Dagur - 23.09.1985, Side 6

Dagur - 23.09.1985, Side 6
6 - DAGUR - 23. september 1985 23. september 1985 - DAGUR - 7 Gunnar og Stefán - þjálfa Þór Þórsarar hafa ráðið þjálfara fyrir ineist- araflokk í handbolta, sem leikur í þriðju deild. Það eru þeir Stefán Arnaldsson og Gunnar Gunnarsson, og mun Gunnar jafnframt leika með liðinu. Þór hefur misst mikið af leikmönnum frá í fyrra, eins og t.d. Guðjón Magnússon sem þjálfað hefur liðið undanfarin ár ásamt því að hafa leikið með, markvörðinn Nóa Björnsson, Árna Stefánsson og Kristján Kristjánsson sem eru hættir iðkun handbolta og þá Sigurð Pálsson og Rúnar Steingríms- son sem hafa gengið í raðir KA-manna. Verður liðið í vetur svo til eingöngu byggt upp af ungum leikmönnum og verður fróðlegt að fylgjast með þeim í þriðju deildinni í vetur. ♦ ♦ Handboltinn af stað - stórleikur í Höllinni á miðvikudag Þá fer handboltavertíðin af stað fyrir alvöru, og hefst strax á stórleik í Höllinni á miðviku- dagskvöld. Þar mætast 1. deildar lið KA og Víkings í karlaflokki. Tvö önnur lið að norðan verða einnig í baráttunni en það eru lið Þórs og Völsungs sem leika bæði í 3. deild og eiga þau innbyrð- is leik í fyrstu umferð á föstudagskvöld, leik- ið verður á Laugum í Reykjadal sem verður heimavöllur Völsunga í vetur. Er fólk hvatt til að mæta á leiki hjá sínum mönnum og styðja við bakið á þeim í hinni erfiðu keppni sem nú fer í hönd, er þar átt við alla, KA- menn, Þórsara og Völsunga. „Stefnum á toppinn“ - segir Ljubo Lazic, hinn júgóslavneski þjálfari KA „Þjálfari sem ekki stefnir á toppinn hefur ekki trú á sínu liði,“ sagði Ljubo Lazic þjálf- ari KA í handbolta m.a. í við- tali við Dag. Hann var fyrst spurður um sín fyrstu kynni af íslenskum handknattleik. „Árið 1983 sá ég landsleik á milli íslands og Júgóslavíu, 1984 sá ég tvo af fjórum leikjum Is- lands og Sviss í Sviss. Þá fylgdist ég einnig með leik FH og júgó- slavnesku meistaranna í Evrópu- keppninni." - Hver er staða íslensks hand- knattleiks-á alþjóðavettvangi að þínu mati? „íslenska landsliðið er eitt af þeim bestu í heimi sem kom best í ljós á Olympíuleikunum í Los Angeles. Þá voru tvö íslensk lið í 4 liða úrslitum í Evrópukeppn- inn sl. keppnistímabil. Þó finnst mér það engin spurning áð júgó- slavneska landsliðið er það besta í heimi, það sýnir árangur liðsins á undanförnum árum.“ - Hvernig finnst þér svo að starfa fyrir KA? „Mér finnst vel að málum stað- ið hjá KA á allan hátt. En það versta við þetta hér norðanlands er það hvað erfitt er fyrir okkur að fá æfingaleiki vegna fjarlægð- ar frá Reykjavík. Eg gerði plan um að leika 18 æfingaleiki fyrir ís- landsmótið, en við höfum aðeins getað leikið 5, ég tel það há okkur í dag. Eiðið er ungt og hefði þurft að leika alla þessa leiki sem ég ætlaði þeim.“ - Hvað um knattspyrnumenn í handbolta? „Það fer ekki saman að æfa bæði fótbolta og handbolta. Æfingar fyrir handbolta eru allt öðruvísi en fótbolta. Strákarnir úr fótboltanum eru ekki búnir að ná réttum takti í handboltanum ennþá. Ef t.d. þeir Erlingur og Sigurður myndu snúa sér bara að annarri íþróttinni þá eru þeir meiri handboltamenn heldur en fótboltamenn." - Stefnir þú að því að halda KA í deildinni eða eitthvað hærra? „Þjálfari sem ekki stefnir á toppinn hefur ekki trú á sínu liði, ég stefni á toppinn með mitt lið. En raunhæft sæti er 5. sætið, allt þar fyrir ofan er plús. Mér finnst þrjú lið áberandi best, það eru Valur, Víkingur og FH. Ég reikna með að slagurinn komi til með að standa á milli þessara liða á toppnum.