Dagur - 29.09.1989, Qupperneq 3

Dagur - 29.09.1989, Qupperneq 3
Erum afar þakklátir öllum stuðningsaðilum félagsins - segir Stefán Gunnlaugsson formaður knattspyrnudeildar Að reka knattspyrnudeild hjá jafn stóru félagi og KA er meira en að segja það og e.t.v. gera fæstir, nema þeir sem reynt hafa, sér grein fyrir því hversu mikið starf er innt af höndum við slíkan rekstur. Mest mæðir á stjórnarmönnum sjálfum sem sjá um að afla fjár til reksturs deildarinnar, en án þess væri líf hennar ekki langt. Stefán Gunn- laugsson formaður knattspyrnu- deildar hefur starfað fyrir félag- ið í mörg ár og fengum við hann til þess að fjalla hér aðeins um rekstur knattspyrnudeildar KA. „Starf stjórnar knattspyrnu- deildar felst fyrst og fremst í því að halda utanum alla starfsem- ina, sjá til þess að æfingar og keppnir gangi hjá öllum flokk- um, að til séu peningar til rekst- ursins og að allir flokkar og keppendur hafi möguleika á að borga sínar keppnisferðir. Það verður að segjast eins og er að stærsti hluti af störfum stjórnar fer í að afla peninga sem er auð- vitað mis erfitt, en aldrei eins auðvelt og þessa dagana þegar við höfum náð þessum stórkost- lega árangri." Dyggir stuðningsaðilar Strax á haustin að loknu keppn- istímabili fer stjórnin af stað við að undirbúa næsta keppnis- tímabil. „Það þarf að ráða þjálf- ara fyrir alla flokka, sjá til þess að það sé eins boðleg aðstaða og hægt er og síðan að sjá um búninga og bolta, en hjá KA eru yfirleitt um 200-250 boltar í notkun meira og minna allan daginn. Hver flokkur hefur sína bolta sem þjálfari ber ábyrgð á og ber að skila af sér á haustin." - Hvernig farið þið að því að afla peninga til rekstursins? „Það kemur þó nokkur hluti í aðgangseyri af leikjum hjá meistaraflokki karla, en það er eini flokkurinn sem selt er inn á leiki hjá. Sá póstur er all veru- legur hluti af fjármagninu hjá okkur sérstaklega nú þegar KA hefur næst bestu aðsókn á sína leiki af öllum fyrstudeildarfé- lögunum og slagar hátt í Fram- ara, sem voru hæstir. Síðan gefa auglýsingar á búningum tekjur, sérstaklega á aðalbúning meist- araflokks þar sem ESSO hefur auglýst undanfarin ár en þeir eru okkar aðal stuðningsaðili og hafa gert mjög vel við deildina. Aðrir stórir stuðningsaðilar eru t.d. Bílaleiga Akureyrar sem eru mjög tryggir stuðningsaðilar, Kaffibrennsla Akureyrar, Kaup- félag Eyfirðinga hefur ávallt stutt vel við bakið á félögunum hérna, Amaro, Sporthúsið og að ógleymdum Akureyrarbæ, en þeir hafa alltaf verið boðnir og búnir til að styðja við bakið á íþróttafélögunum hér. Þá eru auglýsingar á völlum, í ýmsum blöðum sem gefin eru út og símaskráin er mjög góð tekju- lind. Mótshald eins og ESSO- mótið fyrir yngri flokka og firmakeppni eru ágæt tekjulind og auðvitað æfingagjöldin sem allir flokkar nema meistaraflokk- ur karla eiga að greiða. Á þessu keppnistímabili sem er að ljúka var ákveðið í fyrsta skipti að hluti æfingagjalda gengi upp í rekstur KA-heimilisins sem greiðsla fyrir aðstöðuna sem flokkar knattspyrnudeildar njóta. Knattspyrnudeild hefur auk þessa séð um sölu ýmissa hluta sem við framleiðum, farið var út í flugeldasölu um síðustu áramót sem reyndar fór fyrir brjóstið á mörgum og jólatré seldum við líka um síðustu jól. Öllu þessi starfi fylgir mikil vinna, við erum með 9 flokka sem æfa knattspyrnu og ef árangur á að nást þarf að leggja fram mikla vinnu. Ég hef oft getið um það áður og ætla að érétta hér, að það vantar alltaf fleira fólk til að starfa með yngri flokkunum. Nú er það algjört skilyrði ef við ætlum að ná betri árangri hjá þeim að áhugasamt fólk komi og starfi meira með.