Dagur - 28.04.1989, Side 6

Dagur - 28.04.1989, Side 6
'■ eSöfcÖtöR ^WsíaaigB? 26&8^Hlsfófe9 FUNDARBOÐ Akureyrardeild S.Í.B.S. heldur fund á Hótel KEA sunnudaginn 30. apríl n.k. kl. 14.00 Fundarefni: Oddur Ólafsson formaöur S.Í.B.S. flytur ávarp. Erindi flytja eftirtaldir læknar: Davíö Gíslason ofnæmissérfræöingur: Um ofnæmi og asma. Friörik Yngvason lungnasérfræöingur: Um súrefnismeðferð. Jón Þór Sverrisson hjartasérfræðingur: Endurhæfing hjartasjúklinga. Fyrirspurnir að ioknum erindum. Allir, sem hafa verið eða eru haldnir brjósthois- sjúkdómum eru hvattir til að mæta á fundinn. Við sjáum vel um bílinn þinn Allar tegundir bíla velkomnar Viðgerðir Réttingar ★ Sprautun ★ Blettun ★ Lakkskýrun ★ Motorstillingar ★ Eftirlit ★ Sumarskoðun ★ Bíla-þvottur ★ Sætahreinsun ★ Teppahreinsun ★ Bónþjónusta ★ Hjólbarðasala ★ Hjólharðaþjónusta Sækjum - Sendum. Möldursf. Laugardagskvöldið 29. apríl Dansleikur Hin frábæra hljómsveit Ingimars Eydal leikur fyrir dansi Húsið opnar fyrir aðra en matargesti kl. 23.00. Ver/'ð velkomin Vegna forfalla eru til örfá borÖ laus fyrir matargesti. Borðapantanir í síma 22200 Sjálfsbjörg í Reykjavík: Flytur í nýtt hús- næði innan skannns Á fjölmennum aðalfundi Sjálfs- bjargar, félags fatlaðra í Reykja- vík og nágrenni þann 30. mars urðu nokkur umskipti í stjórn félagsins. Hana sitja nú: Ragnar Gunnar Þórhallsson form., Sig- urður Björnsson varaform., Jón H. Sigurðsson gjaldkeri, Ruth Pálsdóttir ritari og Hildur Jóns- dóttir vararitari. Til stendur að félagið flytji í nýtt húsnæði, sem nú er í byggingu að Hátúni 12, Reykjavík. Par verður hin besta aðstaða fyrir skrifstofur og glæsi- legur samkomusalur, hvoru tveggja sérstaklega byggt með aðgengi fatlaðra í huga. Sjálfs- björg treystir á góðar undirtektir almennings við fjáraflanir félags- ins á árinu eins og svo oft áður. Stjórn Sjálfsbjargar fagnar góðum árangri Lionshreyfingar- innar í landssöfnuninni „Léttum þeim lífið“ með sölu á rauðu fjöðrinni. Rétt fjölfatlaðra ein- staklinga til að búa á eigin heimiii með þeirri þjónustu sem nauð- synleg er teljum við ótvíræðan. Við lýsum yfir ánægju okkar með byggingu vistheimilis fyrir fjöl- Ný stjórn Sjálfsbjargar í Reykjavík, sem kjörin var á aðalfundinum. Fremri röð, talið frá vinstri: Jón H. Sigurðsson, Sigurður Björnsson. Aftari röð, talið frá vinstri: Ruth Pálsdóttir, Ragnar Gunnar Þór- hallsson, Hildur Jónsdóttir. fatlaða að Reykjalundi. Stefna Sjálfsbjargar í hús- næðismálum kemur fram í stefnuskrá samtakanna. Kjarni þeirrar stefnu felst í hugtakinu „blöndun". Með blöndun er átt við að fatlaðir eigi heima innan um ófatlaða. Til þess að þetta megi takast verður að uppfylla ákveðnar kröfur: Húsnæði verð- ur að vera aðgengilegt öllum. Skipulag þarf að vera í lagi. Nægileg þjónusta þarf að vera fyrir hendi. Sjálfsákvörðunarrétt- ur og sjálfstæði einstaklingsins verður að sitja í fyrirrúmi. Heimaþjónustu þarf ekki síst að efla svo þessu markmiði verði náð. Þá lýsir stjórn félagsins yfir stuðningi sínum við samstarf og fyrirhugað átak S.E.M., Samtaka endurhæfðra mænuskaddaðra og Áhugahóps um bætta umferðar- menningu. Kynning á afleiðing- um umferðarslysa og viðhorfum þeirra, sem hafa fatlast af völdum slysa, teljum við mikilvægan þátt í því að bæta umferðarmenning- una og breyta hugarfari og hug- myndum almennings þannig að fatlað fólk verði metið til jafns á við aðra þegna þjóðfélagsins. Fréttatilkynning frá unglingaráði Hestamannafélagsins Léttis: Mjög öflugt starf framundan Unglingaráð var stofnað á vegum Hestamannafélagsins Léttis á aðalfundi félagsins í febrúar sl. Unglingaráði er ætlað að hafa yfirumsjón með unglingastarfi á vegum félagsins svo og öðru sem því tengist t.d. að hafa samstarf við Æskulýðsráð Akureyrar varðandi reiðskólann sem Æsku- lýðsráð og Léttir reka í samein- ingu. Allir krakkar sem hafa áhuga á hestum geta tekið þátt í almcnnu unglingastarfi á vegunt Léttis, s.s. reiðtúrum og námskeiðum. Þau þurfa hins vegar að vera félagsbundin til að taka þátt í almennum mótum og keppni. Aðeins eitt skilyrði er sett og það er að allir krakkar beri öryggis- hjálm þegar þau eru á hestbaki. Á döfinni er að hafa eitthvað fyrir alla krakka. Áhugamálin eru mismunandi þótt áhuginn á hestum sé fyrir hendi lijá öllum. Mót og sýningar eru fyrir þau sem vilja keppa, námskeið fyrir þau sem vilja verða betri reið- menn og útreiðartúrar eru fastur liður flesta mánudaga. Átta krakkar hafa verið valin til að taka þátt í sýningu í Reið- höllinni 5.