Dagur - 22.03.1988, Blaðsíða 1
71. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 22. mars 1988
57. tölublað
Full búð
af nýjum
vörum
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599
Múlagöngin komin í tímahrak?
- útboðsgögn ekki enn komin í hendur verktaka
Beðið eftir grænu
Ijósi stjórnvalda
Um miðjan síðasta mánuð var
ákveðið hvaða verktakar skuii
fá útboðsj»ögn vegna jarð-
ganga í Olafsfjarðarmúla en
hins vegar hafa gögnin ekki
enn verið send út. Ástæða þess
er sú að ekki er komið grænt
Ijós frá stjórnvöldum en vega-
málastjóri mun ganga á fund
fjárveitinganefndar Alþingis í
dag þar sem lagðar verða fram
tillögur um fjármögnun þessa
verks. Fyrirhugað var að verk-
taki gæti hafið vinnu við göng-
in í sumar en frekari seinkun á
afgreiðslu þessa máls gæti
valdið því að ekki tækist að
hefja sprengingar í göngunum
fyrir fyrstu snjóa.
„Jú, það er rétt að við höfum
af því áhyggjur ef frekari dráttur
verður á að gögn verði send út,“
sagði Snæbjörn Jónasson vega-
málastjóri og bætti við að ætlunin
hafi verið að gögn yrðu send fyrr
út til verktaka en raun verður á.
Fólksfjöldi
fjalli um
í Hlíðar-
helgina
Fjöldi fólks lagði leið sína á
skíðasvæði Akureyringa í
Hlíðarfjalli, á sunnudaginn
enda veður eins og best verður
á kosið. Skíðafæri var og er
með besta móti núna eftir
snjókomu rétt fyrir helgina.
„Helgin var mjög góð, sérstak-
lega sunnudagurinn. f’etta er
einn af þessum toppdögum sem
koma, því miður, allt of fáir,“
sagði ívar Sigmundsson forstöðu-
maður Skíðastaða.
ívar sagði að sennilega hafi
verið um 1500 manns á skíðum á
sunnudaginn í prýðisveðri og
fínu færi. Ekki nægði það þó til
að slá aðsóknarmet sem sett var
um páskana í fyrra en þá voru
yfir 2000 manns á skíðum á ein-
um degi. Á laugardaginn voru hins
„Akureyrar-
samningar" í
uppsiglingu?
í gær hófst fundur samninga-
nefndar Alþýðusambands Norð-
urlands og fulltrúa vinnuveit-
enda með ríkissáttasemjara á
Akureyri. í gærdag var fund-
armönnum skipt í vinnuhópa
en í gærkvöld hófst sameigin-
legur fundur deiluaðila.
Landssamband íslenskra versl-
unarmanna og Landssamband
iðnaðarmanna gengu frá kjara-
samningum í gær og jafnvel er
búist við að það geti haft áhrif á
gang mála á Akureyri.
Guðlaugur Þorvaldsson ríkis-
sáttasemjari hefur boðað til alls-
herjar samningafundar á Akur-
eyri kl. 14 í dag og þangað munu
koma fulltrúar allra verkalýðsfé-
laga á landinu sem ekki hafa þeg-
ar gengið frá samningum.
Kannski eru „Akureyrarsamn-
ingar“ í uppsiglingu? VG/SS
vegar innan við 1000 manns á
skíðasvæðinu enda hríðarveður.
Þessa dagana eru skólahópar á
skíðum í Hlíðarfjalli og einnig er
landsliðsfólk okkar í alpagrein-
um við æfingar. Undirbúningur
fyrir páskana er kominn í gang en
næsta mót verður haldið á
páskadag en það er „Flugleiða-
tnmm“
JÓH
í Hlíðarfjalli.
Mynd: TLV
Snæbjörn sagði að reiknað hafi
verið með að verktakar fengju
um 2 mánuði til að skila inn til-
boði en sagði ekki ljóst hvort sá
tími yrði hugsanlega styttur.
Eftir að búið verður að skila
inn tilboðum í verkið þarf að fara
yfir þau og velja úr og reikna má
með að það verk taki um einn
mánuð, samkvæmt heimildum
blaðsins. Þegar síðan að fram-
kvæmdunum sjálfum kemur þarf
fyrst að byrja á vegalögn, steypa
plan við væntanlegt op og vinna
slík verk áður en til sprenging-
anna sjálfra kemur. Til þess að
hægt verði að vinna í göngunum í
vetur þurfa sprengingar að vera
byrjaðar í síðasta lagi í október
eða nóvember.
„Ég mun kynna tillögur fyrir
fjárveitinganefnd og við leggjum
á það áherslu að nefndin hraði
afgreiðslu sinni. Svo vonum við
bara það besta,“ sagði Snæbjörn
Jónasson. JÓH
Sigfús Jónsson bæjarstjóri afhendir Jóhanni Hjartarsyni verðlaunin.
