Dagur - 15.11.1988, Qupperneq 10
10 - DAGUR - 15. nóvember 1988
Jl íþróttir Jj
1. deild í blaki:
Létt hjá KA á móti Fram
- en stelpurnar töpuðu fyrir UBK
KA vann átakalítinn sigur 3:0 á
Fram í 1. deildinni í blaki á laugar-
daginn í íþróttahúsi Glerárskóla.
Strax á eftir töpuðu KA-stúlkurn-
ar 3:0 fyrir íslandsmeisturum
Breiðabliks.
Leikur KA og Fram mun ekki fara
á blakspjöld sögunnar sem áhrifa-
mikill kapítuli í sögu íþróttarinnar á
íslandi. Framararnir mættu rétt með
í lið og það var því meira formsatriði
en nokkuð annað aö ljúka leiknum.
Það var þó smá kraftur í þeim
fyrstu hrinunni og var þetta eina
hrinan sem gaman var að horfa á.
Eins og oft áður virkuðu KA-dreng-
irnir frekar slappir í byrjun, en tóku
sig þó á og sigruðu örugglega.
í annarri hrinunni fengu allir vara-
ntenn KA að spreyta sig og átti þá
Framliðið sér örlitla viðreisnar von.
En það þurfti ekki meira á slaka
gestina og voru úrslitin í þeirri hrinu
15:8 fyrir KA.
I þriðju hrinunni fór að gæta kæru-
leysis hjá KA mönnum og gengu þeir
bláklæddu á lagið. Hvað eftir annað
mistókust uppgjafir og einfalt upp-
spil hjá heimamönnum og allt í einu
var staðan orðin 11:2 fyrir Fram.
Nú leist Fei þjálfara ekki á blik-
una, hann spilaði reyndar ekkert í
leiknum, og skipti öllum lykil-
mönnunum inn á. Þeir tóku strax við
sér og náðu að jafna 14:14 og síðan
innbyrða sigurinn 17:16 á seinustu
stundu.
Framliðið er mun slakara en HSK
liðið, sem kom hér seinast í heim-
sókn. Það virtist miklu fremur sem
þeir væru komnir hér af skyldu en
ánægju og bar leikur þeirra þess
merki.
KA liðið verður ekki dæmt eftir
þessum leik, til þess var mótstaðan
of lítil. Varamennirnir fengu að
spreyta sig og er það af hinu góða.
Hætt er þó við því að þegar Þróttarar
koma um næstu helgin að róðurinn
verði erfiðari og verða þá allir að
leggja sig mun meira fram en í þess-
um leik.
Slakt hjá KA-stelpunum
gegn Breiðabliki
KA-stúlkurnar höfðu lítið í sterkt
Breiðabliksliðið að gera. Kópavogs-
stúlkurnar, sem töpuðu seinasta leik
í deildinni óvænt, ætluðu greinilega
ekki að falla í sömu gryfu aftur og
léku af miklum krafti.
Þær höfðu meira að segja kallað
Sigurborgu Gunnarsdóttur, Blak-
mann íslands árið 1987, til liðs við sig
aftur, en hún hefur lítið æft í vetur
vegna anna í skóla.
Hún er einn besti uppspilari í 1.
deildinni og lék hún samherja sína
oft snyrtilega uppi. Á sama tíma
gekk lítið upp hjá KA-stelpunum.
Uppgjafir misfórust, sendingar
heppnuðust ekki og smössin fóru í
netið.
Blikarnir unnu því fyrstu hrinuna
örugglega 15:4. KA klóraði í bakk-
ann í annarri hrinunni og náði að
skora 11 stig í þeirri hrinu. í seinustu
hrinunni gekk allt upp hjá Blikunum
og urðu því KA-stúlkurnar að sætta
sig við 3:0 tap enn eitt skiptið.
Bestan leik hjá KA áttu Karitas
Jónsdóttir og Hrefna Brynjólfsdótt-
ir.
Hjá Blikunum bar mest á Sigur-
borgu og Hildi Grétarsdóttur.
KA átti í litlum erfiðleikum með Fram í 1. deildinni í blaki
Guðmundur Jónsson sést hér skora úr horninu gegn Selfossi. Mymi: jóh
Sund:
HSÞ í 1. deild
- ásamt UMSK
HSÞ liði í sundi tryggði sér sæti í
1. deild í sundi á bikarmeistara-
mótinu í sundi sem haldið var í
Sundhöllinni í Hafnarfirði. Það
var lið UMSK sem sigraði í 2.
deild en HSÞ var í öðru sæti og
þessi tvö lið keppa því í 1. deild að
ári.
Liðin sem féllu úr 1. deild HSK og
UMFB höfðu skamma vidvöl í 2.
deild og féllu niður í 3. deild.
