Dagur - 30.09.1985, Side 11
30. september 1985 - DAGUR - 11
, 90 ára:
Óli P. Kristjánsson
- fyrrverandi póstmeistari á Akureyri
Níræður varð sl. laugardag læri-
faðir minn, ÓIi P. Kristjánsson,
fyrrverandi póstmeistari á Akur-
eyri. Pað tilheyrir að geta um ætt
og uppruna, þó þetta eigi aðeins
að vera stutt afmæliskveðja. Óli
er fæddur á Blönduósi þann 28.
september 1895. Foreldrar hans
voru hjónin Sigríður Sigurðar-
dóttir, kölluð „vert“ og Kristján
Halldórsson, smiður. Gagnfræð-
ingur varð Óli hér á Akureyri
árið 1914 og byrjaði þá að vinna
hjá mági sínum, Þorsteini
Bjarnasyni, kaupmanni á
Blönduósi og síðar vann hann
við vegavinnu víða í Húnavatns-
sýslu.
Þann 23. júní 1918 gekk Óli að
eiga heitkonu sína, Jósefínu Páls-
dóttur, sem ættuð var úr Vatns-
dal. Foreldrar hennar voru hjón-
in Hólmfríður Hannesdóttir og
Páll Halldórsson. Jósefína
andaðist árið 1975. Jósefínu og
Óla varð þriggja barna auðið:
Elstur er Sigurður, læknir á Ak-
ureyri, kvæntur Herdísi Stein-
grímsdóttur. Pá Hjördís, varð-
stjóri hjá Pósti og síma, Akur-
eyri, maður hennar var Jóhann
G. Guðmundsson, sem var eftir-
maður Óla í póstmeistaraemb-
ættinu. Jóhann andaðist árið
1980. Yngst var Edda, en hún
lést aðeins eins árs gömul.
Haustið 1918 fluttu Jósefína og
Óli frá Blönduósi til Akureyrar
og árið eftir réð hann sig til
starfa á Póststofunni á Akureyri,
hjá Möller póstmeistara og síðan
eftirmanni hans Guðmundi
Bergssyni. Þar fann Óli sinn
starfsvettvang, því það má með
sanni segja að þar var réttur mað-
ur á réttum stað.
Óli var settur póstmeistari árið
1923 og skipaður frá 1. október
1924. Pví starfi gegndi hann til
ársloka 1965, er hann lét af störf-
um fyrir aldurs sakir. Óli er einn
af þeim prúðu mönnum, sem
byggja þetta land, ljúfur og góð-
ur húsbóndi, en þó fastur fyrir og
veit ég að ég mæli fyrir munn
okkar allra, gömlu starfsmanna
hans, að betri yfirmann er vart
hægt að finna. Ekki má gleyma
að geta allra gleðistundanna, sem
hann tók þátt í með okkur að
loknum vinnudegi.
Óli er einn af þeim mönnum,
sem setja svip sinn á bæinn, því
svo mikinn persónuleika ber
hann, en aldurinn er aðeins far-
inn að segja til sín og þar af leið-
andi hefur daglegum gönguferð-
um hans á gamla vinnustaðinn
fækkað. Óli hefur unnið mikið að
félagsmálum, t.d. innan Odd-
fellowreglunnar og Rótarýklúbbs
Akureyrar, auk þess sem hann
var einn af stofnendum Golf-
klúbbs Akureyrar. Honum var
veitt fálkaorðan árið 1970.
Um leið og við hjónin sendum
Óla og ættingjum hans okkar
innilegustu hamingjuóskir á þess-
um tímamótum, þakka ég honum
af alhug föðurlega handleiðslu í
gegnum árin, bæði í starfi og þar
fyrir utan.
Gísli J. Eyland.
Viðskipti við útlönd:
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Smárahlíð 9L, Akureyri, íalinni eign ívars
Sigurjónssonar, fer fram eftir kröfu veðdeildar Landsbanka
fslands, innheimtumanns ríkissjóðs og bæjargjaldkerans á
Akureyri á fasteigninni sjálfri föstudaginn 4. október 1985 kl.
14.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Sunnuhlíð 12, X-hluta, Akureyri, þingl.
eign Smára hf., ferfram eftir kröfu Verslunarbanka íslands hf.,
bæjargjaldkerans á Akureyri, innheimtumanns ríkissjóðs og
Ólafs Axelssonar hrl. á fasteigninni sjálfri föstudaginn 4. októ-
ber 1985 kl. 17.30.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Sunnuhlíð 12, V-hluta, Akureyri, þingl.
eign Smára hf., ferfram eftir kröfu Verslunarbanka fslands hf.,
innheimtumanns rlkissjóðs og bæjargjaldkerans á Akureyri á
fasteigninni sjálfri föstudaginn 4. október 1985 kl. 17.15.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 61., 67. og 70 tbl. Lögbirtingablaðsins 1985
á fasteigninni Strandgötu 23 (skúrbyggingu), Akureyri, þingl.
eign Þorsteins Gunnarssonar o.fl., fer fram eftir kröfu Jóns
Þóroddssonar hdl., Björns Þorsteinssonar hdl., Guðjóns Á.
