Dagur - 14.12.1989, Síða 8
8 - DAGUR - Fimmtudagur 14. desember 1989
Fimmtudagur 14. desember 1989 - DAGUR - 9
^ Opið virka daga frá kl. 13.00-18.30
Opið laugardaginn
16. desember frá kL 10.00-18.00.
/ g«r-7 / # r É «gt J 1 I 1 1 i • X y- Ml/H
n 1.
KynnSst NEITTÓ-verði
KEANETTÓ
Krókódílasíkið á Sauðárkróki
þar sem saklausir áhorfendur
breytast í öskrandi ljón
En hvað segja dómararnir sem
þangað koma til þess að dæma
leikina? Þótt hálf ótrúlegt megi
virðast þá finnst þeim flestum, ef
ekki öllum, mjög gaman og gott
að dæma þar sökum stemmning-
arinnar sem þar er. Það er eflaust
ekki öfundsvert að standa á miðj-
um vellinum og kveða upp dóm
sem áhorfendur sætta sig engan
veginn við. En það hefur að sjálf-
sögðu oft komið fyrir. Dagur hef-
ur þetta orðrétt eftir einum dóm-
ara sem í Síkið kom: „Ég get
ekki ímyndað mér að það sé
skemmtilegra að dæma í NBA
heldur en hérna,“ sagði hann.
Svona getur þetta verið.
heimaleik sem fram fer.
Að berja augum þessa tíu
menn sem reyna að koma boltan-
um í einhverja holu í loftinu,
þykir vera hin besta fjölskyldu-
skemmtun. Margar fjölskyldur
hópast á leikina og gildir þá einu
hvort kornabarn er meðferðis.
Peir eru nefnilega ekki allir háir í
loftinu sem á leikina koma.
Dæmi um það er einn lítill snáði
sem fór á sinn fyrsta leik þegar
hann var aðeins mánaðargamall!
Og hefur verið einn af fastagest-
unum síðan.
Það er ekki úr vegi að líta
aðeins á aðstöðuna sem áhorf-
endum er boðið upp á. Bekkirnir
sem settir hafa verið upp taka um
250 manns í sæti. Afgangurinn af
fólkinu stendur svo upp á endann
á svölum sem ná allan hringinn í
húsinu. Áður en bekkirnir komu
stóðu allir upp á endann og var
þá oft þröngt á þingi, eins og gef-
Heimavöllur Tindastóls í körfuknattleik er löngu
landsþekktur fyrir þann áhorfendafjölda sem kem-
ur til þess að hvetja „sína menn“. Hefur völlurinn
verið nefndur „Krókódílasíkið“ eða bara „Síkið“,
samanber „Ljónagryfjan“ í Njarðvík. Yfirleitt eru
um 500 manns á hverjum leik en þó hefur talan far-
ið niður í 400 einstaka sinnum.
Margir hafa spurt hvort þessi
gífurlegu hvat'ningarhróp sem
glymja í Síkinu geti haft öfug
tilætluð áhrif á leikinn, þ.e. virk-
að hvetjandi á lið andstæðinganna.
Þeir sem hingað koma til að leika
eru nær allir sammála um það að
það gildi einu hvort verið sé að
hvetja heimamenn eða ekki.
Stemmningin er það mikil og
sterk að hún snertir alla þá sem
inn á völlinn stíga, jafnt gesti sem
heimamenn.
En hvar væri körfuknattleikur-
inn ef engir væru áhorfendurnir?
Áhorfendafjöldinn er meiri á
Sauðárkróki að meðaltali en t.d.
í Ljónagryfjunni í Njarðvík. Þar
mæta 3-400 manns á hvern leik
og stundum meira. Einu sinni
hafa t.d. verið 800 manns í Gryfj-
unni, en það var á leik Njarðvík-
inga og Keflvíkinga. Það mesta
sem komið hefur á leik í Síkinu
eru rúmlega 600 manns. En það
var á leik Tindastóls gegn
erlendu leikmönnunum í
nóvembermánuði sl.
Margir eiga sín föstu stæði eða
sæti á leikjunum. Sumir sem
stóðu á sama stað áður en bekk-
irnir komu, hafa haldið tryggð
við sín gömlu góðu stæði æ síðan.
Ef einhverjum dettur í hug að
stela sætum eða stæðum frá fasta-
gesti, er hann umsvifalaust rek-
inn í burtu.
Mörg dæmi eru um að menn
hafi slæðst inn á leiki. Þ.e. ein-
hvern veginn þvælst á þá án þess
að hafa ætlað sér það. Sömu
dæmi segja að þessir menn séu nú
einir gallhörðustu stuðningsmenn
liðsins og mæti á hvern einasta
ur að skilja. Þessa bekki er hægt
að draga saman þegar þeir eru
ekki í notkun og renna þeim upp
að vegg.
