Dagur - 14.04.1988, Qupperneq 4
4 - DAGUR - 14. apríl 1988
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 660 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 60 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 465 KR.
RITSTJÓRAR:
ÁSKELL ÞÓRISSON (ÁBM.)
BRAGI V. BERGMANN
BLAÐAMENN:
ANDRÉSPÉTURSSON
(Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík),
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERT TRYGGVASON, EGILL BRAGASON,
FRfMANN HILMARSSON (Blönduósi vs. 95-4070),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓ'TIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, KRISTJÁN JÓSTEINSSON,
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON (íþróttir), STEFÁN SÆMUNDSSON,
VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960),
LJÓSMYNDARAR: GUÐMUNDUR HRAFN BRYNJARSSON,
TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON,
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Einvígi á Akureyri
Svo sem fram hefur komið í fréttum hefur
Akureyrarbær gert tilboð í skákeinvígi
þeirra Jóhanns Hjartarsonar og Anatolys
Karpov. Ef af verður mun einvígið hefjast
í lok ágúst og standa fram í september-
mánuð.
Fyrst eftir að tilboðið kom fram þótti
ekki líklegt að Karpov myndi fallast á að
einvígið færi fram á íslandi, þ.e. á „heima-
velli“ Jóhanns Hjartarsonar. Nú eru hins
vegar vaxandi líkur fyrir því að Akureyri
verði fyrir valinu sem keppnisstaður.
Kemur þar margt til. í fyrsta lagi hefur
Jóhann Hjartarson samþykkt að tefla
þar, enda hefur honum ávallt gengið vel
á skákmótum norðan heiða. í öðru lagi er
tilboð Akureyrarbæjar mjög frambæri-
legt út af fyrir sig. í því er gert ráð fyrir að
verðlaunaféð verði um 80 þúsund dollar-
ar, eða rúmar þrjár milljónir íslenskra
króna, og þykir það mjög frambærileg
upphæð í einvígi sem þessu. í þriðja lagi
er talið víst að Karpov hafi ekkert á móti
því að tefla hér á þeim tíma sem nefndur
er í tilboðinu, en hann mun hins vegar
ekki áfjáður í að kynnast íslenskri veðr-
áttu að vetri til, en af henni virðist hann
hafa einhverjar spurnir. Síðast en ekki
síst er tilboð Akureyrarbæjar eina tilboð-
ið sem Alþjóða skásambandinu hefur
borist í einvígið enn sem komið er og af
þeirri ástæðu einni gæti orðið erfitt að
hafna því.
Það yrði tvímælalaust mikil lyftistöng
fyrir Akureyrarbæ ef svo færi að Jóhann
Hjartarson og Karpov háðu einvígi sitt
þar. í því er fólgin mikil og góð landkynn-
ing, því kastljós erlendra fjölmiðla mun
beinast að landi og þjóð meðan á einvíg-
inu stendur. Slík kynning er mjög mikil-
væg með tilliti til þeirrar viðleitni
íslenskra ferðamálayfirvalda að fá
erlenda ferðamenn til að venja komur
sínar hingað til lands í auknum mæli.
Ljóst er að mikið undirbúningsstarf
bíður Akureyringa, verði tilboði þeirra
tekið. Væntanlega munu allir leggjast á
eitt um að inna það starf sem best af
hendi, enda er mikið í húfi að vel takist
til. En hvort sem tilboðinu verður tekið
eða ekki, er framtak bæjaryfirvalda á
Akureyri góðra gjalda vert og ber vott
um stórhug og framsýni. BB.
f/ viðtol dagsins J
'£MfeáisU.
,í ÓlafsHrði er ekki svo mikið fyrir uppgjafa vélstjóra nema almenn fískvinna.
„Finnst númer eitt
að ræða hlutina
- segir Sveinn Magnússon,
húsvörður í Hjallaiundi 18 í viðtali dagsins
Það hefur tæplega farið fram
hjá mörgum Akureyringum að
við Hjallalund hefur nú risið 5
hæða fjölbýlishús. Á næstunni
munu fyrstu íbúar þess flytja
inn í íbúðir sínar, en í viðtali
dagsins í dag er það Sveinn
Magnússon sem hóf á dögun-
um störf sem húsvörður í nýja
húsinu. Hann hefur nú komið
sér vel fyrir í sérstakri hús-
varðaríbúð á fyrstu hæð sem
fylgir stariinu. Það er nýlunda
á Akureyri að húsverðir starfi í
fjölbýlishúsum en Sveinn kem-
ur beint í þetta starf frá Ólafs-
firði þar sem haún hefur búið
undanfarin 28 ár.
Hann er fæddur og uppalinn
Akureyringur, en eiginkona hans
Kolbrún Jóhannsdóttir er Ólafs-
firðingur. Þau eiga þrjú uppkom-
in börn sem búa hvert á sínum
stað, í Ólafsfirði, Dalvík og
Akureyri. En hvernig skyldi það
hafa viljað til að þau fluttu til
Akureyrar til að taka við þessu
starfi? Við heimsóttum Svein í
nýju glæsilegu húsvarðaríbúðina
við Hjallalund.
