Dagur - 13.10.1988, Blaðsíða 7
undar hér á landi. Skíðamenn
eða fjallgöngumenn setja sendi-
díóðu í föt sín eða á skíðaklossa.
Við ætlum að koma díóðunum á
markað hér fyrir norðan því það
er auðvitað forsenda þess að
hægt sé að leita að mönnum að
þeir hafi hana á sér svo móttöku-
tækið geti fundið þá. Til umræðu
hefur komið að kaupa Recco-
leitartæki hingað á Eyjafjarðar-
svæðið. Það er dýrt, kostar um
hálfa milljón króna, og tii greina
kemur að nokkrir aðilar á svæð-
inu kaupi eitt tæki saman. Þó hef-
ur það ekki verið rætt nánar, t.d.
með tilliti til fjármögnunar.“
Áttavitar og skíðaferðir
- Mikil áhersla er lögð á með-
ferð áttavita á námskeiðum hjá
ykkur. Hvernig fer sú kennsla
fram?
Baldur: „Hún byggist á því að
kenna mönnum grundvallaratriði
áttavitans. í fyrstu fer kennslan
fram hér innanhúss en síðar er
en heildarfélagatala er á annað
hundrað. Þar er um að ræða eldri
félaga sem hafa dregið sig í hlé
nema hvað þeir koma til okkar ef
um sérstök verkefni er að ræða,
t.d. varðandi fjáröflun eða stór
almannavarnaútköll. “
- Hvernig er starfinu háttað
hjá þeim sem hafa lokið nýliða-
þjálfuninni?
„Starfsemin fer eftir einstakl-
ingunum sjálfum en þetta er
alger sjálfboðaliðsvinna sem þeir
inna af hendi. Félagsstarfið er
mikið, um er að ræða skemmti-
ferðir, æfingaferðir og vinnu að
fjáröflun sem hefur farið vaxandi
undanfarin ár. Síðan vil ég nefna
félagsheimilið að Galtalæk en
mikil vinna fer í að halda því við.
Umsjón með tækjum er líka mik-
il þannig að við höfum alltaf mik-
ið að gera og sjáum ekki út fyrir
verkefnin.'1
- En sjálft björgunarstarfið,
það veit auðvitað enginn hvenær
kallið kemur?
„Starf okkar byggist á æfinga-
þurfum að halda gangandi og það
kostar sitt.“
- Eru einhver stór verkefni á
döfinni hjá ykkur í vetur?
„Við þurfum sífellt að endur-
nýja tæki og búnað. Við erum að
kaupa nýjan bfl, t.d., en auk þess
þurfa minni tækin endurnýjunar
við. Fjarskiptatækin eru alltaf í
þróun og við þurfum að fylgjast
með henni. Eitt stærsta verkefnið
núna er að endurnýja og endur-
bæta félagsheimilið og komast
hjá því að það grotni niður. Hér
er alltaf nóg að gera fyrir vinnu-
fúsar hendur og ég hvet alla sem
hafa áhuga til að koma hér og
vinna. Það kemur strax í ljós
hvort menn hafa áhuga fyrir því
að starfa í björgunarsveit."
- Hver er tækjabúnaður sveit-
arinnar í dag?
„Við eru sæmilega útbúnir.
Við eigum tvo fjórhjóladrifsbíla,
tvo snjóbíla, fjóra vélsleða og
fleira í kringum það, kerrur og
vagna. Þá eigum við mikið af
skyndihjálpargögnum, teppum.
Recco-díóðurnar er hægt að festa á skíðaklossa eða bera í fötum. Þær eru mikilvægt hjálpartæki fyrir útilífsfólk og
auðvelda leit stórlega, t.d. úr þyrlu. Mynd: gb
farið út. Menn fikra sig áfram í
þessu. Svonefnt áttavitamaraþon
er viðamesti þátturinn í þessu.“
— Notið þið gönguskíði við
leitir?
„Já, við förum í gönguskíða-
ferðir, en ein slík ferð er á nýliða-
dagskránni. Hún er farin til að
ganga úr skugga um að nýliðar
hafi a.m.k. einu sinni farið á
gönguskíði því ekki hafa allir
prófað það sem hingað koma.“
- Hvaða búnað þurfa menn að
eiga til að teljast gjaldgengir í
sveitina?
