Dagur - 30.09.1985, Page 7
6 - DAGUR - 30. september 1985
30. september 1985 - DAGUR - 7
íþróttitL
knattspymu-
maður
Akureyrar
Það kom manni svo sem ekkl mjög á óvart
þegar Páll Magnússon tilkynnti fyrir hönd
Knattspyrnuráðs Akureyrar að Halldór
Áskelsson hefði verið útnefndur knatt-
spyrnumaður Akureyrar 1985 í hófi er stjórn
KRA hélt af því tiiefni.
Halldór hefur spilað mjög vel í sumar með
Þór í 1. deildinni og var valinn efnilegasti
leikmaður 1. deildar af leikmönnum sjálfum
eins og áður hefur komið fram í fréttum.
Halldór hefur lcikið bæði með A-landsliði og
landsliði skipað leikmönnum 21árs og yngri
og staðið sig fráhærlega. Nú síðast á Spáni í
síðustp viku, en þá lék Halldór með 21árs
liðinu gegn spönskum jafnöldrum sínum í
Evrópukeppninni í knattspyrnu. Spánverjar
sigruðu í þeim leik með 1 marki gegn engu
og misnotaði íslenska liðið vítaspyrnu sem
Halldór ftskaði. Dagur óskar Halldóri til
hamingju með sinn góða árangur og vonar
að hann eigi eftir að gera enn betur á næsta
ári.
Þorieifur
markakóngur
K.R.A.
„Það er ofsalega gaman aö skora mörk,“
sagði nýkrýndur markakóngur KRA Þorleif-
ur Karlsson úr 6. fl. KA í fótbolta.
„Við vorum meö góðan þjálfara sem heitir
Njáll Eiðsson og sigruöum við í Pollamóti
KSÍ og Eimskips sem var haldið hér á Akur-
eyri í sumar," sagöi Þorleifur einnig.
Já, hann hefur verið sannkallaður mark-
varðahrellir hann Þorleifur. í sumar skoraði
hann hvorki fleiri né færri en 54 mörk og þar
af 12 í fjórum leikjum á vcgum KRA. Hann
er því vel að tiflinum kominn. Félagi hans úr
6. fl. Leó Þorleifsson var einnig iðinn upp
við mark andstæöinganna en hann skoraði
50 mörk í sumar.
Stórieikur Sigmars
þegar KA vann Þrótt
KA vann þrótt örugglega með
27 mörkum gegn 21 I íþrótta-
húsi Seljaskóla á laugardag í
leik sem einkenndist af góðri
markvörslu og mikilli baráttu.
Jafnræði var með liðunum
framan af fyrri hálfleik og var
jafnt á öllum tölum upp að 7-7,
en þá tóku Þróttarar smá kipp
og skoruðu 2 mörk í röð og
komust í 9-7 og náðu stærstu
forystu sem sést hafði í leikn-
um.
En Þróttur var ekki lengi í
paradís, því Erlingur skoraði 8.
mark KA þegar um 10 mínútur
voru til leikhlés og Pétur Bjarna-
son bætti við tveimur fallegum
mörkum í röð og þar með breytt-
ist staðan snögglega í 10-9 KA í
vil. Þá fór heldur að vænkast hag-
ur norðanmanna og hinir þó
nokkuð mörgu norðlendingar á
áhorfendapöllunum tóku við sér.
Segja má að restin af fyrri hálf-
leik hafi verið eign KA-manna
því þeir skoruðu 3 mörk í viðbót
áður en Þróttarar skoruðu síð-
asta mark hálfleiksins. Staðan
því í leikhléi 13:10 fyrir KA.
í síðari hálfleik var svo aldrei
spurning hvort liðið mundi ganga
með sigur af hólmi, þar sem
vörnin þéttist hjá KA og Sigmar
lokaði markinu langtímum sam-
an og varði m.a. tvö vítaskot.
Jafnframt því gekk sóknarleikur-
inn vel upp og mikið var skorað
af fallegum mörkum. Þrótturum
tókst ekki einu sinni að nýta sér
það að vera tveimur fleiri um
tíma heldur skoruðu KA-menn
þá tvö mörk í föð, fyrst Sigurður
Pálsson með lúmsku skoti og svo
Guðmundur Guðmundsson úr
hraðaupphlaupi. Þegar 10 mínút-
ur voru til leiksloka höfðu KA-
menn náð 10 marka forystu
26:16, en leyfðu þá yngri og
óreyndari mönnum að spreyta sig
jafnframt því sem slakað var svo-
lítið á, og Þróttarar minkuðu
muninn um 4 mörk síðustu mín-
úturnar. Lokastaðan eins og fyrr
sagði 27:21 fyrir KA.
