Dagur - 27.07.1988, Qupperneq 7
27. júlí 1988 - DAGUR - 11
app
ítta
i sá
úki
í af
ega
inn
l ef
k í
gar
um
im-
i á
) fé
ður
ím.
við
ini-
im-
nar
llað
en
iftir
ifin
ir á
„Hér var áður ekkert nema svartur sandur en er algróið svæði í dag,“ segir Sigurður þegar hann virðir fyrir sér
gróðurinn í gömlu sandgræðslugirðingunni.
því að norðan hennar hefur land
einnig gróið upp sem kemur fyrst
og fremst til af því að gróðurinn
innan girðingarinnar hefur tekið
við sandinum og stöðvað fokið.
Engin merki sjást um að þetta
svæði hafi skemmst í ofsarokinu
sem gekk yfir í sumar.
„Núna síðustu tuttugu árin
hefur svæðið innan girðingarinn-
ar verið beitt nærri því jafn mikið
og utan hennar. Á þessu svæði er
ekki til gróðureyðing heldur
alger uppgræðsla landsins,“ segir
Sigurður.
Pegar komið er að vesturrótum
Sellandafjalls komum við að nýj-
um gróðurskemmdum sem
Sigurður segir mikilvægt að gert
verði við hið allra fyrsta. Upp úr
vegi sem liggur til suðurs með-
fram sandgræðslugirðingunni
hefur fokið verulega og eini
möguleikinn á að hindra frekara
fok er að aka malarlagi yfir sand-
inn og halda honum í skefjum.
En þetta eru líka einu skemmd-
irnar á þessu svæði, þrátt fyrir
fréttir af stórskemmdum fyrr í
sumar.
Rokið olli nánast engum
skemmdum
Nú er ekið áfram í gegnum sand-
græðslugirðinguna gömlu og enn
til suðurs. Ætlunin er að sjá
árangurinn af nýjustu sáningunni
og áburðardreifingunni í Krákár-
botnum en að henni standa ásamt
Landgræðslunni veiðifélögin við
Laxá, Skútustaðahreppur og
Laxárvirkjun. Sandfokið hefur
mikil áhrif á veiðina í Laxá og
ekki síður er mikilvægt fyrir Lax-
árvirkjun að sandur komist ekki í
vélar virkjunarinnar.
„Ég var verulega smeykur við
að fara á þetta svæði þegar rok-
inu slotaði um daginn. Þetta er
ungur gróður og viðkvæmur fyrir
vondum veðrum en mér til
ánægju sá ég að engar skemmdir
höfðu orðið,“ segir Sigurður.
- En er þar með sagt að gróð-
urinn standi öll veður af sér þótt'
það hafi gerst í þurrkunum og
rokinu í sumar?
„Það hafa ekki orðið verulegar
skemmdir núna en ég held að
mikið velti á hvernig veðrið verð-
ur það sem eftir er sumars. Ef
þurrkarnir halda áfram og vindar
Glöggt má sjá skilin þar sem sáð var
í fyrir tveimur árum. Þessi mynd er
tekin í nýju sandgræðslugirðing-
unni, tæplega 30 km fyrir sunnan
Grænavatn. Þetta er tveggja ára
gömul sáning sem staðið hefur af sér
sandfokið í sumar.
verða miklir þá getur gróður
skemmst en ef veðrið breytist þá
mun gróðurinn ná sér á ný,“ segir
Sigurður.
Ekki er að undra þótt það hafi
verið áhyggjuefni Mývetningum
þegar þurrkamir og rokið gekk
yfir í sumar. Sáningin í nýju girð-
ingunni er mjög ung, aðeins
tveggja ára gömul þannig að
búast hefði mátt við að gróðurinn
mætti sín lítils gegn sandrokinu.
Annað varð þó uppi á teningnum
og á þessum stað er vel hægt að
sjá hvernig grasið stöðvar
sandinn, þó svo lítið sé farið að
gróa enn miðað við það sem síðar
verður, sé tekið mið af árangrin-
um af gömlu girðingunni.
Góður árangur af
sáningunni
„Mér finnst full ástæða til að
menn fái að sjá hvað er verið að
gera hér og hverju þetta starf
skilar,“ segir Sigurður þegar við
erum komnir á leiðarenda, að
tveimur austustu upptakalækjum
Krákár þeim sem aðallega flytja
sand fram í ána.
Á þessu svæði hefur verið sáð
síðustu tvö árin og einnig dreift
áburði úr landgræðsluflugvélinni
með góðum árangri. Gróðurinn
hefur tekið við sér og þrátt fyrir
að þessir hólar séu í dag svartir
sem nóttin þá líður ekki á löngu
þar til gróðurinn nær yfirhönd-
inni. Þetta eru dæmi um upp-
græðslu sem vel hefur farið að
stöfnum og ætlar að skila miklum
árangri. Vonandi verður haldið
áfram á sömu braut þannig að
svæði sem í dag eru þakin sandi
verði uppgrædd á næstu árum.
JÓH
„Ég held að það fari ekki hjá
því að við fáum 4000-5000 manns
á hátíðina. Það er búin að vera
mjög góð tíð hér fyrir austan í
sumar og við höfum ekki nokkra
ástæðu til að ætla að veðrið
breytist, einmitt nú,“ segir
Magnús Stefánsson framkvæmda-
stjóri ÚÍA en sambandið sér að
vanda um framkvæmd hátíðar-
innar.