Úrsltin urðu þannig: Stig
1. UMSK 17.560
2. HSÞ 17.516
3. UMSB 16.505
4. Ármann 16.218
5. HSK 15.997
6. UMFB 14.313
Handknattleikur 2. deild:
Tvö töp hjá Þórsumm
fyrir sunnan um helgina
- fyrir ÍH 23:20 og 27:19 fyrir Selfossi
Karlalið Þórs í handknattleik, sem
leikur í 2. deild, hélt suður nú um
helgina og spilaði tvo leiki. Á
föstudagskvöldið spilaði liðið við
ÍH og tapaði naumlega 20:23. Á
laugardaginn voru Selfyssingar
andstæðingar þeirra og mættu
Þórsarar þar sterku liði og töpuðu
19:27.
Naumt gegn ÍH
Leikurinn gegn ÍH á föstudagskvöld-
ið var lengstum nokkuð jafn. Þór
byrjaði vel og komst í 3:0 en ÍH svar-
aði með fimm mörkum í röð. Sunn-
anmenn skoruðu þrjú mörk það sem
eftir var hálfleiks og leiddu í hálfleik,
8:6.
í seinni hálfleik hélt ÍH í horfinu
og munurinn var minnstur tvö mörk
á liðunum. Lokastaðan var 23:20
eins og áður sagði.
Mörk ÍH skoruöu Höröur Karlsson 5, Við-
ar Sigurðsson 4, Sigþór Jóhannsson 4, Ragnar
Guðlaugsson 1, Ásgeir Ólafsson 7 og Ólafur
Kristjánsson 2.
Mörk l’órs gerðu Sævar Árnason 7, Páll
Gíslason 8, Guðmundur Óli Jónsson 3, Sölvi
Ingólfsson 1 og Ingólfur Samúelsson 1.
Stórt tap á Selfossi
Selfoss náði strax undirtökum í
leiknum á laugardaginn. Fyrstu mín-
úturnar leiddu þeir með tveimur
mörkum, virtust ákveðnir í sókn og
léku fasta vörn. Snemma í hálfleikn-
um fengu þeir dæmd á sig þrjú víti í
röð og þar með komust Þórsarar yfir,
5:4.
Það sem eftir var hálfleiks var
Þórsliðið nánast að kljást við einn
mann, Einar Gunnar Sigurðsson,
sem skoraði 5 mörk í fyrri hálfleik.
Þetta er leikmaður sem örugglega á
eftir að láta mikið að sér kveða í
framtíðinni.
Þessi stórleikur Einars Gunnars
kom Selfyssingum á bragðið og þeir
höfðu yfir í hálfleik, 14:9.
í upphafi síðari hálfleiks voru Ein-
ar Gunnar og Erlingur Klemensson
ákveðnir við mark Þórs og skoruðu
grimmt. Þegar 10 mínútur voru liðn-
ar af hálfleiknum var staðan orðin
20:11 fyrir Selfoss.
Þórsarar komu meira inn í leikinn
eftir þetta en munurinn á markatöfl-
unni var of mikill til að Þórsarar gætu
unnið hann upp, enda við sterkt lið
að etja. Lokastaðan varð því 27:19
fyrir Selfoss.
Einar Gunnar Sigurðsson var best-
ur Selfyssinga og maður leiksins. Hjá
Þórsurum áttu þeir Gunnar Gunn-
arsson og Guðmundur Óli ágætan
leik. Einnig var Páll Gíslason sterkur
og öryggið uppmálað í vítaskotum.
Mörk Selfoss skoruðu: Einar Gunnar Sig-
urðsson 9, Erlingur Klemensson 5, Smári
Stefánsson 4, Sigurður Þórðarson 3, Sverrir
Einarsson 2, Grímur Hergeirsson 3, Magnús
Sigurðsson 1.
Mörk Þórs skoruðu: Páll Gíslason 7, Gunn-
ar Gunnarsson 3, Hörður Harðarson 2, Krist-
inn Hreinsson 2, Guðmundur Óli Jónsson 2,
Aðalbjörn Svanlaugsson 1, Atli M. Rúnars-
son 1, Sævar Árnason 1. JÓH
Hópurinn sem er i Austurríki efri röð: Helmut Maicr þjálfari, Egill I. Björnsson, Haukur Arnórsson, Valdimar Valdimars-
son, Vilhelm Kristinsson, Jóhannes Baldursson og Arnór Gunnarsson. Fremri röð: Jón Ingvi Árnason, Kristinn Björnsson,
Þórdís Hjörleifsdóttir, Anna María Malmquist, Guðrún H. Kristjánsdóttir og Kristinn Svanbergsson.