Dagur - 24.03.1990, Síða 16
16 - DAGUR - Laugardagur 24. mars 1990
'I dagskrárkynning
Sjónvarpið, laugardagur kl. 23.25:
Taggart mœttur
Já, hinn góökunni lögregluforingi Jim Taggart er mættur til leiks.
Sjónvarpið sýnir nýja skoska sakamálamynd sem nefnist Tvö-
föld tvísýna (Double Jeopardy). Kona finnst látin og allt bendir
til sjálfsvígs en systir hennar er á ööru máli. Taggart fer á stúf-
ana ásamt aðstoðarmanni sínum og málið reynist ekki einfalt.
Stöð 2, laugardagur kl. 21.20:
Hrópað á fretsi
Kvikmynd vikunnar er Hrópað á
frelsi (Cry Freedom), raunsæ
lýsing á því ófremdarástandi
sem ríkir í mannréttindamálum
í Suður-Afríku. Söguþráður
myndarinnar er í stuttu máli sá
að Woods, frjálslyndur ritstjóri,
uppgötvar hið rétta eðli aðskiln-
aðarstefnunnar og hve stjórn-
völd ganga langt í ofbeldisað-
gerðum gegn svertingjum. Helsti
áhrifavaldurinn í þessum um-
skiptum Woods er ungur blökku-
mannaleiðtogi, Steve Biko að
nafni. Leikstjóri er Richard Att-
enborough en með aðalhlut-
verk fara Kevin Kline og Denzel
Washington.
Rós 1, laugardagur kl. 15.00:
Tónelfur
Tónelfur er þáttur starfsmanna Tónlistardeildar Útvarpsins. í
þættinum er boðið upp á tónlistarefni af ýmsum toga og umfjöll-
un um tónlist og tónlistarmálefni. Meðal efnis er umfjöllun um
tónleikaviðburði og umsagnir um tónleika, fréttir úrtónlistarlífinu
og útskýringar á orðum og hugtökum í tónlist. Pá heldur tónlist-
armaður stutt erindi um sér hugleikið tónlistarmálefni og fjöl-
breytt tónlist er leikin. Tónlistargetraunin hefur vakið athygli en
þar er eingöngu spurt um íslenska tónlist af ýmsum gerðum og
hljómplata með íslenskri tónlist í boði fyrir heppinn hlustanda.
Sjónvarpið, sunnudagur kl. 22.20:
Hamskiptin
Hamskiptin (Metamorphosis) er
bresk sjónvarpsmynd frá árinu
1987 byggð á hinni víðfrægu og
stórbrotnu sögu eftir Franz
Kafka. Eins og þeir sem hafa
lesið söguna vita fjallar myndin
um líðan og hegðan manns að
nafni Gregor Samsa, en hann
vaknar einn morguninn í væg-|
ast sagt ankannalegu ástandi.j
Fjölskylda hans er ekki á eitt
sátt um hvernig bregðast skuli
við þessum hamskiptum. Með
aðalhlutverk fara Tim Roth,
Gary Olsen, Linda Marlowe og'
Saskia Reeves. SSí
ra
dagskrá fjölmiðla
Sjónvarpið
Laugardagur 24. mars
14.00 íþróttaþátturinn.
14.00 Meistaragolf.
15.00 Enska knattspyman: QPR-Nott,-
ingham Forest. Bein útsending.
17.00 íslenski handboltinn. Bein útsend-
ing.
18.00 Endurminningar asnans (7 og 8).
18.25 Dáðadrengurinn (8).
18.50 Táknmálsfréttir.
18.55 Fólkið mitt og fleiri dýr (3).
19.30 Hringsjá.
20.30 Lottó.
20.35 '90 á stöðinni.
20.55 Allt í hers höndum.
21.20 Fólkið í landinu.
Myndskurðarlist í Miðhúsum.
Inga Rósa Þórðardóttir spjallar við Hall-
dór í Miðhúsum, bónda á Héraði.
21.45 Litli sægarpurinn.
(Touch the Sun: Captain Johno.)
Áströlsk sjónvarpsmynd frá árinu 1987.
Aðalhlutverk John Waters, Damien Walt-
ers og Rebecca Sykes.
í sjávarþorpi í Suður-Ástralíu býr heym-
arskertur og málhaltur drengur sem á í
ýmsum erfiðleikum vegna fötlunar
sinnar. Hann eignast vin sem á við svipuð
vandamál að etja.
23.25 Tvöföld tvísýna.
(Double Jeopardy.)
