Dagur - 09.09.1985, Side 9

Dagur - 09.09.1985, Side 9
9. september 1985 - DAGUR - 9 Ingvar Gíslason alþingismaður: Hugleiðing um framkvæmd varnarsamnings í 34 ár Fréttir og lægðir hegða sér næstum því eins. Lægðirnar flæða yfir landið hver á fætur annarri, ýfa loftstraum- ana og valda veðrabrigðum, stund- urn með nokkrum fyrirgangi, en hverfa þó allar að lokum út í busk- ann og enginn veit söguna meir, enda ailtaf von á nýrri lægð. Frá því að fréttaflutningi af sölu hlutabréfa ríkissjóðs í Flugleiðum h/f lauk fyrirvaralaust og án frekari eftirgrennslana um atburðarásina, hafa íslensk dagblöð ekki sinnt öðru máli fremur en kjötflutningum frá Bandaríkjunum til herliðs Banda- ríkjamanna á Keflavíkurflugvelli. Eru menn nú að látast uppgötva, að Bandaríkjamenn hafi síðan 1951, þegar svonefnt varnarlið tók sér bólfestu í landinu, haldið uppi til- flutningum á hráu kjötmeti til stöðva sinna til neyslu liðsmönnum og öðrum Bandaríkjamönnum, sem dveljast þar á vegum hersins. Reyndar má ætla að Bandaríkja- menn hafi flutt inn hrátt kjöt til bandarískra starfsmanna, sem gegndu borgaralegum störfum á Keflavíkurflugvelli á árunum 1946- 1951, og ekki ólíklegt að hernáms- liðið, sem hér dvaldist víða um land á styrjaldarárum, hafi verið fætt á kjötmeti, sem flutt var hrátt til landsins. Ef það skyldi reynast rétt, hefur hrátt kjöt verið flutt til lands- ins á vegum erlendra „dvalargesta“ aðeins fimm árum fátt í hálfa öld. Ef þessir flutningar teljast brjóta í bága við lög nr. 11/1928 um varnir gegn því að gin- og klaufaveiki og aðrir búfjársjúkdómar berist til landsins, þá má með sanni segja að íslensk yfirvöld hafi verið iðin við lögbrot- in, a.m.k. ráðherrar og heilar ríkis- stjórnir, yfirdýralæknar hafa naum- ast verið aðsópsmiklir í embætti að þessu leyti, lögregla og tollgæsla hafa ekki farið yfir varfærnismörkin í sínu starfi, og heldur sýnast rit- stjórar og aðrir blaðamenn hafa ver- ið sljóir fyrir fréttnæmum viðburð- um og seinþreyttir til vandræða yfir- völdum landsins. Þagað gat ég þá með sann Það er ekki fyrr en nú á úthallandi hundadögum árið 1985 - „two scor- es and five years“ eftir hernám Eng- ilsaxa - að kunnur fréttamaður og ritstjóri, sem stýrði víðlesnu flokks- ntálgagni í 50 ár, og fjármálaráð- herra, sem stjórnað hefur hafskipa- félagi, sem stofnað var til þess að flytja hrátt kjöt og annan varning til varnarliðsins, taka sig fram um það þrifaverk að fletta ofan af lögbrot- um og pólitískum afglöpum hverrar ríkisstjórnarinnar á fætur annarri, a.m.k. síðan 1951 - og þó lengur ef allt er talið. Hafa þessir þjóðkunnu menn rýnt af skarpskyggni sinni landslög og sögu samtímans. Þótt sumum kunni að koma í hug vísu- brotið kerlingarinnar: Pagað gat ég þá med sann, þegar hún Skálholtskirkja brann, er vafalaust nærtækara að hafa yfir það gamalkunna máltæki: Betra er seint cn aldrei. Enda skal það viður- kennt að vel má það teljast að- finnsluvert frá almennu sjónarmiði að þessir kjötflutningar skuli hafa vcrið þolaðir í 45 ár og lögleyfðir í 34 ár síðan varnarsamningurinn var staðfestur með lögum frá Alþingi. Að vísu scgja núverandi fjármála- ráöherra og fyrrverandi ritstjóri Tímans og Itafa það ekki síst cftir Gunnari Guðbjartssyni, að í lögum um staðfestingu varnarsamningsins (lög nr. 110/1951) verði ekki fundin nein heimild um það að flytja megi inn hrátt kjöt á vegum varnarliðsins. Betur að satt væri. En þrátt fyrir góðan vilja þeirra þremenninga að skýra lög og mæla fyrir um laga- framkvæmd á einfaldan og afdrátt- arlausan hátt, þá er ekki þar með sagt að þeir fari með rétt mál. Ef