Jónssonar hdl. og bæjargjaldkerans á Akureyri á fasteigninni
sjálfri föstudaginn 4. október 1985 kl. 16.45.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Hagstæð
um 765
millj. kr.
í ágúst
í ágústmánuði sl. voru fluttar
út vörur fyrir 3.232 millj. kr.
en inn fyrir 2.467 millj. kr. fob.
Yöruskiptajöfnuðurinn var því
hagstæður um 765 mUlj. kr. en
var hagstæður um 162 millj.
kr. í ágúst í fyrra.
Fyrstu átta mánuði þessa árs
voru fluttar út vörur fyrir 22.074
millj. kr. en innfyrir 21.230 millj.
kr. fob. Vöruskiptajöfnuðurinn
það sem af er árinu er því hag-
stæður um 844 millj. kr. en á
sama tíma í fyrra var 475 millj.
kr. halli á vöruskiptum við
útlönd.
Á föstu gengi var útflutnings-
verðmætið fyrstu átta mánuði
ársins 16% meira en á sama tíma
í fyrra. Þar af var verðmæti sjáv-
arafurða 22% meira, verðmæti
kísiljárns 23% meira, en verð-
mæti útflutts áls 19% minna en
fyrstu átta mánuði sl. árs. Loks
var annar vöruútflutningur en
hér hefur verið talin 20% meiri að
verðmæti fyrstu átta mánuði
þessa árs en á sama tímabili í
fyrra.
Verðmæti vöruinnflutningsins
(reiknað á föstu gengi) var 8%
meira fyrstu átta mánuði þessa
árs en á sama tímabili í fyrra. Við
samanburð af þessu tagi þarf að
hafa í huga, að innflutningur
skipa og flugvéla, innflutningur
til stóriðju og virkjana og olíu-
innflutningur er yfirleitt mjög
breytilegur innan árs eða frá einu
ári til annars. Séu þessir liðir frá-
taldir reynist annar innflutningur
(um 75% af innflutningnum á
þessu ári) hafa verið 6% meiri en
fyrstu átta mánuði sl. árs.
Framsóknarfélag
Akureyrar
Bæjarmálafundur veröur mánudaginn 30. sept-
ember kl. 20.00.
Athugið nýjan fundarstað að Eiðsvallagötu 6.
Alþingismennirnir Ingvar Gíslason, Stefán
Valgeirsson og Guðmundur Bjarnason halda
almenna stjórnmálafundi sem hér segir:
Miðv.d. 2. okt. kl. 21 Bergþórshvoll Dalvík
Fimmtud. 3. okt. kl. 21 Tjarnarborg Ólafsfirði
Föstud. 4. okt. kl. 21 Samkomuhúsið Grenivík
Framsóknarflokkurinn.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 41., 45. og 48 tbl. Lögbirtingablaðsins 1984
á fasteigninni Lækjargötu 11 a, Akureyri, þingl. eign Birgis
Ottesen, fer fram eftir kröfu Tryggingastofnunar ríkisins,
Björns J. Arnviðarsonar hdl. og bæjargjaldkerans á Akureyri á
fasteigninni sjálfri föstudaginn 4. október 1985 kl. 17.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 61., 67. og 70 tbl. Lögbirtingablaðsins 1985
á fasteigninni Áshlíð 7, Akureyri, þingl. eign Friðriks Friðriks-
sonar, fer fram eftir kröfu Jóns Ingólfssonar hdl. og Guðjóns Á.
Jónssonar hdl. á fasteigninni sjálfri föstudaginn 4. október
1985 kl. 14.30.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 61., 67. og 70 tbl. Lögbirtingablaðsins 1985
á fasteigninni Sólvangi v/Höfðahlíð, Akureyri, þingl. eign Friðr-
iks J. Friðrikssonar o.fl., fer fram eftir kröfu Jóns Ingólfssonar
hdl. á fasteigninni sjálfri föstudaginn 4. október 1985 kl. 16.30.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 61., 67. og 70 tbl. Lögbirtingablaðsins 1985
á fasteigninni Borgarhlíð 7f, Akureyri, þingl. eign Vilbergs
Pálmasonar, fer fram eftir kröfu Vilhjálms Vilhjálmssonar hdl.
og bæjargjaldkerans á Akureyri á fasteigninni sjálfri föstudag-
inn 4. október 1985 kl. 15.15.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
f STAÐAR NEM!
Öll hjól eiga að stöðvast
algerlega áðuren
að stöðvunarlínu
er komið.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Ægisgötu 23, Akureyri, þingl. eign Sigurð-
ar Pálmasonar, fer fram eftir kröfu Gunnars Sólnes hrl. og
Ólafs B. Árnasonar hdl. á fasteigninni sjálfri föstudaginn 4.
október 1985 kl. 13.45.
Bæjarfógetinn á Akureyri.