Dagur - 13.02.1990, Page 6

Dagur - 13.02.1990, Page 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 13. febrúar 1990 í DAGS-ljósinu í Athyglisverðar niðurstöður tveggja kannana á viðhorfi erlendra kaupenda til íslensku bleikjunnar Bjartsýnir menn segja að ef rétt.verði á spöðum haldið sé ekki langt í að íslenska bleikjan kitli bragðlauka kokka og annarra matargata í útlandinu. Í þessu sambandi er vert að geta um markaðssetningu á vatnableikju sem nokkrir aðilar á Norðvesturlandi standa að. Þau tvö lönd sem sú athugun beinist að eru Frakkland og Svíþjóð. Fyrstu við- brögð þarlendra lofa góðu um framhaldið. Ferskvatnsbleikja á framtíð fyrir sér Margt virðist benda til að útflutningur á bleikju kunni að verða arðvænlegur þegar fram líða stundir. Á undanförnum misserum hefur farið fram mikil vinna á vegum búnaðarsamtakanna, Útflutningsráðs og Landbúnaðarráðuneytis á ýmsu er lýtur að bleikjueldi og sölu hennar á erlendum mörkuðum. Niðurstöður athuguna á mörkuðum erlendis gefa góðar vonir um að íslenska bleikjan nái þar fótfestu. Á síðasta ári tóku Markaðs- nefnd landhúnaðarins, Búnaðar- félag íslands og Útflutningsráð íslands upp samstarf um markaðs- setningu og vöruþróun á íslenskri ferskvatnsbleikju fyrir erlenda markaði. Fyrsta skrefið í því samstarfi var að kanna viðhorf hugsanlegra bandarískra kaup- enda til íslensku ferskvatns- bleikjunnar. Sú leið var farin að gera könnun á „The Boston Sea- food Show“ 7.-9. mars á síðasta ári. Þetta er gríðarstór sýning seljenda sjávarafurða í Banda- ríkjunum. Kaninn telur roðlitinn skipta máli Helsta markmiðið með könnun- inni var að fá frant hvort blcikjan þyrfti að silfrast í saltvatni áður en hún yrði sett á markað. í Ijós kom að bandarískir kaupendur telja að roðlitur bleikjunnar skipti máli. Þeir telja með öðrum orðum að sú silfrun sem á sér stað við að bleikjan gengur í sjó verði að vera til staðar. Könnunin leiddi ennfremur í Ijós að kaupendur í Bandaríkjun- um vilja fá bleikjuna heila ferska, frosna heila og margir sýndu ferskum bleikjuflökum áhuga. Menn voru hvað hrifnastir af fiski um eða stærri en 1000 grömm. Áhugi á Anuga Menn létu hér ekki staðar numið í markaðsathugunum og ákveðið var að gera aðra könnun á Anuga-sýningunni í Köln í V- Þýskalandi, sem haldin var dag- ana 14.-19. október sl. Markmiðið mcð athuguninni á Anuga var að kanna viðbrögð kaupenda við ferskvatnsbleikj- unni og fá álit þcirra á ýmsum atriðum varðandi markaðssetn- ingu og sölu á afurðinni í frant- tíðinni. sérstaklega í löndum Evrópu. Einnig var sjónum beint að kaupendum frá Asíu og Norð- ur-Ameríku. I ljós kom aö kaupendur á Anuga sýndu íslensku bleikjunni mikinn áhuga og um 50 aðilar óskuðu eftir frekari upplýsingum og allmargir báðu um sýnishorn og verðlista. Roðinn í austri Niðurstöður könnunarinnar á Anuga eru um margt mcrkilegar og ástæða til að gera þeim skil hér. Þátttakendur í könnuninni voru ekki á eitt sáttir um roðlit fisksins. Bandaríkjamennirnir vildu hafa kynþroska einkenni bleikjunnar og töldu þeir rauða litinn á kviði hennar afgerandi fyrir markaðsstöðu í Bandaríkj- unum. Einnig lögðu þeir áherslu á eins rauðan kjötlit og mögulegt væri. Þjóðverjar, Frakkar, Hollcnd- ingar og Belgíumenn, virtust ánægðir með roð og kjötlit