Dagur - 26.11.1986, Blaðsíða 1
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4 Akureyri • Sfmi 23599
V.
Hafralækjarskóla lokað?
- vegna vangoldinna reikninga fyrir skólaakstur
Bflstjórar sem sjá um skóla-
akstur í Hafralækjarskóla
munu leggja niður störf frá og
með næsta mánudegi ef þeir
verða ekki búnir að fá laun sín
greidd fyrir þann tíma. Þeir
„Við hreyfum
ekki bílana
- fyrr en við fáum greiðslurnar,“
segir Rúnar Óskarsson bílstjóri
„Ég hef stundað þennan
skólaakstur í 5 ár og það hef-
ur alltaf reynst erfiðara og
erfiðara að fá launin greidd á
réttum tíma. Fyrst hélt ég að
maður væri að gera sjálfum
sér og kannski sveitarfélaginu
greiða með því að sýna lang-
lundargeð en nú er ég kom-
inn á aðra skoðun. Hið opin-
bera gcngur bara á lagið.
Maður réttir litla fingurinn og
þar með er höndin farin upp
við öxl,“ sagði Rúnar Óskars-
son en hann er einn þeirra
bflstjóra sem annast hefur
aksturinn fyrir Hafralækjar-
skóla, en alls eru bflstjórarnir
5 talsins.
„Við keyrum út þessa viku en
síðan hreyi'um við ekki bílana
fyrr en við fáum það greitt sem
við eigum inni. Ég hef ekki trú á
að við látum okkur nægja að fá
yfirlýsingu um að þessu verði
kippt í liðinn. Við höfum sýnt
mikla þolinmæði en nú er
mælirinn fullur," sagði Rúnar
ennfremur.
Þess má geta að þungaskattur
á dieselbifreiðar gjaldfellur um
mánaðamótin og þá koma
tveggja mánaða dráttarvextir á
hann. Pann skatt verða bílstjór-
arnir að greiða, þó svo þeir eigi
stórfé inni hjá ríkinu. Auk þess
hafa þeir þurft að staðgreiða allt
eldsneyti, eða í besta falli feng-
ið það skrifað til mánaðamóta.
Þeir telja sig því knúna að grípa
til þess ráðs að hætta skölaakstri
þar til þeir fá launin sín greidd.
BB.
Hitaveita Akureyrar:
Mál veitunnar
rædd á Alþingi
- hver íbúi skuldar 164 þúsund
Málefni Hitaveitu Akureyrar
komu til umræðu á Alþingi í
fyrradag. Þar báru þingmenn
úr öllum flokkum fram tillögu
um aðstoð við hitavcitur sem
illa eru staddar fjárhagslega.
Af þeim þingmönnum sem
báru fram tillöguna eru tveir úr
Norðurlandi eystra, þeir Guð-
mundur Bjarnason Framsókn-
arflokki og Árni Gunnarsson
varaþingmaður Alþýðuflokks.
Magnús H. Magnússon er 1.
flutningsmaður tillögunnar.
í tillögu þingmannanna er
lagt til að ríkisstjórnin leiti leiða
til að bæta stöðu þeirra hitaveitna
sem verst eru staddar. Einnig
felst í tillögunni að ríkisstjórnin
leggi fram tillögur sínar fyrir
þinglok.
í greinargerð sem kemur fram
með tillögunni segir að upphitun-
arkostnaður meðalíbúðar á
Akureyri sé rúmlega 50 þúsund
krónur á móti tæplega 17 þúsund-
um í Reykjavík.
Einnig kemur fram að skuldir
Hitaveitu Akureyrar á nóvem-
berverðlagi séu rúmlega 2 millj-
arðar króna. Það þýðir að hver
íbúi á Akureyri skuldi 164 þús-
und krónur vegna hitaveitunnar.
Einnig kemur fram að skuldir
íbúa Akraness og Borgarfjarðar
vegna hitaveitunnar þar eru um
210 þúsund á hvern íbúa.
Þær breytingar sem flutnings-
menn vilja að verði gerðar á mál-
um hitaveitnanna er að skuld-
breyta lánum, lækka rafmagns-
verð til þeirra sem kostur er, fella
niður söluskatt af raforku til dæl-
ingar og endurgreiða söluskatt af
vörum sem notaðar hafa verið til
fjárfestingar. gej-
eiga nú um 470 þúsund krónur
inni hjá ríkinu og við þá upp-
hæð bætast um 415 þúsund
krónur um mánaðamótin. Ef
ekkert verður að gert verður
engin kennsla í Hafralækjar-
skóla á mánudaginn og skólinn
lokaður uns þessum málurn
hefur verið kippt í liðinn.
