Dagur


Dagur - 09.09.1985, Qupperneq 8

Dagur - 09.09.1985, Qupperneq 8
8 - DAGUR - 9. september 1985 Nauðungaruppboð sem auglýst var í 52., 65. og 68. tbl. Lögbirtingablaðsins 1985 á fasteigninni Ægisgötu 13, Akureyri, þingl. eign Sveinars Rósantssonar, fer fram eftir kröfu Ólafs B. Árnasonar hdl. og Gunnars Sólnes hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 13. septem- ber 1985 kl. 15.15. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 52., 65. og 68. tbl. Lögbirtingablaðsins 1985 á fasteigninni Seljahlið 7B, Akureyri, þingl. eign Margrétar V. Grétarsdóttur, fer fram eftir kröfu Gunnars Sólnes hrl. og Tryggingastofnunar rikisins á eigninni sjálfri föstudaginn 13. september 1985 kl. 13.45. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 52., 65. og 68. tbl. Lögbirtingablaðsins 1985 á fasteigninni Vanabyggð 2B, Akureyri, talin eign Eðvarðs R. Guðbjörnssonar, fer fram eftir kröfu Jóns Bjarnasonar hrl., Valgarðs Briem hrl., Guðmundar Jónssonar hdl. og Útvegs- banka íslands lögfræðingadeild á eigninni sjálfri föstudaginn 13. september 1985 kl. 14.45. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 79., 80. og 82. tbl. Lögbirtingablaðsins 1984 á fasteigninni Norðurbyggð 20, Akureyri, þingl. eign Sigtryggs Stefánssonar, fer fram eftir kröfur bæjargjaldkerans á Akureyri á eigninni sjálfri föstudaginn 13. september 1985 kl. 16.30. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 1., 27. og 33. tbl. Lögbirtingablaðsins 1985 á fasteigninni Fjölnisgötu 1A, Akureyri, þingl. eign Barkar sf., fer fram eftir kröfu Iðnlánasjóðs á eigninni sjálfri föstudaginn 13. september 1985 kl. 16.15. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 2., 5. og 8. tbl. Lögbirtingablaðsins 1984 á fasteigninni Eyrarlandsvegi 22, Akureyri, talin eign Hjörleifs Gíslasonar, fer fram eftir kröfu Útvegsbanka íslands, Reykja- vík, bæjargjaldkerans á Akureyri, Gunnars Sólnes hrl., Ólafs B. Árnasonar hdl., Ólafs Gústafssonar hdl., Verslunarbanka íslands og Ásgeirs Thoroddsen hdl. á eigninni sjálfri föstudag- inn 13. september 1985 kl. 16.00. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 41., 45. og 48. tbl. Lögbirtingablaðsins 1984 á fasteigninni Óseyri 16, Akureyri, þingl. eign Varar hf., fer fram eftir kröfu innheimtumanns ríkissjóðs og Iðnlánasjóðs á eigninni sjálfri föstudaginn 13. september 1985 kl. 16.45. Bæjarfógetinn á Akureyri. Umboðsmenn Dags Sauðárkrókur: Siglufjörður: Blönduós: Ólafsfjörður: Hrísey: Dalvík: Grenivík: Húsavík: Mývatnssveit: Kópasker: Raufarhöfn: Sísí Steindórsdóttir, Furuhlíð 1, sími 5828. Matthías Jóhannsson, Aðalgötu 5, sími 71489. Snorri Bjarnason, Urðarbraut 20, sími 4581. Helga Jónsdóttir, Hrannarbyggð 8, sími 62308. Halla Jóhannsdóttir, Norðurvegi 9, sími 61728. Gerður Jónsdóttir, Miötúni, sími 61247. Anna Rósa Pálmarsdóttir, sími 33112. Ingibjörg Magnúsdóttir, Sólbrekku 5, sími 41529 Þuríður Snæbjörnsdóttir, sími 44173. Sólveig Tryggvadóttir, Akurgerði 5, sími 52155. Friðmundur H. Guðmundsson, sími 51225. Nokkur orð um „Hólamálið" í 17. tölublaði Feykis, þann 28. ágúst síðastliðinn, birtist grein eftir sr. Hjálmar Jónsson, sem fjallaði um nauðsyn þess, að sett- ur yrði biskupsstóll á Hólum. í upphafi greinar sinnar segir Hjálmar, að allt frá árinu 1802 hafi Norðlendingum sviðið það, að aðeins væri einn biskup í land- inu og það í Skálholtsstifti hinu forna. Þarna held ég, að sr. Hjálmar sé helst til fullyrðinga- gjarn, því varla hefur hann haft aímenn kynni af Norðlendingum allt frá 1802, þó hann geti ef til vill vitnað í einhverjar umsagnir forustumanna liðinnar tíðar, sem sönnun fyrir þessari staðhæfingu sinni, en þeir hafa þá líklegast talað fyrir eigin skoðun en ekki sem algildir lýðforingjar. Slíkar umsagnir geta því engan veginn verið grundvöllur allsherjarálits. Ég verð nú að segja það, að aldrei hefur það valdið mér sviða, að ekki sé biskup á Hólum og er ég þó af norðlenskum ætt- um langt aftur í aldir. Ekki hef ég heldur heyrt frændur og vini minnast á, að þeim þætti slæmt að ekki skuli vera biskup á Hólum, enda er það skoðun mín, að allri alþýðu