KA-liðið spilaði nokkuð vel,
en erfitt er að dæma getu þess af
þessum leik vegna þess hve slakir
Þróttararnir voru. Bestir í liðinu
voru Sigmar markvörður sem
varði 18 skot og þar af 2 vítaskot,
Guðmundur Guðmundsson sem
skoraði úr ýmsum færum, Erling-
ur og Pétur Bjarnason, sem átti
góða spretti en var helst til villtur
á köflum. Hjá Þrótti voru Guð-
mundur Jónsson markvörður og
Konráð Jónsson bestir.
Mörk KA skoruðu: Guðmund-
ur 7, Pétur 5, Erlingur 5, Jón 4,
Sigruður 2, Hafþór 2 og Þorleifur
2.
■ 7 í VW'v'V.. ýfc;
Pétur Bjarnason lék vel fyrir sunnan um helgina.
Mynd: KGA.
Gústafáfram
meðKA
KA hefur endurráöiö Gústaf
Baldvinsson til að þjálfa
meistaraflokk félagsins næsta
keppnistímabil. „Já, það er
rétt, við gengum frá ráðningu
Gústafs síðasta fimmtudag,“
sagði Stefán Gunnlaugsson
formaður knattspyrnudeildar
KA í samtali við Dag.
Gústaf hefur þjálfað KA-liðið
síðustu tvö ár og hefur verið al-
menn ánægja með störf hans hjá
félaginu en liðið var aðeins 1 stigi
frá því að endurheimta sæti sitt í
1. deild í sumar, og verður það
verkefni Gústafs að koma liðinu
þangað á ný. Líkurnar á því ættu
að vera mjög góðar ef þeim tekst
að halda sama mannskap og var í
sumar.
Mörk Þróttara skoruðu: Kon-
ráð 7(3), Birgir 3, Sigurjón 3 og
aðrir minna.
KA-menn voru reknir útaf í 16
mínútur en Þróttarar í 8 mínútur
þá var Bergur Birgisson útilokað-
ur frá leiknum á 28. mín. fyrir að
henda boltanum í æðiskasti fram-
an í Jón Kristjánsson, en áður
hafði hann unnið sér það til
frægðar í leiknum að gera tilraun
til að slá Þorleif. Alveg furðuleg-
ur leikmaður og undirritaður
vonast til að sjá ekki fleiri slíka í
vetur.
Þróttur fékk 7 vítaköst en KA
ekkert. Fremur slakir dómarar
leiksins voru þeir Sigurður Bald-
ursson og Þórður Sigurðsson.
AE/Reykjavík.
Gunnar Gunnarsson þjálfari og leikmaður Þórs.
Sætur sigur
á Stjömunni
Gústaf Baldvinsson þjálfari KA.
Mynd: KGA.
„Þetta er mun sætari sigur
heldur en í gær vegna þess að
Stjarnan er með mun betra lið
en Þróttur,“ sagði Guðmund-
ur Guðmundsson eftir leikinn.
„Þetta var miklu erfiðari leik-
ur en betur spilaður af okkar
hálfu,“ sagði Guðmundur
einnig.
Jafnræði var með liðunum
framan af leiknum og jafnt á öll-
um tölum upp að 6:6 og 20 mín.
liðnar af leiknum og hafði Guð-
mundur Guðmundsson skorað 5
af 6 mörkum KA en Sigurður
Pálsson hafði skorað það 6. En þá
skoruðu Stjörnumenn næstu 2
mörk og breyttu stöðunni í 8:6.
Síðan skoruðu liðin á víxl fram
að hálfleik og staðan í leikhléi
10:8 Stjörnunni í vil.
KA-menn hófu seinni hálfleik á
því að skora 5 mörk í röö, fyrst
Jón 2,þá Þorleifur,síðan Jón 1 og
svo Þorleifur aftur og breyttu
stöðunni í 13:10 fyrir KA.
Stjörnumenn skora sitt 11. mark
og KA-menn skoruðu næstu 3 og
staðan orðin 16:11 fyrir KA. Þá
gripu Stjörnumenn til þess ráðs
að taka þá bræður Erling og Jón
úr umferð og um 15 mínútur eftir
af leiknum.
