Dagur - 31.08.1989, Síða 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 31. ágúst 1989
; /.vvV? -
Dagur sem aldrei gleymis
- skriðuföllin í Ólafsfirði í fyrra riijuð upp - viðtal við sr. Svavar Alfreð Jónsson
Um þessar mundir er ár liðið frá því að miklar aurskriður féllu á Ólafsfjarð-
arbæ. Sunnudaginn 28. ágúst féllu tvær skriður úr Tindaöxl á bæinn og ollu
tjóni, bæði á fasteignum og lausafjármunum íbúanna. Atburðir þessir eru
mörgum enn í fersku minni, en þeir verða rifjaðir upp hér og birtar myndir
frá náttúruhamförunum sem ekki hafa áður sést á prenti.
Eins og Ólafsfirðingum er
kunnugt af langri - og stundum
biturri - reynslu, eru náin tengsl
milli úrkomu og skriðufalla í
Ólafsfjarðarmúla. Einn megintil-
gangurinn með byggingu jarö-
ganga gegnum Múlann er einmitt
að gera samgöngur öruggari með
tilliti til hinna tíðu snjó- og
skriðufalla úr fjallinu.
Úrhellisrigning og vatns-
elgur á götum Olafsfjarð-
arbæjar boðuðu ekki gott
Helgina 27. til 28. ágúst 1988 var
töluverð rigning á Norðurlandi.
Þó var ekki um nein sannanleg
úrkomumet að ræða þessa helgi,
en mikið hafði rignt í Ólafsfirði
næstu daga og vikur á undan, og
vatn safnast fyrir í jarðvegi.
Þessa tilteknu helgi hefur úrkom-
an þó örugglega verið eins mikil
og mest getur orðið, því um tíma
var 35-40 cm djúpur vatnselgur á
götunum, og voru margir þá þeg-
ar í vandræðum vegna flóða í
kjöllurum húsa og jarðhæðum,
sem vonlegt er.
Ekki voru nein mælitæki frá
Veðurstofu íslands í Ólafsfirði,
en á Siglunesi mældist 28 mnt
úrkoma frá kl. 18.00 á laugardegi
til sama tíma á sunndegi. Á
Akureyri mældist 29 mm úrkoma
þennan sólarhring. Metúrkoma í
ágústmánuði á Akureyri er 52
mm, en í reiknuðum „meðalmán-
uði" er hún 40 mm.
Aurskriðurnar sem náðu til
bæjarins voru tvær, eins og áður
sagði. Sú fyrri féll klukkan 15.30
en sú síðari kl. 18.45. Þar með
var þó ekki öll sagan sögð, því
fjölmargar minni skriður féllu
þennan dag, en þær náðu ekki til
byggðarinnar.
Fólk barst með skriðunum
niður brekku,
innilokað í bílum
í Degi þriðjudaginn 30. ágúst er
haft eftir Guðbirni Arngrímssyni
að nokkrir bílar hafi lent í fyrri
skriðunni, og bárust tveir þeirra
af efstu götunni niður á þá næstu.
Þrennt var í öðrum bílnum en
fólkið slapp án meiðsla. Þá féll
skriða á Múlaveginn til móts við
Brintnesá, og hafnaði hún á bíl.
Bíllinn fór fram af veginum með
skriðunni og var talin mesta mildi
að fólkið skyldi sleppa við líkams-
áverka.
Frásögn Guðbjarnar um
aðstæðurnar þegar fyrri skriðan
féll er á þá leið að Almanna-
varnanefnd hafi verið kölluð
saman eftir hádegi á sunnudag
(en þegar fyrir hádegi þennan
dag var mörgum orðið Ijóst að
hættuástand væri að skapast
vegna úrkomunnar) og var hún
einmitt á fundi þegar fyrri skrið-
an féll. Þá var björgunarsveitin
kontin af stað til að hjálpa fólki
að dæla vatni úr kjöllurum húsa.
Séra Svavari Alfreð Jónssyni,
sóknarpresti í Ólafsfirði, er
„skriðudagurinn" ínjög ntinnis-
stæður, eins og reyndar öllum
öðrum bæjarbúum. Svavar var
beðinn um að lýsa atburðarásinni
og rifjá hana upp í tilefni af því
að ár er liðið frá ósköpunum.
„Þessum degi gleymi ég aldrei.“ Sr. Svavar A. Jónsson, sóknarprestur, en prestbúsl
varð að hluta illa úti í skriðuföllunum.
Á þessari mynd sjást báðir bílarnir sem skriðan tók nieð sér frá Hlíðarvegi. í dökka bílnum var fólk þegar þetta gerðist.
„Hér höfðu verið óskaplega
miklar rigningar og bærinn var
eiginlega á floti. Drungalegt var
um að litast og maður var orðinn
forviða á öllu þessu regni. Eg
man t.d. eftir því að þegar ég ók
unt bæinn höfðu þurrkurnar tæp-
ast við, þótt þær væru á fullu. En
ég var að vinna niðri í bæ þegar
konan mín hringdi í mig; hún var
ein heima með son okkar
nýfæddan. Hún sagði mér í síni-
ann að skriða væri að falla á
íbúðarhúsið.
Hélt fyrst að þetta væri
hávaði í bilaðri þvottavél
Þegar þetta gerðist var hún að
baka á efri hæð hússins og heyrði
skyndilega mikinn hávaða. I
fyrstu hélt hún að þvottavélin
væri að bila, en vélin var að vinda
þvott á neðri hæðinni. Þá varð
henni litið út og sá hvers kyns
var, og hringdi þegar til mín.
Eg ók í ofboði uppeftir en varð
að snúa við, því gatan fyrir neðan
húsið hafði lokast. Ég fór því á
öðrum stað upp brekkuna, en
varð var við að fjöldi fólks hafði
safnast að húsinu, meira að segja
björgunarsveitin var komin á
staðinn. Þegar ég kom að húsinu
var kallað til mín og sagt að allt
væri í lagi með konu mína og
barn. En aðkoman var ekki
glæsileg, aur um allt og mikill
vatnselgur.“
Prestsbústaðurinn er við Hlíð-
arveg, nánar tiltekið hús númer
71 við þá götu. Þegar fyrri skrið-
an féll urðu tvö hús fyrir mestum
áföllum, þ.e. húsin númer 69 og'
Stórvirkar vinnuvélar og vörubílar notuð við hreinsunarstörf.
Menn lögðu nótt við dag til að hreinsa frá húsunum -
til að veita hjálp.
og alltaf voru nógar vinnufúsar