Dagur


Dagur - 31.08.1989, Qupperneq 10

Dagur - 31.08.1989, Qupperneq 10
10 - DAGUR — Fimmtudagur 31. ágúst 1989 myndasögur dags ÁRLANP Elskan ... þar sem ég verö úti aö vinna þarftu lykil til aö komast inn þegar þu kemur heim úr skól-íheim í tóma Mér líkar ekki hug- myndin um aö koma HERSIR BJARGVÆTTIRNIR Okkur hefur tekist aö Ijúka viögerö og ætlum] af stað aftur, en ég ætla aö nota þyrluna' Legg til aö þú gerir þaö_sama! SkÍDtit-CZ 'LÞví miöur fröken Fawcett # Oræktar- svæðin á Akureyri Margt er fallegt á Akureyri. Lystigarðurinn er sannköll- uð perla, og það sama má segja um fleiri alþekkta staði. Einstaklingar láta almennt ekki sitt eftir liggja við að halda umhverfi húsa og lóðum þrifalegum, og heilbrigðisfulltrúi fjarlægir bílhræ og annað sem til óþrifa er í bænum. Gróður er mikili í eldri bæjarhlutum, og íbúar nýju hverfanna ætla ekki að verða eftirbátar með gróðursetningar. Allt stuðlar þetta að fallegri og þrifalegri bæ. En það hlýtur þó að vekja furðu að bæjar- félagið skuli ekki leggja metnað sinn í að rækta upp eða laga til malar- og sand- fláka, sem viða eru til ó- prýði, meira að segja einna helst í næsta nágrenni við miðbæinn. Hér skal bent á nokkra staði sem ekki hafa verið lagfærðir, áhuga- mönnum til upplýsingar: Svæðið austan og sunnan við Smiðjuna, lóðina við Umferðarmiðstöðina, svæð- ið kringum Nætursöluna, vegarspottann og umhverf- ið milli Glerárgötu og Laxa- götu/Hólabrautar að Akur- eyrarvelli, krikann við Strandgötu þar sem sjó- skíðaleigan starfar, fyrir nú utan klassíska dæmið, for- Ijóta og ónýta gangstétt við Strandgötu. # Raunveruleiki eða glansmynd? Hvað myndi Akureyringum fyrst detta f hug ef þeir stigu frá borði skemmtiferða- skips i erlendri höfn, og ættu þeir siðan að ganga meðfram götu á borð við Strandgötu? Ritari þessa pistils er ekki í vafa um þær hugrenningar: Þetta hlýtur að vera fátækt bæjarfélag, sem hefur ekki ráð á að leggja sómasamlegar gang- stéttar. Það er ekki nóg að prenta fallegar litmyndir af Akureyri í landkynningar- skyni þegar raunveruleíkinn er allur annar. # Torfæran á Glerárbrú Umboðsmenn fyrir fjaðrir og höggdeyfa í bifreíðar á Akureyri hljóta að gleðjast yfir hverju árínu sem líður án þess að slitagið yfir Gler- árbrú á Glerárgötu sé lagfært. Þar eru, eins og allir ökumenn bæjarins vita, egghvassar brúnir úr stáli og steinsteypu í samskeyt- um í brúardekkinu, sem bílstjórar reyna að sneiða hjá með þvi að aka upp á „hryggina“ á malbikinu. Utanbæjarbílstjórar þurfa ekki að aka nema einu sinni á þessum stað til að læra sína lexiu ... Lánlausir Einhetjamenn - töpuðu 4:0 fyrir ÍBV Einherjamenn tupuðu marg- frestuðum leik gegn ÍBY 4:0 í gær. Einherji var niun sterkari í fyrri hálfleik, en tókst ekki að skora mark. ÍBV náði undir- tökunum í síðari hálllcik og gerði þá út um lcikinn. Fyrsta mark leiksins kom undir lok fyrri hálfleiks, en það gerði Vestmanneyingurinn Friðrik Sæbjörnsson eftir að Einherja- menn höfðu átt mörg ágæt marktækifæri í hálfleiknum. í síðari hálfleik voru gestirnir mun