manna sé meira í mun að fá smávegis lagfæringar á launakjörum sínum en að trón- að sé upp enn einu embættinu sem kostað sé af skattgreiðend- um þessa lands. Hins vegar má það vera öllum ljóst, að prestastéttin sem slík, hefur mikinn áhuga á því að fjölga embættum innan kirkjunn- ar og þá ekki síst fleiri toppsæt- um, svo metnaðarvonirnar geti aukist og margfaldast í sannri dýrð. Sr. Hjálmar segir líka í um- ræddri grein, að prestastéttinni sé það mikið áhugamál, að bisk- upsstóll verði endurreistur á Hólum, svo þar er ekki verið að fela neitt. En það eru fleiri stéttir til í þjóðfélaginu og þær hafa varla neinn sérstakan hag af því að kynt sé kröftuglega undir kjötkötlum kirkjunnar. Lífskjör þorra fólks eru þannig í dag, að fólk vinnur botnlausa yfirvinnu til að geta haldið höfði og á það jafnt við um konur sem karla. Á meðan eru heimilin víða að riðl- ast og brotna upp, vegna þess að foreldrarnir geta ekki lengur sinnt bæði uppeldismálunum og atvinnuþörfinni. Barnaheimili eða dagvistarstofnanir bæta þar ekki nema að litlu leyti úr. Öfá eru þau málin, sem tengjast þessu ástandi, sem krefjast úr- lausna, en sitja þó á hakanum, þrátt fyrir þörf alls almennings á því að tekið sé á þeim með festu. Á slíkum tímum er varla verj- andi, að farið sé að ausa ríkisfé í uppbyggingu á Hólum fyrir kennimannalýðinn. Þar þarf ekki að reisa neitt prelátahásæti vegna hagsmuna lands og þjóðar, þó því verði það gert, er aðeins verið að auka við yfirbyggingu þjóðfélags sem þeg- ar er farið að mylja eigin undir- stöður. Þó að prestastéttin reyni nú af fremsta megni að telja fólki trú um, að land og þjóð þarfnist sár- lega þriggja biskupa, get ég varia ímyndað mér, að þingmenn og aðrir forsjármenn þjóðarinnar veiti slíkri kostnaðarþenslu full- tingi sitt, meðan ástand þjóðmála er slíkt, að velferðarríkisímyndin er orðin að hrópandi háðsyrði í allra munni. Það er vissulega slæmt, ef prestar hér norðanlands hafa ekki um annað þarfara að hugsa, en hvernig þeir geti komið mál- um þannig fyrir, að embættum fjölgi innan kirkjunnar, svo að hátignarvonir þeirra fái blásandi byr upp í hæðir hégómleikans. Þessi fámenna þjóð við ysta haf þarf ekki fleiri biskupa, ef farið verður að fjölga þeim, styttist í það að farið verði að krefjast kardínálatignar handa einhverj- um guðsmanninum. Ekki held ég, að prestastétt þessa lands þurfi að vera svo ýkja óánægð með launakjör sín, með tilliti til þeirrar vinnu sem fram er lögð fyrir þau. Þó má vera, að prestar í dreifbýli séu ekki sér- lega vel launaðir, en starfsbræður þeirra í óðaþéttbýlinu eru vafa- laust með kóngalaun miðað við alþýðu manna. Þurfa þessir menn að verða biskupar til þess að þeir njóti sín í þessu þjóðfélagi okkar? Hafa þeir ekki skálínur þjóðfélagsins eingöngu fyrir sig, í margþættum skilningi? Ég ætla ekki að eyða fleiri orð- um á grein sr. Hjálmars. Mér er vel kunnugt um það, að hann er hinn mætasti maður, en fyrst og fremst er hann þjónn kirkjunnar, þessarar aldagömlu stofnunar, sem á ýmsum tímum hefur verið alþýðu þessa lands vafasöm blessun, svo ekki sé meira sagt. Hann vinnur því að hagsmun- um kirkjunnar og vill veg hennar sem mestan. Sumir prestar kysu ekkert fremur, en að kirkjan yrði aftur það stórveldi sem hún var, meðan hún þóttist ráða örlögum fólks bæði þessa heims og annars. Ég fyrir mitt leyti vona að aldrei komi til þess. Ef til vill hefði verið eðlilegast að óska eftir birtingu þessarar greinar í Sauðárkróksblaðinu sjálfu, en þar sem ég hef reynslu fyrir því, að efni sem ekki fellur þeim í geð sem þar stjórna, hefur ekki fengist birt, þó það væri svar við skrifum í blaðinu, kýs ég að fara aðra leið. Ég leita því til blaðs, sem ég hef trú á, að byggi gengi sitt á víðsýnni sjónarmiðum en þeim sem virðast gilda í blaðamennsku á Sauðárkróki. Rúnar Kristjánsson. XTT U I I \ i i i r Nviasta * Jbrauðið frá okkur er trefiabrauð Ekta megrunarbrauð, bæði sykurlaust og áu aörar fciti. Einnig minnum viðá 'iii ibrauðið I I I T J„...l.. 1 . . .1 , I , I , 1, okkar kannast sem allir Brauðgerð við i i i i i r

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.