Stjarnan skoraði sitt 12. mark
og Þorleifur svaraði fyrir KA og
liðin skoruðu á víxl og staðan
breyttist í 19:14, þá komu 3
Stjörnumörk í röð,en Logi bætti
við 20. marki KA. Stjarnan skor-
ar sitt 18. mark.Jón gerir 21:18
síðan 21:19, Erlingur skorar
22:19.Stjarnan skoraði næstu 2 og
fóru að spila maður á mann, og
mikil spenna farin að færast í
leikinn. En Erlingur innsiglaði
góðan sigur hálfri mínútu fyrir
leikslok er hann skoraði 23. mark
KA og lokatölur 23:21 KA í vil.
■ KA sigraði Stjörnuna
spennandi leik 23:21
Sigmar spilaði mjög vel og
varði 14 skot þár af 2 víti, en
hann var rekinn útaf einu sinni og
þá kom Þorvaldur inná og varði
m.a. 1 víti. Aðrir er léku vel
voru: Jón og Guðmundur. Flest
mörk KA skoruðu Guðmundur
5, Jón 5, Logi 3, Erlingur 3, Þor-
leifur 2 og aðrir minna. KA-
menn voru alls 20 mínútur utan
vallar og þá fékk Anton að líta
rauða spjaldið í leiknum og þykir
mönnum þeir spila nokkuð
grimmt í vörninni. í heild spilaði
liðið vel og er greinilegt að árang-
ur mikilla æfinga er að koma í
ljós.
Miklar manna-
breytingar í blaki
„Mannabreytingar verða þó
nokkrar bæði í kvenna- og
ykarlaliðinu hjá KA í blaki, en
þau leika bæði í 1. deUd,“
sagði Halldór Jónsson í viðtaii
við Dag.
Öldunga-
mót GA
Öldungamót Golfklúbbs Akur-
eyrar fór fram i gær á Jaðarsvelli.
Leiknar voru 18 holur og sigur-
vegari án forgjafar varð Guðjón
E. Jónsson á 79 höggum í 2. sæti
varð Pétur Antonsson á 81 höggi
og í 3. sæti Birgir Björnsson á 83.
höggum.
Með forgjöf sigraði Skjöldur
Jónsson á 59 höggum í 2. sæti var
Guðjón E. Jónsson á 62 höggum
og í 3. sæti Sigurður Stefánsson á
64 höggum.
„í karlaflokki verða 8 lið í
einni deild og verður leikin tvö-
föld umferð, að henni lokinni
verður úrslitakeppni þar sem 4
efstu og 4 neðstu liðin leika
saman. Lið númer 1 leikur við lið
númer 4 og lið númer 2 við lið
númer 3 og verður leikið þar til
annað liðið hefur unnið 2 leiki,
og þau 2 sem það gera spila síðan
úrslitaleikinn. Hjá 4 neðstu lið-
unum verður sama fyrirkomulag
og það lið sem kemur best út þar
fær sæti í 1. deild að ári en á
næsta ári verður breytt skipulag á
keppninni, því þá verður liðum
fækkað um 3 og verða aðeins 5,“
sagði Halldór einnig.
„í kvennaflokki eru 6 lið og
spila stúlkurnar tvöfalda umferð
og það lið sem þá er efst orðið ís-
landsmeistari,“ sagði Halldór
ennfremur.
Þá kom einnig fram hjá Hall-
dóri að deildakeppnin hæfist um
mánaðamótin október-nóvember
og yrði heimavöllur KA að öllum
líkindum íþróttahús Glerárskóla.
Umsjón: Kristján Kristjánsson
Þór sigraði
Völsung
„Ég er þokkalega ánægður
með vömina en það þarf að
laga sóknarieikinn, en þetta
var sætur sigur,“ sagði Gunnar
Gunnarsson þjálfari Þórs eftir
að þeir höfðu sigrað Völsung í
3. deildinni í handbolta.
Völsungar náðu forystu í upp-
hafi leiksins og voru yfir 1:0, 2:1
og 3:1 en þá jöfnuðu Þórsarar og
komust yfir og breyttu stöðunni í
6:3. En þá skoraði Pálmi 4. mark
Völsungs beint úr aukakasti.
Þórsarar skoruðu sitt 7 mark og
var það svolítið skrýtið. Bjarni
Pétursson markvörður Völsunga
varði þá glæsilega af línunni frá
einum Þórsara, boltinn fór aftur
fyrir markið, Bjarni stökk á eftir
honum og ætlaði að gefa á Arnar,
en boltinn fór í innkast, sem
Þórsarar voru fljótir að taka og
sendu þeir boltann beint í markið
hjá Bjarna, dálítið ódýrt mark
það.
