Dagur - 27.07.1988, Qupperneq 2
2 - DAGUR - 27. JÚ1Í 1988^
Norðurland vestra:
Frystihíísin
að stöðvast?
fundur með þingmönnum kjördæmisins
í síðustu viku var haldinn á
Sauðárkróki fundur fulltrúa
hraðfrystihúsa og togaraút-
gerðar á Norðurlandi vestra
ístess hf.
í 38. sæti
- á lista yfir útílutnings-
verðmæti árið 1987
„Það var gaman að sjá þessar
tölur, við erum bjartsýnir þrátt
fyrir aukna samkeppni,“ sagði
Guðmundur Stefánsson hjá
ístess hf. á Akureyri, en fyrir-
tækið er í 38. sæti á skrá sem
birtist nýlega í Hagtölum mán-
aðarins yfír útflutningsverð-
mæti fyrirtækja á íslandi árið
1987.
Guðmundur sagði það óneit-
anlega skemmtilegt að ístess hf.
væri svo ofarlega á listanum sem
raun ber vitni þrátt fyrir ungan
aldur fyrirtækisins, en það var
stofnað árið 1986. Hvað framtíð-
ina varðaði taldi Guðmundur að
ístess hf. myndi auka útflutnings-
verðmætið í takt við aukna fram-
leiðslu og fjölbreyttari gerðir
fiskifóðurs, en eins og kunnugt er
framleiðir verksmiðja ístess í
Krossanesi fóður til notkunar við
fiskeldi.
„Mér kæmi ekki á óvart þótt
framleiðslumagn ístess tvö- eða
þrefaldaðist í ár miðað við síð-
asta ár,“ sagði Guðmundur.
ístess hf. hefur hafið framleiðslu
á fínkornaðra fóðri en framleitt
hefur verið áður í verksmiðju
félagsins, og í haust verður farið
að framleiða enn fínkornaðri
fóðurgerð. Við þetta eykst fjöl-
breytnin og mun þá um eða yfir
90 prósent af öllu fóðri til fiskeld-
is verða framleitt innanlands.
EHB
með öUum þingmönnum kjör-
dæmisins. Tilefnið var slæm
staða fyrirtækjanna og fóru
fram miklar umræður um
stöðuna og aðgerðir stjórn-
valda varðandi atvinnumál.
Var þrýst á þingmenn að gera
eitthvað í þessum málum hið
fyrsta, eins og segir m.a. í
fréttatilkynningu sem gefín var
út að loknum fundi: „Varanleg
leiðrétting á rekstursskilyrðum
verður því að fínnast strax og
enginn möguleiki að bíða eftir
nýjum ráðstöfunum stjórn-
valda til hausts.“
Um stöðu frystihúsanna segir í
fréttatilkynningunni: „Undan-
tekningarlaust eru þessi helstu
atvinnufyrirtæki í kjördæminu að
stöðvast vegna fjárskorts, sem er
bein afleiðing mikils og vaxandi
hallareksturs. Verð á framleiðslu-
vörum hefur lækkað til muna
meira en svarar áhrifum frá geng-
isbreytingum og allur kostnaður
við reksturinn hefur farið hækk-
andi. Alvarlegust er hækkun
fjármagnskostnaðar, sem kemur
ekki síður hart við útgerðina.“
Þingmennirnir töldu fundinn
vera mjög gagnlegan og upplýs-
andi, og lýstu yfir áhyggjum sín-
um yfir ástandi mála. Þeir lofuðu
skjótum úrbótum, a.m.k. lýstu
áhuga sínum á að vinna að þeim,
en efuðust um að jafn mikill
hraði yrði á aðgerðum stjórn-
valda til úrbóta, eins og frystihús-
in töldu nauðsynlegt.
í lok fréttatilkynningarinnar
segir: „Aflakvóti togaranna, sem
gerðir eru út í tengslum við frysti-
húsin, endist ekki út árið, þar að
auki er áformuð sala á markaði
erlendis á þeim fisktegundum,
sem verst útkoma er á í vinnslu.
