Dagur - 15.11.1988, Qupperneq 1
71. árgangur Akureyri, þriðjudagur 15. nóvember 1988 217. tölublað
Gránufélagsgötu 4
Akureyri - Sími 23599
s Húsavík:
Átök um byssu
- maður særðist á fæti
Maður á Húsavík særðist á fæti
aðfaranótt laugardags er skot
hljóp úr byssu er hann reyndi
að ná af drukknum syni sínum.
Lögreglan, sem kölluð hafði
verið á vettvang, náði byssunni
af unga manninum áður en
frekari slys hlutust af. Málið er
enn í rannsókn. Ekki er að
fullu ljóst hve alvarleg meiðsli
maðurinn hlaut en þau munu
ekki vera talin mjög alvarlegs
eðlis.
Lögregla var kölluð í hús eitt í
bænum aðfaranótt laugardagsins
vegna ungs manns sem var ofur-
ölvi og hafði átt í útistöðum við
föður sinn. Er lögreglan var kom-
in á vettvang hafði ungi maður-
inn náð í haglabyssu og hleypti
hann af skoti í gegnum hurð inni
í húsinu. Þá réðst faðirinn til inn-
göngu í herbergið til unga
mannsins og freistaði þess að ná
af honum byssunni og kom lög-
regla strax til aðstoðar. Til átaka
kom um byssuna og svo slysalega
vildi til að skot hljóp úr byssunni
og í fót föðurins. IM
Skíðalyftan á Siglufirði:
Höfða Samvinnu-
trygginga mál
- á hendur Viðlagasjóði?
„Ég trúi því varla ennþá að
viðlagatrygging hafi sagt nei,“
sagði Asgrímur Sigurbjörns-
son, umboðsinaður Samvinnu-
trygginga í Siglufirði, en for-
svarmenn Viðlagatryggingar
Islands neituðu fyrir skömmu
að greiða tjón að upphæð 3,7
milljónir króna sem varð á
skíðalyftu Siglfirðinga síðasta
vetur.
Eins og flestir muna skemmd-
ist skíðalyfta í Siglufirði vegna
snjóflóða síðastliðinn vetur.
Lyftan hefur verið brunatryggð
frá árinu 1984 hjá Samvinnu-
tryggingum en reglur um bruna-
tryggingar kveða á um að allar
brunatryggðar fasteignir skuli
jafnframt vera viðlagatryggðar.
Þar sem lyftan skemmdist ekki af
völdum bruna töldu samvinnu-
tryggingamenn að viðlagatrygg-
ingin myndi bæta skaðann. Nú er
ljóst að svo verður ekki og hefur
lögfræðingi Samvinnutrygginga,
Gunnari M. Guðmundssyni hrl.,
verið falið að sækja kröfuna á
hendur Viðlagasjóði íslands.
Ásgrímur Sigurbjörnsson sagði
að á næstu dögum yrði Ijóst
hvernig Samvinnutryggingar
myndu bregðast við gagnvart
bæjarfélaginu en eftir öllum sólar-
merkjum að dæma myndi trygg-
ingafélagið fara þá leið að kaupa
kröfuna á Viðlagasjóð af Siglu-
fjarðarbæ og innheimta hana
með málssókn ef þurfa þætti.
EHB
Kátur var ekki sérlega kátur þegar hann mætti til árlegrar hundahreinsunar sem fram fór í Gróðrarstöðinni á Akur-
eyri fyrir skömmu. Guðmundur Knudsen dýralæknir og cigandi hundsins Gísli Kristinsson eru hins vegar hinir kát-
ustu með dagsverkið. Mynd: Tt.v
Þrefait fleiri atviimuleysisdagar
Fjöldi atvinnuleysisdaga hér á
landi hefur þrefaldast á einu
ári, frá því í október á síðasta
ári og þar til ■ síðasta mánuði. I
október árið 1987 voru skráðir
4600 atvinnuleysisdagar á
landinu öllu á móti 15.300 í
sama mánuði í ár. Mikil
umskipti hafa því orðið á
vinnumarkaðinum á þessu ári.
Hafa ber í huga að í oktober á
síðasta ári var mikil þensla á
vinnumarkaðinum, en Ijóst er
að atvinnustigið í nýliðnum
oktobermánuði er Iakara en í
októbermánuði um árabil, seg-
ir í yfirliti um atvinnuástandið
sem Vinnumálaskrifstofa félags-
málaráðuneytisins hefur tekið
saman.
í síðasta mánuði voru skráðir
samtals 15.300 atvinnuleysisdag-
í síðasta mánuði miðað við október í fyrra
ar á landinu öllu, en það er aukn-
ing frá septembermánuði upp á
4200 daga, eða 37%. Þessi fjöldi
skráðra atvinnuleysisdaga jafn-
gildir því að 706 manns hafi að
meðaltali verið á atvinnuleysis-
skrá í október á móti 514 í sept-
ember.
Skráð atvinnuleysi nú svarar til
0,6% af áætluðum mannafla á
vinnumarkaðinum í mánuðinum
samkvæmt spá Þjóðhagsstofnun-
ar.