„Það er e.t.v. misskilningur
hjá fólki að það þurfi að eiga ein-
hvern búnað til að geta byrjað
hérna. Það er ekki rétt. Hins veg-
ar þarf fólk að kaupa sér vetrar-
fatnað og gönguskíði eftir fyrsta
árið ef það á slíkt ekki fyrir, einn-
ig bakpoka og svefnpoka. En það
kostar ekkert að vera í sveitinni
sem slíkri."
Tryggvi Sveinbjörnsson, for-
maður, varð næstur fyrir svör-
um um starfsemina.
- Hvað eru margir í flugbjörg-
unarsveitinni?
„Virkir félagar eru um þrjátíu
ferðum á vetrum þannig að við
erum til taks hvenær sem er. Sem
betur fer hefur ekki verið mikið
um útköll undanfarin ár, þeim
hefur farið fækkandi. Hvað flug-
slys snertir þá er hægt að kalla til
þyrlur til leitar og neyðarsendar
vísa á staðinn. Það eru því ekki
sendir út fjölmennir leitarflokkar
í óvissuna heldur fer björgunar-
leiðangur beint á staðinn sem
neyðarsendirinn vísar á. Við
sinnum líka stundum verkefnum
eins og að bjarga fólki úr bílum í
ófærð o.fl.“
- Hlutverk sveitarinnar er þá
orðið breytt frá því sem var?
„Við sinnum öllum hjálpar-
beiðnum sem til okkar berast.
Þetta er fyrst og fremst þjónusta
við hinn almenna borgara."
Starfsemin kostar mikið fé
- Er ekki dýrt að reka sveitina?
„Jú, það kostar mikið fé. Fyrir
jólin förum við af stað með fjár-
öflun með ýmsu móti. Lands-
samtök björgunarsveita fóru af
stað með nýja fjáröflun fyrir
skömmu og það hefur létt á okk-
ur að nokkru leyti. En við erum
með stórt félagsheimili sem við
leitartækjum o.s.frv. þótt alltaf
sé hægt að gera betur."
Samkeppni eða samvinna?
- Hvernig er samstarfi Flugbjörg-
unarsveitarinnar við aðrar björg-
unarsveitir háttað?
„Það hefur verið vaxandi sam-
starf milli sveitanna og nú er
komin sérstök svæðisstjórn sem
er samræmingaraðili í leitum.
Hér er um að ræða Hjálparsveit
skáta, Flugbjörgunarsveitina og
Slysavarnafélagið. Þetta hefur
skapað meiri samvinnu. Þó er
alltaf einhver rígur á milli sveit-
anna og mér hefur ekki fundist
vera nægilega mikið samstarf
varðandi tækjakaup eða sam-
ræmingu á slíkum kaupum. Við
erum að berjast á sama fjáröfl-
unarmarkaði fyrir sömu tækjum
sem hægt væri að nýta og skipu-
legga miklu betur. Eg sakna þess
að hafa ekki meiri samvinnu en
hana þyrfti að auka á svæðinu.
Ég hef orðið fyrir vonbrigðum
með þetta. Samkeppni er oft til
góðs en stundum getur hún verið
til miska. Það er ekki nægileg
samvinna í þessum efnum."
EHB
Húselgn tfl sölu!
Eyrarvegur 21 sem er 4ra herbergja parhús
um 107 fm ásamt bílskúr er til sölu.
Nánari upplýsingar gefa Torfi í síma 21010
og Stefán í símum 21717 og 21818.
V_____________________I__________/
• Blaðaprentun
• Tímaritaprentim
• Tölvuprentun
• Allt smáprent
Vönduð vinna
Góð þjónusta
Dagsprent hf.
Strandgötu 31 • Akureyri • ‘53?' 24222
Nýkomið
glæsilegt úrval
af peysum
frá Favoriet og PQtTQVQ
Skyrtum frá
goLdress
Hálsbindum frá Jammer & Leufgen
og margt fieira
%
Smókingföt Kjólföt
Klæðskeraþjónusta
Verslið hjá fagmanni
ATH. Verslunin er opin á laugardögum frá kl. 10-12.