Yfir 500 manns vinna í frystihús-
unum í kjördæminu og mundi
stöðvun þeirra valda miklum
vandræðum, bæði fyrir starfsfólk-
ið og byggðarlögin. Ef fyrirtæki
stöðvast, er alveg ófyrirséð,
hvenær það gæti hafið rekstur að
nýju.“ -bjb
„Skyldi hann rigna áfram?“
Mynd: TLV
ií
Mengun frá álverinu:
„Mikilvægt
að leysa
þessi mál
- segir Guðmundur
Bjarnason heilbrigðis-
ráðherra
Guðmundur Bjarnason heil-
brigðis- og tryggingaráðherra
og Friðrik Sophusson iðnaðar-
ráðherra hafa sent frá sér frétta-
tilkynningu vegna mengunar-
varna í álverinu við Straums-
vík. Þar kemur fram að ráðu-
neytin hafa ákveðið að setja til
hliðar ágreining um gildi aðal-
samnings milli ríkisstjórnar
Islands og Svviss Aluminium
Ltd. og að mál sem varða
mengunarvarnir álversins
verði leystar innan ramma 12.
gr. aðalsamnings milli þessara
tveggja aðila.
„Það er mikilvægt að leysa
þessi mál í góðu samkomulagi við
alla aðila sem þetta mál varðar,"
sagði Guðmundur Bjarnason
ráðherra í samtali við Dag. Heil-
brigðisráðuneytið mun, að höfðu
samráði við Hollustuvernd ríkis-
ins, gera tillögu til iðnaðarráðu-
neytisins um framkvæmd og
fyrirkomulag mengunarvarna,
þ.m.t. eftirlit, til undirbúnings
viðræðna við Alusuisse og Isal,
sem fram munu fara í haust.
Heilbrigðisráðuneytið mun eiga
aðild að þeim viðræðum eftir því
sem við á.
Ráðuneytin eru sammála um
nauðsyn þess að ísal geri allar
eðlilegar ráðstafanir til að hafa
hemil á og draga úr skaðlegum
áhrifum af rekstri bræðslunnar í
samræmi við góðar venjur í iðn-
aði í öðrum löndum við svipuð
skilyrði. AP
Salmonella:
„Erum ekki að leita
að neinum sökudólg4
Álit nefndar, sem fyrrverandi
heilbrigöisráðherra Ragnhild-
ur Helgadóttir skipaöi, um
Umboðsmaður Alþingis:
Tryggir rétt borgara
gegn stjómvöldum
Gaukur Jörundsson, umboðs-
maður Alþingis, hefur nú
formlega tekið til starfa. Hlut-
verk hans er að hafa eftirlit
með stjómsýslu ríkis og sveit-
arfélaga og tryggja rétt borgar-
anna gegn stjórnvöldum
landsins. Umboðsmaður getur
tekið mál til meðferðar eftir
kvörtun eða að eigin fram-
kvæði.
Lög um embætti umboðs-
manns Alþingis voru samþykkt á
síðasta þingi, en árið 1972 var
samþykkt þingsályktunartillaga
Péturs Sigurðssonar um undir-
búning löggjafar um embætti
umbo’ðsmanns. Nokkur frum-
vörp þessa efnis voru lögð fram
eftir þetta, en það var ekki fyrr
en á síðasta þingi að lög um
umboðsmann Alþingis voru
samþykkt.
Hver sá sem telur sig hafa ver-
ið beittan ranglæti af hálfu ein-
hvers aðila getur kvartað af því
tilefni til umboðsmanns að upp-
fylltum vissum skilyrðum. Ekki
geta aðrið borið fram kvörtun en
þeir, sem sjálfir hafa orðið fyrir
meintu óréttlæti. Kvarta verður
til umboðsmanns áður en ár er
liðið frá ákvörðun þeirri eða
atviki, sem er tilefni kvörtunar.
Kvörtunin verður að vera skrifleg
og hana skal skrá á sérstakt eyðu-
blað sem skrifstofa umboðs-
manns lætur í té.
Eiginlegt vald umboðsmanns
er ekki annað en það að hann
getur krafið stjórnvöld um upp-
lýsingar og skýringar á ákvörðun-
um þeirra og framkomu. Enginn
aðili er hins vegar bundinn af áliti
og niðurstöðum umboðsmanns-
ins. Beinn árangur af starfi
- segir Guðmundur Bjarnason heilbrigðisráðherra
útbreiðslu salmonellasýkilsins,
er áfellisdómur yfír flestum
þeim aðilum sem starfa að
kjúklingaframleiðslu og því
eftirliti sem ætti að vera með
þessum matvælaiðnaði.