„Ég hef lengstum verið á sjó
sem vélstjóri og var kominn að
því að hætta til sjós og koma mér
í land. Ég vildi fá mér góða og
trygga vinnu en í Ólafsfirði er
ekki svo mikið fyrir uppgjafa vél-
stjóra að gera nema almenn fisk-
vinna, sem ég hef ekki áhuga á.
Við hjónin vorum stödd hér á
Akureyri í fyrrahaust í heimsókn
hjá mági mínum sem er annar af
eigendum SS Byggis sem byggja
þessa blokk. Fór hann þá að
segja mér frá henni og jafnframt,
að þeir ætluðu að ráða húsvörð
við hana. Þegar við hjónin kom-
um heim fórum við að velta þessu
fyrir okkur, ákvað ég að sækja
um þetta starf og hér er ég
kominn!
Við hjónin höfðum áður tekið
að okkur heimavist Gagnfræða-
skólans í Ólafsfirði í 3 vetur þeg-
ar Kristinn G. Jóhannsson list-
málari var þar skólastjóri.
Sumariði 1971 rákum við Sumar-
hótelið í Ólafsfirði, en það var
fyrsta sumarið sem það var rekið.
Það bar þannig að, að við hjónin
vorum í fyrstu beðin um að búa
út húsið, sem var áður prestssetr-
ið í Ólafsfirði. Við sáum um að
kaupa það sem vantaði og skila
því tilbúnu til hótelreksturs. Þeg-
ar að því kom, þrýsti bæjar-
stjórnin á að við tækjum það
fyrsta sumarið svo ég hef líka
verið hótelstjóri.
Þetta gekk hvort tveggja mjög
vel svo við ættum að hafa
ákveðna reynslu í þetta starf, þá
á ég við að geta starfað einn, en
vera ábyrgur gagnvart einhverj-
um aðila í því starfi. Eftir
umhugsun ákváðum við að taka
starfinu og finnst mér spennandi
að glíma við þetta.“
- í hverju felst þitt starf?
„Það felst í eftirliti með hús-
inu, lóðinni og öllu sem því til-
heyrir. í þessum fyrsta áfanga
verða 22 íbúðir, en þegar öllum
áföngum er lokið, verða alls 54
íbúðir í húsinu. Við ætlum því að
sjá til hvernig mér tekst að kom-
ast yfir að þrífa jafnóðum og bæt-
ist við bygginuna. Nú undir öllu
húsinu verða bílageymslur og
reikna ég með að þar verði helst
þörf á eftirliti og þrifum.
Allar almennar umgengnis-
reglur verða að sjálfsögðu í gildi
hér auk einhverra sérreglna t.d.
vegna bílageymslunnar.
Eg verð alltaf til taks fyrir
íbúðaeigendur ef þarf að gera
eitthvað fyrir húsið. Sennilega
verð ég með ákveðinn símatíma
á daginn þar sem ég get ákveðið
nánar hvenær ég get sinnt hverj-
um og einum ef eitthvað er að hjá
íbúum.
Forstofan í húsvarðaríbúðinni
er þannig útbúin að þar er hægt
að taka á móti fólki. Ég á von á
að upp komi ýmis mál sem þarf
að ræða í rólegheitum, mér finnst
númer eitt að ræða hlutina og
svoleiðis hefur maður leyst öll sín
mál.“
- Leggst starfið vel í ykkur?
„Já, ég held að við séum bara
ánægð með þetta. Að vísu hefur
enginn flutt inn ennþá, en fyrstu
íbúarnir flytja inn um miðjan
apríl.
Þetta starf tel ég nú að verði
töluvert bindandi því ég verð á
hálfgerðri bakvakt. Ég ræddi t.d.
við húsvörð i Reykjavík og hann
hefur það þannig að hann fer
ekkert frá nema að láta vita af
sér. Þetta þekki ég að vísu bæði
frá hótel- og heimavistarrekstri.
Á heimvistinni mátti ég t.d.
aldrei fara út eftir klukkan tíu á
kvöldin nema að fá einhvern fyrir
mig. Sama gilti á hótelinu því þar
þurfti að vera næturvakt.
íbúðirnar hérna verða mjög
skemmtilegar og af mörgum
stærðum. Mér finnst það mjög
gott fyrirkomulag að þegar fólk
er komið í sína íbúð, þá hefur
það allt þar, t.d. þvottahús og
geymslu. Nú ef konurnar vilja fá
útiloft í þvottinn sinn, þá eru sér-
stakar þurrksvalir svo að það þarf
ekki að hafa þvottinn hangandi
fyrir utan stofugluggann. Mér
finnst það mikill munaður fyrir
hvern íbúðareiganda að hafa
fjarstýringu í sínum bíl, geta ekið
inn á sitt bílastæði í kjallara og
taka síðan lyftuna upp á sína
hæð. Með þessu fyrirkomulagi
ætti þar af leiðandi að verða
minni umgangur um gangana. Þá
er hugsað fyrir því að fá góða
suður- og vestursól í garðinn sem
verður milli húsanna. Ég hef
fram að þessu ekki verið hrifinn
af því að búa í fjölbýli, en þetta
hús hreif mig svo, að ég hef þegar
keypt íbúð í næsta áfanga.“
Við látum þessi orð Sveins
verða hans síðustu og óskum
honum og Kolbrúnu eiginkonu
hans til hamingju með nýja starf-
ið og óskum þeim velfarnaðar.
VG