Dagur - 27.07.1988, Side 1

Dagur - 27.07.1988, Side 1
Ólafsfjarðarmúli: Lokaður vegna grjóthruns Búið er að loka fyrir alla umferð um Olafsfjarðarmúla vegna grjóthruns. Ekki er vit- að hvenær unnt verður að opna hann aftur en það mun reynt um leið og veður skánar að sögn Péturs Valdimarsson- ar eftirlitsmanns í Múlanum. Hann sagði mjög mikið hafa hrunið í gær og ástandið hrika- legt. Fjallið væri hreinlega á iði enda rigning það versta fyrir Múlann á sumrin. „Við reynum að opna um leið og hrunið minnkar og rigning- unni slotar,“ sagði hann að lokum. KR KEA, KÞ og KNÞ: íhuga samstarf ,ir$~ Viðræður vegna samstarfs- möguleika þriggja kaupfélaga á Norðurlandi eystra hafa stað- ið yfir um nokkurt skeið. Eins og áður hefur komið fram hef- ur þeirri hugmynd verið hreyft að Kaupfélag Eyfirðinga, Kaupfélag Þingeyinga á Húsa- vík og Kaupfélag Norður- Þingeyinga á Kópaskeri hafi nánara samstarf. Þeir Valur Arnþórsson, kaup- félagsstjóri KEA, og Hreiðar Karlsson, kaupfélagsstjóri Kaup- félags Þingeyinga, sögðu að meðal þeirra hugmynda sem komið hefðu fram væri nánara samstarf um vöruinnkaup, tölvu- vinnslu bókhalds og skrifstofu- halds. Þó væri ekkert ákveðið ennþá um hvernig framkvæma ætti þetta samstarf eða útfæra það í einstökum tilvikum. Hreiðar Karlsson sagði að menn hefðu einbeitt sér að því að skoða samstarf á ýmsum sviðum. Verslunarsvið hefði verið skoðað með tilliti til vöruinnkaupa og bókhald og tölvuvinnsla hefði einnig komið til athugunar. „Þetta er það sem menn eru að skoða núna, miklu fremur en það sem kalla mætti samruna eða sameiningu,“ sagði Hreiðar Karlsson. EHB Nýi Björgvin er hið glæsilegasta skip, eins og sjá má. Mynd: GB Dalvík: Glæsilegt skip í flotann „Vissulega eru menn ánægðir með að þessi endurnýjun hefur getað átt sér stað. Hún var tímabær og nauðsynleg. Gamla skipið var komið á fimmtánda ár þannig að auð- vitað eru ýmsir hlutir farnir að lúnast í svo gömlu skipi,“ segir Valdimar Bragason fram- kvæmdastjóri Utgerðarfélags Dalvíkinga í samtali við Dag í gær er nýr og glæsilegur togari félagsins lagðist að bryggju á Dalvík. Hinn nýi Björgvin EA 311 leysir af hólmi fyrsta skuttogara - nýr Björgvin lagðist að bryggju í gær Dalvíkinga sem bar sama nafn. Útgerðarfélag Dalvíkinga eign- aðist sinn fyrsta togara fyrir rétt- um 30 árum en hann bar einmitt sama nafn. Nýja skipið er smíðað í skipa- smíðastöð í Flekkefjord í Noregi. Kaupverð þess er um 390 millj- ónir króna. Skipið er 12 metrar á breidd og rúmir 50 metrar á lengd, skráð 499 tonn að stærð. í skipinu er búnaður til heilfryst- ingar sem Valdimar segir breyta nokkru varðandi veiðar á karfa og grálúðu. „Miðað við aðstæður í dag er hægt að gera töluverða verðmæta- aukningu á þessum tegundum en síðan verður það að spilast eftir markaðinum hverju sinni hvernig við nýtum möguleika á heilfryst- ingunni,“ segir Valdimar. Skipið er búið bestu tækjum sem völ er á í dag t.d. auto-trolli og data-trolli sem er sjálfvirkur búnaður fyrir hífingar og slökun á trolli sem jafnframt skráir átak á togvíra, lengd og fleira. Skipið er teiknað af Skipa- tækni hf. í Reykjavík og hefur Bárður Hafsteinsson haft yfir- umsjón með hönnuninni. Skip- Seljaiax í Oxarfirði: Haldið áfram að bora í byrjun júlí var sagt frá „gull- fundi“ í Öxarfirði. Fyrirtækið Seljalax hafði þá verið að bora eftir vatni og vonast eftir að fá 9,5 gráðu heitt en fengið 35 gráðu heitt vatn. Borunum er haldið áfram á svipuðum slóð- um og áður og núna eru Selja- laxmenn að reyna að fá kalt ferskvatn. Björn Benediktsson fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins sagði að í borun um daginn hafi þeir fengið volgt vatn í holu þar sem þeir bjuggust við að fá kalt. Eftir það var farið út í að bora eftir sjó og er nýlokið við þá holu. Um 40 lítrar á sekúndu fengust úr henni þá, en ekki er vitað hvað hún mun koma til með að gefa síðar. „Þetta er ekki alveg eins mikið og við hefðum viljað að hún gæfi,“ sagði Björn. Gera á aðra tilraun til að bora eftir köldu ferskvatni en ekki er vitað hvort það tekst. „Landið er allt í misgengjum hérna og vatnið liggur í þeim. í leikmanns augum virðist sem breytilegt hitastig sé í hverju mis- gengi,“ sagði Björn. Ef kaldavatns möguleikar eru fyrir hendi verður sennilega bor- uð önnur hola í volga vatnið. Lokaboranir munu þá verða seinnipart vetrar þegar vitað er hversu margar holur þarf að bora og hve mikið hinar gefa. Allar boranir nema kaldavatns boranirnar eru rannsóknarverk- efni sem stjórnað er af Orku- stofnun. Að sögn Björns borga Seljalaxmenn 16 prósent í verk- efninu en hitt er fjárlagafé. Fiskeldismenn standa sjálfir straum af kostnaði við kalda- vatnsleitina. KR stjóri á nýja skipinu verður Vigfús Jóhannesson. JÓH Gjaldtakan við Höfða: Álitamál Fyrsta daginn sem gjald var tekiö af þeim ferðamönnum sem vildu skoða Höfða í Mývatnssveit komu 182 gestir og svipaður fjöldi annan daginn. Að jafnaði er þetta svipaður fjöldi og kom í Höfða áður en gjaldtaka hófst, en byrjað var að innheimta gjald- ið á fimmtudag í síðustu viku. „Það eru skiptar skoðanir á þessu máli,“ sagði Inga Stefáns- dóttir sem við hittum í þar til gerðum rukkunarskúr við Höfða. Það kostar nú 50,00 krónur að fara í skoðunarferð um svæðið og sagði Inga að það fé sem afgangs er þegar búið er að borgæ rekstr- arkostnað verði notað til upp- byggingar á svæðinu. Inga sagði að nokkuð hefði borið á gagnrýni meðal þeirra sem leiða ferðamannahópa og þá einkum vegna þess að gjaldtakan hefst á miðju sumri. „Mörgum finnst alveg sjálfsagt að bórga sig inn, en öðrum og þá einkum íslendingum finnst fráleitt að þurfa að borga fyrir að skoða sitt eigið land,“ sagði Inga og nefndi að nokkrir hefðu af þessum sök- um horfið á braut og hætt við. mþþ

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.