Dagur - 15.11.1988, Side 7
8?í1!5: nóvember.1988^+'DAGUR 7
sögðu þær að á þessum vinnustað
tíðkaðist að karlmennirnir hituðu
kaffið, vöskuðu upp og skúruðu
gólfin og væri þetta hið ágætasta
fyrirkomulag. Sjö manns vinna
að jafnaði við síldarvinnsluna og
þessa dagstund voru Bára Her-
mannsdóttir, Sólveig Guðmunds-
dóttir og Helga Sigurgeirsdóttir
við vinnu. Þær létu allar vel af
síldarvinnslunni en voru spurðar
hvort þær hefðu upplifað hið eina
sanna síldarævintýri. Bára sagð-
ist hafði búið í Flatey á síldarár-
unum og unnið við fiskverkun en
ekki var söltuð síld í eyjunni.
Sólveig er svo ung að ekki þýðir
að spyrja hana um síldarárin en
Helga upplifði hina einu sönnu
síldarstemmningu og það meira
að segja á síldarplani á Raufar-
höfn. Hún saltaði tvö sumur hjá
Óðni á Raufarhöfn í sumarfíinu
sínu og auk þess saltaði hún á
plani á Húsavík. Nú hefur Helga
Guðmundur Aðalsteinsson pakkar.
Slappað af í kaffistofunni: Börkur, Bára, Helga og Guðmundur.
Þorsteinn Jónasson. Síldin komin í kassa og tilbúin til að senda á markað.
vandkvæði eru á þeim flutning-
um. Svo sé ég ekkert því til fyrir-
stöðu að hægt sé að stækka fyrir-
tækið og hefja útflutning, en í
fyrra voru flutt út um 30 tonn af
síld í sósum á vegunt Sölumið-
stöðvar lagmetis.“
- Hvaðan færðu hráefnið?
„Síldin kemur af bátum sem
landa hér og hún er fryst í
pönnur, en auðveldara er að
marinera síld sem búin er að
frjósa heldur en nýja síld.“
Nú var kominn kaffitími hjá
starfsfólkinu og því skroppið á
kaffistofuna til að ræða við síld-
arstúlkurnar sem voru að koma
sér fyrir með kaffi í könnum,
unnið við Kúttersíld í tvö ár en
segir aðspurð að ekkert sé líkt
með úrvinnslu á síldinni og
söltuninni fyrr á árum hvað
stemmningu og rómantík varðar.
„Þetta er allt öðru vísi,“ segir
Helga og líklega mun hin marg-
umrædda stemmning ekki vera
bundin við hráefnið, síld, heldur
söltun á síldarplani.
Kaffitími starfsfólksins er fljót-
ur að líða og það heldur aftur í
vinnslusalinn til að pakka ang-
andi síldarréttinum í bakkana.
Vinnustaðnum sínum eru þau
búin að lýsa á þessa leið: „Lítill
og þægilegur og hér ríkir góður
andi.“ IM
Frá samkomu á sal Barnaskóla Húsavíkur 2. nóv. er minnst var að 80 ár voru liðin frá því að gamla Barnaskólahúsið
var tekið í notkun.
Halldór Valdimarsson, skóla-
stjóri Barnaskóla Húsavíkur,
minntist þess við athöfn á sal
skólans þann 2. nóv. sl. að þá
voru 80 ár liðin frá vígslu
gamla barnaskólahússins á
Húsavík.
Árni Sigurbjarnarson skólastjóri tónlistarskólans lcikur á harmóniku ásanit
einuni nemenda sinna. Myndir: im
I ávarpi sínu sagði Halldór að
þetta væri merkur dagur í sögu
skólahalds á Húsavík. Frá 1908
til 1945 hefði allt skólahald á
Húsavík farið fram í liúsinu,
bæði kennsla barna og unglinga.
Unglingaskólinn hefði verið flutt-
ur úr húsinu 1945 en barnaskói-
inn hefði fengið núverandi hús-
næði 1960. Þá var gamla barna-
skólahúsið flutt af grunni sínum
við Borgarhól, á lóð við Stóra-
garð og hefur síðan þjónað sem
íbúðarhúsnæöi. Sagði Halldór að
á næstunni yrði einn liður náms-
ins að fjalla urn sögu skólahalds á
Húsavík, bæði yðri rætt um
skólahaldið og nemendur ynnu
að verkefnum sem því tengdust í
skólanum. Halldór sagði að ekki
væru nema rétt um 100 ár síðan
fyrst hefði verið um skólahald að
ræða á staðnum og það hefði tal-
ist til forréttinda að fá að læra,
t.d. lestur og skrift.
Halldór benti nemendum skól-
ans á að kynna sér fróðlega grein
eftir Sigurjón Jóhannesson, fyrr-
verandi skólastjóra, í greininni
væri m.a. sagt frá aðstöðu í
gamla barnaskólahúsinu fyrr á
árum og erfiðleika við kyndingu
þess, en komið hefði fyrir að
blekið hcfði frosið í kennslustof-
unum. Greinin birtist í Víkur-
blaðinu 3. nóv. sl. ásamt nokkr-
um gömlum myndurn setn gaman
er að skoða.
Að lokum fór Halldór nokkr-
um orðum um aðstöðumun nem-
enda í dag eða fyrr á árum, er
margir hefðu búið við fæði og
klæði af skornum skammti, slæmt
heilsufar, fátækt og erfiðleika,
benti hann á að í dag byggju
nemendur í hlýjunt og björtúm
húsum og flestir hefðu allt til alls.
Að ávarpinu loknu sungu nem-
endur tvo sálma en skólastjórarn-
ir, Halldór og Árni Sigurbjarnar-
son, skólastjóri Tónlistarskólans
léku undir á harmonikur. Einnig
lék Árni ásamt einum nemenda
sinna og nemendur sjötta bekkj-
ar skemmtu með söng og hljóð-
færaslætti.
í tilefni þessara tímamóta barst
skólanum íslenski fáninn að gjöf
frá Soroptimistaklúbbi Húsavík-
ur, er fáninn ætlaður til að setja
upp í sal skólans. IM
Sjöttubekkingar skemmta með söng og undirleik.
Barnaskóli Húsavíkur:
80 ár frá vígslu
gamla skólahússins