á þeim fiski sem sýndur var á Anuga, ljósrautt hold og kyn- þroskaeinkenni á kviði. Sviss- lendingar, sem þátt tóku í könnuninni, voru hins vegar á annarri skoöun með þetta atriði. Þeir kváðust vilja bleikjuna með hvítu eða gulhvítu kjöti án kyn- þroskaeinkenna á kviði. Japanar reyndust vera aðdá- endur rauða litsins og Ijóst að þeir vilja fiskinn eins rauðan í holdið og mögulegt er með fóðrun. Artic char skal hún heita Flestir þátttakenda í könnunini töldu mestan feng í fiski 1000 grömm eða stærri og athyglisvert er að flestir höföu áhuga á frystri slægðri bleikju, einnig frystum og reyktum flökum. Hins vegar var enginn áhugi fyrir stykkjaðri frystri bleikju en talsverður áhugi fyrir ferskum flökum. Á Anuga-sýningunni var þeirri spurningu velt upp hvort rétt væri að markaðssetja íslensku vöruna 'sem hágæöavöru. Svör þeirra sem þátt tóku í könnuninni benda til að rétt sé að stefna að því. Þá kom það fram að þátttak- endur töldu vænlegast að rnark- aðssetja íslensku bleikjuna sem Arctic char. Næstu skref eru mikilvæg Hermann Ottósson, hjá Útflutn- ingsráði, segir að með þessum tveim könnunum sé lokið ákvcðnu stigi í uppbyggingu framleiðslu á nýrri tegund eldis- fisks sem framtíð eigi fyrir sér ef rétt sé á málum haldið. Mikilvægt sé sem næsta skref að samræma markaðssetningu, kynningar- starfsemi. sölu og framleiðslu á bleikjunni; annars sé allt það starf scm unnið hafi vcrið fyrir g'g- Hermann hefur velt upp nokkrum tillögum sem næstu skrefum og skal þeirra getið hér í stórum dráttum. Hagsmunaaðilar myndi með sér samtök Hermann telur nauðsynlegt að hagsmunaaðilar ntyndi með sér samtök er hafi það að markmiði að móta stefnu í gæða- og sölu- málum fyrir bleikjuframleiðend- ur. Til undirbúnings sé æskilegt að Landbúnaðarráðuneytið skipi vinnuhóp aðila frá framleiðend- um, Búnaðarfélagi íslands og Útflutningsráði íslands er skili sem fyrst af sér áætlun og stefnu- mótun um framleiðslu, gæða- og markaðsaðgerðir fyrir íslenska ferskvatnsbleikju á næstu árum. Hermann telur að fram- leiðendur verði í fyrsta lagi að ná samkomulagi um framleiðslustýr- ingu sem miði að því að tryggja jafnt og stöðugt framboð á bleikju, í öðru lagi miðstýrða framboðsstýringu sem miði að því að tryggja að alltaf veröi til það magn sem beðið er um, en ekki meira, í þriðja lagi gæða- stýringu með nákvæmu eftirliti og flokkun og í fjórða lagi stofn- un sölusamtaka. Fjármögnun samtakanna Að áliti Hermanns ber þessum sölusamtökum í fyrsta lagi að sjá urn framkvæmd framleiðslu- og framboðsstýringu, ásamt fram- kvæmd gæðamats. í öðru lagi að halda utan unt sölu afurða bæði innanlands og erlendis og í þriðja lagi kynningar- og markaðsstarf. Hermann leggur til að sölu- samtökin verði fjármögnuð fyrsta árið með framlagi frá Framleiðni- sjóði en næstu árin greiði einhver óskilgreindur sjóður 50% rekst- ursins, en afgangurinn verði fjármagnaður með sérstöku gjaldi á fob.verð útfluttrar bleikju. Eftir fjögur ári taki síðan sölusamtökin alfarið við rekstrin- um. óþh Hér gefur að líta húnvetnska bleikju á Hótcl Blönduósi. Samkvæmt þeim könnunum sem vitnaö er til í þessari grein sækjast Anieríkanar og Gvrópubúar hclst eftir miðlungs stórri frónskri blcikju.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.