Dagur - 13.08.1988, Blaðsíða 3
13. águst 1988 - DAGUR - 3
NORDISK FORUM
Um 800 íslenskar konur héldu
til Osló seinni partinn í júlí, en
þar var haldin kvennaráðstefn-
an Nordisk Forum. Ráðstefn-
unni lauk fyrir stuttu og við
íslenskur túlkur
hefði mátt
vera á staðmun
- segir Sigurlaug
Gunnarsdóttir
„Þetta var alveg æðislega
gaman,“ sagði Sigurlaug Gunn-
arsdóttir ein af þeim sem fóru á
ráðstefnuna frá Akureyri. Hún
sagði að hún hefði bæði verið
fróðleg og skemmtileg, dagskrár-
atriði fjölmörg og ráðstefnan í
heild mjög gagnleg.
Sigurlaug sagði ráðherrafund-
inn hafa verið sérlega góðan, en
ráðherrar frá Svíþjóð, Noregi,
Finnlandi, Færeyjum, Danmörku
og íslandi tóku þátt. Jóhanna
Sigurðardóttir félagsmálaráð-
Sigurlaug Gunnarsdóttir.
herra tók þátt í fundinum fyrir
íslands hönd og var Sigurlaug
ánægð með hennar framlag. „Ég
tók eftir því að það voru margar
konur sem voru að fara á ráð-
stefnu sem þessa í fyrsta skipti og
þær skildu ekki fullkomlega það
sem fram fór, þegar talað var á
spjölluðum við nokkrar konur
sem héldu utan, um það sem
eftirminnilegast var af ráð-
stefnunni, gagn hennar og
gaman.
Skandinavíumálunum. Það hefði
gjarnan mátt vera íslenskur túlk-
ur á staðnum,“ sagði Sigurlaug.
Hún sagði Jóhönnu Sigurðardótt-
ur hafa staðið sig með stakri
prýði hvað þetta varðar, en hún
hafði tilkynnt að hún myndi tala
íslensku og gerði það.
Sigurlaug nefndi meðal eftir-
minnilegra atriða sýningu
þroskaheftra frá Bjarkarási, „ég
myndi taka það atriði út úr, það
var mjög gott,“ sagði hún. Atrið-
ið kvað hún hafa verið mjög
áhrifamikið og vakti það mikla
athygli viðstaddra. Þá sagði hún
að atriði BSRB-kvenna hafi verið
skemmtilegt og fjörugt, en þær
voru með sýnin^u á vinnu og
starfi kvenna á Islandi. „Það er
óhætt að segja að atriði BSRB-
kvennanna vakti athygli, enda
vel framsett og skemmtilegt,“
sagði Sigurlaug.
Erindi sem haldin voru sagði
hún hafa verið gagnmerk og
nefndi sérstaklega erindi Anní
Larsson frá Sveinbjarnargerði í
Eyjafirði, en hún talaði um stöðu
íslenskra bændakvenna. „Þessi
ráðstefna sýndi svo ekki verður
um villst að það er mikil sam-
staða á meðal kvenna og þær geta
hæglega skipulagt stórar ráð-
stefnur sem þessa. Þarna var
saman kominn mikill fjöldi
kvenna og það var ánægjulegt að
sjá hversu samstaðan var mikil,“
sagði Sigurlaug að lokum. mþþ
Ferðin var
alveg stór-
kostleg
- spjallað við
Katrínu Ingvarsdóttur
Katrín Ingvarsdóttir fór á ráð-
stefnuna ásamt systur sinni,
Á þennan vegg skrifuðu konur sem þátt tóku í Nordisk Foruin ráðstefnunni nöfn sín. Veggurinn var við innganginn
í Akerhus, þar sem opnunarhátiðin fór fram. Á myndinni eru íslenskar konur að skrásetja sig.