öll vitneskja um þetta mál er virt í sam- hengi, sýnist nær að líta svo á að skýring þeirra sé röng, a.m.k. svo hæpin að óvarlegt sé að treysta henni. Þar með er ekki sagt að ekki kunni að vera rétt að breyta lögum og lagaframkvæmd á þessu um- rædda sviði. Slíkt kemur auðvitað til greina og er framfærilegt umræðu- efni í sjálfu sér. En málið er ekki lagt þannig fyrir. Menn hafa leiðst út í að reka þetta mál á röngum forsendum. Þetta er dæmigert pólitískt mál og á að takast upp sem slíkt, ef menn vilja breyta ríkjandi ástandi. Þetta er ekki dómstólamál og á ekki að ræðast á þeim grund- velli. Dómsmál í ríkisstjórn Margir munu því undrast það að forsætisráðherra og utanríkisráð- herra skyldu falla fyrir þeirri hug- mynd - hvaðan sem hún er komin - að Stéttarsamband bænda hefji dómsmál á hendur utanríkisráð- herra út af þessu kjötflutningsmáli, - hvernig sem það verður gert þegar til á að taka. Ýmsir hafa skilið sam- þykkt ríkisstjórnarinnar um mál- sókn á þann veg að þar sé um ein- hvers konar herbragð að ræða, að hyggnir menn í ríkisstjórninni gera sér vonir um að þeir séu að vinna tíma í málinu og þeim megi takast að koma í málið einhverri vitglóru, þó ekki væri annað en að fíra því niður á stig siðmannlegrar untræðu í stað lýðskrumsins, sem einkennt hefur umræðuna til þessa. Enda er mál að linni. Áhugi blaðanna Hlutur blaðanna í þessu máli er svo umræðuefni út af fyrir sig. Farið hefur nú sem venjan er, að blöð og aðrir fjölmiðlar hafa fundið blóðið renna til skyldunnar, þegar óskabam þeirra í sandkassanum, núverandi fjármálaráðherra, byrjar að kveinka sér heldur ókarlmannlega undan ;,pabbadrengjunum" í Sjálfstæðis- flokknum, sem alltaf eru að erta ha'nn og stríða honum á því að hann sé bara „nýríkur" heildsali og ekki í húsum hæfur hjá „flokkseigendafé- laginu", hinum heildsölunum. En ætli þetta sé svo í raun og veru? Ætli Albert Guðmtmdsson sé virkilega svo umkomulítill í Sjálfstæðis- flokknum að hann þurfi alltaf að vera að kveinka sér eins og smá- krakki út af frekjunni í Geir Hall- grímssyni og leita skjóls hjá Þjóð- viljanum og NT ofan á þá skjald- borg scm einkamálgagn hans, DV, slær um Itann (með þeirri undan- tekningu sem felst í sjálfstæðri af- stöðu Ellerts Schram til málefna af þessu tagi)? Þjóðviljinn og NT virð- ast trúa því að þetta kjötmál sé vitni um „ægilegan" klofning í Sjálf- stæðisflokknum og undanfari að „rosalegu" uppgjöri milli Alberts og Geirs. Þcssum blöðum er því ekki láandi þótt þau notfæri sér slíkt innanflokksástand í baráttu sinni við íhaldið. Hins vegar ættu stjórn- endur þessara blaða að sjá að frani- ganga fjármálaráðherra í þessu máli er byggð á duttlungum. Væri nær að almenningur væri varaður við slík- um uppákomum, heldur en að blöð- in geri geðþóttaákvarðanir af þessu tagi að afreksverkum og tilefni til sérstakrar auglýsingastarfsemi í áhrifamestu fjölmiðlum landsins. Tildrög og framkvæmd í 34 ár Skyndileg ákvörðun fjármálaráð- herra um að stöðva innflutning á kjöti til varnarliðsins er augljóslega geðþóttaákvörðun, hvað sem ann- ars líður æskilegri breytingu á varn- arsamningnum, - og málsvarar Framsóknarflokksins, og góðir Ingvar Gíslason. bændur þar á meðal, hafa enga ástæðu til að láta líða yfir sig af hrifningu út af þessum verkum ráð- herrans. Eða þekkja menn ekki sögu varnarmálanna síðan 1951. hvernig varnarsamningurinn er til kominn, hverjir gerðu hann, hverjir mótuðu framkvæmd hans í fyrstu og hverjir hafa staðið að því að fram- kvæma hann í 34 ár og hvernig sú framkvæmd hefur verið? Fram- kvæntd varnarsamningsins hefur að sjálfsögðu verið