aðgangsharðari og settu þeir sitt markið hver, Leifur Ffaf- steinsson, Jón Bragi Arnarson og svo Hlynur Stefánsson úr víti rétt fyrir leikslok. Bestu menn lánlausra Einherja í leiknum voru Hallgrímur Guðmundsson, Gísli Davíðsson og Einar Björnsson. KR sigraði FH í 1. deild karla 2:0. Pf Opna KEA-mótið í Ólafsfirði: Eiríkur sigraði í karlaflokki - jöfn og spennandi keppni í flestum flokkum Opna KEA-golfmótið var hald- ið á Skcggjabrckkuvelli í Ólafsfirði helgina 19.-20. ágúst. Aðalverðlaun mótsins í öllum flokkum með og án for- gjafar voru gefin af Kaupfélagi Eyfirðinga á Akureyri og voru þau hin veglegustu. Keppni hófst á laugardegi í blíðskaparveðri. Leiknar voru 36 holur með og án forgjafar í karla- kvenna og unglingaflokki. Fyrri keppnisdaginn var keppnin jöfn- ust í karlaflokki án forgjafar. Þá var Sverrir Þorvaldsson GA fyrstur á 77 höggum, Þórhallur Pálsson GA og Eiríkur Haralds- son GA á 78 höggum og næstu fimm menn á 82 höggum. Þess má geta að að Sverrir lék fyrstu 9 holurnar á pari vallarins, 33 höggum, og hefur það aðeins einu sinni áður gerst. í kvenna- og unglingaflokki var keppnin ekki eins jöfn, þar leiddi Jónína Pálsdóttir GA með 7 höggum í kvennaflokki og Ásgrímur S. Ásgeirsson GÓ með 5 höggum í unglingaflokki. Seinni dag mótsins gekk á með snörpum vindhviðum og var besta skor dagsins 5 höggum lak- ara en fyrri daginn. Keppni hélst þó mjög jöfn í karlaflokki bæði með og án forgjafar og þurfti að leika bráðabana um 1. og2. sætið og 3. og 4. sætið, án forgjafar. Úrslit án forgjafar: högg 1. Eiríkur Haraldsson GA 160 2. Þórhallur Pálsson GA 160 3. Sverrir Þorvaldsson GA 165 4. Kristján Gylfason GA 165 Konur: 1. Jónína Pálsdóttir GA 188 2. Áslaug Stefánsdóttir GA 200 3. Mattý Einarsdóttir GA 232 Unglingar: 1. Bergur R. Björnsson GÓ 180 2. Ásgeir Smári Þorsteins. GÓ 190 3. Sævar R. Sigvaldason GÓ 198 Úrslit með forgjöf: 1. Gestur Sæmundsson GÓ 138 2. Matthías E. Sigvalda. GÓ 138 3. Símon Magnússon GA 142 Konur: 1. Áslaug Stefánsdóttir GA 142 2. Jónína Pálsdóttir GA 160 3. Kristín Jónsdóttir GA 166 Unglingar: 1. Á. Smári Þorsteinsson GÓ 118 2. Birnir F. Björnsson GÓ 128 3. Sævar R. Sigvaldason GÓ 134 Aukaverðlaun voru fyrir að vera næst holu á þriðju og áttundu braut í upphafshöggi báða dag- ana. Einnig var Pinnacle golfsett í verðlaun frá Golbúð Davids á Akureyri fyrir að fara holu í höggi á par 3 holu. Engum tókst að fara holu í höggi á mótinu en Þórhallur Pálsson GA komst næst því þegar hann var 1,35 metra frá holu á áttundu braut. Eftirtaldir hlutu aukaverðlaun fyrir vera næstu holu í upphafs- höggi. Sverrir Þorvaldsson GA hlaut golfvörur frá Golfvörum sf. í Garðabæ, Gestur Sæmunds- son GÓ hlaut vöruúttekt hjá David en það var Sigvaldi Þor- leifsson sf. sem gaf þau verð- laun. Eiríkur Haraldsson hlaut einnig vöruúttekt hjá David en það var Tréver hf. á Ólafsfirði sem gaf þau verðlaun. Síðan hlaut Þórhallur Pálsson vöru- úttekt hjá David sem Sparisjóður Ólafsfjarðar gaf til keppninnar.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.