Völsungar héldu í við Þórsara í
fyrri hálfleik og staðan í hálfleik
12:10 Þór í vil.
Baldvin Heiðarsson skoraði 3
fyrstu mörkin fyrir Þór í upphafi
síðari hálfleiks,en þeir Pétur og
Helgi fyrir Völsunga á milli, og
staðan orðin 15:12 Þór í vil.
Aðalbjörn tók þá við af Baldvini
og skoraði næstu þrjú mörk Þórs,
en Arnar svaraði fyrir Völsung
með tveim mörkum. Þá skora
Þórsarar tvö mörk í röð og stað-
an orðin 20:14 um miðjan síðari
hálfleik, en Völsungum tókst að
laga stöðuna aðeins fyrir leikslok
en þó náðu þeir aldrei að ógna
sigri Þórs.
Lokastaðan var því 24:20 Þór í
vil. Leikurinn var nokkuð harður
og minna um að leikinn væri fal-
legur handbolti, og fékk Aðal-
björn Þórsari að líta rauða
spjaldið fyrir þrjár brottvísanir.
Bestu menn Völsungs voru
Arnar, Pálmi og Pétur Pétursson.
Hjá Þór voru þeir Aðalbjörn,
Baldvin og Hermann markvörð-
ur bestir.
Mörk Völsungs skoruðu:
Pálmi 8 (3), Arnar 5, Pétur 5 og
Helgi Helga 2. Mörk Þórs skor-
uðu: Baldvin 7, Jóhann 5, Aðal-
björn 5 (1), Gunnar 4 (2) og Ing-
ólfur 3.
7
Björn aftur í herbúðir Þórs.
Mynd: KGA.
Bjorn
þjálfar Þór
Þórsarar hafa ráðið Björn Árna-
son sem þjálfara meistaraflokks
karla í knattspyrnu næsta ár.
„Við gengum frá þessum mál-
um um helgina og við bindum
rnjög miklar vonir við störf
hans,“ sagði Árni Gunnarsson
formaður knattspyrnudeildar
Þórs.
Björn er ekki ókunnugur í her-
búðum Þórs, því hann þjálfaði
liðið fyrir þremur árum með góð-
um árangri, þeini besta þar til nú.
Ef liðið helst svo til óbreytt næsta
ár, ætti möguleiki á toppnum að
vera töluverður.
Þorsteinn Ólafsson.
Þjálfar
Þorsteinn
Leiftur
- eða verður
hann áfram
með Magna?
„Jú, það er rétt það hafa tvö
lið boðið mér að þjálfa næsta
ár,“ sagði Þorsteinn Ólafsson
er hann var spurður um þjálf-
aramál sín. Þetta eru lið
Magna á Grenivík og lið
Leifturs frá Ólafsfírði sagði
Þorsteinn einnig.
En þessi mál eru í athugun
hjá mér og skýrast á næstu dög-
um sagði Þorsteinn að lokum.
Það þarf engann að undra að
Þorsteinn hafi nokkur tilboð
upp á vasan því hann hefur get-
ið sér gott orð sem þjálfari þann
stutta tíma sern hann hefur
starfað sem slíkur.
| . j
1—X—2
Knatt-
spymu
úrslit
Úrslit leikja í 10. umfcrð ensku
knattspyrnunnar í 1. og 2. deild
um helgina urdu þessi:
1. DEILD:
Arsenal-Newcastle 0:0 x
Aston Villa-Everton 0:0 x
Coventry-W.B.A. 3:0 1
Leicester-Ipswich 1:0 1
Liverpool-Tottenham 4:1 1
| Man. IJnited South’pton 1:0 1
Oxford-Man. City 1:0 1
Q.P.R.-Birmingham 3:1 1
Sheffleld Wed.-Luton 3:2 1
West Ham-Nott’in For. 4:2 1
Watford-Chelsea 3:1 t
2.DEI1.D:
Carlisle-Shrewsbury 0:2
Fulham-Brighton 1:0
Grimsby-Bradford 2:0
Leeds-Sheff. United 1:1
Middlesbro-Barnsley 0:0
Millwall-Oldham 0:1
Norwich-Hull C. 2:0
Portsmouth-Blackburn 3:0 1
Stoke-C. Palace 0:0 x
Sunderland-Huddersfleld 1:0
Wimbledon-Charlton 3:1
1—X—2