Dag og sagðist vera iU. Sagðist hún hafa átt leið um Síðuhverfið þann 5. sept. og tek- ið eftir því að það átti að fara að malbika gangstétt við Frosta- götu. Ekki gat konan áttað sig á því hver tilgangur væri með sh'k- um framkvæmdum þar sem ekki væri útlit fyrir að þarna yrði svo mikil umferð gangandi fólks. „Ég bý í tuttugu ára gömlu hverfi, og þar er ekki búið að malbika gangstéttar. Er víst víða svo, jafnvel í eldri hverfum. Er ekki betra að byrja á réttum enda og gleðja skattborgara í stað þess að gera fólki gramt í geði með svona framkvæmdum," sagði ill kona í gömlu hverfi.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.