Dagur - 24.01.1989, Qupperneq 1
72. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 24. janúar 1989
16. tölublað
miJW
\
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599
Sigurður Þorvaldsson frá Sleitustöðum:
Varð 105 ára í gær
- elsti núlifandi íslendingurinn
Elsti núlifandi íslendingur,
Sigurður Þorvaldsson frá
Sleitustöðum, varð 105 ára í
gær, 23. janúar. Sigurður
dvelst á Hjúkrunar- og dvalar-
heimili aldraða á Sauðárkróki
og hefur verið þar sl. 5 ár.
Hann er nokkuð hress, miðað
við háan aldur, að vísu ekki
göngufær en sest daglega í
hjólastólinn sinn og lét enga
undantekningu verða á því í
gær, á 105. afmælisdeginum
sínum. Vinir og vandamenn
héldu honum veislu og var
glatt á hjalla.
Sigurður fæddist 1884 á Mið-
húsum í Mýrarsýslu en ólst upp í
Álftártungukoti í sömu sveit.
Hann tók kennarapróf í Flens-
borgarskóla í Hafnarfirði og
kenndi eftir það á Hvítárbakka í
Enn vantar snjo
í Hlíðarfjall
Þrátt fyrir ofankomu um helg-
ina og fagrar bænir, hefur enn
ekki sett niður nægan snjó í
Hlíðarfjalli þannig að hægt sé
að renna sér þar á skíðum.
ívar Sigmundsson forstöðu-
maður Skíðastaða sagði í samtali
við Dag í gær, að enn þyrfti um
30 cm af snjó í viðbót, en þeir
þurftu frá að hverfa í gær þegar
fara átti af stað með troðara.
Skíðamenn verða því að bíða
enn um sinn, en ívar lofaði því,
að um leið og færi gæfist yrði
opnað í Fjallið. VG
Borgarfirði í tvo vetur, 1905-06.
Þaðan lá leiðin til Danmerkur
þar sem Sigurður menntaðist enn
frekar í kennaranáminu og var
hann þar í 3 ár. Er til íslands
kom, 1910, gerðist Sigurður
kennari á ísafirði og kenndi þar
til 1916. Árið 1914 keypti Sigurð-
ur jörðina Sleitustaði í Hóla-
hreppi í Skagafirði og með
kennslunni á veturna sinnti hann
búskapnum á sumrin. Hrepps-
stjóri Hólahrepps var Sigurður til
fjölda ára.
Árið 1910 kvæntist Sigurður
Guðrúnu Sigurðardóttur frá
Víðivöllum og eignuðust þau 12
börn, 8 komust á fullorðinsár og
eru 6 þeirra á lífi í dag. Guðrún
dó 1969. Sigurður brá búi á
Sleitustöðum í kringum 1965 en
bjó þar ætíð þar til hann fór alfar-
inn á Dvalarheimilið 1983. -bjb
„Rauða ljósið“ iogaði glatt í Alþýðuhúsinu á Akureyri sl. sunnudag á fundi formanna A-flokkanna, Jóns Baldvins
Hannibalssonar og Ólafs Ragnars Grímssonar. Fundarstjórar voru þeir Heimir Ingimarsson, til vinstri og Hreinn
Pálsson. Myníl: GB
Jón Baldvin utanríkisráðherra, „á rauðu ljósi“ í Alþýðuhúsinu á Akureyri:
ÚtUokar ekkí aö ríkisstjómin
grípi inn í komandi kjarasamninga
- „menn eiga að ná jöfnuði í kjarasamningunum,“ segir Ólafur Ragnar
„Er ekki kominn tími til að við
förum að ræða í alvöru hvað
það er sem sundrar okkur eða
sameinar okkur? Hvernig vilj-
um við að þjóðfélagið þróist
þegar kemur fram á næstu
öld?“ spurði Jón Baldvin
Hannibalsson, utanríkisráð-
herra og formaður Alþýðu-
flokksins, fundargesti á fundi
hans og Olafs Ragnars Gríms-
sonar, fjármálaráðherra og
formanns Alþýðubandalags-
ins, á rauðu Ijósi í Alþýðuhús-
inu á Akureyri sl. sunnudag.
Fundurinn var fjörlegur en
jafnframt þótti hann sá málefna-
legasti til þessa í fundayfirreið
þeirra félaga. Víða var komið
við, allt frá pólitískri söguskoðun
í víðu samhengi og til framtíðar-
Helgidagalöggjöfm brotin:
Kirkjan á grænu ljósi
en ráðherrar á rauðu
„Ég tek það fram að þessir
ágætu menn ætluðu ekki að
vanvirða kirkjuna,“ sagði sr.
