Dagur - 09.09.1985, Síða 11

Dagur - 09.09.1985, Síða 11
9. september 1985 - DAGUR - 11 Grímsstaðir á Fjöllum: Slæm tíð og vondir vegir „Norðanátt og kuldi hefur ver- ið hér undanfarnar vikur. Að- faranótt þriðjudagsins 3. sept. mældist 3 stiga frost á Gríms- stöðum. En það er mesta frost sem mælst hefur á þessu hausti!“ sagði Gunnlaugur Stefánsson bóndi á Gríms- stöðum á Fjöllum. Sláttur á Hólsfjöllum hófst ekki fyrr en um mánaðamót júlí og ágúst, og hefur tíð verið erfið til þurrka. Einn bóndi á Gríms- stöðum keypti sér rúllubindivél á sl. ári og batt allt sitt hey, óháð- ur þurrkum, í rúllur sem hann síðan geymir í plastpokum. Virð- ist þetta vera góð lausn varðandi heyskap á óþurrkasumrum. Göngur hefjast um miðjan september og er talið hætt við því að vænleiki dilka verði ekki nema í meðallagi eftir kalt sumar. Gunnlaugur sagði að unnið hefði verið við endurbætur á veg- inum frá Möðrudal að sýslu- mörkum á Biskupshálsi, en þang- að nær umdæmi Vegagerðarinnar á Austurlandi. Núna er verið að keyra í veginn frá sýslumörkum að Jökulsá á Fjöllum. Sagði hann að því mætti teljast vel fært bílum milli Grímsstaða og Jökuldals. En vegurinn yfir Mývatnsöræfi hefur verið nánast ókeyrandi í sumar, en telst þó góður miðað við veginn yfir Hólssand, sem Gunnlaugur sagði að væri nánast ófær vegna þess að ekki er mögu- legt að hefla hann þar sem vegur- inn er ekkert nema mold og grjót. Sagði hann þetta skammar- legt fyrir Vegagerðina að bjóða upp á slíkt. gej- Glerárdalur: Haustbeit hrossa Bæjarstjóm Akureyrar hefur samþykkt að Hestamannafé- lagínu Létti verði gefinn kostur á að taka Glerárdal á leigu tíl haustbeitar fyrir hross félags- manna. Leyfð verði beit fyrir allt að 100 hross, enda verði upprekstur hrossa á Glerárdal óheimill nema með samþykki félagsins og í samráði við það. Lagt er til að leiga fyrir haustbeit verði 40 krónur fyrir hvert hross á mán- uði. óski hestamannafélagið ekki eftir haustbeit á Glerárdal þá er umsjónarmanni jarðeigna bæjar- ins heimilt að leyfa beit þar, enda verði gjaldið þá 85 krónur fyrir hvert hross á mánuði. BB. Kjördæmisþing Alþýðuflokksins: Opið prófkjör Kjördæmisþing Alþýðuflokks- ins í Norðurlandskjördæmi eystra var haldið að Stóru- Tjörnum í Ljósavatnshreppi dagana 31. ágúst og 1. septem- ber 1985. Kjördæmisþing fer með æðsta vald í málefnum flokksins í kjör- dæminu. Á þinginu unnu starfs- hópar í ýmsum málaflokkum og voru gerðar samþykktir um at- vinnumál, landbúnaðarmál, húsnæðismál, sjávarútvegsmál, kjaramá! og flokksmál. Samþykkt var að opið prófkjör skuli fara fram um tvö efstu sæti á framboðslista flokksins í kjör- dæminu fyrir næstu alþingis- kosningar. BB. Það þarf ekki að fara langt til að komast í snjóinn. Svona var umhorfs í Vík- urskarðinu sl. föstudag. Mynd: - KGA. Hvammstangi: Góðar atvinnu- horfur Atvinnuástand hefur verið gott á Hvammstanga í sumar. Þó ekki eins kröftugt og það var í fyrrasumar, að sögn Kristjáns Björnssonar oddvita á Hvammstanga. Sagði Kristján Hvammstanga- búa blessunarlega lausa við tog- ara, en nokkrir bátar eru gerðir i vetur út þaðan. Sagði Kristján að afli hefði verið nokkuð sæmilegur undanfarið, en gæftir lélegar svo minni bátar hafa ekki komist á sjó. „Það er nóg atvinna hér og við sjáum ekki fram á annað en góð- ar horfur í þeim efnum,“ sagði Kristján. - mþþ Dagana níunda, tíunda og ellefta september verða „Skóla- dagar“ á báðum hæðum í verslun okkar við Hrísalund. Á skóladögum leggjum við áherslu á fræðslu um heppilegan mat fyrir skólabörn - hvernig þau eigi að haga sér í haustum- ferðinni og góðar skólavörur á góðu verði! Efri hæð: Alla dagana milli kl. 15 og 18 kynnum við morg- unverð skólabarna og heppilegt nesti í skólann. Húsmæðra- kennari annast þessa kynningu og gefur viðskiptavinum að bragða á ýmsu af því sem gott er að hafa á góðu morgunverð- arborði. Neðri hæð: Alla dagana milli kl. 15 og 18 verður lögreglu- maður á neðri hæðinni og fræðir börnin og forráðamenn þeirra um umferðina. Dreift verður endurskinsmerkjum og upplýsingaspjöldum. Á neðri hæðinni verða sérstök tilboð á þeim skólavörum sem börnin þurfa á að halda í vetur. Þar má nefna stílabækur, strokleður, blýanta o.fl. o.fl. Síðast en ekki síst verður veittur afsláttur af fatnaði fyrir skólabörn! Að sjálfsögðu getur þú komið fyrri hluta dags á neðri hæðina - og keypt skólavörurnar með afslætti. Þú ert alltaf vel- komin(n) í Hrísalund!

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.