Dagur - 27.07.1988, Blaðsíða 14
14 - DAGUR ~ 27.: j(jlí'1988
Torfi sterkasti maður
landsbyggðariimar
Keppni um titilinn „Sterkasti
maður landsbyggðarinnar,“
fór fram á Akureyri um síðustu
helgi. Keppt var í 8 þrautum, 3
í miðbæ Akureyrar á föstudag
og 5 á Iþróttavellinum á laug-
ardag. Torfi Olafsson og
Magnús V. Magnússon deildu
með sér fyrsta og öðru sætinu
en Torfí sigraði síðan á hlut-
kesti. FIosi Jónsson frá Akur-
eyri varð í þriðja sæti.
Keppnin hófst á að hlaupið var
með 75 lítra af Blöndu í hvorri
hendi 30 metra vegalengd. Torfi
varð hlutskarpastur í þeirri þraut
og hljóp á 12,48 sekúndum. Næst
voru 80 kg af gosflöskum dregin
upp í loftið og sigraði Magnús í
þeirri grein, dró hlassið upp á
5,57 sekúndum. Loks voru
dregnir tveir fólksbílar 50 metra
vegalengd og varð Torfi hlut-
skarpastur á 17,87 sekúndum.
Síðari daginn var byrjað á að
velta 425 kg svinghjóli fimm
sinnum. Aðeins þremur kepp-
endum tókst að ljúka þessari
þraut og náði Magnús besta
tímanum, 23,11 sekúndum.
Fimmta þrautin fólst í að þeyta
FN-hamrinum svokallaða aftur
fyrir sig og sigraði Torfi í þeirri
rein með rúmlega 5 metra kasti.
sjöttu greininni voru fjórir mis-
þungir bobbingar bornir 10 metra
og sigraði Flosi Jónsson í þeirri
grein, en ekki tókst öllum að
klára hana.
Frumlegasta grein keppninnar
var „nýlenduþrautin." Línubelg-
ur var hlekkjaður við ökkla
keppenda og þeir látnir draga
hann 15 metra með 70 lítra belg í
fanginu. Torfi vann góðan sigur í
þessari grein.
Síðasta greinin fólst í að hlaup-
ið var með tvo 35 kg fóðursekki
15 metra. Sigurvegari í þeirri
Hann var nokkuð sögulegur
leikurinn sem 2. flokkur Þórs
lék gegn Frömurum í 8 Iiða
úrslitum Bikarkeppni KSÍ sl.
föstudagskvöld. Leikurinn fór
fram í Reykjavík og tvisvar var
sigur Þórsara í sjónmáli en í
bæði skiptin jöfnuðu Framarar
á elleftu stundu og sigruðu á
endanum í vítaspyrnukeppni.
Það voru ekki liðnar nema 4
mínútur af leiknum þegar Axel
Vatnsdal kom Þórsurum í 1:0.
Framarar sóttu öllu meira eftir
markið og náðu að jafna á 19.
mínútu. Þeir náðu síðan foryst-
unni á 35. mfnútu en Páll Gísla-
son jafnaði fyrir Þór 5 mínútum
síðar. Staðan í leikhléi var 2:2.
Þegar stundarfjórðungur var
liðinn af síðari hálfleik skoraði
Árni Þór Árnason fyrir Þórsara
og breytti stöðunni í 3:2.
Skömmu eftir markið var Birgi
Karlssyni vísað af leikvelli og var
þá orðið jafnt í liðunum á ný þar
sem einum Framara hafði verið
grein var Örn Traustason. Flosi
Jónsson tryggði sér þriðja sætið í
keppninni með sigri á Magnúsi
en Torfi og Magnús vildu ekki
reyna með sér vegna þreytu og
var þá varpað hlutkesti. JHB
vísað af leikvelli í fyrri hálfleik.
Framarar sóttu nú nokkuð en
Þórsarar vörðust vel og flestir
voru farnir að bóka Þórssigur
þegar Framarar jöfnuðu á 90.
mínútu og framlengja varð leik-
inn.
Fyrri hluti framlengingarinnar
leið án marka en í upphafi seinni
hlutans skoraði Axel Vatnsdal 4.
mark Þórs. En það dugði ekki til
því Framarar jöfnuðu á síðustu
mínútu framlengingarinnar og
liðin þurftu því að há vítakeppni.
Fór hún þannig að Framarar
skoruðu úr þremur vítum en
Þórsarar einu og þar með komust
Framarar í undanúrslitin.
„Það var auðvitað hastarlegt
að vera tvisvar búnir að vinna
leikinn en tapa honum svo í víta-
keppni,“ sagði Gunnar Gunnars-
son, þjálfari Þórs um þennan
leik. „En þetta sýnir að leikurinn
er auðvitað ekki búinn fyrr en
hann er flautaður af,“ sagði
Gunnar. JHB
Bikarkeppnin 2. flokkur:
Þór úr leik
- tapaði fyrir Fram í sögulegri
viðureign í Reykjavík
I