Dagur - 27.07.1988, Síða 16

Dagur - 27.07.1988, Síða 16
Akureyri, miðvikudagur 27. júlí 1988 TEKJUBREF• KJARABRÉF FJARMAL ÞIN - SERGREIN OKKAR ^FIÁRFESriNGARFÉlAGÐ Ráðhústorgi 3, Akureyri Norðlendingar og Austfirðingar: Fá rúmlega 76 millj. í húsnæðisbætur - verða sendar út á morgun Álagningarskráin verður lögð fram á fímmtudag og sama dag verður þeim sem rétt eiga á húnæðis- og barnabótum og svokölluðum vaxtafrádrætti send ávísun í pósti. Þeir sem Súlnafellið: Aðalvélin ónýt Alvarleg vélarbilun varð í tog- skipinu Súlnafelli frá Þórshöfn um síðustu mánaðamót. Olíu- rör í aðalvél skipsins gáfu sig og bræddi vélin úr sér á höfuð- legum. Varðskip tók Súlnafell- ið í tog inn á Eskifjörð og kom þá í Ijós að skipta þarf um vél í skipinu. Súlnafellið er nú í viðgerð hjá vélsmiðjunni Nonna hf. og Báta- lóni í Hafnarfirði. Sveifarásinn og kambásar vélarinnar voru dæmdir ónýtir í Hafnarfirði og því verður að fá nýja aðalvél í skipið. Hér er um margra millj- óna króna kostnað að ræða fyrir Útgerðarfélag Norður-Þingey- inga, bæði hvað varðar tjónið sjálft og aflamissi. Tryggingarfé- lag kemur þó nokkuð inn í mynd- ina hvað varðar bætur fyrir tjónið á vélinni. „Þetta var mjög slæmt því þetta gerðist á besta tímanum. Ég geri ráð fyrir að þetta hafi komið eitthvað niður á atvinnu en við erum búnir að fá aðila til að veiða upp í kvóta Súlnafellsins og mun Dalborgin frá Dalvík landa hér fljótlega eftir verslun- armannahelgina,“ sagði Grétar Friðriksson hjá útgerðarfélaginu. Súlnafell hét áður Skjöldur og var gert út frá Siglufirði. Skipið er 218 tonn brúttó, byggt árið 1964 í Noregi. EHB búa við góðar póstsamgöngur ættu því að fá glaðninginn fyrir helgina. Um 9500 manns fá greiddar rúmlega 409 milljónir króna í húsnæðisbætur, sem þýðir um 45 þúsund krónur á hvern einstakl- ing og vaxtaafsláttur nemur tæp- lega 679 milljónum króna, en hann er borgaður til þeirra sem voru með vaxtafrádrátt sam- kvæmt gamla kerfinu. Á Norðurlandi eystra er heild- arupphæð húsnæðisbóta rúmar 39 milljónir króna og á Norður- landi vestra tæplega 16 milljónir. Austfirðingar fá rúmlega 21 milljón króna í húsnæðisbætur nú um helgina. Svokallaður vaxtaafsláttur er borgaður út í ár og er það í fyrsta og eina skiptið sem hann er borg- aður út. Áðilar á Norðurlandi eystra frá tæplega 48 milljónir í vaxtaafslátt og tæplega 19 millj- ónir eru greiddar til aðila á Norðurlandi vestra. Austfirðing- ar fá einnig tæplega 19 milljónir í vaxtaafslátt nú í ár. mþþ Hvert eigum við að fara um helgina? Mynd: TLV Gamlar flugvélar og há fargjöld - atvinnumálanefnd Egilsstaða vill afnema einkaleyfi Flugleiða Atvinnumálanefnd Egilsstaða hefur beint þeim tilmælum til bæjarstjórnar að fara þess á leit við samgönguráðuneytið að einkaleyfí Flugleiða á flug- leiðinni Egilsstaðir-Reykjavík- Egilsstaðir verði afnumið. Hvatinn að ákvörðun nefndar- innar voru ályktanir bæjar- stjórnar Akureyrar þess efnis að endurskoða bæri einkaleyfí Flugleiða og óánægja íbúa austanlands með há flugfar- gjöld. Einar Haraldsson, formaður atvinnumálanefndar Egilsstaða, Loöskinn hf. Sauðárkróki: Kaupir sútunan/élar Sláturfélags Suðurlands - þýðir 100% framleiðsluaukningu Loðskinn hf. á Sauðárkróki hefur keypt allar sútunarvélar Sláturfélags Suðurlands. Slát- urfélagið hefur hætt allri sútun og mun Loðskinn hf. taka við rekstri söltunar- og klippi- stöðvarinnar í Rangárvalla- sýslu. „Við erum mjög ánægðir með þennan samning og hann á eftir að tryggja stöðu okkar í framtíð- inni,“ sagði Þorbjörn Árnason framkvæmdastjóri Loðskinns í samtali við Dag eftir að kaupin voru gerð opinber. í máli Þor- björns kom fram að þetta þýðir um 100% aukningu á því gæru- magni sem verksmiðjan fær til sútunar. Ljóst er að Loðskinn hf. mun endurskipuleggja vinnslu- rásina á Sauðárkróki og ekki er ólíklegt að starfsfólki verði eitthvað fjölgað við þessa breyt- ingu. Loðskinn keypti vélarnar fyrir 40 milljónir króna og er greiðslan í formi skuldabréfs að upphæð 16 miljónir. Einnig eignast Slátur- félagið hlutabréf í Loðskinni