“ Fjárstuðningur algjör forsenda Aðspurður um hvort stærstu og dyggustu stuðningsaðilarnir séu alltaf jafn fúsir að styrkja KA, sagði Stefán þá ótrúlega fúsa. „Auðvitað verða þeir senni- lega stundum dálítið leiðir á okkur ef við komum of ört og við skiljum það ósköp vel því við erum margir í fyrirtækjarekstri sjálfir og þekkjum þetta af eigin raun. En sumt af þessu er ekki eingöngu útlát heldur auglýs- ing eins og t.d. í símaskránni og við höfum trú á því að margir vilji auglýsa hjá meistaraflokki karla næsta sumar, því við verð- um væntanlega mikið í sviðsljós- inu þá. En ég hef trú á því að ef ESSO hefur áhuga áfram komi þeir til með að sitja fyrir á bún- ingana. Fyrir lokahóf KSÍ um síðustu helgi héldu þeir okkur veglega veislu. Fyrst vorum við 90 manns frá KA í móttöku í um klukkutíma þar sem þeir m.a. færðu okkur bónusinn, en síðan tóku þeir á móti öllum öðrum fyrstudeildarliðum í okkar nafni, u.þ.b. 450 manns og buðu öllum uppá fordrykki og snittur. Var þetta einstaklega höfðinglegt og munum við seint geta þakkað ESSO-mönnum með þá Vilhjálm Jónsson og Bjarna Bjarnason í broddi fylkingar rausn þeirra." - Hversu mikilvægur er fjár- stuðningurinn ykkur? „Hann er algjör forsenda fyrir Óskum KA til hamingju með íslandsmeistara- litilinn í knattspyrnu 1989 Búnaðarbankinn 600 Akureyri S: 27600 Súlan hf. Aðalstræti 68, Akureyri. S: 22841 Útvegsbankinn 600 Akureyri S: 23400 Sparisjóður Óiafsfjarðar 620 Ólafsfirði S: 62215 og 62230 Vátryggingafélag íslands Glerárgötu 24 S:23445 Fasteigna og Skipasala Norðurlands Glerárgötu 28 • S: 25566 Eftirtaldir aðilar styrktu KA með 50 þúsund krónum eða meiru 50 þúsund krónur Kjarnafæði sf. Fjölnisgötu 1 b, Akureyri. S: 27155 50 þúsund krónur Lyfhf. c/o Guðmundur Hallgrímsson Reykjavik. ESSO -Oliufélagið hf. Bónus 250 þúsund krónur. 50 þúsund krónur Sigurveig Guðmundsdóttir Lönguhlíð 5h Akureyri. 50 þúsund krónur Sæmundur Óskarsson Reykjavík Harpa hf. Verðlaunafé fyrir 1. sæti 425 þúsund krónur. 50 þúsund krónur frá ónafngreindum aðiia. 100 þúsund krónur Amaró hf. heildverslun. 600 Akureyri. Akureyrarbær Viðurkenning. 500 þúsund krónur. Ellert Schram forseti KSÍ afhenti Erlingi Kristjánssyni íslandsmeistara- bikarinn i knattspyrnu 1989. því að hægt sé að reka deildina, því þessar tekjur eru einu föstu punktarnir í fjáröfluninni. Að- sókn að leikjum getur verið hverful t.d. ef bornir eru saman síðustu heimaleikir í fyrra og nú. Báðir leikirnir voru gegn Val, í fyrra voru um 200 áhorf- endur á leiknum en í ár voru þeir 1700.“ Allir vilja vera með þeim sterka - Hvað með andlegan stuðning frá áhorfendum og öðrum stuðningsmönnum? „Hann er mikill og ómetanleg- ur þegar vel gengur, en mér hefur stundum fundist að þegar ver gengur vilji það brenna við að það dragi snarlega úr honum. Það þýðir að allt starfið daprast og jafnvel stjórnarmenn missa áhugann. Það vilja nefnilega all- ir vera með þeim sterka. Nú er okkur hampað og við erum auð- vitað þakklátir fyrir það, en ég vil brýna það fyrir áhangendum og stuðningsmönnum að þetta er hverfult og það er enn meiri ástæða til hvatningar þegar illa árar, að geta þá