“ - Eitthvað að lokum? „Markmið mitt með að koma til Akureyrar er númer eitt að ná góðum árangri með KA. Það er þó ljóst að ég geri ekkert einn, ég þarf leikmenn sem eru tilbúnir að leggja mikið á sig, góða stjórn sem ég hef, og síðast en ekki síst þurfum við á góðum stuðningi áhorfenda að halda. Ég lofa því að áhorfendur munu fá mikið fyrir peningana ef þeir koma til að hvetja okkur í baráttunni í vetur í Höllinni." Þjálfari sem ekki hefur trú á sínu liði nær ekki árangri. - ■ Lokahóf - Knattspyrnudeildar Þórs Þorsteinn Halldórsson og fulltrúi Útgerðarfélags Akureyringa. Mynd: gk-. Þorsteinn vann Sig- urbjöm í bráðabana Það fer ekki saman að vera bæði í handbolta og fótbolta. Mynd: KGA. Útgerðarfélag Akureyringa hf. varð sigurvegari í Firmakeppni Golfklúbbs Akureyrar sem lauk um helgina. Alls tóku 130 fyrirtæki þátt í keppninni sem er með umfangsmestu mótum klúbbsins, en til úrslita Iéku um 70 fyrirtæki. Leiknar voru 9 holur, árangur hvers keppanda tvöfaldaður og full forgjöf hans síðan dregin frá. Þegar upp var staðið voru þeir jafnir Þorsteinn Halldórsson sem keppti fyrir Útgerðarfélagið og Sigurbjörn Þorgeirsson sem keppti fyrir Iðnaðardeild Sam- bandsins (ullariðnað), en þeir léku báðir á 68 höggum nettó. Þeir háðu því „báðabana“ um sigurinn og hafði Þorsteinn betur. Nú fer að fækka mótum hjá Golfklúbbi Akureyrar. Nk. fimmtudag verður vélamót, á laugardag verður Stableford, á sunnudag öldungamót og drengjamót og þá er aðeins eftir „bændaglíman" sem er jafnan síðasta mót sumarsins, og verður hún að þessu sinni 5. október. gk-- Hið árlega lokahóf knatt- spyrnudeildar Þórs var haldið á laugardaginn var og fór fram í Félagsborg. Þar voru veittar viðurkenningar fyrir bestan ár- angur einstaklinga í hverjum flokki. Þjálfarar yngri flokka félagsins völdu besta leikmanninn hver í sínum flokkí, en í eldri flokkum félagsins fór fram leynileg kosn- ing sem leikmenn stóðu sjálfir að. Leikmenn ársins 1985 urðu þessir: í 6. flokki: Elmar Eiríks- son og var hann jafnframt marka- hæstur. Leikmaður 5. flokks var valinn Steinþór Gíslason og í 4. flokki var valinn Þórir Áskels- son og var hann einnig marka- hæstur í sínum flokki. Leikmað- ur 3. flokks var valinn Páll V. Gíslason en Páll lék mjög vel í sumar og var ásamt félaga sínum Árna Árnasyni valinn í drengja- landslið íslands er lék á Norður- landamótinu í sumar og stóðu sig þar með miklum sóma. Leikmaður 2. flokks var kos- inn Hlynur Birgisson en Hlynur lék einnig með meistaraflokki í suinar, hann tók stöðu Bjarna Sveinbjörnssonar á miðju sumri og skilaði henni stórvel, vissulega maður framtíðarinnar. Þá er komið að meistaraflokki en þar var Halldór Áskelsson kosinn með glæsibrag, Halldór lék mjög vel í sumar eins og margoft hefur komið fram áður. Halldór spilaði bæði með ungl- ingalandsliðinu og A-landsliðinu og stóð sig mjög vel með þeim. Kvenfólkið skipaði stærri sess hjá félaginu í sumar en nokkru sinni áður en í sumar var starf- ræktur 2. flokkur innan félagsins sem Sigurbjörn Viðarsson stjórn- aði af röggsemi. Leikmaður 2. flokks kvenna var kosinn Lára Eymundsdóttir og var hún jafn- framt markahæst í sínum flokki. í meistaraflokki kvenna voru stúlkurnar ekki í vandræðum með að velja besta leikmanninn, þar var Valgerður Jóhannsdótt- ir kosin með öllum greiddum at- kvæðum. Þá voru þeim Nóa Björnssyni og Óskari Gunnarssyni veittar viðurkenningar fyrir 200 leiki með meistaraflokki sem þeir náðu á tímabilinu og einnig þeim Þórarni Jóhannessyni, Sigurbirni Viðarssyni, Jónasi Róbertssyni og Bjarna Sveinbjörnssyni fyrir 100 leiki með meistaraflokki. Að lokinni verðlaunaafhend- ingu bauð stjórn knattspyrnu- deildarinnar gestum upp á pylsur og gos. Þrír á Spáni Þeir félagar Halldór Áskelsson og Siguróli Kristjánsson úr Þór og Mark Duffield frá KS verða allir í baráttunni á Spáni annað kvöld. En þá leika landslið ís- lands og Spánar skiþuð leik- mönnum 21 árs og yngri síðasta leik sinn í undankeppni