Dagur - 02.03.1990, Blaðsíða 12
Haldið veisluna eða fundinn
■ elsta húsi bæjarins
Afmælisveislu ★ Giftingarveislu ★
★ Erfidrykkju ★ Kaffisamsæti ★
Fundi og hvers konar móttökur.
Allar nánari upplýsingar gefa Hallgrímur eða Stefán í síma 21818.
„Nú vantar mig smjör og ost. “
Mynd: KL
Skiptafundur þrotabús Árlax í gær:
Tilboð í eignir samþykkt
A fyrsta skiptafundi þrotabús
Arlax í Kelduhverfi sem hald-
inn var í gær var samþykkt til-
boð Fiskveiðasjóðs Islands og
Byggðastofnunar í eignir þrota-
búsins, aðrar en fiskinn. Til-
boð þessara aðila hljóðaði upp
á 116 milljónir króna.
Örlygur Hnefill Jónsson,
bústjóri þrotabúsins, segir að
nokkrum kröfum hafi verið
hafnað. Á skiptafundinum kom
einnig fram tilboð frá Samvinnu-
banka íslands í fiskinn í stöðinni
en bankinn er aðalveðhafi í fisk-
inum. Tryggingasjóður fiskeldis-
lána er líka veðhafi í fiskinum og
því þarf samþykki sjóðsins fyrir
því að taka tilboði Samvinnu-
bankans.
Aðspurður urn hvort fyrrgreind
sala til Fiskveiðasjóðs og Byggða-
stofnunar sé góð segir Örlygur
Hnefill að meginatriðið sé að tek-
ist hafi að selja. „Með þessu næst
að mestu upp í veðkröfur í fast-
eignir en ijóst er að ekkert kemur
upp í almennar kröfur. Spurning-
in er fyrst og fremst sú hve mikið
fellur niður af veðkröfum í eign-
irnar og fiskinn,“ segir Örlygur.
Hann segir að stefna verði að
skiptalokum búsins sem allra
fyrst og ætti skiptum að ljúka
þegar og ef tilboði Samvinnu-
bankans í fiskinn verður tekið.
JÓH
Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli:
Mesti snjór í 20 ár
„Nei, við erum langt í frá að
fara á kaf, en hér er færið nú
eins og það best getur orðið,“
sagði ívar Sigmundsson for-
stöðumaður Skíðastaða í Hlíð-
arfjalli. Þar, eins og annars
staðar á Norðurlandi hefur
snjóað mjög mikið að undan-
förnu og segir Ivar það helst
hafa hrjáð þeim nú að ófært
var uppeftir frá sunnudegi og
þar til gær að loksins tókst að
Sjötíu og fimm án atvinnu á Siglufirði:
Verkalýðsfélagið Vaka í viðræðum
við vmnuveitendur og bæjarfélagið
- hækkun á þjónustugjöldum bæjarins meðal umræðuefna
Sjötíu og fímm eru skráðir
atvinnulausir á Siglufírði.
Töluverður hluti þess hóps
vann áður hjá Siglunesi hf. við
rækjuvinnslu og missti atvinnu
sína vegna stöðvunar þess
fyrirtækis. Burtséð frá því
áfalli fyrir atvinnulíf bæjarins
eru samt mun fleiri atvinnu-
lausir á Siglufírði en gerst hef-
ur undanfarin ár.
Hafþór Rósmundsson, for-
maður Verkalýðsfélagsins Vöku,
Fagridalur:
Snjóflóð
segir að í vetur hafi orðið vart við
samdrátt í atvinnu fyrir bygginga-
menn, en slíku hafi menn ekki átt
að venjast á seinni árum. „Það er
aldrei að vita hvað gerist á vor-
dögum, en hér hafa þrjátíu
manns beðið eftir hvað ríkið ætli
að gera við Siglóverksmiðjuna,
og um leið og það mál leysist
mun fækka verulega á skrá. Samt
situr töluvert eftir af fólki, meira |
en verið hefur hingað til,“ segir
Hafþór.
