Dagur - 30.09.1985, Qupperneq 1
68. árgangur
Akureyri, mánudagur 30. september 1985
109. tölublað
„Meginhlutinn af okkar fyrir-
greiðslu við fyrirtækin í bæn-
um felst í lengingu lána, van-
skilin hafa ekkert minnkað,“
sagði einn af útibússtjórum
bankanna á Akureyri, að-
spurður um greiðslustöðu
fyrirtækja í bænum.
Það eru helst fyrirtæki í bygg-
ingariðnaði sem eru verulega illa
stödd og einnig á ýmis smáiðnað-
ur mjög í vök að verjast.
Þeir útibússtjórar sem Dagur
hafði samband við virtust vera á
einu máli um það að ástandið
væri slæmt og enginn bati fyrirsjá-
anlegur á næstunni. Þó benti einn
á að verkefni Slippstöðvarinnar
fyrir Kanadamenn væri af hinu
góða og hefði áhrif á stöðu fyrir-
tækja langt út fyrir Slippstöðina
sjálfa. Hann sagði að það vantaði
bara fleiri verkefni sem færðu at-
vinnu og peninga til bæjarins.
Sá atvinnuvegur sem einna
best er staddur um þessar mundir
virðist, samkvæmt upplýsingum
bankamanna, vera verslunin.
„Hún blaktir," sagði einn þeirra.
Skólasetning
Menntaskólinn á Akureyri var sett-
ur í 106. sinn í gær. í setningarræðu
Tryggva Gíslasonar skólameistara
kom m.a. fram að nemendur verða
723 í vetur, þar af 100 í öldunga-
deild. Á myndinni má sjá nokkra
nemendur spjalla saman að setningu
lokinni. Mynd: KGA.
Aö sögn lögreglunnar á Akur-
eyri leið þessi helgi stórslysa-
laust. Nokkur ölvun var á
föstudagskvöldið og aðfarar-
nótt laugardags í miðbænum
og bárust lögreglunni 4 kærur
um minni háttar líkamsárásir,
allar á sama manninn. Laugar-
dagskvöldið var hins vegar
mjög rólegt.
Þrír árekstrar urðu á Akureyri
um helgina. Á föstudagskvöld
skullu tveir bílar saman á Skipa-
götu á móts við Ráðhústorg með
þeim afleiðingum að flytja þurfti
tvo farþega úr öðrum bílnum á
sjúkrahús. Þeir fengu þó að fara
heim skömmu síðar. I gær urðu
svo tveir minni háttar árekstrar.
í Húnavatnssýslum bar það
helst til tíðinda að 3 ökumenn
voru teknir, grunaðir um ölvun
við akstur. Þykir það óvenju há
tala þar um slóðir. Þá kom upp
eldur í íbúðarhúsi á Blönduósi
aðfararnótt laugardags. Mun
hafa kviknað í út frá eldavél. íbúi
í húsinu var fluttur á sjúkrahús til
skoðunar, en reyndist ekki alvar-
lega slasaður.
Að öðru leyti var tíðindalaust
hjá lögreglunni norðanlands um
helgina. BB.
Byggðastofnun
Athugaðir verði kostir þess og galla
flytja Byggðastofnun til Akureyrar
Fyrir skömmu voru lagðar
fram á fundi stjórnar Byggða-
stofnunar tvær tillögur þess
efnis að kannaðir yrðu mögu-
leikar á því að stofnunin yrði
flutt til Akureyrar. Önnur til-
lagan kom frá sjálfstæðis-
mönnunum Halldóri Blöndal
og Ólafi G. Einarssyni og hin
frá Geir Gunnarssyni Alþýðu-
bandalagi og Sigfúsi Jónssyni
Alþýðuflokki.
Állir þessir menn hafa opin-
berlega lýst yfir þeim vilja sínum
að stofnunin skuli staðsett á Ak-
ureyri. Aðrir stjónarmenn eru
Eggert Haukdal, Ólafur Þ. Þórð-
arson og Stefán Guðmundsson
sem er formaður stjórnar. Á sl.
miðvikudag var haldinn annar
fundur í stjórn Byggðastofnunar
en þar var framtíðarstaðsetning
hennar ekki tekin til umræðu og
verður það sennilega gert á næsta
fundi sem haldinn verður 11.
október nk. Reikna má með að
þá verði ákveðið að láta fara
fram könnun á því hvaða kosti og
galla það kunni að hafa að flytja
stofnunina til Akureyrar. Sú
könnun gæti tekið einhverjar vik-
ur eða mánuði en þegar niður-
stöður hennar liggja fyrir mun
stjórnin koma saman og ræða
það hvort flytja skuli stofnunina
til Akureyrar. að sögn Stefáns
Guðmundssonar.
Stefán kvaðst í samtali við Dag
ekki vilja taka afstöðu til þess
hvar hann teldi að stofnunin ætti
að vera fyrr en áð lokinni þeirri
könnun sem minnst er á hér að
framan.
Ef stjórn Byggðastofnunar
ákveður að undangenginni rann-
sókn að flytja stofnunina til Ak-
ureyrar má fastlega gera ráð fvrir
að frá því að ákvörðun hefur ver-
ið tekin líði ekki skemmri tími en
ár þar til flutningur fer fram.
Stofnfundur Akureyrardeildar samtaka um jafnan rétt
milli landshluta var haldinn að Hótel Varðborg í
gærdag. Hér er Pétur Valdimarsson, einn forsvars-
manna samtakanna, í ræðustól.
Blönduvirkjun seinkar:
- segir Gunnar Ríkharösson for-
maður Iðnþróunarfélags A.-Rúnvetninga
„Eftir því sem verkið gengur um áhrif seinkunar framkvæmd
hægar fá heimamenn meira af v'ð Blönduvirkjun á atvinnulíf
vinnunni því ef það kemur Blönduósi og í nágrenni.
mikil pressa á verkið, þá höf- Gunnar sagði að þó nokku
um við ekki mannskap til að hóPur verkamanna og smið
gera neitt stórt.“ hefði ha^ vhinu v'ð uppslát
steypuvinnu og jarðgangagerð o
Þetta sagði Gunnar Ríkharðs- verður framkvæmdum við jarc
son, framdvæmdastjóri Vél- göngin haldið áfram í vetur. Hir
smiðju Kaupfélags A-Húnvetn- vegar væri lítið framundan hj
inga og formaðui Iðnþróunarfé- smiðum og öðrum iðnaðarmönr
iags A-Húnvetninga, aðspurður um á Blönduósi í vetur. -yl
Greiðslustaða fyrirtækja á Akureyri