Dagur


Dagur - 09.09.1985, Qupperneq 12

Dagur - 09.09.1985, Qupperneq 12
Alltaf vex vöruú rvalið Vinsamlegast komið og skoðið Kótó og Form sf.: Vilja koma lífi í húsgagnaiðnaðinn! - Sækja um styrk úr framkvæmdasjóði Skipt um síma. Starfsmenn Pósts og síma, Jón Snorrason og Ámi Valur Viggósson skipta hér um símatæki að Skógum í Fnjóskadal. Arni Valur tekur niður gamla símann og Jón er kominn með nýjan takkasíma. _ Mynd: KGA. Handvirkir simar brátt úr sögunni - Allt landið „sjálfvirkt“ um áramót Húsgagnaverkstæðið Kótó sf. og arkitektastofan Form hafa sótt um styrk úr Framkvæmda- sjóði Akureyrar til hönnunar Þórshöfn: Stakfellið landar í Hafnarfirði Stakfellið landaði síðast hjá Iiraðfrystihúsi Þórshafnar fyr- ir um hálfum mánuði. Það landar núna í Hafnarfirði, er að veiða upp í kvóta Sjóla heit- ins. Að sögn Stefáns Jónssonar sveitarstjóra á Þórshöfn er þó enn næg atvinna í frystihúsinu en um miðjan næsta mánuð verða flestir smábátarnir búnir með sinn kvóta og þá er fyrirsjáanlegt atvinnuleysi fiskvinnslufólks á staðnum. Hins vegar er ástandið gott hjá iðnaðarmönnum, verið er að vinna við kennarabústað og í smíðum eru verkamannabústað- ir. Auk þess eru smiðir á Þórs- höfn með verk í hinu nýja frysti- húsi sem verið er að reisa á Rauf- arhöfn. - mþþ „Fcrðamannastraumur jókst mjög til Hvammstanga í sumar og þá ekki síst vegna þess að hópferðir Guðmundar Jónas- sonar höfðu hér viðdvöl tvisvar í viku,“ sagði Kristján Björns- son oddviti á Hvammstanga. Þrátt fyrir að 30-50 manna hópar hefðu viðkomu á og vöruþróunar á húsgögnum. Astæðan fyrir þessari umsókn er áhugi ofangreindra fyrir- tækja á að koma einhverju lífi í húsgagnaiðnaðinn á ný. í greinargerð sem fylgir um- sókninni, segir meðal annars: „Undanfarin ár hafa átt sér stað miklar umræður um atvinnuupp- byggingu á Eyjafjarðarsvæðinu. Liður í þeirri umræðu hefur verið staða húsgagnaiðnaðarins á Ak- ureyri, sem varla er reyndar hægt að kalla iðnað eins og málum er háttað í dag. Hvað markaðinn varðar, álítum við að þörfin fyrir skrifstofu- og stofnanahúsgögn sé hvað brýnust. En fáir íslenskir aðilar eru framleiðendur ofan- greindra húsgagna. í lok greinar- innar segir: „Fyndist okkur það verðugt verkefni fyrir atvinnu- málanefnd að stuðla að uppgangi húsgagnaiðnaðarins í formi styrkja til hönnunar og smíði „prótótýpu“ á skrifstofuhús- gögnum og/eða skólahús- gögnum." Að sögn Árna Árnasonar hús- gagnaarkitekts hjá Formi sf. er ljóst að eftirspurnin eftir þessari tegund húsgagna er mikil. „Sem dæmi má nefna að við höfum pantað skrifstofuhúsgögn frá Reykjavík að andvirði 800.000 krónur fyrir ýmsa aðila, bara frá áramótum. Og við erum langt frá því að vera þeir einu. Hér er þvf um mikla peninga að ræða og meginkrafan er að halda þeim á Eyjafjarðarsvæðinu." BB. Hvammstanga tvisvar í viku sagði Kristján að merkilega lítið hefði komið út úr því og þetta hefði ekki verið sú lyftistöng fyrir staðinn sem búist hafði verið við. Sagði Kristján að fólkið hefði notað sundlaugina og vísi að hestaleigu sem starfrækt var í sumar, en lítið annað. Vandræði hafa oft orðið á Á föstudaginn náðist merkur áfangi í símamálum hér á Norðurlandi. Þá voru síðustu handvirku símarnir teknir niður, og sjálfvirkir settir í staðinn. Síðustu símarnir af gömlu handknúnu gerðinni sem teknir voru niður á föstu- daginn voru í Fnjóskadal. Að Hvammstanga vegna skorts á gistirými, en þau mál ættu að lag- ast með vorinu. Nú í haust verð- ur væntanlega hafist handa við að reisa þar hótel og veitingasölu. Fyrirhugað er að hótelið verði einhvers konar einingarhús og verður það drifið upp nú í haust og að líkindum tekið í notkun næsta vor. - mþþ sögn Gísla Eyland stöðvar- stjóra á Akureyri eru líkur á að aUt landið verði komið í sjálf- virkt samband um áramót, og er það ári á undan áætlun. Gísli