Ný skosk sakamálamynd um störf lög-
reglumannsins Jim Taggart. Kona finnst
látin og allt bendir til sjálfsmorðs en syst-
ir hennar er á öðm máli.
00.45 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Sjónvarpið
Sunnudagur 25. mars
14.10 Youssou'n Dour - Söngvari frá
Senegal.
Kanadísk mynd um söngvarann þekkta
frá Senegal.
15.10 Ferill dansaranna Fonteyns og
Nureyevs.
Bresk heimildamynd um dans- og lífsferil
þessa heimsfræga listafólks.
16.40 Kontrapunktur.
Áttundi þáttur af ellefu.
Að þessu sinni keppa lið íslendinga og
Norðmanna öðm sinni.
17.40 Sunnudagshugvekja.
17.50 Stundin okkar.
18.20 Litlu Prúðuleikararnir (3).
18.50 Táknmálsfréttir.
18.55 Fagri-Blakkur.
19.30 Kastljós á sunnudegi.
20.35 Frumbýlingar.
(The Alien Years.)
Ástralskur myndaflokkur í sex þáttum.
21.30 Að láta boltann tala.
Geir Hallsteinsson handknattleiksmaður.
Hilmar Oddsson spjallar við Geir Hall-
steinsson fyrrum handboltastjörnu úr FH.
Svipmyndir úr ýmsum leikja hans verða
sýndar og leitað álits með- og mótherja
hans í gegnum árin.
22.15 Myndverk úr Listasafni íslands.
Sumarnótt - Lómar við Þjórsá, olíumál-
verk eftir Jón Stefánsson (1881-1962).
22.20 Hamskiptin.
(Metamorphosis)
Bresk sjónvarpsmynd frá árinu 1987
byggð á smásögu eftir Franz Kafka.
Aðalhlutverk Tim Roth, Gary Olsen,
Linda Marlowe og Saskia Reeves.
Myndin fjallar um líðan og hegðan manns
sem vaknar einn morgun í ankannalegu
ástandi. Fjölskylda hans er ekki á eitt sátt
um hvemig bregðast skuli við.
23.50 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Sjónvarpið
Mánudagur 26. mars
17.50 Töfraglugginn.
18.50 Táknmálsfréttir.
18.55 Yngismær (79).
19.20 Leðurblökumaðurinn.
19.50 Bleiki pardusinn.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Brageyrað.
Lokaþáttur.
20.40 Roseanne.
21.05 Svona sögur.
Meðal efnis: Viðtöl við eyðnisjúkling og
fjölskyldu hans. Fjallað er um slysagildru
í umferðinni. Myndabók úr ævi konu
skoðuð.
Umsjón Stefán Jón Hafstein.
21.40 íþróttahornið.
Stöð 2 sýnir Snákagrenið (Nest of Wipers) á laugardagskvöld kl. 23.55.
Þetta er ítölsk mynd í djarfara lagi og þar af leiðandi stranglega bönnuð
börnum. Myndin fjallar um fjölskyldu. Móðirin er í ástarsambandi við
bekkjarfélaga sonarins og sonurinn gerir sér dælt við píanónemanda
móður sinnar.
Fjallað verður um íþróttaviðburði helgar-
innar.
22.05 Að stríði loknu (8).
(After the War.)
Örlagavindar.
23.00 Ellefufréttir.
23.10 Þingsjá.
Umsjón Árni Þórður Jónsson.
23.30 Dagskrárlok.
Stöð 2
Laugardagur 24. mars
09.00 Með afa.
10.30 Jakari.
10.35 Glóálfarnir.
10.45 Júlli og töfraljósið.
10.55 Denni dæmalausi.
11.20 Perla.
11.45 Klemens og Klementína.
12.00 Popp og kók.
12.35 Foringi úlfanna.
(Boss der Wölfe.)
Úlfurinn hefur um aldir verið tákn hins
grimma og slóttuga og af mörgum álitinn
slægvitur. Nú er svo komið, a.m.k. í Evr-
ópu, að úlfurinn er nær útdauður.
13.30 Frakkland nútímans.
(Aujourd'hui en France.)
14.00 Ópera mánaðarins.
La Gioconda.
17.00 Handbolti.
17.45 Falcon Crest.
18.35 Heil og sæl.
19.19 19.19.
20.00 Sérsveitin.
(Mission: Impossible.)
20.50 Ljósvakalíf.
(Knight and Daye.)