„í ströngustu merkingu má
segja að bílstjórarnir eigi nú inni
tveggja mánaða laun vegna
akstursins. Þeir hafa ekkert upp-
gjör fengið fyrir október og nú
fer senn að koma að uppgjöri fyr-
ir nóvember,“ sagði Sigmar
Ólafsson skólastjóri Hafralækjar-
skóla í samtali við Dag. Hann
sagði að ekki kæmi til greina að
fresta vandanum með því að slá
víxil, eins og gert hefði verið í
Þelamerkurskóla fyrir skömmu.
Greiðsluvandi vegna skóla-
aksturs hefur verið árvisst vanda-
mál í umdæminu undanfarin ár. í
apríl var það sama uppi á ten-
ingnum og nú og þá blasti við að
loka þyrfti Hafralækjarskóla.
Menntamálaráðherra kom þá í
veg fyrir lokun með því að taka
víxillán í nafni skólans til að
greiða bílstjórunum. Hafra-
lækjarskóli þurfti síðan að. bera
allan kostnað af þeirri lántöku.
Sigmar sagði að þessi leið yrði
ekki farin framar af skólans
hálfu.
Bílstjórarnir fengu september
greiddan af uppgjöri fyrra skóla-
árs en reyndar var einungis um
rúma viku að ræða, þar sem skóli
hófst seint í september. Sveitar-
félögin, sem standa að skólanum,
eiga að greiða 15% kostnaðar við
skólaaksturinn og hafa þau staðið
í skilum með sinn hluta, hafa
reyndar greitt 20% af kostnaðin-
um fyrir aksturinn í október.
Hins vegar hafa engar greiðslur
borist frá fjármálaráðuneytinu
fyrir aksturinn á þessu skólaári.
„Norðurlandsumdæmi eystra
er komið nokkrum milljónum
fram úr áætlun. Þegar svo er
komið eru allar greiðslur þangað
stöðvaðar, þ.e.a.s. aðrar en bein
laun,“ sagði Örlygur Geirsson
hjá fjármaáldeild menntamála-
sráðuneytisins í samtali við Dag
en útilokað reyndist að ná tali af
menntamálaráðherra. Örlygur
sagðist eiga von á því að losna
myndi um greiðslur vegna skóla-
akstursins um næstu mánaðamót
en sagðist þó ekki vilja fullyrða
það.
í vetur eru 109 nemendur í
Hafralækjarskóla og þar af þurfa
84 á akstri að halda. Það er því
ljóst að ekki verður unnt að
halda uppi kennslu ef skólaakstri
verður hætt. BB.
Veður og færð á Norðurlandi:
Ótryggt ástand á næstunni
„Það má segja að ástandið sé
svona upp og niður, það er
víða erfitt,“ sagði starfsmaður
Vegagerðarinnar á Akureyri
er Dagur ræddi við hann í gær.
Rutt var £ Ólafsfjarðarmúla á
mánudag. Múlinn tepptist hins
vegar strax í fyrrinótt og var ekki
reynt að opna hann í gær. Leiðin
frá Akureyri til Reykjavíkur var
hins vegar fær, en Öxnadalsheiði
var mokuð á mánudag og lokið
við það verk í gær.
Þá var Víkurskarðsvegur rudd-
ur á mánudag en strax í gærmorg-
un var orðið mjög þungfært þar
og ekki fært nenja jeppum og
stórum bílum. Ekki var mokað
þar í gær en verður hugsanlega
gert seinni part dags í dag. Þá féll
snjóflóð í Ljósavatnsskarði í
fyrrinótt og lokaðist vegurinn
fram eftir degi í gær af þeim
sökum.
Víða var unnið við mokstur í
gær s.s. í Dalsmynni og í framan-
verðum Eyjafirði. Einnig þurfti
mikið að ryðja í Mývatnssveit en
leiðin austan við Húsavík um
Tjörnes var fær stórum bílum og
jeppum.
Ekki þarf mikið að hreyfa vind
til þess að allir vegir verði meira
og minna ófærir. Veðurútlit á
Norðurlandi næstu daga er
ótryggt, norðan og norðaustanátt
nær óslitið fram að helgi og
strekkingsvindi er spáð en ekki
hvassviðri.
Vetur konungur hefur nú tekið völdin á Norðurlandi, og víða eru erfiðleikar vegna ófærðar. Myndin er tekin í
Ljósavatnsskarði í gær eftir að hreinsað hafði verið til eftir snjóflóð þar og rútan frá Húsavík til Akureyrar var að
brjótast í gegn. Mynd: rpb