hf. að nafnverði kr. 12 milljónir, sem metin eru á tvöföldu nafnverði. Sláturfélagið mun eiga um 17% hlutafjár í Loðskinni hf. eftir þessa breytingu. Sláturfélagið mun selja Loð- skinni hf. allar kindagærur sínar næstu 10 ár. Rekstur söltunar- og klippistöðvarinnar í Rangárvalla- sýslu skapar um 6 ný ársverk í sýslunni, til viðbótar þeim 4 ársverkum sem hafa verið við söltun Sláturfélagsins. Loðskinn hf. selur mest alla sína framleiðslu til Ítalíu og Skandinavíu og telur Þorbjörn Árnason framkvæmdastjóri að lítið vandamál verði að selja þetta aukna magn úr landi. AP sagði að sá munur væri á afstöðu íbúa á Egilsstöðum og Akureyri að þeir fyrrnefndu væru fyrst og fremst að kvarta yfir háu verðlagi og gamaldags flugvélum Flug- leiða en þeir síða iefndu kvört- uðu aðallega yfir þjónustunni. Fólki ofbyði að fargjald fram og til baka milli Egilsstaða og Reykja- víkur kostaði yfir tíu þúsund krónur. „Ef við gefum okkur að 50 þús- und manns færu hérna á milli þá eru þetta yfir 500 milljónir króna. Hvar veltur þetta fé í gegn? Hver fær aðstöðugjöldin og útsvörin og hverjir fá þorra launanna? Ég hef heyrt að gegnum Egilsstaðaflug- völl fari um 60 þúsund manns á ári,“ sagði Einar. Bæjarráð Egilstaða fjallar nú um þetta mál og safnar gögnum sem verða lögð fyrir bæjarstjórn. Einar benti á að Flugleiðir ættu stóran hluta í Flugfélagi Austur- lands og kæmi breytt skipulag flugmála vonandi fram í lægri far- gjöldum. „Ef menn geta flogið frá Keflavík til Kölnar og heim aftur fyrir 9 þúsund kr. þykir okkur dýrt að borga liðlega 10 þúsund kr. fyrir ferð til Reykja- víkur og aftur til baka,“ sagði Einar, og benti á að ef nýtt félag tæki reksturinn að sér kæmu e.t.v. nýrri flugvélar en 25 ára á flugleiðina, en það virtist vera regla hjá Flugleiðum að vél- ar í innanlandsflugi þyrftu að vera aldarfjórðungsgamlar. EHB Verslunarmannahelgin: Allt til- búið hjá FÍB Verslunarmannahelgin fer senn í hönd og þá munu þús- undir bifreiða streyma út á þjóðvegina. Að venju mun Félag íslenskra bifreiðaeig- enda sjá um vegaþjónustu, sem fara mun fram á svipaðan máta og á síðasta ári, en þá höfðu átt sér stað miklar breyt- ingar frá því sem áður var. Að sögn Jónasar Bjarnasonar framkvæmdastjóra FÍB, hafa þeir fækkað svokölluðum þjón-' ustubifreiðum mikið. „Árið 1985 vorum við með 22 bíla, 1986 18 og í fyrra fækkuðum við þeim niður í 6. Þeir verða sömuleiðis 6 í ár, en vegaþjónustan er venju- lega í gangi hjá okkur frá hvíta- sunnuhelginni fram yfir versiun- armannahelgina.“ Bifreiðirnar verða á ferðinni á þeim stöðum sem mest umferð verður, en auk þess er FÍB með samning við 74 bifreiðaverk- stæði, 44 dráttarbíla auk vörubíla um allt land. Á þessum stöðum njóta félagar í FÍB forgangs og fá þeir fría viðgerð fyrstu 1 Vi klukkustundina og frían drátt á bíl fyrstu 40 km. Jónas sagði, að í fyrstu hefði fólk haldið að með þessu væri verið að minnka þjónustu við félagsmenn en það væri langt í frá. „Það er ekki lengur þörf fyrir svona marga þjónustubíla. Bund- ið slitlag hefur aukist, bílafloti landsmanna yngst og batnað og hefur það sitt að segja,“ sagði Jónas að lokum. VG Hríseyjarferjan: Enn aukning í farþega- flutningum Straumur ferðamanna til Hrís- eyjar eykst stöðugt og hefur verið mikið að gera við far- þegaflutninga með Hríseyjar- ferjunni það sem af er sumri. Samkvæmt upplýsingum Harðar Snorrasonar skipstjóra ferjunnar nemur aukningin 6- 7% miðað við sama tíma í fyrra, sem þó var mjög gott ár. „Veðrið hefur geysilega mikið að segja og fyllist allt þegar sól er á lofti en um leið og veðrið versn- ar finnum við greinilegan mun,“ sagði Hörður. Það eru íslendingar sem eru í miklum meirihluta gesta sem sækja Hrísey heim. Mest ber á fjölskyldufólki í dagsferðum, en þó er töluvert um það að fólk gisti í eynni. Þá sagði Hörður að mikið væri að gera í maí þegar skólum lýkur. „Það er mjög vin- sælt af hópum að koma á þessum tíma og sama fólkið kemur ár eft- ir ár, alltaf jafn ánægt,“ sagði Hörður að lokum. VG

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.