verkefni á vegum ríkisstjómarinnar öll þessi ár án tillits til þess hvaða flokkar og stjórnmála- öfl hafa staðið á bak við ríkisstjórnir á hverjum tíma. Allir „gömlu" stjórnmálaflokkarnir hafa átt aðild að ríkisstjórn á þessum ttma méð einum eða öðrum hætti. Mótunarstarf Bjarna Benediktssonar Framkvæmd varnarsamningsins og ntálefni Keflavíkurllugvallar yfir- leitt hafa heyrt undir utanríkisráð- herra, og hafa margir gegnt því embætti í áranna rás. fyrst Bjarni Benediktsson. sem hafði veg og vanda af gerð varnarsamningsins og var aðalntálsvari ríkisstjórnar þeirr- ar (ríkisstjórnar Steingríms Stein- þórssonar), sem lagði málið fyrir Alþingi haustið 1951 og fékk samn- inginn staðfestan með lögum nr. 110/1951. Enginn ntaður gat vitað meira um efni samningsins en Bjarni Benediktsson né hvernig hann yrði skilinn í Iteild eða ein- stökuin atriðum. Það kom í hlut Bjarna Benediktssonar sem utan- ríkisráðherra að annast um fram- kvæmd samningsins - með þeirri lagaþekkingu scm hann bjó yfir - fyrstu ár gildistíma samningsins og hann mótaði þannig allt þetta starf fram á þennan dag, því að lengi býr að fyrstu gerð. Það er því ekki fram- færilcgt að halda því að blaðales- endum að skilningur Steingríms Hermannssonar og Geirs Hall- grímssonar nú sé í andstöðu við álit og ætlan Bjarna Benediktssonar. Síðar kom það í hlut annarra manna og manna úr öðrum stjórnmála- flokkum að gegna embætti utanrík- isráðherra. Ég nefni það eitt að 3 framsóknarmenn hafa setið í þessu embætti samtals 13 ár á 34 ára tíma- bili síðan 1951. Þessir menn eru: Kristinn Guð- mundsson 1953-1956, Einar Ágústs- son 1971-1978 og Ólafur Jóhannes- son 1980-1983. Alls hefur Frant- sóknarflokkurinn átt aðild að ríkis- stjórn á þessu tímabili 21 ár (af 34 árum), þar af haft forsæti í ríkis- stjórn 10 ár (Steingrímur Steinþórs- son 1950-1953, Hermann Jónasson 1956-1958, Ólafur Jóhannesson 1971-1974 og 1978-1979, Steingrím- ur Hermannsson síðan 1983). Hermann Jónasson Hermann Jónasson. formaður Framsóknarflokksins, var landbún- aðarráðherra þegar varnarsamning- urinn var gerður 1951, og það fær ekki staðist að hann hafi ekki vitað hvað í samningnum stóð eða hvern- ig ákvæði hans voru skilin. hvort heldur það var 8 gr. svokallaðs við- bótarsamnings eða einhver önnur grein varnarsamningsins. Eins og ýmsir leggja nú málið fyrir til um- ræðu 34 árum eftir gerð varnar- samningsins er í raun og veru verið að gefa í skyn að Hermann Jónas- son hafi sofið á verðinum gagnvart þeirri hættu á búfjársjúkdómum. sem felst í innflutningi kjötmetis til landsins. því að um það eru engin vitni að Hermann Jónasson hafi gert athugasemd við innflutning á kjöti til Bandaríkjahers með skírskotun til laga nr. 11/1928 um varnir gegn því að gin- og klaufaveiki og aðrir búfjársjúkdómarbærust til landsins. Halldór E. Sigurðsson Þessar söntu ásakanir eru því í raun hafðar í framrni gagnvart öðrum framsóknarmönnum. sem setið hafa í embætti landbúnaðarráðherra. Halldóri E. Sigurðssyni. sem lengst allra hefur farið með þessi mál. eða 7 ár samfleytt. og Jóni Helgasvni. sem nú er vfirmaður þessa mála- flokks. Og hvað skal segja um fjármálaráðherrana á þessu tíma- bili? Hvaða menn skvldu hafa setið í því embætti síðan 1951? Það eru reyndar menn úr öllunt stjórnmála- flokkum til hægri og vinstri (nema þeint allra nýjustu), m.a. Ragnar Arnalds og Sighvatur Björgvinsson. svo ekki sé farið lengra aftur í tímann. Eysteinn Jónsson Hjá okkur framsóknarmönnum ber þarna auðvitað hæst ráðherra ráð- herranna. Eystein Jónsson. sent var fjármálaráðherra samfellt í full 8 ár 1950-1958 og