Ekkert hefur verið unnið við
saltfiskverkun eða í frystingu hjá
Þormóði ramma hf. frá því á
miðvikudag í síðustu viku. Siglu-
vík SI bilaði í síðasta túr og fór til
Reykjavíkur til viðgerðar. Búið
var að leita eftir því við eigendur
Óskars Halldórssonar RE 157
um að landa einhverjum afla á
Siglufirði en ekkert varð úr því.
Hafþór segir að engin breyting
sé fyrirhuguð á rekstri Þormóðs
ramma frá fyrra ári, og verði
landað sjö til átta þúsund tonnum
af fiski hjá fyrirtækinu á þessu
ári.
Eins og kunnugt er hefur Vaka
ekki samið við Vinnuveitendafé-
lag Siglufjarðar eða gert sér-
kjarasamninga við Siglufjarðar-
bæ. Eitt af því sem hefur valdið
tregðu í því efni er krafa fjár-
málaráðuneytisins um að gjald-
skrá Hitaveitu Siglufjarðar hækki
um 10 próserít sem liður í fjár-
hagslegri endurskipulagningu.
Vaka hefur falið ASÍ að ræða
það mál sérstaklega við stjórn-
völd.
„Ef forsendur samninganna
ganga upp, og þar set ég stórt
EF, þá hljóta þeir að létta eitt-
hvað á fólki. Við erum ekki á
leiðinni í verkfall, en ætlum að
sjá hvort við getum ekki haft ein-
hver áhrif á það að treysta for-
sendur samninganna, þannig að
þær haldi. Við vorum ekki að
setja út á samninginn sem slíkan
en okkur líkar ekki að sjá fram á
að þegar sé byrjað að brjóta þær
forsendur sem hann á að byggjast
á,“ segir formaður Verkalýðsfé-
lagsins Vöku. EHB
ryðja.
„Samkvæmt upplýsingum
Veðurstofu íslands er mars snjó-
þyngsti mánuðurinn svo þetta
hlýtur bara að vera rétt að
byrja,“ sagði ívar. ívar segir að
vegurinn upp eftir liggi gegnum
há snjógöng og þurfi vind því lít-
ið að hreyfa svo allt verði ófært á
ný.
ívar segir að eins og oft áður
hafi þurft að moka aðeins frá lyft-
unum, aðallega stólalyftunni og
nýju Hólabrautarlyftunni en stór-
virkar vélar séu ekki lengi að því.
„Hér er allt landslag horfið í
snjó, engin gil og hólar lengur
enda hef ég ekki séð svona mik-
inn snjó hér í 20 ár. Svæðið er því
slétt og fínt.“ Aðspurður um
hvort ekki skapist snjóflóðahætta
í Fjallinu sagði ívar að svo væri
ekki á sjálfu skíðasvæðinu en
hins vegar hafi komið fyrir að
smá flóð hafi fallið sín hvoru
megin við það.
Þrátt fyrir slæm veður um helg-
ar hefur aðsókn í Fjallið verið
nokkuð góð að sögn ívars. Að-
sóknin í miðri viku ræðst sömu-
leiðis nokkuð af veðri og hefur
vikan sem er að líða t.d. verið
alveg ónýt vegna ófærðarinnar
upp eftir. Nú um helgina ætti hins
vegar að vera kjörið tækifæri til
skíðaiðkunar fyrir almenning því
ekkert mót verður haldið þar,
hvorki í göngu né alpagreinum.