sagði að tækninni fleygði svo fram, að það sem var nýtt og fullkomið fyrir nokkrum áruum væri nánast úrelt í dag. Hann tók sem dæmi að símstöð sem sett var upp á Hrafnagili fyrir þremur árum og þjónaði innstu hreppum Eyjafjarðar, væri orðin óþörf miðað við það sem gerist í dag. Hann sagði að það sem gerði að línulögnin væri á undan áætlun, væri fyrst og fremst að þakka duglegum og framsýnum mönnum sem unnu að þessu verki. Þessi sjálfvirkni bitnar að sjálf- sögðu á talsímakonunum sem hafa undanfarna áratugi sagt: „Miðstöð“, þegar hringt er á langlínustöðina. „En það hefur verið unnið að því að koma þess- um konum í önnur störf, og hefur engin þurft að hætta hjá stofnun- inni fram að þessu, vegna þessara breytinga," sagði Gísli Eyland. _________________________-gej „Mini-golf“ á Akureyri Baldur Sveinbjörnsson og Bjami Árnason hafa sótt uni leyfi til bæjarráðs til þess að starfrækja svo kallað „mini- golf“ á Akureyri mánuðina júní, júlí og ágúst 1986. Þeir sækjast sérstaklega eftir svæði á grasflötinni austan Sam- komuhússins. Bæjarráð hefur lagt til að veitt verði bráðabirgðaleyfi fyrir „mini-golfi“ á umbeðnu svæði eftir nánari ákvörðun bæjarverk- fræðings. Það er því útlit fyrir að bæjar- búar geti leikið sér í „vasa-golfi“ næsta sumar. BB. Hvammstangi: Aukinn ferðamannastraumur - Hafist handa vlð að reisa hótel í haust Magnús Jónsson veðurfræð- ingur sagðist í morgun vera ofurlítið bjartsýnni fyrir hönd okkar Norðlendinga. „Við sjáum fram á suðlægar áttir, en það er kannski full- seint að fá sumarið núna,“ sagði Magnús. Ekki er þó al- veg víst að alls staðar verði þurrt, að líkindum verða ein- hvers staðar smáskúrir. # Túttubyssu- plágan Það er að verða árvisst hættuástand í bænum á hverju hausti þegar „túttu- byssuplágan“ herjar á bæjar- búa. Túttur þær sem hér um ræðir eru fingur af upp- þvottahönskum sem límdir eru við rörbút og hafa þá skapast vopn sem geta reynst býsna hættuleg. Þann- ig eru dæmi um að börn hafi misst augu af völdum þess- ara vopna. Smátt og stórt hefur fregnað að túttubyssu- faraldur sé nú í uppsigilngu og heitir á foreldra, lögreglu og síðast en ekki síst þá sem leika sér með þessi hættu- legu leikföng að taka nú höndum saman og stöðva hljótast af. • Ljósið sem blikkaði Menn vissu ekki hvaðan á þá stóð veðrið í síðustu viku, þegar fina sjálfvirka Ijósa- kerfið sem komlð hafði verið upp á verkalýðshöllinni, nei fyrirgefið, Alþýðuhúsinu, tók að blikka. Ljósin áttu að vlrka þannig að Ijósnæmur rofi sæi um að kveikja á þeim þegar dimmdi á kvöldin og slökkva á þelm þegar birtl á morgn- ana. Eitthvað hafði þetta mis- farist og skýringln fannst. Rofinn var hafður svo nálægt einu Ijósinu, að þegar hann kveikti á því virkaði birtan frá Ijósinu samstundis á rof- ann og slökkti aftur. Þá fannst rofanum orðið of dimmt og kveikti á nýjan leik. Þá var orðið of bjart fyrir hann og Ijósið slokknaði. Þannig gekk þetta alla nótt- ina. Einhverjum bæjarbúum sem vitnl urðu að þessu varð það á að hlæja og gera grín að þessari hönnunarsnilld. Það skal tekið fram að það munu ekkl hafa verið þeir sem hönnuðu húsið sjálft sem þarna áttu hlut að máli. En þetta minnir óneitanlega svolítið á hafnfirska bifreiða- eftirlitsmanninn sem var að skoða stefnuljósið og kvað við þegar kveikt var á því: í lagi - ekki í lagi - í lagi - ekki í lagi... # Ef veðrið iagast ekki Einn rigningardaginn á Húsa- vík í sumar, leit erlendur ferðamaður til lofts og sagði: „Hvað getið þið annað gert við frfstundirnar?11 þegar hefmamaður var að stæra sig af hinni miklu notkun á Bóka- safni Suður-Þingeyinga, við hann. Um mánaðamótin breyttist opnunartími safnsins og er frá ki. 15 alla virka daga, til kl. 18 þriðjudaga og miðviku- daga, og til kl. 19 mánudaga, fimmtudaga og föstudaga.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.