í skýrslunni kemur fram að
skipulegt heilbrigðis- og fram-
leiðslueftirlit sé nánast ekkert og
heilbrigðisskoðun í sláturhúsum
sé ábótavant. Sýklarannsóknir
séu ekki nægjanlegar og þekking-
arleysi starfsfólks, matreiðslu-
fólks og almennings í örveru-
fræðum og hollustu- og hrein-
lætismálum varðandi þessa fram-
leiðslu sé mikið.
Guðmundur Bjarnason heil- _
brigðisráðherra sagði eftir að efni PÓrshÖIIl:
skýrslunnar hafði verið kynnt að
ekki væri tilgangur hennar að
finna einhvern sökudólg í þessu
máli. Greinilegt væri að bæði
stjórnvöld og framleiðendur ættu
þar sök að máli. „Aðalatriðið er
að eiga gott samstarf við alifugla-
ræktendur um að ráða bót á þess-
um vanda,“ bætti ráðherrann við.
Nefndin vekur sérstaklega
athygli á því að setja þurfi ný lög
um matvælaframleiðslu og eftir- ar.
lit, er geymi skýr ákvæði um
þekkingu og ábyrgð þeirra er
vinna að matvælaframleiðslu. Að
öðru leyti leggur nefndin fram
ýmsar tillögur til úrbóta, er lúta
fyrst og fremst að starfsemi land-
búnaðarráðuneytis, heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytisins
og menntamálaráðuneytisins.
umboðsmanns fer eftir því hvort
stjórnvöld taka til greina það sem
fram kemur í áliti hans.
Þegar hafa borist 20 mál inn á
borð umboðsmannsins. Gaukur
Jörundsson sagði að þessi mál
væru af ýmsum toga spunnin,
t.a.m. skattamál, forræði barna
og mál varðandi leyfisveitingar
og leyfissviptingar. Ekki vildi
Gaukur fullyrða að þannig mál
yrðu áberandi í starfi og sagði að
tíminn yrði að skera úr um hvers
konar mál kæmu til meðferðar
hjá umboðsmanninum.
Skrifstofa umboðsmanns
Alþingis er að Rauðarárstíg 27, í
Reykjavík. Hún verður fyrst um
sinn opin virka daga klukkan 9-
15. Síminn þar er 91-621450 og
póst skal senda í pósthólf nr.
5222, 125 Reykjavík. Með öll
mál er farið sem trúnaðarmál.
AP
Nefndin er þeirrar skoðunar að
í alifuglarækt hafi ríkt skipulags-
leysi, sem byggist fyrst og fremst
á þekkingarleysi framleiðenda
og neytenda og afskiptaleysi
stjórnvalda. Bendir nefndin á að
opinberum stofnunum hafi ekki
verið gert kleift að annast
fræðslustarfsemi á þessu stigi
vegna fjársveltis.
Nefndin kemur með tillögur til
úrbóta og snúa þær að fram-
leiðendum, dreifendum og neyt-
endum, fóðurframleiðendum,
alifuglaframleiðendum, slátur-
leyfishöfum, verslunum, veit-
ingastöðum og mötuneytum. AP
Næg atvinna
Atvinnulíf er með ágætum á
Þórshöfn. Þó hefur veiði smá-
báta verið heldur treg undan-
farna daga, eða lítil sem engin.
Þokkaleg atvinna hefur verið í
frystihúsinu, en Súlnafell er í
vélaskiptum og Stakfell er
nýkomið úr slipp og farið á veið-
Bullandi vinna er hjá iðnaðar-
verkamönnum, að sögn Daníels
rnasonar, en unnið er við bygg-
ingu heilsugæslustöðvar og fljót-
lega verður farið að byggja fjórar
leiguíbúðir á vegum hreppsins.
Þá sækja margir vinnu á Gunn-
ólfsvíkurfjall, en þar er allt ,á
fullu. mþþ