„Svo fer hver að verða síðastur
að koma í skíðaskóla til okkar
því námskeiðum fer senn að
ljúka," sagði ívar. Kennt er á
kvöldin í miðri viku og er hvert
námskeið fjögur kvöld, frá
mánudegi til fimmtudags. VG
Endurbótum á Hólakirkju er nú lokið:
Forsetí íslands meðal gesta í
hátíðarmessu á Hólum 11. mars
- kirkjumálaráðherra mun m.a. halda ávarp
tók jeppa
í gær var unnið að því að
ryðja veginn um Fagradal,
en þar féll mikið snjóflóð á
mánudag. Talið er að snjó-
flóðið hafí verið 400 metra
breitt og allt að 20 m þykkt
og kom það úr Grænafelli.
Er verið var að ryðja veginn
á mánudag féll smásnjóflóð í
Fagradal. Hættu menn þá við
verkið en skildu eftir hefil og
jeppa við veginn. Á þá féll síð-
an stóra flóðið, hefillinn stóð
það af sér en flóðið hreif með
sér jeppann og skildi hann eft-
ir á hvolfi, langt neðan vegar-
ins. í gær var orðið fært beggja
vegna snjóflóðsins og var fólk
ferjað milli Egilsstaða og
Reyðarfjarðar, þvf var ekið að
snjóflóðinu og síðan var geng-
ið yfir það.
Mikil ófærð var fyrir austan
í gær, en unnið að því að ryðja
vegi. 1M
Miklum endurbótum á Hóla-
kirkju er nú lokið og þeim
áfanga verður fagnað með
sérstakri hátíðarmessu á Hól-
um sunnudaginn 11. mars nk.
kl. 14. Viðstaddir verða m.a.
forseti íslands, Vigdís Finn-
bogadóttir og Óli Þ. Guð-
bjartsson, dóms- og kirkju-
málaráðherra.
Á undanförnum árum hafa far-
ið fram gagngerar endurbætur á
Hólakirkju og kirkjugarðinum.
Þá var sett upp nýtt orgel í kirkj-
una í desember sl., sem smíðað
var í Danmörku. Orgelið, sem er
beggja megin við dyrnar inn í
kirkjuna, var smíðað sérstaklega
fyrir Hólakirkju. Sigurður
Guðmundsson, vígslubiskup,
sagði í samtali við Dag að orgelið
þætti hljómfagurt og ánægja væri
með hvernig til hefði tekist.
Vert er að geta þess að altaris-
brík kirkjunnar, sem verið hefur
í viðgerð á Þjóðminjasafninu í
Reykjavík á fjórða ár, var nýlega
komið fyrir í kirkjunni. Reyndar
var hluti af altarisbríkinni settur
upp fyrir Hólahátíð sl. sumar en
stærstur hluti hennar kom í des-
ember sl.
„Ég held að sé samdóma álit
allra að vel hafi til tekist með
endurbyggingu á kirkjunni sjálfri
og þá var kirkjugarðurinn lagað-
ur sl. sumar og gerður mjög
skemmtilegur. Teknir voru fimm
legsteinar úr garðinum, sem lágu
undir skemmdum, þeir hreinsað-
ir upp og nú er verið að setja þá
upp á vegg í turninum. Meðal
annarra eru þarna legsteinar
tveggja síðustu biskupanna,
Árna Þórarinssonar og Sigurðar
Stefánssonar,“ sagði Sigurður.
Séra Hjálmar Jónsson á Sauð-
árkróki þjónar fyrir altari í hátíð-
armessunni og fólk úr kirkjukór-
Um í sýslunni syngur. Nú stendur
yfir námskeið Hauks Guðlaugs-
sonar, söngmálastjóra Þjóðkirkj-
unnar, með söngfólki og organ-
istum í Skagafirði. Organistarnir
spila í hátíðarmessunni og fyrir
hana og á eftir.
Óli Þ. Guðbjartsson, dóms- og
kirkjumálaráðherra, flytur ávarp
í messulok og það sama gerir
Sigurður Guðmundsson, vígslu-
biskup.
Að aflokinni hátíðarmessu
verður gestum boðið til kaffi-
drykkju í húsnæði bændaskólans.
óþh