Dagur - 14.04.1988, Side 7

Dagur - 14.04.1988, Side 7
14. apríl 1988 - DAGUR - 7 BOSTON 2 x í viku FLUGLEIÐIR -fyrír þig- Sigurvegarar í töltkeppni: Frá vinstri: Ólafur á Neistu, Kggert á Stjörnufák, Jón Kristófer á Smára, Guðmundur Sveinsson á Otri og við hlið hans stendur Sveinn Guðmundsson, eigandi Oturs. Hestamannafélagið Neisti: Kappreiðar og firmakeppni - keppt á ís á Réttarvatni Á laugardaginn fyrir páska gekkst hestamannafélagið Neisti og íþróttadeild Neista, fyrir firmakeppni og kappreið- um á ís, á Réttarvatni við Vatnahverfi. Þann dag var mjög hagstætt veður og var margt af fólki og hestum við vatnið til að taka þátt í keppni og fylgjast með því sem þar var að sjá. Stóðhesturinn Otur frá Sauðárkróki var sýndur á mót- inu Keppt var í tölti, skeiði og brokki og í lok mótsins fór fram firmakeppni. Hestar sem ekki voru vanir því að þeim væri riðið á ís voru í fyrstu hræddir á ísnum en vöndust honum furðufljótt og sýndu margir mjög góð tilþrif. Greinilegt er að áhugi á hesta- mennsku er vaxandi á Blönduósi og þar eru margir hestar mjög góðir. Góð þátttaka var í keppninni og í tölti var keppt á 18 hestum. Sigurvegari í þeirri grein varð Neista, knapi Ólafur Kristjáns- son. Annar varð Stjörnufákur, knapi Eggert Helgason og í þriðja sæti Jón Kristófer Sigmars- son, á Smára. í skeiðið voru 5 hestar skráðir en aðeins 2 þeirra lágu allan sprettinn. I fyrsta sæti varð Neró, Otur fer vel á töltinu hjá Guömundi Sveinssyni. Sigfús Jónsson bæjarstjóri: Athugasemd vegna Leikklúbbsins Sögu Degi 13. apríl kemur fram ósanngjörn gagnrýni á bæjar- stjórn Akureyrar frá Leikklúbbn- um Sögu þar sem gefið er í skyn að fjárframlög frá Akureyrarbæ séu miklu lægri en lög og reglu- gerðir mæla fyrir og hamli þar með starfsemi klúbbsins. Því er til að svara að í reglu- gerð við leiklistarlög nr. 786/1982 kemur fram að fjárstuðningur sveitarfélaga við starfsemi áhuga- leikfélaga skuli eigi nema lægri fjárhæð til hvers leikfélags en ríkissjóður greiðir. í bréfi frá Þóru Jósefsdóttur ritara Leik- klúbbsins Sögu til Akureyrarbæj- ar dags. 17. nóvember sl. kemur fram að klúbburinn hafi fengið ríkisstyrk að upphæð 252 þús. kr. vegna verka sem klúbburinn færði upp á síðasta leikári. Taldi hún að klúbburinn ætti sam- kvæmt reglugerðinni rétt á sömu upphæð frá Akureyrarbæ. Bæjarstjórn Akureyrar veitti Leikklúbbnum Sögu fjárstyrk að upphæð 105 þús. kr. á fjárhags- áætlun 1988 og þar til viðbötar fær klúbburinn ókeypis aðstöðu til æfinga og sýninga í Dynheim- um. Það er mat undirritaðs að slík aðstaða sé klúbbnum meira virði en nemur mismuninum á fjárstyrk ríkisins og bæjarins. Það að auki greiddi Akureyrar- bær Leikklúbbnum Sögu 300 þús. kr. vegna uppfærslu á leikverkum á afmælisdegi bæjarins á sl. ári. Það er því ljóst að stuðningur Akureyrarbæjar við starfsemi klúbbsins er ef eitthvað er meiri en stuðningur ríkisins. Þó að það snerti þetta mál ekki með beinum hætti er rétt að geta þess að Akureyrarbær styrkir Leikfélag Akureyrar um 10 millj- ónir kr. á þessu ári. Framlag bæjarins til leiklistarstarfsemi í bænum á árinu 1988 er því hvorki meira né minna en tæplega 3 þús- und kr. á hverja 4ra manna fjöl- skyldu í bænum. Virðingarfyllst, Sigfús Jónsson bæjarstjóri. knapi Einar Helgason og í öðru sæti varð Völsungur, knapi Einar Svavarsson, Sex hestar kepptu í brokki og í fyrsta sæti varð Ragnheiður, knapi Hiynur Tryggvason, í öðru sæti varð Logi, knapi Steinunn Snorradóttir og í þriðja sæti urðu Leistur og Jón Gíslason. Fjöldi hesta tóku þátt í firma- keppninni, sem var mjög skemmti- leg sýning þar sem fram kom fríður hópur góðhesta og góðra knapa. í fyrsta sæti urðu Stjörnu- fákur og Magnús Lárusson, sem kepptu fyrir Sveinsstaðahrepp, í öðru sæti uröu Glæðir og Guð- mundur Sigfússon, sem kepptu fyrir Vélsmiðju Húnvetninga og í þriðja sæti Snarfari og Hjörtur Einarsson, sem kepptu fyrir sýsluskrifstofuna á Blönduósi. fh Vantar nú þegar 34ra herb. íbúð fyrir staHsmann Helst á Syðri-Brekkunni. Góðri umgengni og skilvísum greiðslum heitið. Upplýsingar í síma 27901 og 27902 á skrifstofu- tíma. fluqfélaq noróurlands hf. Torgsala á skóm! Lionsklúbbarnir á Akureyri verða með sölu á skófatnaði í göngugötunni frá kl. 13 til 18 á morgun, föstudag. Mjög lágt verð. ALMENNA TOLLVÖRUGEYMSLAN HF. AKUREYRI - M 15. *P0ríl pö^rd.16, P \3S&* _ Söngvarar: Erna Gunnarsdóttir, Ingvar Grétarsson, Júlíus Guömundsson, Karl Örvarsson, Ólöf Sigríður Valsdóttir, Ragnar Gunnarsson, Sólveig Birgisdóttir, Þorsteinn Eggertsson ásamt 15 manna flokki dansara og hljóðfæraleikara í einni safaríkustu rokk- og poppsýningu sem sett hefur verið upp hér á landi til þessa. Handrit, leikstjórn og kynningar: Þorsteinn Eggertsson. Dansahönnuður: Sigvaldi Þorgilsson. Ljós: Ingólfur Magnússon. Hljóð: Atli Örvarsson. Miða- og borðapantanir daglega í símum 22770 og 22970. Verð aðgöngumiða, með glæsilegum þriggja rétta kvöldverði, kr. 3.200.-

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.