Dagur - 06.05.1986, Blaðsíða 3
6. maí 1986 - DAGUR - 3
Samvinnuskólanum
gerbreytt
„Á liðnu skólaári var að sjálf-
sögðu mikið unnið að undir-
búningi þeirrar breytingar sem
væntanleg er á skipulagi og
starfsháttum Samvinnuskól-
ans. Síðastliðið haust markaði
stjórn Sambands íslenskra
samvinnufélaga stefnuna og
snemmvetrar tók skólanefnd
ákvarðanir og kennarafundir
voru haldnir hér um málið.
Mikið hefur verið rætt við full-
trúa menntamálaráðuneytisins
eins og geta má nærri.
Umsóknarfrestur um skólavist
næsta vetur stendur til 10. júní að
vanda. Inntökuskilyrði Sam-
vinnuskólans breytast mjög á
þessu ári en hingað til hefur
grunnskólapróf nægt. Héðan í frá
verður umsækjandi áður að hafa
lokið a.m.k. tveggja vetra námi á
framhaldsskólastigi á viðskipta-
sviði, eða a.m.k. með viðskipta-
greinum eða með öðrum sam-
bærilegum undirbúningi, enda
munu nemendur útskrifast héðan
að loknu tveggja vetra samvinnu-
skólanámi með stúdentsprófi, en
samvinnuskólaprófið verður
stúdentspróf af sérstæðri náms-
braut skólans."
Nemendur Samvinnuskólans
voru alls 111 í vetur og luku 36
samvinnuskólaprófi. í hópi
nemendanna voru 33 í Fram-
haldsdeild sem starfar í Reykja-
vík, og af þeim hópi gangast 15
undir stúdentspróf nú í vor.
Bárðardalur:
Aukin feröaþjónusta
Mikil fjölgun hefur verið á
ferðamönnum í Bárðardal á
undanförnum árum, aðallega
vegna aukinnar umferðar yfir
Sprengisand, sú leið sem oftast
er farin til að komast á
Sprengisandsleið liggur um
Bárðardal. Vegna þess hafa
bændur í Bárðardal sett upp
ýmiss konar þjónustu til að
laða ferðamenn að.
í Barnaskóla Bárðdæla verður
opið sumarhótel í júlí og ágúst.
Þar verður svefnpoka- og gisti-
pláss, þar verður einnig hægt að
fá morgunmat og léttar máltíðir.
Norðar í dalnum er tjaldstæði við
bæinn Hlíðskóga, þar er snyrti-
aðstaða og mjög skjólgott.
Á Hlíðarenda er sveitagisting,
þar er íbúð sem fólk getur leigt
að vild. Á hótelinu og tjaldstæð-
inu eru seld veiðileyfi í Svartá.
Gerð var tilraun með þessa
starfsemi síðastliðið sumar en
gekk ekki vel vegna mikillar úr-
komu á Norðurlandi. Þrátt fyrir
það eru bændur bjartsýnir á að
þetta gangi vel, því sífellt fjölgar
ferðamönnum sem ferðast yfir
Sprengisand. MA..
H.M.S. Hecate.
H.M.S. Hecate í heim-
sókn til Akureyrar
Á fímmtudaginn kemur til
Akureyrar rannsóknarskip úr
breska flotanum. Er það HMS
Hecate, sem er 2800 tonn.
Skipið kemur um morguninn
og verður á Akureyri til 14.
maí. Eftir því sem komist er
næst er þetta fyrsta skip úr
breska flotanum sem kemur til
hafnar á Akureyri eftir að síð-
asta þorskastríði lauk.
Meðan á heimsókninni stendur
munu skipverjar keppa við
íþróttamenn frá Ákureyri,
fötluðum börnum verður boðið
um borð og ferðast verður um
nágrennið. Skipherra HMS Hec-
ate, P.D. Barton mun leggja
blónosveig á grafreit breskra
hermanna í Akureyrarkirkju-
garði. Hann mun einnig ganga á
fund Helga M. Bergs bæjarstjóra
og Elíasar I. Elíassonar sýslu-
manns.
Skipverjar á HMS Hecate eru
117. Þar af eru 12 yfirmenn.
Meðal verkefna skipsins er að
annast dýptarmælingar og kort-
lagningu hafdjúpanna. Tekin eru
sýni úr hafsbotninum þar sem
það er mögulegt. Straummæling-
ar og hitamælingar eru einnig
stór þáttur rannsóknanna. Skipið
hefur siglt um öll heimsins höf og
hefur að baki rúmlega 250 þús-
und sjómílna siglingu. HMS Hec-
ate er óvopnað. gej-
Nýtt merki
fyrir Mýyatns-
sveit
Á sumardaginn fyrsta s.l. sam-
þykkti hreppsnefnd Skútustaða-
hrepps nýtt merki fyrir sveitar-
télagið. Merkið er sporöskjulag-
að, með mynd af tveimur fuglum,
fiski og hraunmyndunum á tví-
skiptum deti. Þar er leitast við að
ná fram samspili milli vatnsins og
himinsins, þar sem dýralíf
Mývatnssvæðisins hefur fulltrúa
sína í forgrunni, tvær endur og
hinn fræga Mývatnssilung. í
bakgrunni speglast í vatninu hinir
sérkennilegu hraundrangar sem
eru eitt helsta einkenni svæðisins,
ógleymanlegir öllum þeim sem
þangað koma og þess vegna sjálf-
sagður þyngdarpunktur merkis
fyrir Mývatnssveit. Þær þjóna
einnig því hlutverki að mynda
sterkan sjóndeildarhring, þar
sem mætast himinn og vatnsflöt-
ur.
Auglýsingastofan Tímabær
hannaði merkið.
HAFNARSTRÆTI 96 SÍMI 96*24423 AKUREYRI
Við bjóðum
Glansgalla, allar stærðir.
Fis útifötin á börnin.
Barnabuxur, margar gerðir,
peysur og boli fyrir alla
aldurshópa.
Greiðslusloppar á karla
og konur,
Ungbarnaföt í úrvali.
Siguröar Gubmundssonarhf.
HAFNARSTRÆTI96 SÍMl 96*24423 AKUREYRI
Stóiglæsflegiir
herrafatnaður
Buxur, bolir,
peysur, skyrtur
og jakkar.
Okkar verð er þess
vert að líta á.
SÍMI
(96)21400