Dagur - 27.07.1988, Page 5

Dagur - 27.07.1988, Page 5
27. júlí 1988- DAGUR -S Handknattleiksskóla Geirs Hallsteinssonar oj> Viðars Símonarsonar var slitið fyrir skömmu. Þetta er fjórða árið sem skólinn er haldinn og hefur alltaf verið fullt í hann. Þetta árið sóttu þrír piltar af Norðurlandi skólann en hann er haldinn í Hafnarfirði. Þetta voru þeir Emil Einarsson frá Dalvík, Hannes Gunnarsson frá Grímsey og Finnur Hansson frá Akureyri. Hér sjást þeir ásamt kennurunum Geir og Viðari. Mynd: ap -------------------------------------------------N Hársnyrtíng Særúnar á Húsavík er til leigu frá 1. september. Einnig til leigu einbýlishús. Upplýsingar í síma 41353 (heimasími) og 41049 (vinnusími). Léttisfélagar! Farin verður félagsferð í Sörlastaði um verslunar- mannahelgina ef næg þátttaka verður. Upplýsingar í símum 22220 og 25532 fyrir föstudag. Ferðanefnd. r V Lokað laugardag 30. júlí vegna sumarleyfa EYFJÖRÐ Hjalteyrargötu 4 - Sími 22275 Tjaldstæðin: Misjöfii nýt- ing í sumar Nýting tjaldstæða hefur verið nokkuð misjöfn í sumar. Leit- að var upplýsinga hjá tjald- stæðum á Akureyri, Blöndu- ósi, Egilsstöðum og í Mývatns- sveit og hafði ferðaiöngum þar ýmist fækkað eða fjölgað. Á Akureyri var það að frétta að í júnímánuði voru tjaldstæðis- gestir um 100 færri en í fyrra. Núna í byrjun júlí var útlitið að batna og aðsókn orðin þokkaleg. Tjaldstæðisverðir sögðu áberandi færri útlendinga gista stæðið nú en oft áður. Samkvæmt upplýsingum sem fengust á Egilsstöðum hafa tjald- stæðin verið mjög vel sótt og er jafnvel um aukningu að ræða. Meirihluti þeirra erlendu ferða- manna sem gista á tjaldstæðinu kemur með ferjunni Norrönu til landsins. Aukning hefur orðið á farþegum hennar þannig að for- ráðamaður tjaldstæðisins taldi að erlendir ferðamenn væru með meira móti á Egilsstöðum í sumar. í Mývatnssveit fækkaði tjald- stæðisgestum þó nokkuð í júní- mánuði en ástandið var heldur að batna. Tjaldstæðisvörður þar taldi að umræðan um eldgos undanfarið hefði trekkt nokkuð að því núna væri talsvert margt fólk á svæðinu, og það ekki síður innlent en erlent. Á Blönduósi fengust þær upp- lýsingar að gestum á tjaldstæðinu hefði heldur fjölgað. Mest væri þó aukningin um helgar. Svo virðist sem erlendum ferðamönn- um hafi fjölgað þar og þá aðal- lega þeim sem koma með eigin farartæki til landsins s.s. bíla og mótorhjól. KR Atvinnuastand í júní: Best á Norður- og Austurlandi í júnímánuöi sl. voru skráðir 12.300 atvinnuleysisdagar á landinu, sem svarar til þess að 570 manns hafi verið á atvinnuleysisskrá í mánuðin- um. Er þetta nánast óbreytt ástand frá mánuðinum á undan, en dreifing skráðs atvinnuleysis milli landshluta hefur hins vegar breyst nokkuð frá fyrra mánuði. Atvinnuleysisdögum á höfuð- borgarsvæðinu, Vesturlandi og Vestfjörðum fjölgaði um 1500 en fækkaði í öðrum landshlutum um 1000. Þá fjölgaði konum á atvinnuleysisskrá um tæp 18% í júní og voru 73% af heild en körlum fækkaði á skrá um rösk 19%. Ef tekið er mið af fyrstu 6 mán- uðum ársins, hefur skráðum atvinnulausum fækkað um 13% miðað við sama tímabil árið 1987. Hvað einstaka landshluta snertir, fækkaði atvinnulausum á Austurlandi alls um 14, mest á Vopnafirði, þá á Egilsstöðum og Bakkagerði. Á Norðurlandi eystra fækkaði atvinnulausum í S.-Þing- eyjarsýslu um 17, en fjölgaði á Ákureyri um 14. Á Norðurlandi vestra fækkaði atvinnulausum um 18, sem dreifðist nokkuð jafnt yfir svæðið. VG Gerið góð kaup! 20% afsláttur Nú ljúkum vlð suniarsölunni á garðhúsgögmun - Komið og verslið meðan úrvalið er - Hentugt á svalimar - í garðinn - í sumarbústaðinn og víðar - Lítil og stór sett - stakir stólar o.il. o.fl. Nestín

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.