Mynd: TLV
Sögulegu skákmóti lokið
- Jóhann Hjartarson sigraði á 1. alþjóðlega skákmótinu á Akureyri
Það fór eins og marga grunaði,
Jóhann Hjartarson varð sigur-
vegari fyrsta alþjóðlega skák-
mótsins á Akureyri í gær. Jó-
hann fékk átta vinninga á mót-
inu, og innsiglaði sigur sinn
með jafntefli við Dolmatov,
þar sem Jóhann var með hvítt.
Það óvænta gerðist hins vegar í
gærkvöld að skák Karls Þor-
steins og Gurevich dróst á
langinn, en stefnt hafði verið
að mótslokum kl. 20.00. Karl
fór með sigur af hólmi eftir
meira en 9 tíma viðureign við
Gurevich.
Önnur úrslit í gær urðu sem
hér segir: Jón Garðar Viðarsson
og Ólafur gerðu jafntefli, einnig
Helgi og Adorjan. Jón L. Árna-
son vann Margeir Pétursson með
hvítu mönnunum eftir skemmti-
lega skák. Polugaevsky sigraði
J. Tisdall eftir dramatískt tafl, og
var það mál manna að þetta hefði
verið yfirburðasigur hjá Poluga-
evsky, sem hafði svart.
Skák þeirra Karls Porsteins og
Gurevich vakti þó einna mesta
eftirtekt, a.m.k. síðari hluta
dagsins, því fyrirfram áttu menn
ekki von á að úrslit úr þeirri skák
drægjust svo mjög sem raun varð
á. Þegar líða tók á skákina varð
greinilegt að Karl ætlaði að tefla
hana áfram til vinnings, en hann
hafði tveimur peðum yfir, og var
mál manna að hann hefði hvenær
sem var getað fengið jafntefli, en
það sætti hann sig ekki við þrátt
fyrir jafnteflislega stöðu framan
af. Endataflið var mjög spenn-
andi en þó ekki verulega tilþrifa-
mikið.
Staðan að afloknu fyrsta al-
þjóðlega Akureyrarskákmótinu
er því þessi: Jóhann Hjartarson
varð efstur með 8 vinninga, Polu-
gaesky varð í öðru sæti með 7Vi
vinning, Margeir varð þriðji með
7, Jón L. Árnason og Gurevich
urðu jafnir í 4. sæti með 6!h vinn-
ing hvor, Tisdal og Adorjan lentu
í 5. sæti með 6 vinninga, Dolma-
tov og Helgi Ólafsson lentu í 6.
sæti með 5vinning, Jón Garðar
Viðarsson fékk Wi vinning og
Ólafur Kristjánsson rak lestina
með 1 vinning. EHB
Söfnunin á Uppanum:
„Gekk allt annað en vel“
Frá hádegi á laugardaginn og
fram til kl. 01 aðfaranótt
mánudags stóðu yfir maraþon-
blústónleikar á veitingastaðn-
um Uppanum á Akureyri.
Samhliða tónleikunum stóð
yfir fjársöfnun til styrktar
Skáksambandi íslands en þrátt
fyrir uppsveiflu í skákinni hér á
landi söfnuðust ekki nema um
40-50 þúsund krónur.
„Spilamennskan gekk frábær-
lega vel en söfnunin gekk allt
annað en vel,“ sagði Þráinn Lár-
usson, eigandi Uppans.
Samtals var spilað á Uppanum
í 37 klukkustundir og komu þar
fram 50-60 tónlistarmenn. Staðn-
um var lokað frá kl. 03 til kl. 06
aðfaranótt sunnudags og átti
starfsfólk fullt í fangi með að
halda fólki frá staðnum en um 90
manns voru fyrir utan staðinn á
þessurn tíma. En þessir tónleikar
hafa orðið til þess að ákveðið er
að á næsta ári verði aftur haldin
blúsvaka í líkingu við þessa.
„Núna er komin fram áskorun
um að þetta verði árviss viðburð-
ur hér eftir og ég er ákveðinn í að
halda aftur tónleika að ári,“ sagði
Þráinn Lárusson.
JÓH
Leikhússtjóri hjá LA:
Amór Benónýs-
son
í gær var gengið frá ráðningu
í stöðu leikhússtjóra hjá
Leikfélagi Akureyrar. Arnór
Bcnónýsson, formaður
Félags íslenskra leikara, var
ráðinn lcikluisstjóri frá 1. maí
næstkomandi.
Arnór mun taka við af Pétri
Einarssyni scm verið hefur
leikhússtjóri á Akureyri um
tveggja ára skeið, en mun nú
hverfa aftur til Reykjavíkur.
Arnór, sem er frá Hömrum í
Reykjadal, er góðkunnur leik-
ari bæði á Norður- og Suður-
landi og hefur m.a. leikið hjá
Leikfélagi Akureyrar. Þess má
geta að bróðir hans, Jón
Benónýsson, leikur nú í „Horft
af brúnni“ sem LA sýnir um
þessar mundir. SS