fundið fyrir því að stuðningsmenn standi vel að baki leikmönnum, þjálfara og stjórnarmönnum. Félagið má ekki vera án „móralsks" stuðn- ings og áhangendur mega ekki vera þeir fyrstu til að gefast upp. Þeir þurfa að vera með í hverjum leik sem og í heild yfir sumarið. Á stuðningsmanna- fundinum fyrir leikinn gegn Val í haust þar sem nýja stuðnings- lagið var æft og kynnt tók ég það fram að menn ættu alltaf að vera með jákvæða hvatningu án þess að vera að níða niður and- stæðingana. Þá má ekki sleppa því að hvetja þegar leikurinn er í járnum eða liðið er jafnvel und- ir eins og oft bregður við. Stuðn- ingurinn er nefnilega mikilvæg- astur einmitt þá og getur ráðið úrslitum um endalok leiksins.11 Þakkarhátíð í kvöld - Verður þá ekki gaman að lifa næsta sumar þegar vænta má góðs stuðnings frá áhorfendum jafnt sem fjárhagslegum stuðn- ingsaðilum? „Ég hef trú á því að það verði gaman að lifa næsta sumar. Eins og ég sagði þá tel ég það verða auðvelt að fá stuðning frá öllum aðilum á meðan gengi liðsins er gott. Vegna þess hversu vel gekk í sumar komum við til með að geta rekið deildina skuld- laust í sumar og gert upp gaml- ar skuldir frá fyrri árum. Nú á föstudaginn (í kvöld) ætlum við einmitt að sýna þessum aðilum og þeim sem unnið hafa fyrir okkur í sumar og veitt okkur góða þjónustu smá þakklætis- vott með því að bjóða til veislu í Sjallanum sem við köllum „Þakkarhátíð." Þar verða fyrir utan leikmenn og stjórnir, boðs- gestir frá bæjarstjórn, forsvars- menn fyrirtækja sem hafa stutt okkur vel og ekki síður veitt okkur ómetanlega þjónustu hvort sem er innan eða utan vallar. Eftir kl. 24.00 verður hús- ið síðan opnað fyrir aðra stuðn- ingsmenn og gesti þeirra, sem fá þá frítt inná dansleik. Á sunnudaginn eftir verður hóf fyrir yngsta fólkið í Sjallanum og á fimmtudaginn kemur verður hóf í Sjallanum fyrir unglingana í tilefni af komu íslandsmeistara- bikarsins norður." Ógleymanlegur dagur - Eitthvað að lokum Stefán? „Ég vil nota tækifærið og þakka öllum, bæði leikmönnum, þjálfara, stjórn, stuðnings- mönnum og bara hverjum og einum sem stutt hefur við bakið á okkur í gegnum árin fyrir stór- kostlegt sumar. Þá má ekki gleyma harðsnúnu liði stuðn- ingsmanna fyrir sunnan undir forystu Sæmundar Óskarssonar sem er ómetanlegt. Við munum gera allt til þess að halda bikarn- um fyrir norðan, á réttum stað, og ég hvet áhorfendur til að hjálpa okkur sem best til þess. Þá vil ég taka það fram að við höfum fengið ótrúlega góða þjónustu á vellinum okkar og í KA-heimilinu en þar hafa allir verið á því að gera okkur lífið eins bærilegt og hægt er. And- inn sem þar ríkir er einstaklega góður og í því sambandi vil ég minnast þess sérstaklega hvað það var gott að koma heim með bikarinn 16. september og sjá hvað allt var huggulega skreytt og salurinn einstaklega hlýleg- ur og skemmtilegur. Þó hvorki væru gullhúðuð hnífapör eða kristalsglös var andinn svo stór- kostlegur að ég held að öllum hafi liðið mjög vel. Á starfsfólkið sem að því stóð sem og sjálf- boðaliðar sem hjálpuðu til heið- ur skilinn fyrir frammistöðuna. Allur þessi dagur, móttökurnar á flugvellinum voru svo ógleym- anlegar að maður var ekki var við kuldann og vindinn vegna þess hvað allir tóku hlýlega á móti okkur. Stundin á vellinum og í heimilinu um kvöldið var ógleymanleg. “ VG

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.