21.20 Kvikmynd vikunnar.
Hrópað á frelsi.#
(Cry Freedom.)
Söguþráður myndarinnar er sá að Woods,
frjálslyndur ritstjóri, uppgötvar hið rétta
eðli aðskilnaðarstefnunnar og hve stjórn-
völd ganga langt í ofbeldisaðgerðum
gegn svertingjum. Helsti áhrifavaldurinn
í þessum umskiptum Woods er ungur
blökkumannaleiðtogi, Steve Biko að
nafni.
Aðalhlutverk: Kevin Kline og Denzel
Washington.
Bönnuð börnum.
23.55 Snákagrenið.#
(Nest of Wipers.)
ítölsk mynd í djarfara lagi sem fjallar um
mæðgin sem eru afkomendur yfirstéttar-
fjölskyldu og búa nú í niðurníddu ættar-
setri fjölskyldunnar. Mikil ringulreið
skapast í lífi þeirra þegar móðirin hefur
ástarsamband við bekkjarfélaga sonarins
og sonurinn fer að gera sér dælt við
píanónemanda móður sinnar.
/ þættinum Fólkið i landinu sem Sjónvarpið sýnir á laugardagskvöld ræð-
ir Inga Rósa Þórðardóttir á Egilsstöðum við hagleiksfólkið að Miðhúsum
á Héraði.
Aðalhlutverk: Omeila Muti, Senta Berger
og Capucine.
Stranglega bönnuð börnum.
01.25 Dr. No.
James Bond er fenginn til þess að rann-
saka kaldrifjað morð á breskum erindreka
og einkaritara hans. James kemst að því
að þessi morð eru aðeins hlekkir í langri
fólskuverkakeðju.
Aðalhlutverk: Sean Connery, Ursula
Andress, Jack Lord, Joseph Wiseman og
John Kitzmiller.
Bönnuð börnum.
03.20 Dagskrárlok.
Stöð 2
Sunnudagur 25. mars
09.00 í Skeljavík.
09.10 Paw, Paws.
09.30 Litli folinn og félagar.
09.55 Selurinn Snorri.
10.10 Þrumukettir.
10.30 Mímisbrunnur.
11.00 Skipbrotsbörn.
(Castaway.)
11.30 Dotta og hvalurinn.
12.40 Listir og menning.
Heimur Peter Ustinovs.
13.30 íþróttir.
16.50 Fréttaágrip vikunnar.
17.10 Umhverfis jörðina á 80 dögum.
(Around The World In Eighty Days.)
18.40 Viðskipti í Evrópu.
(Financial Times Business Weekly.)
19.19 19.19.
20.00 Landsleikur.
Bæirnir bítast.
20.55 Lögmál Murphys.
(Murphy's Law.)
21.50 Fjötrar.
(Traffik.)
Fimmti hluti.
22.40 Listamannaskálinn.
(The South Bank Show.)
New World Symphony.
23.35 Furðusögur IV.
(Amazing Stories IV.)
Þetta eru þrjár stuttar gamansamar
spennumyndir úr furðusagnabanka Stev-
ens Spielberg.
Aðalhlutverk: Joe Seneca, Lane Smith,
Louis Giambalvo, John Scott Glough og
Lisa Jane Persky.
Bönnuð börnum.
00.50 Dagskrárlok.
Stöð2
Mánudagur 26. mars
15.40 Reykur og Bófi 3.
(Smokey and the Bandit 3.)
Stórskemmtileg gamanmynd.
Aðalhlutverk: Burt Reynolds, Veronica
Gamba, Jackie Gleason og Paul Wiliams.
17.05 Santa Barbara.
17.50 Hetjur himingeimsins.
18.15 Kjallarinn.
18.40 Frá degi til dags.
19.19 19.19.
20.30 Dallas.
21.25 Hvað viltu verða?
I þessum þáttum verða kynntar ýmsar
starfsgreinar sem ungum íslendingum
standa til boða eftir að skyldunámi lýkur.
22.10 Morðgáta.
(Murder, She Wrote.)
22.55 Óvænt endalok.
(Tales of the Unexpected.)
23.20 Armur laganna.
(Code of Silence.)
Chuck Norris í hlutverki einræna lög-
regluþjónsins sem er sjálfum sér nógur. í
samskiptum sínum við glæpagengi göt-
unnar beitir hann sínum eigin aðferðum
og hirðir ekki um hefðbundnar starfsað-
ferðir lögreglunnar.
Stranglega bönnuð börnum.
01.00 Dagskrárlok.