Skráðum atvinnuleysisdögum
fjölgaði í öllum landshlutum
nema á Austurlandi. Aukningin
var mest á Norðurlandi Eystra,
2200 dagar og á Suðurnesjum þar
sem skráðum atvinnuleysisdög-
um fjölgaði um 1000. Af einstöku
stöðum varð aukning skráðra
atvinnuleysisdaga mest í Ólafs-
firði um 1000 dagar, á Húsavík
Valur Arnþórsson:
„Mjög óhress með viimu-
brögð Fijálsrar verslunar‘
1 frétt í nýjasta tölublaði
Frjálsrar verslunar er fullyrt að
mjög þungt hljóð sé í Val Arn-
þórssyni, fráfarandi kaup-
félagsstjóra KFA, vegna
ákvörðunar stjórnarinnar um
eftirmann hans. í fréttinni er
sagt að Valur muni alltaf hafa
ætlað sér að ákveða eftirmann-
inn sjálfur og hafi ekki átt von
á að stjórn KEA kæmi í veg
fyrir það.
í samtali við Dag sagðist Valur
vera mjög óhress með vinnu-
brögð Frjálsrar verslunar í þessu
máli. „Þeir birta þarna slúður-
frétt. Þeim hefði verið í lófa lagið
að bera hana undir mig áður en
hún var prentuð og fá að vita
hver er sannleikurinn í málinu.
Það gera þeir ekki, heldur prenta
slúðrið beina leið og hleypa því
út á meðal almennings."
Að sögn Vals vildi hann ekki
hafa afskipti af því hver yrði hans
eftirmaður í stöðu kaupfélags-
stjóra hjá Kaupfélagi Eyfirðinga.
„Eg tel yfirleitt mjög óeðlilegt og
mjög óheppilegt að fráfarandi
menn ráði því hverjir verði þeirra
eftirmenn. Slíkir menn starfa að
sjálfsögðu á ábyrgð viðkomandi
stjórna og það eru því stjórnirnar
sem eiga að velja þá.“
Sjá „Frétt Frjálsrar verslunar
úr lausu lofti gripin“, bls. 2.
tæplega 900 dagar, þá voru
skráðir atvinnuleysisdagar um
600 í Reykjvík og um 500 í Kefla-
vík.
í síðasta mánuði bárust Vinnu-
málaskrifstofunni tilkynningar
frá fyritækum um uppsagnir á
milli 500-600 starfsmanna. Á síð-
ustu þremur mánuðum þar á
undan höfðu skrifstofunni borist
slíkar tilkynningar sem tóku til
um 1200 starfsmanna, eða sem
næst 1% af mannafla á vinnu-
markaði. mþþ
Sauðárkrókur:
Bflþjófiiaður og
mfldl ölvun um helgina
- ekið á rollu og tvö hross
Síðasta helgi var frekar anna-
söm hjá lögreglunni á Sauðár-
króki og mikið um ölvun. Til-
raun var gerð til bílþjófnaðar á
3 bflum og tókst sú tilraun á
fjórða bflnum, en bflþjófurinn
var eltur uppi af lögreglunni og
gripinn.
Það var aðfaranótt laugar-
dagsins sem bílaþjófurinn var á
stjái, lögreglan gat rakið slóð hans
og fyrir utan það að vera mikið
ölvaður var þjófurinn aðeins 16
ára að aldri. Hann var einn af
nemendum Fjölbrautaskóla
Suðurnesja, sem voru í heimsókn
um helgina og kepptu við kollega
sína í Fjölbrautaskólanum á
Sauðárkróki í hinum ýmsu grein-
um íþrótta. Að sögn lögreglunn-
ar þurfti hún að hafa mikil
afskipti af nokkrum Suðurnesja-
mönnum vegna ölvunar þeirra og
atferlis á almannafæri og sagði
hún að þetta væri ekki í fyrsta
skiptið þegar um skólaheimsókn-
ir er að ræða.
Eitthvað var um útafkeyrslur
bíla og ekið á girðingar vegna
mikillar hálku en aldrei var um
alvarleg tilfelli að ræða.
Sl. föstudagsmorgun var ekið á
rollu í Blönduhlíð og var hún
aflífuð á staðnum. Aðfaranótt
sunnudags var svo ekið á 2 hross
við bæinn Útvík, er bíl var ekið
inn í hóp af hrossum. Annað
hrossið var aflífað strax á staðn-
um og hitt skömmu seinna, en
það brotnaði mjög illa á fótum.
Að sögn Björns Mikaelssonar
yfirlögregluþjóns hefur lausa-
ganga hrossa og sauðfjár við vegi
verið mikið vandamál í Skaga-
firði og sagði Björn að þrátt fyrir
að mikið hafi verið brýnt fyrir
bændum að fjarlægja kvikfénað
frá vegunum, þá kæmu alltaf upp
óhöpp sem þessi. Spurning er
hvað langt þarf að ganga þar til
allir bændur fjarlægja fénað sinn
og hross frá vegunum. -bjb