Dagur - 31.08.1989, Síða 3

Dagur - 31.08.1989, Síða 3
Fimmtudagur 31. ágúst 1989 - DAGUR - 3 frétfir Þorvaldur Jóhannsson, bæjarstjóri á Seyðisfirði: Viljum virkja Fjarðará Samkvæmt frumhönnun sem Rafmagnsveitur ríkisins hafa látið gera er bygging 20 mega- watta virkjunar við Fjarðará mjög hagkvæm. Rafveitustjóri ríkisins og rafveitustjórinn á Austurlandi hafa haldið fund með Bæjarstjórn Seyðisfjarðar og Bæjarstjórn Egilsstaða þar sem frumhönnun virkjunarinn- ar var kynnt. Ákveðið hefur verið að skipa samvinnunefnd bæjarfélaganna tveggja og Rafmagnsveitna ríkisins um að skoða málið áfram og vinna að því að afla haldbærra og góðra gagna sem liggi fyrir er virkjun Fjarðarár getur orðið að veru- leika. Landsvirkjun hefur einkarétt á að byggja virkjanir sem eru yfir 5 megawött að stærð svo lagabreytingu þarf til að bæjarfélögunum og raf- magnsveitunum verði heimilað að virkja Fjarðará. Á aukafundi í Bæjarstjórn Egilsstaða nú í vikunni var ákveðið að ganga til samstarfs við Bæjarstjórn Seyðisfjarðar og Rafmagnsveitur ríkisins um Nýbygging Niðursuðuverksmiðju K. Jónssonar & Co: Munaði engu að bygginganefnd léti stöðva framkvæmdimar - framkvæmdaáætlun vegna brunatæknilegrar hönnunar skilað á elleftu stundu Bygginganefnd Akureyrar samþykkti á fundi sínum 23. ágúst að láta stöðva bygginga- framkvæmdir við nýjasta verk- smiðjuhús Niðursuðu K. Jóns- sonar & Co hf. á Oddeyri, bærist framkvæmdaáætlun vegna brunatæknilegrar hönnunar við verksmiðjuna ekki innan viku. Ástæðan var sú að slík framkvæmdaáætlun var ekki til, en byggingafram- kvæmdir þó talsvert á veg komnar. Embætti byggingafulltrúa á Akureyri barst síðdcgis á mánu- dag bréf frá forráðamönnum fyrirtækisins, þar sem umrædd framkvænidaáætlun var lögð fyrir, miðað við að verkið taki þrjú ár og viðkomandi teikning- um verði skilað til bygginga- nefndar bæjarins eftir því sem þær verða tilbúnar. Bréfið barst á síðustu stundu, svo ekki þyrfti að koma til stöðvunar uppsteypu við hús númer 13 á lóð fyrirtækisins. Gísli Kr. Lórenzson, vara- slökkviliðsstjóri, gegnir stöðu slökkviliðsstjóra um þessar mundir. Hann upplýsti að allt frá árinu 1977 hefðu K. Jónssyni reglulega verið send bréf með athugasemdum vegna bruna- varna, alls tólf sinnum. Ekkert róttækt hefði verið gert í málun- um þar til í maí í vor, að bygg- inganefnd samþykkti að halda mætti áfram uppsteypu húss núnier 13 að hluta, með því skil- yrði að unnið yrði að gerð fram- kvæmdaáætlunar. Frestur var gefinn til 5. júní, en þá átti í síðasta lagi að liggja fyrir staðfesting þess að unnið yrði samkvæmt viðurkenndri hönnun á sviði brunavarna. Það dróst þó að staðfestingin bærisl. Gísli Kr. Lórenzson sagði að hann hefði, ásamt staðgengli byggingafulltrúa, lagt fram bók- un þess efnis að stöðva ætti allar framkvæmdir við húsið, bærist framkvæmdaáætlun ekki í síðasta lagi 29. ágúst. Bygginganefndin tók samhljóða undir bókunina. Áætlunin barst síðan á elleftu stundu, miðað við þennan síðasta frest. Jón, Jón og Ámi boða til funda Jón Baldvin Hnnnihalsson, ntanríkisráðherra, og alþingis- mennirnir Árni Gunnarsson og Jón Sæmundur Sigurjónsson verða með opna stjórnmála- fundi á Norðurlandi um næstu helgi. Á föstudag verða þeir félagar með fund á Hótel Höfn á Siglu- firði og hefst hann kl. 21. Á sunnudag halda þeir tvo fundi, þann fyrri á Sauðárkróki kl. 14 í Safnahúsinu og um kvöldið, kl. 20.30 í Alþýðuhúsinu á Akur- eyri. Til stóð að halda fund á Húsavík á laugardag en honum hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Fundarboðendur