-7. maí n.k. og eru þau nú á fullu að undirbúa skemmti- lega sýningu. Þeim sem ekki komust í þann hóp gefst þó kost- ur á að komast í Reiðhöllina og horfa á, því ákveðið hefur verið að ef næg þátttaka fæst verði far- in hópferð með rútu til Reykja- víkur þessa sömu helgi. Farið verður síðdegis á föstudag og komið heim á sunnudagskvöld. Gist verður í skóla. Rútuna þarf að panta með nokkrum fyrirvara og þess vegna þarf að tilkynna um þátttöku sem allra fyrst til Kristínar í síma 26670. Þátttak- endur þurfa sjálf að greiða ein- hvern hluta kostnaðar vegna þessarar ferðar. Laugardaginn 29. apríl verður firmakeppni á Breiðholtsvelli. Þar verður m.a. keppt í unglinga- flokki. Firmakeppni er mjög skemmtileg keppni fyrir alla. Vikuna 8.-12. maí er gert ráð fyrir að halda námskeið í hesta- íþróttum fyrir þá krakka sem vilja keppa á íþróttamótum. Því námskeiði lýkur með íþróttamóti um hvítasunnuhelgina. Laugar- daginn 20. maí verður kattaslag- ur á vegum íþróttadeildar Léttis. Vikuna 22.-26. maí verður almennt reiðnámskeið fyrir alla krakkaflokka, bæði byrjendur og framhalds. Þessu námskeiði lýk- ur með því að haldið verður (í fyrsta skipti) sérstakt mót barna fyrir krakka og unglinga, þá eink- um fyrir þau sem tóku þátt í nám- skeiðinu. í byrjun júní verður svo enn Út er komið annað tölublað af Efnahagsumræðunni, hagfræði- riti sem fjallar um efnahagsmál líðandi stundar. Að þessu sinni er fjallað um annars vegar heil- brigðisþjónustu hins opinbera, og hins vegar um húsbréfakerfið og þeirri spurningu varpað fram, hvort húsbréf séu peningar. Þá er reynt að meta efnahagsleg áhrif húsbréfanna, og eru helstu niður- stöður þess eftirfarandi: 1. Húsbréfin hafa flesta eigin- leika peninga. Þau eru ríkis- tryggð, hafa mikla innbyrðis sam- svörun, hafa þekkt verðgildi og ljúka víðskiptum. Þau hafa því alla burði til þess að verða pen- ingar í hagkerfinu. Útgáfa þeirra getur því magnað verðbólguna ef ekki er rétt að málum staðið. Þá geta þau fengið víðtækara gjald- miðilshlutverk en á fasteigna- markaðnum. 2. Sparnaðarheigðin í þjóð- félaginu setur húsbréfakerfinu óhjákvæmilega skorður, því ekki er hægt að gefa út fleiri húsbréf en sparnaðareftirspurn bréfanna gefur tilefni til, nema það hafi eitt námskeiðið, í þetta skipti á vegum fræðslunefndar Léttis. Þá kemur kennari úr Reykjavík, Trausti Þór Guðmundsson og leiðbeinir bæði fullorðnum og þeim krökkum sem lengst eru komin á keppnisferlinum. í unglingaráði eru: Benedikt Sigurðarson sími 24661, Guðrún Hallgrímsdóttir sími 23862, Kristín Jósteinsdóttir sími 26670, Hugrún ívarsdóttir sími 24339 og Haukur Sigfússon sími 22969 og þau veita allar nánari upplýsing- ar. áhrif á raunvirði þeirra til lækk- unar. Áhrifin eru að færri lán verða afgreidd en áður, en gert er ráð fyrir hærra lánsfj árhlutfalli til fasteignakaupenda en í núver- andi kerfi. 3. Ef um offramboð húsbréfa verður að ræða hefur það víðtæk áhrif á vaxtastigið í þjóðfélaginu. Sömuleiðis hefur það mjög verð- bólguhvetjandi áhrif, bæði almennt og á fasteignamarkað- inn. 4. Tilkoma húsbréfakerfisins mun skerða verulega getu Seðla- bankans til að sinna því hlutverki í hagkerfinu sem honum er ætlað, þ.e. að stjórna peninga- magni hagkerfisins og að vinna að stöðugu verðgildi krónunnar. 5. Fullyrðingar um að húsbréfa- kerfið muni bæði auka innri fjár- mögnun á fasteignamarkaðnum og lækka útborgunarhlutfallið eru á misskilningi byggðar. Af ofangreindu má ráða að fátt bendir til þess að hið nýja hús- næðiskerfi, eins og það er útfært, muni leysa hið gamla (með viss- um lagfæringum) af hólmi sem be.tra kerfi, nema síður sé. Út er komið annað tölublað af Efnahagsumræðunni: Fjallar um efnahags- mál líðandi stundar

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.