Dagur


Dagur - 05.05.1988, Qupperneq 6

Dagur - 05.05.1988, Qupperneq 6
6-DAGUR-5. maí 1988 Ungtemplarar álykta um Alþingi og bjór I tilefni samþykktar Neðri deildar Alþingis á bjórfum- varpi 18. apríl sl. gerði stjórn Islenskra ungtemplara eftirfar- andi samþykkt á fundi sínum 26. apríl sl.: Undanfarið hefur ítrekað komið fram í máli ýmissa alþing- ismanna að afgreiða verði frum- varpið frá Alþingi til að það flæk- ist ekki lengur fyrir öðrum störf- um þar. í þessu kemur fram undarleg skammsýni. Nær er að líta svo á að með því að samþykkja lög sem leyfa sölu bjórs í landinu hefjist bjórmálið fyrst. Framkvæmd þessa máls er ennþá óráðin en hún kemur til kasta alþingismanna og ráðherra. Ákveða þarf vínandastyrkleika bjórsins sem Ieyfður yrði, verð, sölustaði og dreifingu. Líklegt er að handhöfum vínveitingaleyfa fjölgi um allt land þar sem aðdráttarafl bjórsins yrði virkjað á veitingahúsum sem fyrst og fremst byggðu afkomu síns á sölu bjórs og ekki er ólíklegt að fljót- lega komi sú „sanngirniskrafa“ frá íbúum á þeim stöðum á land- inu þar sem veitingahúsarekstur svarar ekki kostnaði að þeir hefðu sama aðgang að bjórnum og aðrir. Hvernig yrði tekið á hugmynd- um um að leyfa bjórsölu í versl- unum? Er það ekki svipað sann- girnismál fyrir þá sem þyrftu að ferðast langan veg eftir bjór að fá hann nær eins og þá sem ekki ferðast til útlanda að fá hann inn í landið? Hversu mikið tillit verð- ur tekið til jafnréttiskröfunnar. Með samþykkt bjórfumvarps- ins á Alþingi verður það fyrst pólitískt, flokks- og byggðapólit- ískt. Keppinautar um bjórgróða myndu setjast að þingmönnum og reyna að beita þeim fyrir sig. „Réttiætismálin" munu að líkind- um verða mörg. Alþingismönn- um verður væntanlega treyst til að kippa þeim í liðinn. Það er mikill misskilningur að með því að samþykkja bjórfrum- varpið sé afskiptum stjórnmála- manna og alþingismanna af bjórnum lokiö. Pvert á móti; þá fyrst byrjar ballið. Hjálpar- kort á hvert heimili Landssamband hjálparsveita skáta er að senda inn á nánast hvert heimili landsins svokallað Hjálparkort. Kortið sem er plast- húðað og á stærð við greiðslu- kort, er ætlað til að geyma í veski. Öðrum megin á því eru grundvallarreglur skyndihjálpar á slysstað, en hinum megin fjöl- mörg neyðarsímanúmer, sem nauðsynlegt kann að reynast að hafa við hendina, ef slys eða óhapp verður. Þar að auki eru á spjaldinu ýmis önnur símanúmer sem viðkoma ferðalögum. Öll númerin eru miðuð við breyting- ar sem verða á símanúmerum við útkomu nýrrar símaskrár sem tekur gildi á næstunni. Það er von landssambandsins, að fólk geymi spjaldið í veski sínu. Kortið er sent út í tengslum við árlegt stórhappdrætti hjálpar- sveitanna, en mikill hluti af tekj- um sveitanna kemur frá þessu happdrætti. Að þessu sinni eru vinningar óvenju glæsilegir. í boði eru fjórir Pajero Super Wagon glæsijeppar og tólf Volks- wagen Golf fólksbílar. NORÐURLAND. I sumar verður lagt slitlag á eftirtalda vegakafla á Norðurlandi. I Skagafirði 3 km, Við Siglufjörð 1,1 km, 4 km i Hjaltadal, 12 km á Öxnadalsheiði, 11,3 innst í Eyjafirði, 12,6 km á leiðinni frá Akureyri til Húsavíkur, 6 km í Aðald- al, 4,6 km í Kelduhverfi, 2,5 km við Kópasker, 4,8 við Raufarhöfn og 8 km við Þórshöfn. Alls eru þetta 69,9 km af bundnu slitlagi sem lagðir verða í sumar og munar um minna. A kortinu má sjá með rauðum strikum hvar þeg- ar hefur verið lagt slitlag og með bláum strikum hvað lagt verður í sumar. Haukur Jónsson hjá Vegagerð ríkisins á Akureyri hannaði kortið fyrir Dag. REYKJAVIK - AKUREYRI. í sumar áætlar Vegagerð ríkisins að leggja 23,3 km af bundnu slitlagi á leið- inni Reykjavík-Akureyri. Hér er um að ræða rúmlega 8 km kafla í Hvalfirði, 3 lun í Skagafirði og 12 km á Öxnadalsheiði. Að þessu loknu verður Öxna- dalur lengsti kaflinn á þessari leið, sem eftir verður. Á kortinu má sjá með rauðum strikum hvar þegar hefur verið lagt slitlag og með bláum strikum hvað lagt verður í sumar. Haukur Jónsson hjá Vegagerð ríkisins á Akureyri hannaði kortið fyrir Dag.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.