Að lokinni vel heppnaðri ráðstefnu sýndu framsóknarkonur ýmiss konar handunnar vörur og kynntu íslensk mat-
væli. Framlag þeirra vakti mikla athygli, enda peysurnar sem konurnar klæðast á myndinni harla óvenjulegar.
sagði Katrín þegar við spjölluð-
um við hana eftir að heim var
komið. Katrín sagðist ekki áður
sjónvarpinu," sagði Katrín og
nefndi sem dæmi að lesbíur sem
mættar voru á svæðið á bleikri
rútu hefðu fengið áberandi mikla
umfjöllun, en aftur reglulega góð
og skemmtileg sýning BSRB-
kvenna um störf íslenskra
kvenna hefði litla umfjöllun
fengið.
Katrín sagði að þær systur
hefðu verið duglegar að ferðast,
„við vorum á ferð og flugi allan
tímann.“ Þegar þess var minnst
að 43 ár voru liðin frá því Banda-
ríkjamenn vörpuðu kjarnorku-
sprengju á Hiroshima var haldin
athöfn í Dómkirkjunni í Ósló,
þar sem kona predikaði. „Þetta
var eftirminnileg athöfn. Bekk-
irnir voru þéttsetnir konum, ung-
um og öldnum og sumar mættu
með kornabörn."
Varðandi jafnréttismálin sagði
Katrín að sér virtist sem staða
kvenna á Norðurlöndunum væri
svipuð, en þó hefði verið sláandi
að heyra hversu fá dagvistarrými
eru til staðar á íslandi. „Við
erum miklir eftirbátar hinna
Norðurlandanna hvað það mál
varðar,“ sagði hún. mþþ
hafa farið á ráðstefnu sem þessa,
„en ef ég ætti kost á að fara aftur
í slíka ferð myndi ég hiklaust
fara. Þó að ferðin hafi að mörgu
leyti verið erfið, þá stendur hitt
upp úr.“
Katrín sagðist ekki tala norsku
sjálf og því hefðu margir fyrir-
lestramir ekki nýst sér sem skyldi,
en hún hefði haldið þræðinum og
einkum þegar íslenskar konur
töluðu skandinavisku.
Meðal athyglisverðra erinda,
nefndi Katrín fyrirlestur Sigrúnar
Stefánsdóttur um konur og fjöl-
miðla. „Þetta var mjög athygl-
isvert erindi og Sigrún stóð sig
frábærlega vel,“ sagði hún. í
umræðum eftir fyrirlesturinn var
m.a. rætt um fréttamat og sagði
Katrín að fram hefði komið að
allt annað fréttamat virtist gilda í
norska sjónvarpinu, en því
íslenska. Málefnalegar fréttir frá
ráðstefnunni hefðu verið sendar
til íslands á hverjum degi, en
aftur í norska sjónvarpinu hefði
verið tekið á málum með öðrum
hætti. „Allt það sem fréttamönn-
um fannst á einhvern hátt hlægi-
legt var dregið fram og sýnt í
Borghildi. Hún sagði að þær
hefðu reynt að nýta tímann vel
og farið víða. Dagskráratriði
hefðu hins vegar verið svo mörg
að ekki hefði verið viðkomið að
sækja allt sem boðið var upp á.
„Ferðin var alveg stórkostleg,"
Katrín Ingvarsdóttir.
Fjölnýtikatlar
til kyndingar með
rafmagni, olíu eða
timbri, margar
gerðir.
Mjög góð hitanýt-
ing og möguleiki á
stýrikerfum, til að
fá jafnara hitastig.
C.T.C. Total er
öflugur nýr ketill
fyrir rafmagn, timb-
ur og olíu með inn-
byggðu álagsstýri-
kerfi,sem nýtir vel
rafmagnið fyrir þá
sem kaupa
árskílóvött.
LJOSGJAFINN HF.
GRÁNUFÉLAGSGÖTU 49 • SÍMl 23723 • 600 AKUREYRI
FYRIRTÆKISNÚMER 6148-9843