Dagur - 25.03.1986, Page 1
69. árgangur Akureyri, þriðjudagur 25. mars 1986_____________58. tölublað
Filman þín
á skiliö þaö
besta!
FILMUHÚSIÐ
Hafnarstræti 106 Sími 22771 Pósthólf 198
B350 BKK
gæðaframköllun
Filman inn fyrir
kl. 10.45.
Myndirnar tilbúnar
kl. 16.30.
Opið á
laugardögum
frá kl. 9-12.
Raðsmíðaskipin:
Viðræður
um
páskana?
- við aðila á Norður-
landi sem buðu
í skipin
„Þessi mál hafa verið skoðuð í
ráðuneytinu að undanförnu,“
sagði Stefán Reykjalín stjórn-
arformaður Slippstöðvarinnar
á Akureyri er við spurðum
hann hvort eitthvað væri að
gerast varðandi raðsmíðaskip-
in tvö sem til sölu eru hjá fyrir-
tækinu og boðin hafa verið út.
„Það verður sennilega ekkert
afgerandi að frétta af þessum
málum fyrr en eftir páska, tíminn
er orðinn svo naumur og erfitt
með flug. Hins vegar er hugsan-
legt að við notum þá frídaga sem
fram undan eru til viðræðna við
aðila á Norðurlandi, hér á Akur-
eyri, Blönduósi og fyrir austan.
Annað er ekki um þetta að segja
á þessu stigi,“ sagði Stefán. gk-.
Skíðaskipið:
ábyrað
Bæjarráð Akureyrar hefur
hafnað beiðni frá bræðrunum
Arnari og Hauki Snorrasonum
um að bæjarsjóður Akureyrar
veiti sjálfskuldarábyrgð til
kaupa á skíðaskipi til íandsins.
Peir Arnar og Haukur hyggjast
reka skíðaskipið frá Akureyri í
sumar í siglingum til Hríseyjar og
Grímseyjar og var lánið sem þeir
báðu um bæjarábyrgð fyrir 7,5
milljónir króna. Þeir Arnar og
Haukur hafa að undanförnu ver-
ið í Póllandi en þaðan kaupa þeir
skipið og er ekki betur vitað en
að skipið hefji siglingar frá Akur-
eyri 1. maí. gk-.
Sjúkiingurinn borinn frá skipshlið og í sjúkrabíi, síðdegis í gær.
Mynd: KGA
Stakfell flutti sjúkan
mann til Akureyrar
„Þetta var eini möguleikinn
sem fyrir hendi var. Yfirleitt
hefur ailtaf myndast einhver
skíma í sambandi við flutn-
inga, en ekki í þessu tilfelli,“
sagði Elín Jakobsdóttir hjúkr-
unarfræðingur á Þórshöfn um
það er togarinn Stakfell var
fenginn til að flytja mikið sjúk-
an mann frá Þórshöfn til Akur-
eyrar.
Stakfellið kom af veiðum
aðfaranótt laugardags og gat því
ekki klárað að landa afla sínum
áður en til sjúkraflutninganna
kom. Mikil ófærð er á vegum
kringum Þórshöfn og þurfti því
að hefja snjómokstur er átti að
flytja fársjúkan manninn á
sjúkrahús. Horfið var frá ruðn-
ingnum, því hann gekk mjög
seint. Var þá leitað eftir bátum
eða skipum í nágrenni Þórshafn-
ar en allt kom fyrir ekki. Haft var
samband við Slysavarnafélag
íslands og beðið um þyrlu á
staðinn, en ekki treystu flugmenn
sér að fljúga vegna ísingar. Þá
var gripið til Stakfellsins, sem
lagði af stað til Akureyrar um
klukan eitt aðfaranótt mánudags
og kom til Akureyrar klukkan
14.00 í gær. Læknir sem starfar á
Þórshöfn um þessar mundir Máni
Fjalarsson, fór með skipinu og
fylgdist með líðan sjúklingsins á
leiðinni. gej-
Alþingi setti lög
á mjólkurfræðinga
Mjólkurfræðingar sem voru
verkfalli hafa sennilega snúið
til vinnu að nýju í morgun, en
Alþingi setti í gærkvöldi lög
um að vinnustöðvun þeirra
skyldi Ijúka.
Veður og færð á Norðurlandi:
Slæmt útlit næstu daga
Ekki er útlitið gott með ferða-
veður næstu dagana á Norður-
landi, hvað sem verður þegar
líður nær páskahelginni.
í gær var reynt að moka til
Dalvíkur og austur frá Akureyri
en menn urðu frá að hverfa
vegna veðurs. Þá var ófært til
Siglufjarðar og Ólafsfjarðar, en
stórum bílum og jeppum fært um
Öxnadalsheiði vestur í Húna-
vatnssýslur.
Áformað er að reyna mokstur í
dag á öllum helstu leiðum á
Norðurlandi. Ef þarf, verður
einnig mokað á skírdag, síðan á
laugardag og einnig á 2. dag
páska. Það verður sem sagt allt
reynt til þess að halda helstu veg-
um opnum þannig að fólk komist
á milli um helgina.
Markús Einarsson veður-
fræðingur sagði í samtali við Dag
í gær að fram eftir degi í dag yrði
norðanátt á Norðurlandi en færi
minnkandi þegar líða tæki á
daginn. Á morgun er ný lægð
væntanleg upp að landinu og þá
verður austanátt á Norðurlandi
og lítil úrkoma. Lægðin fer síðan
framhjá fyrir sunnan land og þá
snýst vindur aftur til norðaust-
lægrar áttar og verður svo á
fimmtudag og föstudag. Það er
því ekki víst að veðurguðirnir
verði í því skapinu að snjó-
mokstursmenn eigi auðvelt með
að halda vegum opnum á
Norðurlandi þótt það sé áform-
að. gk-.
í gærdag var haldinn árangurs-
laus sáttarfundur með mjólkur-
fræðingum og viðsemjendum
þeirra hjá sáttarsemjara og þegar
ljóst var að samningar tækjust
ekki þar, tók Alþingi málið í sín-
ar hendur.
Víða á Norðurlandi var orðið
mjólkurlaust í gær og annars
staðar var mjólkurleysi fyrir-
sjáanlegt í dag. Mjólk var keyrð í
verslanir á Akureyri á sunnudag
sem hefði undir venjulegum
kringumstæðum átt að endast
fram á morgundaginn en þar sem
fólk var í „hamsturshugleiðing-
um" var mjólkin að klárast í gær.
Björg Þórsdóttir verslunarstjóri
KEA í Hrísalundi sagði t.d. í gær
að fólk keypti óeðlilega mikla
mjólk og verslunarstjóri í Hag-
kaupunr á Akureyri sagði að þar
gengi hratt á birgðirnar. gk-.