Þórhallur Höskuldsson, sókn-
arprestur á Akureyri, en eins
og kunnugt er vöktu prestarnir
í Akureyrarsókn athygli á því
með útvarpsauglýsingu á
sunnudag að opinber fundur
þeirra Jóns Baldvins Hannibals-
sonar og Ólafs Ragnars Gríms-
sonar var haldinn á friðhelgum
tíma þjóðkirkjunnar.
Samkvæmt lögum um friðhelgi
helgidaga frá 1926 er tíminn frá
kl. 11.00 til 15.00 friðhelgur og er
bannað að halda opinbera fundi
eða skemmtanir á þeim tíma. Sr.
Norðurleið felldi niður ferð í gær:
í þriðja skiptið á átta árum
Norðurleið hf. felldi niður
áætlunarferð sína milli Akur-
eyrar og Reykjavíkur í gær
vegna veðurs og færðar. Frá
því fyrirtækið hóf daglegan
akstur milli þessara staða árið
1981 hefur aðeins tvisvar þurft
að fella ferð algerlega niður.
Að sögn Þorsteins Kolbeins
hjá Norðurleið hf. þótti ekki ráð-
legt að senda áætlunarbílana af
stað í gærmorgun þar sem útlit
var fyrir vonskuveður. Auk held-
ur höfðu áætlunarbílarnir í fyrra-
dag lent í mestu erfiðleikum á
þessari leið.
Bíllinn sem fór úr Reykjavík á
sunnudagsmorgun komst við ill-
an leik í Hreðavatnsskála og
sneri þar við. Til Reykjavíkur var
hann ekki kominn fyrr en á
þriðja tímanum aðfaranótt
mánudags. Bíllinn sem lagði af
stað frá Akureyri á sunnudags-
morgun lenti í hrakningum þegar
hann var kominn í Fornahvamm
og sóttist ferðin seint eftir það.
Til Reykjavíkur var hann kom-
inn um fjögurleytið aðfaranótt
mánudags. jóH
Þórhallur benti aðstandendum
fundarins góðfúslega á að verið
væri að brjóta helgidagalöggjöf-
ina með fundarhöldum á þessum
tíma, en hér væri um lög að ræða
sem Alþingi hefði sett, ekki þjóð-
kirkjan. Þeir sem að fundinum
stóðu, þ.m.t. annar ráðherrann,
tjáðu honum að þeim þætti miður
að geta ekki breytt tímasetningu
fundarins og frestað henni til
kl. 15.00.
Sr. Pálmi Matthíasson, sóknar-
prestur í Glerársókn, sagði að
hann hefði haft samband við
Ámunda Ámundason, skipu-
leggjanda fundaherferðarinnar,
fyrir tveimur vikum og bent hon-
um á að opinber fundarhöld á
þessum tíma brytu í bága við lög.
Ámundi tjáði Pálma að þrátt fyr-
ir að búið væri að útbúa auglýs-
ingar vegna fundanna yrði unnið
að því að breyta tímasetning-
unni. Það dæmi hefði þó greini-
lega ekki gengið upp og því fór
sem fór. EHB
drauma íslenskra jafnaðarmanna.
Ríkisstjórnarsamstarfið fékk sinn
skerf og Jón Baldvin gerði upp
við fyrrum samstarfsmenn sína í
Sjálfstæðisflokknum með miður
fallegum orðum.
Formennirnir svöruðu fyrir-
spurnum fundarmanna. Meðal
annars voru þeir spurðir út í
kjaramálin og hvernig ríkis-
stjórnin myndi standa að kom-
andi kjarasamningum. Fjármála-
ráðherra sagðist fastlega gera ráð
fyrir erfiðum kjarasamningum.
„í þeim mun blasa við þessi stóra
spurning: Vilja menn stuðla að
því að efnhagsstjórnunin takist?
Vilja menn stuðla að því að við
náum hér stöðugleika í verðlagi
og drögum úr skuldum eða ætla
menn að sprengja þetta í loft
upp. Ég hef sagt að í þessum
kjarasamningum eigi menn að
reyna að ná jöfnuði,“ sagði Ólaf-
ur Ragnar.
Jón Baldvin tók undir þessi orð
fjármálaráðherra og sagði það
mikilvægt að ekki verði „koll-
steypa í kjaramálum" á þessu ári
því stefnt sé að því að „sigla út
þetta ár í stöðugleika." Utanrík-
isráðherra útilokaði ekki að ríkis-
stjórnin kunni áð grípa inn í
komandi kjarasamninga. Orðrétt
sagði hann: „Það getur vel verið.
Ef hér verður upplausn og vit-
leysa í kjaramálum, sem þýddi
það að hér eigi að sprengja upp
launastig í landinu, upp fyrir allt
sem skynsamlegt getur talist, upp
fyrir okkar greiðslugetu, þá ætla
ég ekki að lýsa því yfir fyrirfram
að það korni ekki til greina að
ríkisstjórn hlutist til um kjara-
samninga.“ óþh
Sjá nánar á bls. 6 og 11.