þannig yfirmaður toll- gæslu 7 fyrstu ár varnarsamningsins og að því leyti til ábvrgðarmaður á lögunum um varnir gegn gin- og klaufaveiki. Er vitað til þess að toll- gæslan hafi undir stjórn Eysteins Jónssonar stöðvað innflutning á hráu kjöti til Keflavíkurflugvallar? Eða eru menn nú að væna Eystein Jónsson um sofandahátt í embætti. mann sem að skarpskyggni og ár- vekni tekur ýmsum fram að ekki sé meira sagt? Eöa hvers á Halldór E. Sigurðsson að gjalda sent auk þess að vera landbúnaðarráðherra í 7 ár var fjármálaráðherra í 3 ár og hafði því tvöfaldar skyldur í sambandi við hættu á því að búfjársjúkdómar bærust til landsins? Tómas Árnason var einnig fjármálaráðherra um skeið og kom í hans hlut að bera ábyrgð á tollskoðun og tollaeftirliti auk þess sem hann var deildarstjóri varnar- máladeildar utanríkisráðuneytisins 1954-1959 og hafði þannig ekki lítil afskipti af framkvæmd varnarsamn- ings á mótunarárum samskiptanna við varnarliðið. Tómas er því í hópi þeirra lögbrotamanna, lífs og lið- inna, sem hefðu átt að fá hirtingu fyrir dómi að áliti sumra, sem nú tala um þetta mál. Ólafur Jóhannesson í þessari upptalningu ber síðast en ekki síst að nefna nafn Ólafs Jó- hannessonar. sem ekki var aðeins forsætisráðherra árum saman og formaður Framsóknarflokksins, heldur einnig utanríkisráðherra 1980-1983. þ.e. á allra síðustu árum, svo að staða hans í sögulegri þróun þessa máls er að því leyti sérstök að ef tími var kominn til þess að endur- skoða varnarsamninginn eða sjá á honum lagalegar veilur. þá verður að játa sem er að Ólafi Jóhannes- syni sást yfir í því efni. Þar hafa þá aðrir orðið Ólafi snjallari í lögum. þ.e. núverandi fjármálaráðherra. Gunnar á Hjarðarfelli og Þórarinn Þórarinsson. fyrrverandi ritstjóri Tímans. Það er mikið afrek. sem þessir menn hafa unnið. að auðnast að gera að gjalti á einni kippu laga- prófessorana Bjarna Benediktsson og Ólaf Jóhannesson ofan á alla hina. sem hér hafa verið nefndir og margir eru lögfræðingar að mennt og allir vel að sér í lögum og laga- túlkun af langri revnslu af lagasmíð og lagaframkvæmd. menn eins og Evsteinn Jónsson. Halldór E. Sig- urðsson. Benedikt Gröndal og Sig- hvatur Björgvinsson. Jafnvel Gunn- ar Thoroddsen verður nefndur til þessarar sögu. lagaprófessor og hæstaréttardómari, sent var forsæt- isráðherra og fjármálaráðherra löngunt stundum á þessu tímabili. Hann er þvt í hópi þeirra afbrota- manna og afglapa. sem nú er sem óðast verið að afhjúpa. Bændastéttin blekkt Þó að ég bendi á þessar sögulegu staðreyndir og nefni nöfn margra manna í þvt sambandi. er fjarri mér að gerast boðberi einhverrar „átór- itetstrúar". Mikilhæfum mönnurn getur skjátlast eins og öllum dauð- legum mönnum. Þaðan af síður ætla ég að setja mig sérstaklega í stöðu verjanda eða ábyrgðarmanns þess að varnarsamningur var yfirleitt gerður við Bandaríkjamenn árið 1951. En ég ntun leyfa mér nú sem endranær að hneykslast á vondum málflutningi - að ég ekki nefni lýð- skrunt - af hvaða tilefni sent slíkt er haft í frainmi og taka undir með Cicero gamla að ekkert sé fvrirlit- legra í þessuin heimi en sjálfbirg- ingsháttur og hégómaskapur. Verst er þó að fjölmiðlar - hirtingarvönd- ur þjóðfélagsins - skuli ala á sltkum eigindum í fari manna í stað þess að kveða þá niður. helst með háði. Og ekki er það uppörvandi að vita þá stétt manna. sem maður ber sér- staka virðingu fyrir. bændastéttina. blekkta vísvitandi með þessutu hé- gómlega áróðri og þeirri alvöru- lausu umfjöllun. sem blöðin hafa nú látið henda sig enn einu sinni.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.