Útihátíð hefur verið haldin í
Atlavík nær samfleytt þennan ára-
tug. Stærstar voru þessar hátíðir á
árunum 1984-’85 en þá voru hart
nær 7000 manns í skóginum.
Aðgöngumiðinn á Atlavíkurhátíð-
ina í ár kostar 4500 kr.
Þjóðhátíð að vanda í Eyjum
Eyjamenn halda að vanda þjóð-
hátíð í Herjólfsdal. Það er
íþróttafélagið Þór sem stendur
fyrir hátíðinni í ár en félögin í
Éyjum skiptast á um að halda
hátíðina.
Af skemmtikröftum á þjóð-
hátíð má nefna hljómsveitirnar
Greifana, Óp Lárusar, Lónlí blú
bojs og Kaskó. Þá verða Halli og
Laddi á svæðinu, eftirherman
Jóhannes Kristjánsson, krafta-
karlarnir Jón Páll Sigmarsson og
Hjalti Árnason, Bergþór Pálsson
og Björgvin Halldórsson. Að
Aðstandendur
Melgerðismelahátíðarinnar.
vanda verður flugeldasýning og
brenna á hátíðinni, einnig sýning
Brúðubílsins, fimleikasýning,
bjargsig, danssýning og listflug.
„Hátíðin verður með hefð-
bundnu sniði og lík því sem hún
hefur verið síðustu ár. Þetta er
fyrst og fremst fjölskylduhátíð og
í fyrra komu hátt í 8000 manns á
hátíðina. Við búum okkur undir
að það verði nokkuð fleiri í ár,“
segir Gunnar Andersen, fram-
kvæmdastjóri þjóðhátíðar.
Þjóðhátíð verður sett á föstu-
dag kl. 14 og stendur fram á
aðfaranótt sunnudags. Dansleikir
verða föstudags, laugardags- og
sunnudagskvöld þar sem aðal-
hljómsveitir verða Greifarnir og
Kaskó.
„Við erum öruggir með góða
veðrið enda er Guð í Þór,“ bætti
Gunnar við.
Slagorð þjóðhátíðarinnar er
„Elskumst heitt um alla tíð en
umfram allt á þjóðhátíð". Búið
er að semja þjóðhátíðarlag en
hlustendur Stjörnunnar ásamt
dómnefnd völdu. Höfundur þess
er Ólafur M. Aðalsteinsson.
Aðgöngumiðinn á þjóðhátíðina
kostar 4000 kr.
Bindindismót í
Galtalækjarskógi
Bindindismót í Galtalækjarskógi
hefst á föstudagskvöld með dans-
leikjum, bæði á palli, þar sem
hljómsveit Birgis Gunnlaugsson-
ar leikur, og í tjaldi þar sem
hljómsveitin Hvass frá Stykkis-
hólmi leikur.
Á laugardaginn hefst dagskrá-
in kl. 10 með leikjum fyrir börn
og eftir hádegi fer fram hjólreiða-
keppni Bindindisfélags öku-
manna. Síðari hluta dags verður
danssýning íslandsmeistara og
ökuleiknikeppni BFÖ. Þá verður
Galtalækjarkeppni söngvara en
meðal þeirra sem þá keppni hafa
unnið er Bjarni Árason, látúns-
barki.
Á laugardagskvöld verður
kvöldvaka þar sem Pálmi Gunn-
arsson og Jóhannes Kristjánsson
skemmta. Birgir Gunnlaugsson
og hljómsveit leika fyrir dansi
ásamt hljómsveitinni QUE frá
Danmörku.
Hátíðinni í Galtalækjarskógi
verður fram haldið á sunnudag
og lýkur aðfaranótt mánudags.
Helgistund verður kl. 14 á sunnu-
dag, síðdegis verður sýning
Brúðubílsins og barnaskemmtun
þar sem fram koma Jón Páll Sig-
marsson og Ómar Ragnarsson.
Kanadíski kórinn „Fine country
kids“ skemmtir um kvöldið og
því næst flytur Friðjón Guð-
röðarson sýslumaður hátíðar-
ræðu. Hljómsveit Birgis Gunn-
laugssonar spilar síðasta kvöldið
ásamt hljómsveitinni Fjörkörl-
um.
Á meðan á hátíðinni stendur
verður svæðisútvarp starfrækt.
Aðstandendur hátíðarinnar eru
íslenskir ungtemplarar og Stór-
stúka nr. 1 á Suðurlandi.
Fjölskylduhátíð í Yík
í Vík í Mýrdal verður fjölskyldu-
hátíð á vegum Ungmennafélags-
ins Drangs og Björgunarsveitar-
innar Víkverja. Boðið verður
upp á útsýnissiglingar á hjóla-
skipi, hestaleigu, gönguferðir
með leiðsögn, útsýnisflug og
jöklaferðir á vélsleðum. Þá mun
Jón Páll koma á svæðið og
skemmta. Þrír dansleikir verða
haldnir þar sem hljómsveitin
Kaktus skemmtir. Mótsgjald er
ekkert en nóttin á tjaldsvæði
kostar 500 kr. JÓH