heims- meistarakeppninnar. Daginn eft- ir leika svo A-landslið þjóðanna landsleik í sömu keppni og er það jafnframt úrslitaleikur riðilsins. Spánverjum dugir ekkert annað en sigur í þeim leik ef þeir ætla að komast til Mexico en við íslend- ingar erum úr leik. íí Mynd: KGA „Ætlum upp segir Eiríkur Sigurðsson þjátfari Þórs „Fyrstu leikirnir verða 18. og 19. október gegn Breiðabliki og verður leikið á Akureyri,“ sagði nýendurráðinn þjálfari Þórs, Éiríkur Sigurðsson í spjalli við Dag. „Við byrjuð- um að æfa um síðustu mánaða- mót, þetta fer þó ekki á fulla ferð fyrr en um næstu mánaða- mót þar sem allt liðið kemur ekki saman fyrr en þá eða um leið og skólar hefjast af al- vöru.“ Liðið verður að mestu óbreytt en við missum Guðmund Björns- son sem fer suður og fáum í stað- inn Karl Ólafsson frá Sauðár- króki er lék með Þór í úrvals- deildinni fyrir nokkrum árum. Helstu keppinautar okkar í vetur verða Fram, Breiðablik og Reyn- ir Sandgerði en um ÍS liðið veit ég ekki,“ sagði Eiríkur ennfrem- ur. Eiríkur reiknaði með að deild- in yrði jafnari en áður, en þeir ætluðu sér samt að verða efstir i mótslok. Þá má einnig geta þess að hann hefur ákveðið að leika með liðinu samfara þjálfuninni og mun það styrkja liðið mikið. Þá er rétt að láta það koma fram að sömu helgi og Þór og Breiðablik leika fer fram heil „turnering" hjá 3. flokki og leika þar þrjú lið auk Þórs. Eiríkur Sigurðsson. Þá hefst að nýju, lesendur góðir, getraunaleikur Dags. Fyrirkomulag leiksins verður með öðru sniði en áður og verður þannig, að sigurvegarinn frá í fyrra Hjalti Gunnþórsson frá Grenivík hefur leik- inn á því að skora á einhvern annan og „tippa“ þeir á sitt hvora röðina. Sá sem hefur fleiri leiki rétta heldur áfram og skorar á einhvern annan, þannig höldum við svo áfram í vetur og fram á vor þangað til keppnistímabilinu er lokið. Þá verður sá sem oftast hefur sigrað, krýndur getraunakóngur Dags. ' Það skal tekið fram að aðeins má skora einu sinni á sama manninn. Mark verður í eidlínunni á Spáni annað kvöld. Mynd: KGA. Siglfirðingar í þjálfaraleit Siglfirðingar eru nú að leita log- andi ljósi að nýjum þjálfara fyrir knattspyrnulið sitt næsta keppn- istímabil. Hafa þeir m.a. annars haft samband við Gústaf Bald- vinsson er þjálfað hefur KA síð- astliðin tvö ár og er mikill áhugi meðal leikmanna Siglufjarðar- liðsins að fá hann til starfa á Siglufirði. Það gæti þó reynst erf- ítt þar sem leikmenn KA hafa rnikinn áhuga á því að Gústaf þjálfi áfram þeirra lið næsta keppnistímabil og eru töluverðar líkur á að svo verði. Siglfirðingar þurfa þó ekki að örvænta því nokkrir kunnir þjálfarar hafa haft samband við þá og lýst yfir áhuga á að koma og starfa á Siglufirði. 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 Hjalti skorar a Jon Hjalti Gunnþórsson hefur skorað á félaga sinn úr Magna, Jón Ingólfsson. Jón er forfallinn Leeds aðdáandi en þeir leika í annarri deild eins og flest- uin er kunnugt uin og komast þess vegna ekki á seðilinn nema endrum og eins. Hjalta menn, Everton að talið er, eru í 1. deild og eru þar af leið- andi oftast á seðlinum. Hvað um það, hér kemur spá þeirra félaga Hjalta og Jóns. Arsenal-Newcastle 1 Aston Villa-Everton 2 Coventry-WBA 1 Leicester-Ipswich 2 Liverpool-Tottenham 1 Man. United-Southampton 1 Oxford-Man. City x QPR-Birmingham I Sheffield Wed.-Luton 1 West Hain-Nott. Forest x Portsmouth-Blackburn 1 Stoke-Crystal Palace x Arsenal-Newcastle 1 Aston Villa-Everton 2 Coventry-W'BA 2 Leicester-Ipswich 1 Liverpool-Tottenhani 1 Man. Unitcd-Southampton 1 Oxford-Man. City 1 QPR-Birmingham 1 Sheffleld Wed.-Luton 1 West Ham-Nott. Forest 2 Portsmouth-Blackburn 1 Stoke-Crystal Palace x 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.