hvetja alla, hvar í flokki sem þeir standa, að mæta á fundina og láta sitt álit á þjóðmálum í ljós. óþh Jón Baldvin Hannibalsson. „Lög og reglugerðir um bruna- varnir eru oft brotin og menn vilja, því miður, gjarnan láta þessi mál sitja á hakanum. Á Akuieyri erum við með alltof mörg dæmi um að ráðist hafi ver- ið í byggingaframkvæmdir, án þess að nægilega hafi verið hugs- að fyrir brunavörnum. Þetta cr rangur hugsunarháttur, því svo að segja undantekingarlaust er dýrara að breyta hlutunum eftirá en að skipuleggja byggingarnar rétt í upphafi. Eg bendi einnig á að dæmið um K. Jónsson er ekkkert einsdæmi hér í bænum,“ sagði Gísli Kr. Lórenzson. EHB virkjun Fjarðarár. Fyrst þarf að afla nauðsynlegra heimilda til framkvæmdanna. Á næsta fundi bæjarstjórnar veröa valdir aðilar í samstarfsnefndina. „Við viljum fá að virkja Fjarð- ará," sagði Þorvaldur Jóhanns- son, bæjarstjóri á Seyðisfirði, aðspurður um fyrirhugaðar virkj- u n a rf ra m k væmd i r. Þor va ld ur sagöi að ekki léki nokkur vafi á að hagkvæmt væri fyrir Austfirð- inga að fara í þessa virkjun. Marga þætti þyrfti að skoða og þetta gæti ráðist af hvar yrði fariö út í stóriðju og hvernig virkjun- um yrði raðað niður. Fljótsdals- virkjun væru menn farnir að Þorvaldur Jóhannsson, bæjarstjóri. skoða aftur af fullum krafti og þar væri um mjög spennandi val- kost að ræða. sérstaklega með til- liti til þess að reynsla af gret'tri ganga þar mundi flýta verulega fyrir jarðgangagerð á íslandi. IM Athugasemd frá formanni HSP: Rantft mál hiá Páima Miðvikudaginn 23. ágúst sl. birtist frétt í Degi mn lokun grasvallarins á Húsavík fyrir Bikarkeppni 11SI> í knatt- spyrnu 12 ára og yngri. Þar er in.a. haft eftir Pálma Pálnia- syni íþróttafulltrúa að for- inaður HSÞ hefði lofað börn- ununi í sveitinni að þau fengju að leika á grasinu á Húsavík. Jón Bcnónýsson lormaður HSÞ hafði samband viö blaðiö og óskaði eftir aö koma með athugasemd við þessi ummæli Pálma. Hann kannast ekki við að hat'a lofaö neinu um leik á vellinum enda rétt að hann hafi ekki umboð til þess. „Ég var aldrei spurður um eitt eöa neitt í þessu sambandi og því er þetta alrangt sem þarna kemur fram." sagði Jón. VG Til sveitarstjórna og forsvarsmanna félaga og fyrirtækja Þingmenn Norðurlandskjördæmis eystra halda sína árlegu viðtalstíma fyrir sveitarstjórnir og forsvarsmenn félaga og fyrirtækja sem hér segir: Sunnudaginn 3. september á Raufarhöfn. Mánudaginn 4. september fyrir hádegi á Húsavík. Mánudaginn 4. september eftir hádegi að Laugum. Þriðjudaginn 5. september og miðvikudaginn 6. september á Akureyri. Þeir aðilar sem hafa hug á að fá viðtalstíma hjá þingmönnun- um snúi sér til: Sigurbjargar Jónsdóttur, sveitarstjóra á Raufarhöfn, Bjarna Þórs Einarssonar, bæjarstjóra á Húsavík, Benónýs Arnórssonar, oddvita, Hömrum og Sigfúsar Jónssonar, bæjarstjóra á Akureyri. Þingmenn Norðurlandskjördæmis eystra. AUGLÝSING UMINNLAUSNARVERÐ VERÐTRYGGÐRA SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓEJS FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 100,00 1984- 2. fl. 1985- 2. fl.A 10.09.89-10.03.90 10.09.89-10.03.90 kr. 412,68 kr. 273,38 ‘Innlausnarverö er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og veröbót. Innlausn spariskírteina ríkissjóös ferfram í afgreiöslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þarjafnframtframmi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, ágúst 1989 SEÐLAB ANKIÍSLANDS

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.