En aftur að leiknum sjálfum.
Áhorfendur taka virkan þátt í
honum. Þegar heimamenn, gjarn-
an nefndir „Stólarnir", eru í sókn
er annaðhvort dauðaþögn eða þá
mikil og samtaka hvatningarhróp.
Þegar andstæðingarnir eru hins
vegar í sókn kveður við lófatak í
föstum takti og menn stappa
gjarnan niður fæti líka. Þetta
virkar hvetjandi á vörn heima-
manna og eykur baráttuandann.
Þegar einhver Stólanna er í víta-
skoti má glöggt heyra saumnál
detta. En hins vegar þegar ein-
hver gestanna er í vítaskoti
myndi ekki heyrast í sprengju
þarna inni þó hún væri sprengd,
slíkur er gauragangurinn. Allir
öskra, stappa niður fótum og þeir
sem á svölunum standa berja
með höndunum í handriðið sem
þar er. Allt er þetta gert til þess
að slá þann sem í vítaskotunum
er, út af laginu.
Áhorfendur mæta sneprma á
leikina til þess að missa ekki af
upphitun leikmanna. Þar byrjar
jú leikurinn. Áhorfendur eru
með frá upphafi og láta óspart í
ljós hrifningu sína ef einhver
„treður“ til dæmis. Upphitun
Stólanna er skipulögð og mikið
fyrir augu áhorfenda. Ef upphit-
un er góð eru þeir með frá upp-
hafi. Éf hins vegar upphitun er
ekki góð, tekur tíma fyrir áhorf-
endur að komast inn í leikinn. En
alltaf gera þeir það að lokum.
Ekki eru allir með leikinn á
hreinu þ.e. reglurnar. Reglur í
körfubolta er margslungnar og
stundum erfitt fyrir hinn almenna
áhorfanda að átta sig á þeim. En
það virðist ekki skipta nokkru
máli. Allsstaðar eru einhverjir
sem kunna reglurnar og þá er
ekkert annað að gera en spyrja. í
leikskrá sem gefin var út fyrir
einn leik í vetur voru allar dóm-
arabendingar tíundaðar. Þetta
plagg hafa þeir gjarnan meðferð-
is sem ekki eru alveg með hlutina
á hreinu. Margir hafa þetta í
plastmöppu svo hægt sé að halda
því heilu og læsilegu. Þetta fram-
tak verður nú að teljast virðing-
arvert gagnvart áhorfendum.
Áhorfendur eru ekki bara á
leikjum rheistaraflokks heldur
sækir líka fjöldi manns leiki ungl-
ingaflokks Tindastóls. Þar hafa
verið á milli tvö og þrjú hundruð
manns á hverjum leik. Töluvert
er gert á þeim bænum til þess að
laða áhorfendur að m.a. skemmti
Hallbjörn Hjartarson með leik
og söng á síðasta leik þeirra.
Það er líka töluverður fjöldi
sem fylgist með fjölliðamótum
sem haldin eru. Enda þykja þau
hin mesta skemmtun. Ungir og
upprennandi körfuknattleiks-
menn eru dyggilega hvattir til
dáða ekki síður en þeir eldri.
Dagur spurði nokkra áhorf-
endur um hvað það væri sem
heillaði svona mikið við körfu-
boltann. Flestir nefndu hraðann í
leiknum svo og nálægð áhorfenda
við leikvöllinn. Aðrir töluðu um
að þeir fengju útrás á leikjunum
og menn hafa gert því skóna
að líklega væri ofbeldi á heimil-
um hvergi eins lítið og á Sauðár-
króki. Það losnar því um ýmsar
hvatir greinilega á saklausum
körfuboltaleik.
En allavega er það á hreinu að
körfuboltinn á Sauðárkróki stæði
ekki þar sem hann stendur nú ef
ekki væru þessir frábæru og
landsþekktu áhorfendur sem
styðja svo dyggilega við bakið á
„sínum mönnum“. kj
Alls konar jólaávextir
Gæði í gegn!
Kjörbúöir KEA
Opnunartími
verslana í desember
umfram venju
Laugardagur 16. desember kl. 10-22.
Fimmtudagur 21. desember kl. 09-22.
Porláksmessa 23. desember kl. 10-23.
Kaupmannafélag Akureyrar.
%
Kaupmannafelag
Akureyrar
Opið
til kl. 21
í kvöld
HAGKAUP
Akureyri